NT - 24.07.1985, Page 12
Miðvikudagur 24. júlí 1985 12
AÆTLUNARFERÐIR
Reykjavík - Akureyri - Reykjavík
FERÐAÁÆTLUN
VIKUDAGAR
15/5-30/9 S M Þ M F F
FRÁREYKJAVÍK 11,00 08,00 08,00 08,00 08,00 08,00
-AKUREYRI 12,00 09,30 09,30 09,30 09,30 09,30
15/6-31/8
FRÁREYKJAVÍK 14,00 14,00 14,00
-AKUREYRI 14,00 14,00
1/10-14/51986
FRÁREYKJAVÍK 08,00 08,00 08,00 08,00 08,00 08,00
-AKUREYRI 09,30 09,30 09,30 09,30 09,30 09,30
Dæmi um fargjöld sumarið 1985
REYKJAVÍK-AKUREYRI kr. 980.-
— -VARMAHLIÐ kr. 770.-
— -BLÖNDUÓS kr. 660.-
— -HVAMMSTANGI kr. 535.-
— -HRÚTAFJÖRÐUR kr. 500.-
L
08.00
09,30
08,00
09,30
Athugið að ferðir okkar tengjast ferðum áætlunarbíla til Húsavíkur,
Dalvíkur, Sauðárkróks, Siglufjarðar og frá Akureyri til Hólmavíkur suma
daga vikunnar.
SPRENGISANDUR - KJÖLUR
Bjóðum upp á ferðir milli Reykjavíkur og Akureyrar um Sprengisands
og Kjalvegsleiðir þar sem farið er á einum degi hvor leið.
BrottförfráReykjavík: Norður Sprengisand til Akureyrar MÁNU-
DAGA og FIMMTUDAGA kl. 08.00, Norður
Kjalveg til Akureyrar LAUGARDAGA kl. 08.00.
Brottförfrá Akureyri: Suður Kjalveg til Reykjavíkur MIÐVIKUDAGA
og LAUGARDAGA kl. 08.30. Suður Sprengi-
sand til Reykjavíkur kl. 08.30.
Ferðir þessar seljast með leiðsögn og fæði þann daginn sem ferðast
er. í ferðum þessum gefst fólki tækifæri á að sjá og heyra um
meginhluta miðhálendisins, jökla, sanda, gróðurvinjar, jökulvötn, hveri
og margt fleira í hinni litríku náttúru íslands.
Hægt er að fara aðra leiðina eða báðar um hálendið eða aðra leiðina
um hálendið og hina með áætlunarbílum okkar um byggð og dvelja
norðanlands eða sunnan að vild því enginn er bundinn nema þann
daginn sem ferðast er.
Fargjöld sumarið 1985
Fullorðnir:
önnur leiðin um Sprengisand eða Kjöl ........ kr. 2.400.-
báðar leiðir um hálendið .................... kr. 4.300.-
önnur leiðin um hálendið og hin um byggð .... kr. 3.025.-
Yngri en 12 ára
önnur leiðin um hálendið..................... kr. 1.800.-
báðar leiðir um hálendið .................... kr. 3.240.-
Önnur leiðin um hálendið og hin um byggð ... kr. 2.060.-
Ferðirnar norður Kjöl og suður Sprengisand verða frá 13/7-19/8. Aðrar
ferðir verða eins og undanfarin ár þ.e.a.s. eftir færð og aðstæðum í
iúlí og ágúst.
í ferðunum um hálendið er innifalið í verði:
Ferðir, leiðsögn og fæði þann daginn sem ferðast er (einu sinni matur
og tvisvar kaffi eða te og brauð) þetta á ekki við í ferðunum um byggð.
Nánari upplýsingar gefa B.S.Í. Umferðamiðstöðinni Reykjavík, sími
22300 og ferðaskrifstofa Akureyrar sími 25000 og einnig afgreiðsla
sérleyfisbíla Akureyri sími 24729 og við.
