NT - 23.08.1985, Síða 7
r
Föstudagur 23. ágúst 1985
IJHII'
Mesta slysaár í sögu flugsins:
Á annað þúsund hafa
látist í f lugslysum
það sem af er árinu
London-Keuter:
■ Talið er að 54 hafi farist er
eldur kom upp í Boeing 737
þotu með 131 innanborðs rétt
fyrir flugtak á flugvellinum í
Manchester í gærmorgun. Þetta
var fjórða mannskæða flugslysið
í heiminum á tveimur mánuðum
og það sem af er árinu hafa
rúmlega þúsund manns farist í
flugslysum. Árið 1985 er því nú
þegar orðið mesta slysaárið í
sögu flugsins.
Þotan var á leið til Corfu í
Grikklandi, þéttskipuð sólar-
landaförum.
Indland:
Kosið þrátt
fyrir morð
Nýja Delhí-Reuter.
■ Rajiv Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, ákvað í gær að
kosningar skyldu haldnar í
Punjab-héraði í næsta mánuði,
þrátt fyrir morðið á Harchand
Singh Longowal, leiðtoga
síkha, fyrir stuttu.
Kosningarnar verða haldnar
25. september, þremur dögum
seinna en áætlað hafði verið.
Frestunin er tilkomin vegna
þess að lögum samkvæmt skal
halda kosningar mánuði eftir að
formlega er boðað til þeirra.
Gandhi hyggst ekki gera það
fyrr en á mánudag, svo að tóm
gefist til að halda trúarlegar
minningarathafnir um Longo-
wal.
Síkhar eru í meirihluta í
Punjab, cn lögreglustjóri hér-
aðsins kveðst geta ábyrgst að
allt verði þar með kyrrum
kjörum fram yfir kosningar.
Ghandi segist gera ráð fyrir
að ný stjórn verði tekin við
völdum í Punjab 30. september.
Danir kanna
slorugt niður-
greiðslusvindl
Kaupniannahöfn-Keutcr
■ Danska lögreglan
vinnur nú að rannsókn á
því hvort dönsk fisk-
vinnslufyrirtæki hafi
svindlað meira en 11 mill-
jónir danskra króna (45
milljónir ísl. kr.) í niður-
greiðslum frá Efnahags-
bandalagi Evrópu.
Niðurgreiðslunum var
ætlað að tryggja að fiskur
yrði ekki seldur undir
ákveðnu lágmarksverði.
Danskir fiskveiðimenn
sem náðu ekki lágmarks-
verði fyrir afla sinn fengu
niðurgreiðslur yfir að selja
fiskinn í mjöl.
Danska sjávarútvegs-
ráðuneytið lagði niður-
greiðslukerfið niður fyrir
ári vegna gruns á því að
það væri notað til að svíkja
út fé á fölskum forsend-
um. Nú hefur lögreglunni
verið falið að kanna hvort
þessi grunur sé á rökum
reistur.
Rétt fyrir flugtakið skýrði
flugstjórinn frá því að hann ætti
í erfiðleikum með bakborðs-
hreyfil þotunnar. Örfáum sek-
úndum síðar sprakk hreyfillinn
og flugstjórinn steig þegar á
hemlana og beindi vélinni í átt
að flugstöðvarbyggingunni.
Þotan rann út fyrir flugbrautina
og mikill eldur gaus upp í henni.
Slökkviliðsmenn komu strax
á vettvang og tóku til við að
bjarga farþegum úr vélinni, en
þá varð geysimikil sprenging í
eldsneytisgeymum hennar og
hún brotnaði í tvennt. Tveir
slökkviliðsmenn, sem voru
komnir um borð í vélina, hent-
ust í burtu og talið er að flestir
hinna látnu hafi farist við seinni
sprenginguna.
Flytja varð 83 af farþegum og
úr áhöfn vélarinnar á sjúkrahús,
þar sem gert var að meiðslum 66
þeirra. Hina 17 varð að leggja
inn.
Ekki er vitað hvað slysinu
olli, en flugvallarstjórinn í
Manchester, Gil Thompson,
sagði að líklegast væri að
skrúfublað úr hreyflinum hefði
losnað og skorið í sundur elds-
neytisleiðslu.
