NT - 23.08.1985, Side 2
Föstudagur 23. ágúst 1985
og einkennast af léttu spjalli
viö hina og þessa.
Störf Magnúsar í fjölmiðla-
heiminum komu sem afleiðing
þess að hann fékk ekki lektors-
stöðu í íslenskum fræðum við
háskóia. „í>að var enginn
kennari að deyja,“ sagði hann
við NT.
„Ég hafði fiktað við blaða-
mennskuna fyrr, en svo varð
úr að ég hélt því áfram, ég varð
nú að halda mér á lífi,“ sagði
Magnús.
Hann starfaði fyrir Scottish
Daily Express og Scotsman en
hélt 'síðan til BBC, þar sem
hann vann við gerð sjónvarps-
þátta. Hann var þó ekki lengi
þar, hætti vegna togstreitunnar
milli blaðaskrifa og sjónvarps-
þáttagerðar og hefur „free-
lansað“ síðan.
„Það skemmtilega við blaða-
mennskuna er að maður er
alltaf að læra eitthvað nýtt,“
sagði Magnús. „En það hefur
komið mér mjög vel að hafa
minn fræðilega bakgrunn úr
háskóla, það gefur blaða-
mennskunni aukna dýpt að
hafa góða bókmenntalega
þekkingu og auk þess verður
stíllinn betri í skrifunum,"
sagði hann, en þýðingar á ís-
lendingasögum og verkum
Laxness er eitt af því sem hann
hefur tekið sér fyrir hendur.
„Það sem mig langar að gera
einhverntímann á næstunni er
þáttaröð um Ódysseifsför
Hómers,“ sagði Magnús. „Eft-
ir tvö ár tekur síðan við gerð
myndaflokks um fund Amer-
íku, en hann mun byggja mikið
áferð BjarnaHerjólfssonar."
■ „Það er gaman aö segja frá
þegar maður er með frábæra
sögu í pokahorninu. Og það er
ekki erfitt að finna sögur að
segja frá íslandi, því landið er
ein saga,“ sagði Magnús Magn-
ússon fjölmiðlamaður í Bret-
landi í þakkarræðu eftir að
hafa hlotið Fjölmiðlabikar
Ferðamálaráðs íslands á mið-
vikudaginn.
Magnús hefur starfað lengi í
fjölmiðlum á Bretlandi, bæði
við blöð og einnig við
sjónvarn. Hann hefur oft fjall-
að um Island og eins og Kjart-
an Lárusson, formaður ferð-
amálaráðs, sagði við afhend-
inguna á Hótel Sögu: „Magnús
er lifandi kynning á íslandi og
því sem ísland er.“
Fjölmiðlabikarinn hefur
verið veittur í fjögur ár og fyrri
þiggjendur lians eru Sæmund-
ur Guðvinsson, Haraldur J.
Hamar og Sigurður Sigurðar-
son.
Magnús er einna frægastur
fyrir spurningaþætti sína,
Mastermind, en hann sagði að
um 15 milljónir horfðu á þá.
„Það er ægilega erfiður spurn-
ingaþáttur,“ sagði Magnús.
■ Magnús Magnússon tekur við viðurkenningu Ferðamálaráðs úr hendi formanns þess, Kjartans Lárussonar. NT-mynd: Svenir
Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs 1984 afhentur:
ísland er ein saga
- sagði Magnús Magnússon við móttöku bikarsins
„Enda sem ég ekki spurning- lega að hafa þær og öll svörin Nú sagðist hann vera að Pebble Mill at One, en þeir
arnarsjálfur, enégþarfnáttúr- alveg á hreinu.“ taka við „magasín" þáttum, fjallaummenninguogmannlíf
Breytingar hjá Sambandinu
■ Nokkrarbreytingaráskipan
manna í trúnaðarstöður hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga
og fyrirtækjum þess koma til
framkvæmda nú á næstunni.
Steinar Magnússon, fram-
kvæmdastjóri skrifstofu Sam-
bandsins í Hamborg, hverfur
heim og tekur við fyrra starfi
sínu sem framkvæmdastjóri Jöt-
uns hf. Gylfi Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Jötuns, kem-
ur til starfa hjá Sambandinu og
mun vinna að sérstökum verk-
efnum á Aðalskrifstofu. Við
starfi Steinars Magnússonar í
Hamborg tekur Tómas Óli
Jónsson, framkvæmdastjóri Bíl-
vangs sf. Við framkvæmda-
stjórastarfinu hjá Bílvangi tekur
Gunnar Gunnarsson forstöðu-
maður hjá Búnaðardeild Sam-
bandsins.
Steinar Magnússon er fæddur
í Reykjavík 27. apríl 1932.
Hann lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum 1952 og réðist sama
ár til Iðnaðardeildar Sambands-
ins. Par starfaði hann næstu
árin, með hléi árið 1958 þegar
hann vann um tíma hjá þýska
samvinnusambandinu í Ham-
borg. Hann varð deildarstjóri í
Iðnaðardeild árið 1959, og
framkvæmdastjóri Jötuns hf.
varð hann 1976. Við núverandi
starfi sínu sem framkvæmda-
stjóri Hamborgarskrifstofu tók
hann 1981. Steinar er kvæntur
Önnu Þóru Baldursdóttur og
eiga þau þrjú börn.
Gylfi Sigurjónsson er fæddur
13. mars 1936 í Reykjavík.