NORÐURLEIÐ H.F.
sími11145
■ Ólafsfjörður. Þangað er dagsganga frá Dalvík en tveggja daga ganga til
Siglufjarðar.
Sömuleiðis er sniðugt að ganga upp
á Súlur fyrir ofan bæinn. Það er þó
mun lengri ganga, tekur um sex tíma
fram og til baka ef talin er með smá
keyrsla upp í Glerárdal í byrjun. En
þessi leið er mikið upp í móti, frá 200m
hæð er farið upp í 1130m.
Hlíðarfjallið býður upp á fleira en
skíðaiðkun. Það tekur um tvo tíma
að ganga upp á Hlíðarfjallsbrún frá
hótelinu. Oft er farið upp Manns-
hrygg og sömuleiðis hjá Reithólum.
Arni nefndi einnig ýmsar styttri
göngur og skoðunarferðir á vijð göngu
eftir fjörunni fallegu við Árskógs-
strönd, niður hjá Víkurbakka. Einnig
er skemmtileg ganga að búða tættun-
um fyrir ofan Gáseyri, en þar var eitt
sinn kaupstaður, Gásakaupstaður.
Þar ekki langt fyrir norðan er
Fagriskógur, fæðingarstaður Davjðs
Stefánssonar. Fyrir ofan bæinn er
Kötlufjall og einnig Hillurnar og eru
þarna einnig vinsælar gönguleiðir.
Austan fjarðarins eru fleiri
skemmtilegar gönguleiðir. Ef farið er
upp úr Höfðahverfi á Kaldbak er um
að ræða svipaða hækkun og í Súlum.
Ferðin tekur um 6-8 tíma fram og til
baka. Farið er upp meðfram Grenjá
nálægt Finnastöðum.
Sömuleiðis er hægt að fara frá
Höfðahverfi upp að Blámannshatti,
sem er hæsta fjallió í nágrenninu,
1201m.
Frá Ytra-Hóli í Dalsmynni er 5-6
tima gangur eftir Gönguskarði austur
fyrr til að hestaferðir væru möguleg-
ar.
Ekki þarf hins vegar að vaða neina
ár ef gengið er eftir Þorvaldsdal frá
Fornhaga í Ilörgárdal og út á Ár-
skógsströnd. Sú ganga þykir vera
skemmtileg og tekur um 7-8 tíma.
Ýmsar vinsælar göngur hefjast í
Glerárdal fyrir ofan Akureyri. Ein
möguleg leið er upp dalinn að Kerl-
ingu og Glerárhnjúk. Þaðan er sveigt
til austurs, niður Finnastaðadal, að
Finnastöðum og Grund í Eyjafirði.
Þessi ganga tekur um tíu tíma.
í stað þess að fara austur út úr
dalnum er hægt að fara til vesturs, þá
upp Tröllafjall og eftir Bægisárdal
niður í Hörgárdal. Þetta þykir erfið
leið en harðasta göngufólk getur farið
hana á einum degi.
Víða fram á firði eru fjöll og dalir
sem eru skemmtilegir til göngu. Aust-
ur af Saurbæ er Núpufell og þar fyrir
ofan er Núpufellsöxl. Þaðan er mjög
gott útsýni yfir Eyjafjörð.
Leyningshólar á móti Vatnsenda
eru skógi vaxnir og þekja nokkra
ferkílómetra. Nálægt þeim eru fleiri
skemmtileg göngusvæði, svo sem gilið
hjá Torfufellsá og Villingadalur.
í kringum Akureyri bjóðast líka
margar hressandi gönguleiðir. Auð-
veld ganga er upp úr Kjarnaskógi og
upp á klettana bak við skóginn.
Þaðan er gott útsýni yfir Akureyri og
fjörðinn. Þessi stutta ganga tekur
einungis um hálftíma hvora leið.