Fyrir 10 dögum fórust 520
manns í flugslysinu mikla í Jap-
an og 3. ágúst létust 133 í slysi í
Bandaríkjunum. Þá fórust 329
með indversku þotunni, sem
hrapaði í hafið skammt undan
strönd írlands í júlí.
í fyrra fórust einungis um 200
manns í flugslysum í heiminum
og er það eitt farsælasta árið í
sögu flugsins.
■ Aftarí hluti Lockheed þotunnar á slysstað við flugvöllinn í
Dallas-Fort Worth. Sú þota hrapaði 3. ágúst og fórust þá 133.
V-Þýskaland:
Háttsettur gagn-
njósnari hverfur
Bonn-Reuter
■ Gagnnjósnaþjónusta Vest-
ur-Þýskalands tilkynnti í gær að
háttsettur embættismaður innan
hennar væri horfinn og óttast
væri að hann hefði flúið yfir til
Austur-Þýskalands. Þetta er
fjórða njósnamálið sem upp
kemur í landinu á stuttum tíma.
Mikil leit stendur núna að þrem-
ur einkariturum, sem allar eru
grunaðar um njósnir fyrir Aust-
ur-Þjóðverja.
Embættismaðurinn, Hans
Tiedge, starfaði sem deildar-
stjóri í gagnnjósnadeildinni. Ti-
edge þykir einhver færasti
■ Fulltrúar Rauða krossins í Suður-Kóreu (t.h.) og fulltrúar Rauða krossins í Norður-Kóreu hafa nú
komist að samkomulagi um fyrirkomulag fjölskylduheimsókna milli ríkjanna.
Þíða á Kóreuskaga:
Fjölskylduendurfundir áróðursbragð
eða skref í átt til sameiningar?
■ Fulltrúar frá Norður- og
Suður-Kóreu gerðu í gær sam-
komulag um tímasetningu og
framkvæmd á endurfundum
fimmtíu einstaklinga frá hvoru
ríki í næsta mánuði. Stjórnvöld
bæði í Norður- og Suður-Kóreu
segja fjölskylduendurfundina
sýna sameiningarvilja sinn en
ásaka jafnframt gagnaðilann um
tvöfeldni og um að nota endur-
fundi ættingjanna til áróðurs.
Samkvæmt samkomulaginu,
sem fulltrúar Rauða kross
Norður og Suður-Kóreu gerðu í
landamæraþorpinu Panmunj-
om, munu fjölskylduendur-
fundirnir verða í Pyonyang og
Seoul, sem eru höfuðborgir
Norður- og Suður-Kóreu, þann
20. og 23. september.
í för með fólkinu verða fimm-
tíu manna sýningarhópar, sem
munu halda söngva- og leiksýn-
ingar fyrir almenning. Einnig
verða með þeim 30 fréttamenn
og 20 aðstoðarmenn. Sam-
komulagið kveður á um að sýn-
ingarhóparnir skuli ekki hafa í
frammi neinn áróður í sýningum
sínum.
Skipting Kóreuskagans í tvö
ríki eftir Kóreustríðið 1950 varð
til þess að um tíu milljón manns
urðu viðskila við fjölskyldur
sínar. Þetta þýðir að hátt í
helmingur landsmanna átti ætt-
ingja sem lentu hinum megin
við landamærin. Nú eru íbúar á
Kóreuskaganum um 60 milljón-
ir (19,2 milljónir í Norður-Kór-
eu og 41,3 milljónir í Suður-
Kóreu). Það er ekki fjarri lagi
að meirihluti Kóreumanna eigi
ættingja sem búi í hinum hluta
landsins.
Þótt þeir Kóreubúar, sem eru
fæddir eftir stríð, hafi aldrei séð
ættingja sína frá hinum hluta
skagans eru ættarböndin samt
mjög sterk og flestir vonast til
þess að fá einhvern tímann
tækifæri til að hitta ættingjana.
En mikil spenna á Kóreu-
skaganum hefur komið í veg
fyrir fjölskylduendurfundi þar
til núna.
