NT - 06.07.1985, Blaðsíða 15
LU
■ Í Hárprýði fást upprunalegir kola-
ofnar af ýmsum gerðum, Birna
Björnsdóttir stendur hér við einn
þeirra.
Upprunalegir
kolaofnar
■ Það verður æ algengara að húseig-
endur geri ráð fyrir svokölluðum
kolaofnum eða arineldstæðum í íbúð-
arhúsnæði eða sumarbústöðum. Þó
að enginn geti efast um hagnýtt gildi
þess að hafa varinn eld innan veggja,
þá er fremur líklegt að tilgangurinn
hjá þeim er að byggja eða kaupa
þvíumlíkt sé að skapa friðsæl og
hlýleg geðhrif. Kolaofnar og arnar
eru jafn ólíkir eins og fjöldi þeirra
gefur tilefni til, og því til lítils að
leggja í upptalningu á þeim vettvangi.
En sem sæmi um þá vöru sem íslend-
ingum býðst til kaups, þá má nefna
„antík“ kolaofna sem Hárprýði, Háa-
leitisbraut 58-60, hefur flutt inn frá
Danmörku síðastliðin tvö ár. „Þetta
eru orginal ofnar þ.e. upprunalega
framleiddir um aldamótin síðustu og
fram til 1914,“ sagði Birna Björns-
dóttir. „Þessum ofnum hefur verið
safnað saman í Danmörku og Noregi,
í misjöfnu ástandi, og þeir síðan
sandblásnir og hlaðnir að innan.“ Múr-
steinshleðslan innan í eldhólfinu hef-
ur tvo kosti, í fyrsta lagi má þá brenna
þar hvað sem er t.d. jafnt kol og
sprek, og í öðru lagi þarf þá enga
hleðslu í kringum ofninn þar sem
hann stendur. Það nægir að láta hann
standa 15 cm frá vegg. Að sögn Birnu
er pottur í þessum ofnum, þeir eru
með hitaplötu, rist og skúffu, þannig
að þeir veita góðan varma en jafn-
framt er auðvelt að þrífa þá. Birna
lagði áhersiu á að ofnarnir eru flestir
einstakir þ.e. það er mjög sjaldgæft
að hingað berist tveir ofnar sem eru
eins í útliti. Hingað til hefur úrval
þessara ofna verið töluvert og eftir-
spurnin hefur verið nokkuð jöfn, án
þess þó að heildarsalan sé mikil. Mest
er eftirspurnin eftir minnstu tegund-
inni, sem er jafnframt sú ódýrasta, en
slíkur ofn kostar kr. 16.900. Þeir
stærstu og skrautlegustu kosta kr.
29.000. Birna gat þess að hægt er að
semja um greiðslur í afborgunum, en
í flestum tilvikum er kaupverði skipt
í þrjá hluta. í Hárprýði fæst einnig
ofnsverta (grafik) og kostar flaskan
kr. 195, en það hefur borið á því að
fólk hefur átt í erfiðleikum með að fá
þetta efni.
Hér hefði
FÚAVÖRM
komið að gagni.
Hjá JL-Byggingavörum eru til allar tegundir af fúavarnarefnum
(Woodex, Pinotex, Solignum og Arcitectural).
Fáið ráðleggingar afgreiðslumanna okkar á vaii á bestu efnunum
og hvernig best er að verjast fúaskemmdum.
Við minnum á 5-20% afslátt á málningu.
MÁLNINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120.
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
midas
Austurstræti
Vesturbær
Til sölu tvær stórglæsilegar sérhæðir með öllu sér í
tvíbýlishúsi ca. 120 fm m. bílskúr. Miklir möguleikar.
íbúðirnar eru fokheldar. Tilbúnar að utan. Verð pr. íbúð
2.500 þús.
AUSTURSTRÆTI
Betri viðskipti
FASTEIGNASALAN
AUSTURSTRÆTI 9
SlMAR -15920 - 28190
Höfum verið beðnir að út-
vega sérhæð f austur- eða
vesturbænum fyrir mjög
fjársterkan kaupanda.
Fasteignasalán
EKSNANAUST
Bólstaðarhlíð 6,105 Reykjavík.
Símar 29555 - 29558.
Hrolfur Hjaltason. viðskiptafræðingur
KÓPRA SNJÓBRÆÐSLURÖR
OPIÐ f DAG
laugardaginn
6. júlí
kl. 9-16
PÍPULAGNIR SIF
KÓPRA HANDBÓKIN Skemmuvegi 26 L
ER KOMIN ÚT Sími 7 74 00
KOBRA
SNJÓBRÆÐSLUKERFÍ