NT


NT - 23.04.1985, Síða 25

NT - 23.04.1985, Síða 25
Gff Þriðjudagur 23. april 1985 25 Knattspyrnan í Vestur-Þýskalandi: Bayern lá í Hamborg - og Bremen vann Bochum og á möguleika á toppsætinu - Lárus góður-Jafnt hjá Atla - Magnús ekki með - Stuttgart tapaði ■ Mark McGhee skoraði glæsimark gegn Bayern Miinchen, og tryggði liði sínu, Hamburger Sportverein þar með sigur. Þessi eitilharði Skoti hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði HSV í vetur, en líklegt er að frammistaða hans nú um helgina hafi gert strik í þann reikning. Hann meiddist þó í leiknum, svo allt getur gerst í því efni. ■ Jóhann fngi Gunnarsson: Nær hann meistaratitlinum í V-Þýskalandi í vetur ? Handboltinn í V-Þýskalandi: Frá Gudmundi Karlssyni frcltamanni NT í V-Þýskalandi: ■ Eftir leiki helgarinnar opn- aðist fyrsta deildin hér í knatt- spyrnu til muna, og mikil spenna ríkir nú á toppi, um miðbik og á botni deildarinnar. Tæplega tvö hundruð þúsund áhorfendur sáu 28 mörk í níu leikjum. Mörkin á tímabilinu eru því orðin 861. Nokkrir leik- menn og þrír dómarar fengu 6 í einkunn. Eini munurinn þar er sá að dómurum er ekki hægt að skipta útaf. Aðalleikurinn um helgina var sigur HSV á Baycrn Munchen, og munaði þar miklu fyrir toppliðið að missa af tveim- ur stigum, Bremcn er einu stigi á eftir og á leik til góða. Hamborg-Bayern Munchen .. 2-1 í toppleik helgarinnar í orðs- ins fyllstu merkingu sáu tveir útlendingar um að „jarða“ Bay- ern Múnchen. 62 þúsund áhorf- endur fengu nóg fyrir peningana sína. 5. mínúta: Belginn Pless- ers náði boltanum á miðjunni af Mattheus, hristi hann af sér og gott skot hans af 25 metra færi söng í netinu. Överjandi fyrir Pfaff í markinu. Bayern átti næsta færi, cn Nachtwei skaut upp á bílastæði af sex metra færi. 19. rnínúta: Wohlfart átti góðan skalla að marki, en Kaltz bjargaði. 25. mínúta: Skotinn McGhee keyrði upp hægri kantinn, „saltaði" Pfúgler og sendi frábæran bananabolta frá vinstra vítateigshorninu í vinkil- inn fjær. Frábært mark. Aðeins níu mínútum síðar var McGhee að fara út af vegna meiðsla. Schröder kom í hans stað. 40. mínúta: Augenthaler átti gott skot af þrjátíu metra færi, en rétt framhjá. 43. mínúta: Eftir hornspyrnu frá Kaltz skallaði Schröder í slá Bayernmarksins. Bayern kom sterkara til síðari hálfleiks, og á 50. mínútu skall- aði Wohlfart boltann í netið, eftir að Stein markvörður hafði hálfvarið skot Dremmlers. Bay- ern 'átti síðan leikinn án þess að skapa sér veruleg færi. Matt- heus og Lerby áttu þó skot rétt framhjá. 86. mínúta: Mathy hermdi eftir Nachtwei, og skaut af sex metra færi langt yfir. Lattek þjálfari Bayern sagði á blaðamannafundi eftir leikinn. „Ef maður brennir af slíkum dauðafærum eins og við gerðum í dag getur maður ekki unnið. HSV skoraði tvö mörk úr þrern- ur færum. Við vorum betra liðið“. - Hlátur fréttamanna. „Já hlæið þið bara í rólegheit- um. Ef við spilum slíkan varnar- bolta í Múnchen eins og Ham- burger gerði í dag, kæmi enginn á völlinn.“ Dússeldorf-Mannheint . . 1-1 í frekar slökum leik deildu Atli og félagar stigum með Mannheim sem ekki hefur tap- að leik í seinni umferðinni. Dieter Brei. hinn nýi þjálfari Dússeldorf hafði reynt að kveikja bjartsýni í brjóstum sinna manna fyrir leikinn, en það tókst ekki betur en þetta. Dússeldorf sótti stíft en fann ekki leið í gegnum múrinn frá Mannheim. Aðeins tvö færi í fyrri hálfleik, og það fyrra átti Mannheim. 43. mínúta: Gau- dino skallaði af stuttu færi en Greinar varði glæsilega. 45. mínúta: Eftir fallega sókn skall- aði Thiele boltann í netið, en dómarinn dæmdi rangstöðu. Á fyrstu tíu mínútu seinni hálfleiks komu mörkin. 