NT - 06.07.1985, Side 7
6. júlí 1985 7
Fjarstýrðir bíl-
skúrshurðaopnarar
■ „Við höfum selt a.m.k. hátt á
annað þúsund bílskúrshurðaopnara
frá upphafi, og nú seljum við svona
300 stykki á ári,“ sagði Jóhann Ólafs-
son, framkvæmdastjóri. „Eins og allt-
af þegar nýjungar eru kynntar hér á
landi, þá tekur langan tíma að öðlast
traust manna gagnvart hinni nýju
vöru. Fyrsta árið sem við fluttum inn
þessa opnara, þá seldust 6 stykki,
síðan seldust 12 stykki, og svo koll af
kolli. Nú er eftirspurnin sívaxandi og
þessi tæki eru í notkun um allt land.“
Að sögn Jóhanns eru GENIE-bíl-
skúrshurðaopnararnir bandarískir að
gerð, en Astra hóf innflutning á þeim
árið 1972. Með öllum búnaði kostar
fyrrnefndur opnari kr. 19.700, og
uppsetning kostar kr. 2.000. Vélin er
knúin rafmagni og hefur togkraft frá
3-70 kg og ræður því við allar þekktar
tegundir bílskúrshurða. Ef vélin getur
ekki lokað hurðinni fyllilega þ.e. ef
einhver hindrun er fyrir, þá opnast
hún aftur. Ef vélin er ónothæf af
einhverjum orsökunt t.d. vegna tíma-
bundins rafmagnsleysis, þá er auðvelt
að taka hana úr sambandi svo hægt sé
að opna upp á gamla mátann. Hægt
er að stilla fjarstýribúnaðinn þannig
að óviðkomandi getur ekki opnað.
Jóhann bætti því við að þar sern vélin
sjálf er varin innanhúss, þá hefur
veðurfarið engin áhrif á opnunarkerf-
ið, og hann sagði jafnframt að hann
vissi ekki til þess að GENIE-opnari
hefði bilað hér á landi í þessi 13 ár
sem liðin eru.
„Pað er mjög algengt að t.d. fólk
gefi öldruðum foreldrum sínum fjar-
stýrða bílskúrshurðaopnara, og svo
má geta þess að öryrkjar geta fengið
tæki hjá okkur, sem svo eru endur-
greidd af Tryggingarstofnun sam-
kvæmt mati,“ sagði Jóhann. „En ég
vil auðvitað ítreka að þessi búnaður
er ætlaður hverjum sem er.“
Hvað varðar viðhald og meðferð
GENIE-opnaranna, þá lagði Jóhann
áherslu á mikilvægi þess að hurðirnar
sjálfar séu í góðu lagi þ.e. að stundum
sæist mönnum ekki fyrir í sparnaðin-
um og keyptu járn sem bæru illa
þungar hurðir. Astra annast uppsetn-
ingu bílskúrshurðaopnaranna, eins
og áður er getið um, og svo almenna
viðgerðaþjónustu í sambandi við þá.
Fyrirtækið flytur einnig inn nýja teg-
und bílskúrshurða, sem njóta mikilla
vinsælda, og eru víða notaðar í svo-
kölluðum bílskýlum.
■ Fyrirtækið Astra flytur inn fjar-
stýrða bflskúrshurðaopnara af GEN-
IE-gerð.
ABOT
FOSTU-
DAGA
NYR
VALKOSTUR
Á útveggi Snorrahúsa hefur hingað tii verið hægt að fá m.a. Ióðrétta timburklæðningu,
glerfiberplötur með kvartsmulningi o.fl. Og enn aukast valkostir Snorrahúsa.
Nú framleiðir Húsasmiðjan Snorrahús með múrsteinshleðslum
ýmiss konar og notar f þær úrvals þýskan múrstein.
Hvort sem húsin eru stöðluð eða sérteiknuð með óskum hvers og eins, gefúr
múrsteinshleðslan stórkostlega möguleika.
Kynntu þér hinn nýja valkost.
Verið ávallt velkomin í Húsasmiðjuna.
LIFANDI
BLAÐ!
HÚSA
SMIÐJAINI
Súðavogi 3-5, 104 Reykjavik - Sími 687700
0
ÖRKIN