NT - 28.04.1985, Síða 8
Sunnudagur 28. apríl 1985 8
kerin í Straumsvík haldið áfram að
mala sitt gull. Á síðasta ári var
framleiðslan rúmlega 83 þúsund tonn
og þrátt fyrir harða samkeppni á
heimsmarkaðinum tókst að selja tæp
79 þúsund tonn af ál og álmelmi.
Frá upphafi hefur rúmlega
þriðjungur af öllum sölutekjum ÍSAL
runnið til íslenska þjóðarbúsins. í
heild eru þetta um 371 milljónir
bandaríkjadala eða rúmlega 15 nrill-
jarðar íslenskra króna miðað við
gengi um síðustu áramót. Til
glöggvunar á tölum af þessari stærðar-
gráðu eru öll fjárlög íslenska ríkisins
fyrir þetta ár rúnrlega 25 milljarðar
króna.
Af þessari upphæð eru launa-
greiðslur til starfsmanna tæpir sex
milljarðar og greiðslur fyrir orku
rúmlega 3,3 milljarðar.
Álframleiðslan het'ur líka haft sín
áhrif hvað heildarútflutning iðnaðar-
vara snertir. Pannig var hlutdeild áls,
60 prósent af öllum útflutningi iðnað-
arvara árið 1983 og var að meðaltali
57,3 prösent á árunum 1977 til 1983.
Hár starfsaldur
Það eru og margir sem leggja hönd
á plóginn. Nú vinna um 600 manns í
álverinu og flestir þeirra hafa starfað
þar lengi. Þegar við röltum á milli
vinnsluhúsanna og tókum menn tali
virtust flestir ef ekki allir. sem talað
var við, ánægðir rncð hlutskipti sitt.
Launin eru há og þrátt fyrir hávaða
og óþrif er andrúnrsloftið meðal
starfsmanna gott.
Hár starfsaldur í álverinu segir
einnig sína sögu.
Rafmagn í
föstu formi
Fyrir þá, sem ekki þekkja til fram-
leiðslunnar á áli, gengur hún þannig
fyrir sig að álið er unnið úr súráli, en
það er aftur unnið úr báxíti. Súrálið
kemur hingað til lands í 30-40 þúsund
tonna skömmtum frá Ástralíu þar
sem er að finna mikla báxítnámur.
Geysimikið magn af raforku þarf til
þess að kljúfa súrálið, sem í rauninni
er efnasamband, og því er ál stundum
nefnt rafmagn í föstu formi. Auk
raforkunnar þurfa að koma til mörg
efni til að framleiða ál. í kerunum er
að finna krýolít, álflúorið og kolefni,
auk súráls. í þessa blöndu er hleypt
B Kenkálamir tveir eru m kílómetri 6 lengd hvor m sig. Kerin standa i tvöfaldri róðogem eins konar hjórtu verksmiðjunnar því það er íþeim sem álið verður til.