47. mín- úta: Fach var felldur innan víta- teigs, og Bommer skoraði úr vítaspyrnunni. Nú sneri Mann- heim sókn í vörn, og á 55. mínútu skoraði Tsionanis hinn júgóslavneski með skalla 1-1, og þar við sat, því hvorugu liðinu tókst að skapa sér færi það sem eftir lifði leiks. Atli átti frekar slakan leik Kiel enn á toppnum - eftir góðan sigur gegn Alfreð og félögum - Alfreð góður - tap og fallhætta hjá Sigga Sveins Frá Guðmundi Karlssyni frctlamanni NT í V-Þýskalandi: ■ Tveir toppleikir voru hér um helgina í 1. deildinni í hand- knattleik, er fjögur efstu liðin léku innbyrðis. Lið Jóhanns Inga Gunnarssonar þjálfara sigraði Alfreð Gíslason og fé- laga í Essen 21-19, og er þar með efst í deildinni og á góða möguleika á meistaratitilinum þegar fjórum umferðum er ólokið. Gummersbach á góða möguleika einnig, er í öðru sæti eftir sigur á Grosswalsstadt. Essen er að mestu búið að missa af lestinni. Kiel-Essen.................21-19 Talað var um að 20 þúsund áhorfendur hefðu viljað sjá leikinn, en einungis 7 þúsund fengu miða. Stemmningin var giturleg, og leikstjórnandi Kiel- arliðsins, Pólverjinn Panasz skoraði tvö fyrstu mörkin. Kiel jók síðan forskotið í 7-3, en þá brá Essen á það ráð að taka Panasz úr umferð. Þrátt fyrir það tókst liði Jóhanns Inga með dyggri aðstoð áhorfenda áð halda forskotinu, og með marki beint úr aukakasti skoruðu þeir sitt 13. mark. Staðan í hálfleik 13-8. Á tímabili í síðar: hálfleik leit út fyrir að Essen ætlaði að jafna leikinn, en þá hafði þreniur leikmönnum Kiel verið vikið af velli. En allt kom fyrir ekki. Þegar sex mínútur voru eftir var staðan 21-14 Kiel í hag. Essen skoraði 'síðustu fimm mörkin, en nær komust þeir ekki, Alfreð og félagar. Bestu menn Kielarliðsins voru Wiemann sem skoraði 9 mörk og Schwenker sent skor- aði 6. Bestu menn Essen voru að vanda Fraatz og Alfreð, og var þeirra stíft gætt allan leik- inn. Fraatz skoraði 8 mörk, Alfreð 4. Með þessum sigri hélt Itð Jóhanns Inga forystunni, en Essen er trúlega úr leik hvað meistaratignina varðar. Um næstu helgi verður nánast spilað um titilinn, þá mætir Kiel Gummersbach í Gummers- bach. Grosswallstadt- Gummersbach ..........12-13 Með stuttu millibili varði Thiele í marki Gummersbach þrjú vítaköst, og því náði hans lið að merja sigur. Langbestu menn vallarins voru markverð- irnir, Roch og Thiele, sem buðu upp á markvörslu á heimsmæli- kvarða. Húttenberg-Lemgo . . . 29-23 Lemgo hélt í Húttenberg aðeins í fyrri hálfleik. Sigurður Sveinsson var tekinn úr umferð allan leikinn, og því varð sóknar- leikur Lemgo hálfvandræðaleg- ur. Vörnin og markvarslan réðu samt úrslitum í þessum leik, en þessir tveir þættir urðu L.emgo að falli. Staðan 12-12 í hálfleik, 18-20 eftir 45 mínútur, en síðan stungu heimamenn af. Sigurður Sveinsson skoraði 7 mörk, þar af 3 víti, og átti þokkalegan leik. „Þetta var slæm helgi fyrir Lemgo, þar sem Handewitt og Rheinichsdorfer Fuchse sigruðu bæði á útivelli. Við erum komnir í bullandi fallhættu. Úr síðustu fjórum leikjunum verðum við að ná fimm stigum ef við eigum að hanga,“ sagði Sigurður í samtali við NT. Staða efstu liða er þannig, að Kiel er efst með 34 stig eftir 22 leiki. Gummersbach hefur 23 stig eftir jafnmarga leiki, og Essen hefur 30 stig eftir 22 leiki. Grosswallstadt hafa 23 stig í fjórða sæti eftir 22 leiki. Húttenberg er í tíunda sæti með 17 stig eftir 22 leiki, en lið Atla Hilmarssonar, TURA Bergkamen hefur 16 stig eftir 21 leik. Lemgo hefur jafnmörg stig eftir 22 leiki og sama gildir um Flandewitt. Marsenheim er neðst með 15 stig eftir 21 leik. Tvö neðstu lið falla beint, en þriðja neðsta lið leikur við þriðja efsta lið fyrstu deildar um, fyrstudeildarsæti að ári. Þýska knattspyrnan: eins og flestir leikmenn Dúss- eldorf, og náði ekki að skapa sér færi úr þeim fáu boltum sem til hans komu. Því má þó ekki gleyma að Atli nefbrotnaði um síðustu helgi, og hefðu sjálfsagt ekki allir getað leikið nú. En Atli er hörkutól, barðist vel, en fékk fáa bolta. Gladbach-Úrdingen.........0-0 í hörmulega lélegum leik var Lárus Guðmundsson eins og Ijósið sem kveikt varð á í myrkr- inu. En sá maður sem mesta athygli vakti í leiknum var dóm- arinn, sem næstum því alltaf flautaði tóma vitleysu. 