Kommúnistaleiðtoginn Kim
II Sung í Norður-Kóreu og
Chun Doo Hwan forseti Suð-
ur-Kóreu hafa báðir lýst því yfir
að þeir stefni að sameiningu
ríkjanna. En sameiningarviljinn
hefur verið meiri í orði en á
borði þar sem hvorugur vill
fórna þjóðfélagskerfi ríkis síns
fyrir sameininguna.
Það er ekki fyrr en nú á þessu
ári að einhver skriður komst á
viðræður Norður- og Suður-
Kóreu. Sérstakar viðræður hafa
verið haldnar um samstarf á
sviði efnahagsmála, íþrótta-
leiðtogar hafa ræðst við og þing-
mannasendinefndir hafa hist
auk viðræðnanna um
fjölskylduheimsóknirnar. í öll-
um tilvikum hefur verið ákveðið
að halda viðræðunum áfram
þótt þeim miði frekar hægt.
P~NEWSINBRIEF~\
P REUTER August 22nd.
H ■ MANCHESTER,
England - Fifty-four
^ people were killed when
^ á holiday plane bound
for Greece with 137
lll people on board was eng
Oc ulfed in flames on tak-
eoff, airport offlcials
$ said. „The heat was so
</> intense the plane just
melted," a flreman told
Reuters after 83 survi-
vors were rescued from
the blazing Boeing 737.
BONN - West Germ-
any’s counter-intellig-
ence service, already
hunting three vanished
spy suspects, announced
that one of its own senior
offícials had gone missing
and security sources said
there were fears he was
in East Germany.
GQ
„njósnaleitari" landsins og sér-
hæfði sig í að berjast gegn
njósnastarfsemi Austur-Þjóð-
verja. Hann hafði aðgang að
mjög leynilegum upplýsingum, I
meðal annars urn hverjir væru
njósnarar vesturveldanna fyrir
austan tjald, og hverjir væru
grunaðir um njósnir í V-Þýska-
landi.
Tiedge hefur átt við persónu-
leg vandamál að giíma að
undanförnu og auk þess hefur
heilsu hans hrakað nokkuð.
Hann mætti ekki til vinnu á
mánudag, heldur hringdi og
sagðist vera veikur. Síðan hefur
ekkert til hans spurst, en tals-
menn v-þýsku leyniþjónustunn-
ar segjast óttast að hann hafi í
stundarbrjálæði flúið yfir landa-
mærin til A-Þýskalands.
„Ef í ljós kemur að hann
hefur einhverra hluta vegna flú-
ið þangað, myndi það hafa í för
með sér hrikalegar afleiðingar
fyrir vestur-þýsku leyniþjónust-
una,“ sagði einn talsmannanna.
MOSCOW - The Soviet
Union rejected as
„absurd inventions“
U.S. charges that Mosc-
ow used possibly harmful
chemicals to track Amer-
ican diplomats, and acc-
used the United States of
poisoning the atmosp-
here between the two
superpowers.
NEW DELHI - Indian
Prime Minister Rajiv
Gandhi decided to go
ahead with polls in Punj-
U. ab next month despite
g calls for them to be put
{g off following the murder
^ of Sikh Leader Harchand
Singh Longowal.
JOHANNESBURG -
South Africa’s biggest
black union warned that
a strike could still hit the
vital gold industry. South
Africa’s currency, the
rand, slipped to a record
low of 38.55 U.S. cents
before recoveríng
1 slightly.
UNITED NATIONS -
A U. N. aid offlcial said
prospects for averting a
ÍJj major famine in Sudan
^ had improved in recent
GQ weeks, thanks to the ons-
^ et of rains and intemat-
ional relief efforts.
BEIRUT - Shells cras-
hed into residential areas
in and around Beirut for
a fourth straight day as a
| Syrian - sponsored
ceaseflre failed to take
' hold.
JAEN, Spain - A Span-
ish bishop has declared a
medical team and their
20-year-old patient
excommunicated after
I performance of a legal
j abortion in the city of
Jerez De La Frontera,
' southern Spain.
NEWSINBRIEF.