NT - 03.05.1985, Page 3

NT - 03.05.1985, Page 3
 v,t J' s tKi’vt f ? Föstudagur 3. maí 1985 3 Tillaga um að hætta við byggingu ratsjárstöðva felld á Alþingi: Þrír þingmenn Framsóknar með en forsætisráðherra á móti Utanríkisráðherratúlkarafstöðu Alþingis sem grænt Ijós á framkvæmdir sem gætu hafist á þessu ári ■ Alþingi felldi í gær með 42 atkvæðum gegn 15 þings- ályktunartillögu Steingríms J. Sigfússonar Alþýðu- bandalagi og Kolbrúnar Jónsdóttur Bandalagi jafn- aðarmanna, um að falla frá hugmyndum um að reisa nýjar hernaðarratsjár- stöðvar á íslandi. Haraldur Ólafsson þingmaður Fram- sóknarflokksins í Reykja- vík sat hjá við atkvæða- greiðsluna, en áður hafði tillaga hans um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar verið felld með 43 atkvæð- um gegn 13 atkvæðum framsóknarmanna en einn þeirra var fjarstaddur. Það vakti athygli við atkvæða- greiðsluna að.þrír framSóknar- menn, þeir Páll Pétursson, Guð- ■ mundur Bjarnason og Ingvar Gíslason studdu tillögu Stein- gríms og Kolbrúnar. Gerðu þeir grein fyrir atkvæðum sínum og kváðust vilja taka af öll tvímæli um afstöðu sína til kjarnaþes w ^>0*' Wrtist' sem ætti aó’ festa Island í sessi sem herstOð-um ófyrirsjáanlegan túna. í öðru lagi töídu þeir að taka ætti tillit til vilja heimafólks fyrir austan og vestan en þar hefði komið fram mikil andstaða og áhyggjur «ml væntanlegum ratsjárstöðv- um. Þeir þingmenn .aðrir sem greiddu tillöfu Steingríms og Kolbrúnar atkvæði voru 8 þing- menn Alþýðubandalagsins, en 2 voru fjarstaddir, þingmenn Kvennalistans, og Kolbrún Jónsdóttir, sem jafnframt er flutningsmaður, var eini þing- maður BJ sem greiddi tillögunni atkvæði. Við atkvæðagreiðsluna um tillögu HaraldarÓlafssonar, um að vísa málinu til ríkisstjórnar- innar, sem var felld, gerði for- sætisráðherra Steingrímur Her- mannsson grein fyrir atkvæði sínu og sagði: „Á meðan hér á landi er eftirlitsstöð tel ég rétt að sú stöð sé sem allra best úr garði gerð til að gegna sínu hlutverki. Því eréghlynntur því að ratsjárstöðvar verði endur- reistar á Norðurlandi og Vest- fjörðum og endurbyggð á Suð- austurlandi, þannig að þaðan megi flytja það herlið sem þar er. Ég tel einnig slíkar stöðvar mikilvægar fyrir öryggi íslensks flugs. Eg mun því styðja að ratsjárstöðvarnar verði reistar." Jafnframt benti Steingrímur á að það væri óeðlilegt að Alþingi ákveði einstök atriði í fram- kvæmd varnarsáttmálans og að það væri hægt að gera slíkt með þingsályktun. Því styddi hann tillögu um að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar. Þingmenn Alþýðubandalags- ins gerðu sameiginlega grein fyrir atkvæðum sínum og sögðu ma. að þeir lýstu andstöðu sinni við útþenslu yfirráðasvæðis bandaríska herliðsins á íslandi og að kanna þyrfti afstöðu heimamanna á þeim svæðum þar sem framkvæmdir eru fyrir- hugaðar. Það kom fram hjá utanríkis- ráðherra, Geir Hallgrímssyni, eftir afgreiðsluna á Alþingi í gær að hann liti svo á að hún fæli í sér heimild til ríkisstjórnarinn- ar um að reisa umræddar rat- sjárstöðvar. Formleg beiðni hefur komið frá varnarliðinu um að fá að reisa stöðvarnar og þarf að svara henni innan tíðar. Taldi utanríkisráðherra að ákvörðun yrði tékin á næstu vikum og þá gætu íramkvæmdir jafnvel hafist á þessu ári. Týndi Garðbæingurinn: Skipulögð leit hófst I morgun ■ Hjálparsveifir úr Hafnarfirði, ásamt sveitum frá Kjalarnesi og víðar, hófu skipu- lagða leit í morgun að Reyni Smára Frið- geirssyni, 27 ára göml- um Garðbæingi, sem fór að heiman frá sér þann 13. apríl síðast- liðinn og hefur ekki sést síðan. Áherslan verður lögð á leit fyrir botni Hvalfjarðar en þar fannst bifreið Reynis Smára þann 14. apríl. Lögreglan í Hafnar- firði fór með leitarhund á svæðið í fyrradag, en varð einskis vísari. Reynir Smári er um 175 sentímetrar á hæð, svart- hærður með stutt hár. Þeg- ar hann fór að heiman var hann klæddur svartri rúllukragapeysu, bláum gallabuxum og svörtum skóm. Þeir sem kunna að hafa orðið varir ferða hans eftir 13. apríl eru beðnir um að láta rannsóknarlög- regluna í Hafnarfirði vita. ■ 1. maí var afhjúpaður minnisvarði um Jónas Jónsson frá Hrifhifyrir utan Arnarhvol. Austurbæjabíó: Hrafninn flýgur fyrir útlendinga - myndin fær lofsamlega dóma í Bandaríkjunum ^ ■ Hrafninn ílýgur, kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, verður sýnd í Austurbæjarbíói í sumar. Enskir skýringatcxtar verða á myndinni, og eru sýningarnar eink- um ætlaðar erlendum ferðamönn- um, svo og íslenskum námsmönn- um erlendis, sem dvelja heima aðeins yfir sumarmánuðina. Hrafninn hefur flogið víða að undan- förnu, og um þessar mundir er verið að sýna hana í almennum kvikmyndahúsum í Svíþjóð, Noregi, ísrael og Indlandi. Þá verður hún sýnd á aðaldagskrá kvik- myndahátíðarinnar í Tókýó í lok maí. Kvikmyndin er einnig sýnd um þessar mundir í þremur borgum Bandaríkjanna, Los Angeles, New York og Washington, og hefur hún hlotið lofsamlega dóma gagnrýnenda. Landeigendur smáir og stórir GIRPING ER VÖRN FYRIR VIÐKVÆMAN GRÓDUR Pú færð allar tegundir af GIRÐINGAEFNI í BYKO Járnstaurar, tréstaurar, gaddavír og girðinganet af öllu tagi. -x----- vvw BYGGINGAVORUVERZLUN BYKO KÓPAVOGS SF^ jQ SKEMMUVEGI 2 SÍMI:41000

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.