19.mín- útu Scháfer gaf fyrir á Lárus, en Borowka bjargaði á síðustu stundu. Skömrnu síðar önnur fyrirgjöf, en áður en Lárus náði til Itennar kýldi Súde mark- vörður boltann frá. 0-0 í hálfleik og síðari hálfleikurinn leið áfrant rneð svipuðunt hraða. En dómarinn, sem á sínum tíma varð frægur er hann rak tvo markverði útaf nteð sköntmu millibili í annarri deild, hélt uppi stemmningunni. 55. mínúta: Hannes felldi Lárus gróflega innan vítateigs, en ekki flautaði dómarinn. 74. mínúta: Scháfer dauðafrír, en af fimrn metra færi skaut hann nærri því hornfánann niður...... Lárus átti góðan leik, og. hann ásamt tveimur öðrum fengu bestu einkunn þrjá. Aðrir fengu verri einkunn. Bochum-Bremen.............1-3 í þokkalegum leik sigraði Bremen Klaus Fischerog félaga í Bochum sanngjarnt. Ef Brem- en tekst að sigra eða ná jafntefli gegn Köln á fimmtudag, í frest- uðum leik, ná þeir efsta sæti deildarinnar í fyrsta sinn á tíma- bilinu. Mörk Bremen skoruðu Oswald (sjálfsmark), Möhlm- ann og Rudi Völler, hans 20. mark á tímabilinu. Mark Boch- um skoraði Benatelli. Schalke-Köln ..............2-3 Heppnissigur Kölnar á Schalke, því fimrn mínútum fyr- ir leikslok var Schalke yfir 2-1 Mörk Schalke skoruðu Taúbcr og Hartmann. Mörk Kölnar skoruðu Klaus Allofs tvö og Littbarski eitt. Kaiserslautern-Dortmund ... 5-0 Dortmund sem í sex undan- förnum leikjunt hafði náð í II stig, var ekki svipur hjá sjón, kannski vegna þess að Eric Ribbeck sem reif þá upp úr öldudalnum hefur ákveðið að gerast bjálfari hjá Leverkusen á næsta tímabili. Mörk Kaisers- lautern skoruðu Brehme tvö, Lang, Hoss og Thomas Allofs eitt hver. Frankfurt-Stuttgart ........2-0 í slökum leik féllu tvö falleg mörk. Hið fyrra skoraði Kraaz með skoti af 30 metra færi beint í vinkilinn, og hið seinna Tobol- lik beint út aukaspyrnu. Karlsruher-Braunschwieg .. . 4-1 I leik tveggja slökustu liða deildarinnar komu fimm mörk. Fyrir Karlsruher skoruðu Boys- en, Gúnther, Zahn og Kúnst. Kindermann skoraði fyrir Braunschweig Magnús Bergs lék ekki með fremur venju. Leverkusen-Bielefeld.......-1-1 Með sunnudagsskoti kom Pinn- inn Rautianan Bielefeld yfir, en Kóreumaðurinn Bum Kun Cha jafnaði í síaðri hálfleik. Bayern 28 16 7 5 64 36 39 Bremen 27 15 8 4 72 41 38 Gladbach 27 13 7 7 64 38 33 Hamborg 26 12 8 6 48 37 32 Köln 27 14 3 10 52 46 31 Urdingen 27 11 7 9 47 41 29 Bochum 27 10 9 8 44 40 29 Mannheim 27 9 11 7 36 39 29 Stuttgart 28 12 4 12 69 49 28 Frankfurt 28 9 9 10 53 56 27 Leverkusen 28 8 10 10 42 41 26 Schalke 27 10 6 11 51 54 26 Kaiserslautern 25 8 9 8 35 43 25 Dortmund 27 10 3 14 39 53 23 Diisseldorf 27 6 8 13 43 58 20 Bielefeld 28 4 12 12 33 54 20 Karlsruher 27 4 9 14 38 70 17 Braunschwieg 27 7 2 18 31 65 16 Rudi Völler, skorar grimmt fyrir Bremen og landsliðið. Völler markahæstur Frá Guðmundi Karlssyni frcttamanni NT í V-Þýskalandi: ■ V-þýski landsliðsmaður- inn Rudi Völler skoraði sitt tuttugasta mark í 1. deild- inni í knattspyrnu hér um helgina. Hann er marka- hæstur, en Kölnarmaðurinn Klaus AUofs kemur næstur með 18 mörk, eftir að hafa skorað tvö nú um helgina. Þeir félagar mætast á fimmtudag í frestuðum leik. Þessir eru efstir: Rudi Völler, Bremen ... Klaus Allofs, Köln....... Karl Allgöver, Stuttgart Taiiber, Schalke......... Frank Mill, Gladbach .. Klaus Fischer, Bochum . Thomas Allofs, Kaisersl

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.