NT


NT - 23.08.1985, Side 8

NT - 23.08.1985, Side 8
Málsvari frjalslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson Framkvstj.: Guömundur Karlsson Auglýsingastj: Steingrimur Gislason Innblaösstj: Oddur Ólafsson Skrifstofur: Siöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, iþróttir 686495, tæknideild 686538. rn líF Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð i lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askrift 360 kr. Tillaga aðalfundar verðuraðveruleika ■ Þróunarfélagið, einn af hornsteinum stjórnar- samstarfs Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins og beint afsprengi samþykktar aðalfund- ar miðstjórnar Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir tveim árum, er nú að hlaupa af stokkunum. Á fundinum á Akureyri var samþykkt ályktun þar sem hvatt var til mikillar sóknar í nýsköpun í atvinnulífi og skyldi varið til þess fimm hundruð milljónum króna. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og aðrir ráðherrar Framsóknar- flokksins hafa síðan unnið að framgangi málsins innan ríkisstjórnarinnar og félagið er nú að líta dagsins ljós. Miklar vonir eru bundnar við þetta framtak ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega viðbrögð einstaklinga og fyrirtækja við tilboðum um hlutabréfakaup. Félaginu er ætlað að veita lán, kaupa hlutabréf og skuldabréf fyrirtækja og þar með taka þátt í áhættu í atvinnulífinu, styrkja rannsóknir og fleira. En eitt er ákaflega mikilvægt. Þróunarfélagið má aldrei verða sjálfsafgreiðslustofnun á fjármagn til óarðbærra fyrirtækja. Nú ríður á að allar beiðnir frá þeim, sem hyggja á nýsköpun í atvinnulífi,verði vendilega kannaðar og mönnum gert að skyldu að sýna fram á hagkvæmni fyrirtækj- anna fyrir þjóðarbúið. Við stígum nú spor í átt til aukinnar þátttöku almennings í atvinnulífinu með því að hvetja einstaklingana til þess að leggja fram fé í ný fyrirtæki. Hið opinbera ætlar sér að hafa forgöngu um málið með því að leggja fram ríkulegan skerf, en mikilvægt er, að fólki sé ljóst, að til þess er ætlast, að einstaklingar taki þátt í Þróunarfélaginu og eignist þar meirihluta og ráði ferðinni. Þróun á hvaða sviði þjóðlífsins sem er á ekki að vera ríkisrekin heldur er það hlutverk hins opinbera, eins og í þessu tilfelli, að aðstoða félagið við að taka fyrstu sporin. Fund nú þegar Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, hefur sett fram mjög athyglisverða hugmynd um samstarf þjóða á norðurslóð um umhverfismál. Hann hefur réttilega bent á, að þjóðirnar við Norður-Atlantshaf séu fullfærar um að ákveða sjálfar, hvort og hvernig þær nýta auðlindir hafsins. Þjóðir sem búa sunnar á hnettinum kunna að hafa skoðanir uppi um hvernig við eigum að nýta okkar hafsvæði og dýrastofna, en eins og Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, hefur bent á, eru þessar sömu þjóðir að menga andrúms- loftið og hafsvæði sín og ætla svo að fara að kenna okkur hvernig við eigum að haga okkur. NT tekur heilshugar undir þessa tillögu Halldórs Ásgrímssonar og hvetur ráðherra til að kalla saman fund ráðamanna þjóða á norðurslóð til þess að ræða þessi mál sem allra fyrst. Föstudagur 23. ágúst 1985 8 Vettvangur Sigrún Magnúsdóttir: Uppeldi og nám í breyttu þjóðfélagi Tengsl heimila og skóla ■ Árið 1985 hefur verið til- einkað æskunni undir kjörorð- unum: Þátttaka - Þróun - Friður. Með þessum kjörorð- um er ungt fólk hvatt til al- mennrar þátttöku í þjóðlífinu og áhersla lögð á, að það verði virkt í því umhverfi sem það lifir í. Þá er þess vænst, að alþjóða- árið og það starf sem á því verður unnið verði áfangi í þróun mannfélagsins. Friður er markmið sem viðöll viljum stefna að. Hvernig getum við búið æsku þessa lands sem best undir þátttöku, þróun og frið í þjóðfélagi hraðfara breytinga? Vissulega hefur þjóðfélags- myndin alltaf verið að breytast en nú gerast breytingar svo hratt að