NT - 06.07.1985, Qupperneq 9
6. júlí 1985 9
< V* :** >:/w \* ’í» •
’; <;
$ 'v - í
-ííSíssí:: •■*"*■*! • •■ ■
‘.4^ *«£
< ’Ví 'í^WN "/' 4' * ' ' •■♦''•-' <ieM* ‘4< v '*< ->,
4\‘V . _ ; ■ «*
>•
^ *J5*\
•• , . ■ ■ /
?5iCi s=
444^
- .Ægr;
^iSKm
Bómullar-
peysa úr
cotton perlé
Stærðir 36 (38, 40, 42)
Efni: 11 (11, 12, 13) hnotur Cotton
Perlé eða Cotton Soft frá Patons. Hér
er notað Ijósbleikt, litur nr. 6662.
Prjónar: Prjónar nr. 3!4 og 4.
Mál: Brjóstmál 81 (86, 91, 97) cm,
peysumál 88 (94, 97,103) cm, sídd frá
öxlum 54 (55. 56, 57) cm, ermasaum-
ur 46 (46, 47, 47) cm.
Prjónafesta: Prjónafesta á prjóna nr.
4 er 22 L. og 36 umf. á 10 cm í
garðaprjóni.
Bak- og framstykki: (Bæði eins).
Fitjið upp á prjóna nr. 3 !4 87 (93, 97,
103) L. og prjónið brugðning, 1 L.
slétt og 1 L. brugðin í 6 cm. Aukið út
um 10 L. í síðustu umferðinni. Nú er
skipt yfir á prjóna nr. 4 og prjónað
garðaprjón þangað til stykkið mælist
46 (47, 48, 49) cm, endað þannig að
byrjað sé á næstu umferð frá réttunni.
Takið nú úr fyrir hálsmáli eins og hér
segir: Prjónið29 (31,32, 35) L. snúið
við og geymið afganginn af lykkjun-
um á aukaprjóni. Prjónið 1 umferð,
fellið af 1 L. við hálsmálið á næstu
umferð og í annarri hvorri umferð
alls 6 sinnum. Pá verða eftir á prjónin-
um 22 (24, 25, 28) L.
Prjónið nú án úrtakna þangað til
stykkið mælist 54 (55, 56, 57) cm og
endið með réttuna út fyrir næstu
umferð. Nú er tekið úr fyrir öxlum
með því að fella af 11 (12, 13, 14) L.
af í byrjun næstu umferðar eða við
handveginn. Prjónið eina urnferð og
fellið síðan af afganginn af L.
Með réttuna að eru síðan 39 (41,
43 , 43) L. á miðju stykki scttar á
aukaprjón, prjónið síðan hina öxiina
eins með mótsettum úrtökum.
Ermar: Fitjið upp á prjóna nr. 3 !4 39
(39, 41, 43) L. og prjónið brugðning
1 L. slétt og 1 L. brugðna í 6 cm,
aukið út um 16 L. á seinustu umferð-
inni. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 og
prjónið garðaprjón. Byrjið um leið
að taka út 1 L. báðum megin í níundu
umferð og síðan í 8. hverri umferð
þangað til það eru 89 (89, 93, 97) L.
á prjóninum. Prjónið þangað til
ermasaumurinn mælist 46 (46,47,47)
cm. Fellið þá laust af frá réttunni.
Frágangur: Pressið ekki. Saumið
saman hægri axlasaum. Takið uppfrá
réttunni á prjóna nr. 3!4, 18 L. niður
vinstra megin að framan, síðan 39
(41,41, 43) L. af prjóninum og takið
úr 2 L. jafnt yfir. Síðan eru prjónaðar
18 L. upp hægra megin að framan, 18
L. niður hægra megin í baki, teknar
upp 39 (41,41, 43) L. af prjóninum á
bakinu og um leið teknar úr 3 L. jafnt
yfir. Að síðustu eru 18 L. prjónaðar
upp vinstri bakhlið. Nú eiga að vera
145 (149, 149, 153) L. á prjóninum.
Prjónið nú brugðning 1 L. slétta og 1
L. brugðna í 4 cm. Fellið jafnt af í
brugðning.
Saumið saman axlasauminn og
hálskantinn. Leggið miðjuna á erm-
inni við ermasauminn og saumið
síðan ermarnar í. Saumið saman
hliðar og ermasauma.
■ Lauk-tómat kryddsulta í undirbúningi
Hellið í heitar niðursuðukrukkur
og skiljið eftir um það bil 1 cm borð
á krukkunum. Lokið þeim vandlega
og sjóðið í vatnsbaði í 15 mínútur.
Það er líka hægt að setja sultuna á
venjulegar krukkur og hella strax um
3-5 mm þykku lagi af vaxi yfir og loka
síðan krukkunni vel. Þessi uppskrift
gerir um það bil 5 bolla af sultu.
Ósoðið kryddsalat
2 xh bolli grófrifið hvítkál
1 bolli saxaður laukur
1 msk salt
1 epli, afhýtt og saxað
1 msk C-vítamínduft
1 bolli edik
Vi bolli sykur
12 negulnaglar
6 piparkorn
1 kanelstöng (5 cm)
Blandið saman í stóru sigti hvítkáli,
lauk og salti. Látið standa í 2 tíma.