Hann lauk verslunarprófi frá
Verslunarskóla íslands 1954, en
hóf störf hjá Sambandinu 1956
að loknu framhaldsnámi í Bret-
: landi. Hann starfaði í Búvöru-
deild til 1963, á skrifstofu Sam-
bandsins í London 1963-66, og
sem deildarstjóri í Sjávar-
afurðadeild 1966-76. Hann var
framkvæmdastjóri Hamborg-
arskrifstofu 1976-81, en hefur
verið framkvæmdastjóri Jötuns
frá 1981. Gylfi er kvæntur Val-
■ Steinar Magnússon.
■ Tómas Óli Jónsson.
gerði Ólafsdóttur og eiga þau
tvö börn.
Tómas Óli Jónsson er fæddur
20. ágúst 1948 á Siglufirði. Hann
útskrifaðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskóla íslands
1974, stundaði framhaldsnám
við Verslunarháskólann í Kaup-
mannahöfn 1974-77 og starfaði
í Skipulags- og fræðsludeild
Sambandsins 1977-81. Hann var
fulltrúi framkvæmdastjóra
Véladeildar 1982-83, forstöðu-
maður Bifreiðadeildar 1983-
84, og frá þvt í júní 1984 hefur
hann verið framkvæmdastjóri
■ Gylfi Sigurjónsson.
■ Gunnar Gunnarsson.
Bílvangs sf. Tómas er kvæntur
Matthildi Helgadóttur og eiga
þau tvö börn.
Gunnar Gunnarsson er fædd-
ur 3. september 1939 í Reykja-
vík. Hann útskrifaðist sem bú-
fræðikandidat 1961 og réðist
sama ár til Véladeildar Sam-
bandsins. Þar vann hann að
sölustörfum 1961-66, var deildar-
stjóri Búvéladeildar 1966-78 og
aðstoðarframkvæmdastjóri
Véladeildar 1978-81. Hann var
framkvæmdastjóri Dráttarvéla
hf. 1981-84 og hefur verið for-
stöðumaður hjá Búnaðardeild
Sambandsins frá því á síðasta
ári. Gunnar er kvæntur Elínu
Jónu Jónsdóttur og eiga þau tvö
börn.
Þá verður sú breyting á starf-
semi Hamborgarskrifstofu frá
og með næstu áramótum að þar
mun hafa aðsetur sérstakur
sölustjóri á vegum Sjávar-
afurðadeildar Sambandsins.
Mun hann annast sölu sjávar-
afurða á markaðssvæði Ham-
borgarskrifstofu, en hún hefur
um langt skeið séð um sölu á
frystum fiski og öðrum sjávar-
afurðum í Vestur-Þýskalandi og
nærliggjandi markaðslöndum.
Það er Helgi Sigurðsson sem
mun gegna þessu starfi, en hann
er fæddur í Reykjavík 5. janúar
1941, útskrifaðist úr Samvinnu-
skólanum 1960, starfaði síðan
hjá Iðnaðardeild Sambandsins
til 1964, í Launabókhaldi þess
til 1971 og á Hamborgaskrif-
stofu til 1972. Árin 1972-83 var
Helgi við störf í Samvinnu-
bankanum, en síðast liðin tvö ár
hefur hann starfað á Hamborg-
arskrifstofunni.
Fréttatilkynning.
■ Hjörtur Eiríksson, sem
undanfarin tíu ár hefur verið
framkvæmdastjóri Iðnaðar-
deildar Sambandsins, hefur ver-
ið ráðinn framkvæmdastjóri
Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna. Hann tekur við
starfinu hinn 15. september.
Hjörtur Eiríksson frkvstj. er
fæddur 11. nóvember 1928 í
Reykjavík. Hann lauk verslun-
arskólaprófi 1947 og iðntækni-
námi í Bretlandi 1949. Hann
hóf störf hjá Iðnaðardeild Sam-
bandsins um áramót 1949-50 og
fór til Þýskalands 1953 á vegum
hennar. Þar var hann við nám í
ullarvinnslu í þrjú ár og út-
skrifaðist sem ullarfræðingur í
árslok 1956. Síðan hefur hann
starfað samfellt hjá deildinni,
þar af sem verksmiðjustjóri
Ullarverksmiðjunnar Gefjun -
Hjörtur- Elríksíjon
ar 1972-75 og sem framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar frá 1975.
Hjörtur er kvæntur Þorgerði
Árnadóttur og eiga þau fjögur
börn. Fréttatilkynning.
Hjörtur Eiríksson tekur
við Vinnumáiasambandinu
Jón Sigurðarson framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar
■ Jón Sigurðarson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Iðn-
aðardeildar Sambandsins á
Akureyri frá og með 15. sept-
ember. Tekur hann við af Hirti
Eiríkssyni sem ráðinn hefur ver-
ið framkvæmdastjóri Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna.
Jón Sigurðarson frkvstj. er
fæddur 12. mars 1952 í Reykja-
vík, en ólst upp á Patreksfirði
og Ystafelli í Þingeyjarsýslu.
Hann nam verkfræði við Há-
skóla íslands og lauk síðan prófi
sem efnaverkfræðingur í Kaup-
mannahöfn 1977. Hann varð
framkvæmdastjóri Plast-
einangrunar hf. á Akureyri
1977, en árið 1980 varð hann
aðstoðarframkvæmdastjóri Iðn-
aðardeildar Sambandsins og
veitti forstöðu skinnaiðnaði
hennar. Fyrr á þessu ári tók
hann svo við forstöðu ullariðn-
aðar deildarinnar. Jón situr í
bæjarstjórn Akureyrar og hefur
verið formaður atvinnumála-
nefndar Akureyrar frá 1982.
Hann er kvæntur Sigríði Svönu
Pétursdóttur. og eiga þau þrjú
börn.
Fréttatilkynning frá Sambandi
ísl. samvinnufélaga,