NT - 24.07.1985, Qupperneq 23
w
Bæklingur frá
Farfuglum
■ Hinn árlegi upplýsingabæklingur
Farfugla, „Ferðist ódýrt er kominn út".
I honum er að finna upplýsinear um
þau 21 Farfuglaheimili sem starfrækt
eru hér á landi í-sumar. 6 ný Farfugla-
heimili taka til starfa á árinu og eru þau
að Varmalandi í Borgarfirði, Reykjanesi
Breiðuvík, ísafirði, Blönduósi, Akur-
eyri, Höfn í Hornafirði og í Þórsmörk,
en fyrir eru Farfuglaheimili í Reykjavík,
Breiðuvík, ísafirði, Blönduós,” Akur-
eyri, Húsey, Seyðisfirði, Berunesi,
Stafafelli, Höfn, Reynisbrekku,
Fljótsdal, Leirubakka, Hveragerði og í
Vestmannaeyjum.
í bæklingnum er einnig að finna
upplýsingar um ýmsa aðra möguleika til
ódýrra og skemmtilegra sumarlevfa svo
sem ferðatilboð bæði innan lands og
utan og upplýsingar um aðra ódýra
gististaði en Farfuglaheimili en upplýs-
ingar eru veittar um alls 70 gististaði á
íslandi.
Bæklingnum er dreift um land allt og
kemur bæði Islendingum og erlendum
ferðamönnum að gagni þar sem hann er
bæði á íslensku og ensku.
UM ISLAND F/NNTto
eddu hotel
bo
FRÍ
A feróalagi er gott aö geta dvaliö á góðu hóteli við öll nútímaþægindi og þurfa ekki
að vera háður veðri og vindum með tjaldstæði.
Eddu hótelin eru á 20 stöðum viðs vegar um landiö, hver staður hefur sfn sér
einkenni. Þú getur dvalið á sama stað eða feröast áfram og bókað þig símleiðis á
næsta áfangastað að morgni. Óneitanlega þægilegur ferðamáti.
Dvöl á Eddu hóteli eykur llkurnar á ánægjulegu leyfi í veðrasömu landi.
Feröaskrifstofa Ríkisins Skógarhlíð 6,101 Reykjavik. sími 25855.
Kortaverslun
og ný kort
■ Landmælingar íslands hafa ný-
verið opnað sérstaka kortaverslun að
Laugavegi 178 og er gengið inn frá
Bolholti.
Verslun þessi þó lítil sé veitir
viðskiptavinum stofnunarinnar betri
möguleika til yfirsýnar þeirra korta,
sem stofnunin framleiðir og selur.
Hún er með sjálfsafgreiðslusniði.
í tengslum við opnun verslunarinn-
ar hefur verið sett á markað nýtt
ferðakort af íslandi auk nýs sérkorts
af Landmannalaugum/Þórsmörk.
Hið nýja ferðakort er í vasabókar-
broti með gormkili, sem ætti að
auðvelda mjög alla notkun þess. Hér
er um að ræða fyrsta vísi að vegaatlas
fyrir ísland. Sérkortið af Landmanna-
laugum/Þórsmörk er viðbót við sér-
kortaflokk stofnunarinnar en í hon-
um má m.a. finna kort af Hornströnd-
um, Skaftafelli og Húsavík/Mývatni.
Á kortum sem þessum er megin-
áhersla lögð á gönguleiðir og annað
’það er gagnast má áhugafólki um
útivist og náttúruskoðun. Margir hafa
spurst fyrir um slík kort af Land-
mannalaugum/Þórsmörk og er því
von Landmælinga íslands að því verði
vel tekið.
Lærið að fljuga
Flug er skemmtilegt og
heillandi tómstundagaman
FLUGSKÓLI — LEIGUFLUG — ÚTSÝNISFLUG
FLUGSKÓLINN
rt£/GZ4/r
GAMLA FLUGTURNINUM
REYKJAVÍKURFLUGVELLI
SÍMI 28122 — P.O. BOX 963
FERÐIST ÓDÝRT
Ferðist með áœtlunarbílum
Hringmiði er einn allra ódýrasti ferðamáti til ferðalaga hér innanlands sem völ
er á. Hægt er að ferðast hringveginn um ísland á eins löngum tíma og með eins
mörgum viðkomustöðum og hugurinn girnist. Verð aðeins kr. 3.200.-
TÍMAMIÐI er annar möguleiki til ódýrra ferðalaga hér innanlands. Hæqt er að
ferðÆstótakmarkað meðöllum áætlunarbílum á Islandi innan þeirratímamarka,
sem valið er (1,2, 3 eða 4 vikur). Verð frá kr. 3.900.-
Miðar þessir gefa einnig verulegan aflátt í ýmsar skoðunarferðir sérleyfishafa
um land allt, svefnpokagistingu á Edduhótelum, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum
svo og fargjöldum með ferjum.
Við minnum á að hjá BSÍ HÓPFERÐABÍLUM er hægt að fá langferðabifreiðar
af öllum stærðum (12 til 60 manna) til ferðalaga um allt land. Tilboð gerð án
skuldbindinga.
f UT OG SUÐUFt }
Allar upplýsingar veitir: ---
Ferðaskrifstofa vg)SJ
Umferðarmiðstöðinni,
Vatnsmýrarvegi 10, Reykjavík.
Sími 91-22300