Skolið undir rennandi vatni, látið
vatnið renna vel af og látið í stóra
skál.
Blandið saman í potti ediki, sykri,
negulnöglum, piparkornum og kanel-
stöng. Látið suðuna koma upp og
sjóðið þangað til sykurinn er bráðn-
aður, minnkið hitann og látið malla
án loks í 10 mínútur. Síið í gegnum
klæði yfir hvítkálsblönduna. Blandið
vel saman. Látið í krukkur og lokið
þeim. Kælið, geymið í ísskáp í upp-
undir 3 vikur. Þetta gerir uppundir 2
bolla af salati.
Lauk-tómata kryddsulta
1 stór dós tómatar, síaðir og saxaðir
smátt
8 stórir laukar, saxaðir
1 V2 bolli eplaedik
1 bolli sykur
1 tsk rauðar piparflögur
1 tsk sinnepsfræ
1 tsk salt
Vi tsk karrí
V4 tsk engiferduft
Va tsk múskat
Blandið saman öllurn efnunum í
stórum potti. Látið suðuna koma upp
og látið malla við lítinn hita án loks
þar til blandan er farin að þykkna,
eða um það bil 2 klukkutíma. Hrærið
oft í til að sultan brenni ekki við.
Ausið í heitar niðursuðukrukkur og
lokið strax. Sjóðið í vatnsbaði í 15
mínútur. Þessi uppskrift gerir um 4
bolla.
Gulrótapickles
8 bollar gulrótastrimlar (um 1 kg)
2 bollar eplaedik
1 Vi bolli kalt vatn
2 bollar sykur
1 msk negulnaglar
1 tsk piparkorn
2 kanelstendur (um 5 cm hver)
Sjóðið gulrótastrimlana í léttsölt-
uðu vatni í um það bil 5 mínútur eða
þangað til þær eru rétt soðnar, látið
renna af þeim. Blandið saman í potti
ediki, vatni og sykri. Leggið kryddið
í tvöfaldan grisjupoka og hnýtið fyrir.
Látið kryddpokann í pottinn og látið
suðuna koma upp. Takið af hitanum
og látið gulræturnar út í, látið lok á
og látið standa við herbergishita yfir
nótt.
Látið síðan suðuna koma upp á
aftur, minnkið hitann og látið malla
án loks í 3 mínútur. Fjarlægið krydd-
pokann. Pakkið gulrótunum í Vi lítra
niðursuðukrukkur, hellið yfir soði en
skiljið eftir 1 cm borð á krukkunni.
Lokið krukkunni strax. Sjóðið í
vatnsbaði í 10 mínútur.
Aprikósu og ananassulta
2 kg þurrkaðar aprikósur, saxaðar
1 dós ananaskurl, síað
1 appelsfna, afhýdd og söxuð
6 bollar sykur
safi úr 1 sítrónu
1 bolli grófsaxaðar hnetur
Leggið aprikósurnar í bleyti yfir
nótt í stóran pott og látið vatnið rétt
þekja aprikósurnar. Látið síðan suð-
una koma upp, minnkið hitann og
látið malla án loks í 20 mínútur.
Bætið út í ananas, appelsínu, sykri og
sítrónusafa. Látið suðuna koma upp
aftur og hrærið í til þess að leysa upp
sykurinn. Minnkið hitann og látið
malla án loks, hrærið í öðru hverju
þangað til sultan er orðin þykk. Takið
af hitanum og hrærið hnetunum sam-
an við.
Hellið sultunni í heitar niðursuðu-
krukkur og lokið strax. Ef krukkurn-
ar hafa ekki nógu þétt lok er 3-5 mm
vaxlag brætt ofaná. Þessi uppskrift
gerir um 12 bolla af sultu.
Tómatsósa
1 bolli edik
1 tsk negull
1 tsk sellerifræ
1 kanelstöng (um 5 cm)
2 stórar dósir niðursoðnir tómatar
1 laukur, saxaður
>/4 tsk cayenne pipar
1 bolli sykur
1 msk salt
Blandið saman í litlum potti, ediki,
negul, sellerifræi og kanél. Látið
suðuna koma upp, takið af hitanum
og látið til hliðar. Látið renna af
tómötunum, geymið safann. Saxið
tómatana smátt. Bætið nógu vatni
saman við safann af tómötunum til að
hafa 2 bolla og hellið honum í stóran
pott. Bætið út í tómötunum, lauk og
cayennepipar. Látið suðuna koma
upp og sjóðið án loks í 15 mínútur.
Merjið blönduna í blandara þangað
til hún er mjúk. Hellið henni síðan
aftur í pottinn og bætið við sykrinum.
Sjóðið án loks við meðalhita, í um
það bil 45 mínútur, hrærið oft í eða
þangað til blandan hefur minnkað um
helming.
Síið edikið og hendið kryddinu.
Bætið því síðan út í tómatblönduna
ásamt salti. Látið malla áfram, hrærið
oft í, í um það bil 30 mínútur eða
þangað til sósan er mjúk og þykk.
Ausið upp í heitar niðursuðukrukkur
og lokið þeim strax. Sjóðið í vatns-
baði í um það bil 10 mínútur. Þetta
gerir urn 3 bolla af sósu.