fyllstu aðgæslu er þörf. Er íslensk æska nægilega vel undirbúin fyrir hið tæknivædda þjóðfélag, sem bíður hennar? Hafa foreldrar yfirleitt gert sér grein fyrir breyttu hlutverki sínu gagnvart námi og uppeldi barnsins, þar sem námið fer í ört vaxandi mæli fram í skólum? Eru skólarnir eða kólayfirvöld nægilega undirbú- in fyrir þessar breytingar, eða eigum við að afsala okkur þeirri abyrgð til skólanna að fylgjast með þróun barna okkar? Spurningin er, viljum við hafa áhrif á það sem fer fram innan veggja skólanna. Ljóst er að uppeldið hefur að stórum hluta til flust inn á dagheimili og skóla. Það er því mjög mikilvægt að þessar stofnanir og heimilin vinni náið saman svo samræmi sé í því uppeldi og fræðslu sem barnið fær. Til að efla tengsl heimila og skóla eru foreldrafélög talin langbesti vettvangurínn, samanber 21. grein grunn- skólalaganna, en þar segir: „Skylt er starfsmönnum skóla að efla sem mest samstarf skóla og heimila, m.a. með því að kennarar miðli fræðslu um skólamál til foreldra í skóla- hverfinu og veiti upplýsingar um starfið í skólanum. Nú óska foreldrar sem börn eiga í grunnskóla, skólastjóri eða al- mennur kennarafundur eftir að stofnað sé foreldrafélag við skólann í þeim tilgangi að styðja skólastarfið og efla tengsl heimilaogskólaogskal þá skólastjóri boða til stofn- fundar foreldrafélags. Foreldrafélag setur sér sam- þykktir til að starfa eftir og heldur gerðabók." Það má með sanni segja, að foreldra- og kennarafélag hafi varla slitið barnsskónum ennþá, því aðeins eru um 10 ár síðan grunnskólalögin voru samþykkt. Enda er hvergi að finna í lögum né reglugerðum skilgreiningu á því í hverju samvinna ætti eða gæti verið fólgin. Reyndar voru foreldrafélög starfandi við einstaka skóla fyrir lögin, en víða eru forelda- félög svo til nýstofnuð og því lítil reynsla af þeim fengin. Hugmyndir foreldra eru mjög á reiki um hvað eigi að vera meginverkefni foreldrafé- lags. Margir telja að árgangafélög komi betur út en eitt foreldra- félag fyrir allan skólann. Það væri því æskilegt að nýstofnuð foreldrafélög fái ábendingar um verkefni frá fræðsluskrif- stofu. Síðast liðið eitt og hálft ár hefi ég starfað í vinnunefnd, sem menntamálaráðherra skipaði til að athuga möguleika á samfelldum skóladegi og tengslum heimilaogskóla. Við höfum nú skilað áfangaskýrslu til ráðherra, sem byggir m.a. á könnunum, sem nefndin stóð fyrir, þ.e.: 1. Könnun meðal skólastjóra í Reykjavík og í Reykjanes- kjördæmi. 2. Könnun meðal foreldra í Reykjavík og í Reykjanes- kjördæmi. Ljóst er að uppeldið hefur að stórum hluta til flust inn á dagheimili og skóla. Það er því mjög mikilvægt að þessar stofnanir og heimilin vinni náið saman svo samræmi sé í því uppeldi og fræðslu sem barnið fær. Hindrar Hefur ekki Eykur Tvísetning í skóla áhrif iíkur á (2 bekkir um hverja stofu) 82 12 6 Einsetning í skóla 3 7 90 Fjölmennir bekkir (25-30 nem.) Fjölmennirskólar 43 48 9 (Fleiri en 500 nem. alls) Fámennirskólar 68 30 2 (Færri en 500 nem. alls) Máltíðir frambornar í skóla 1 23 76 í hádegi 3 20 77 Skólanesti afgreitt í skólanum Hátt hlutfall kennara 1 20 79 í hlutastöðum Kennararráðnirrétt 56 29 15 fyrir skólabyrjun á haustin Vinnutími kennara (þ.e. kennslustundir, en ekki daglöng 62 35 3 viðvera (t.d. frá kl. 8-4) Örar breytingar á kennaraliði 30 40 30 milli ára Óskir kennara um samfellda 65 35 0 kennsluskrá 15 10 75 Skólasafn-lesstofa Verk-oglistgreinar, 3 7 90 kenndarfjarri skóla Sveigjanlegt skólastarf 90 6 4 (Opnir/hálfopnirskólar) Samkennslaárganga (Nem. á 37 31 32 mism. aldri vinna saman) Starfsemi foreldra- og 31 37 32 kennarafélaga 4 28 68 Nýiðnaður og stóriðja í NT fyrir nokkrum dögum varð undirrituðum tíðrætt um þann ábata sem ýmis konar smáiðnaður getur verið fyrir land og þjóð. Tilefnið var frétt blaðsins um hugvits- manninn Ásgeir Long, sem þá hafði nýlokið hönnun á björg- unarstiga fyrir smábáta og hefur nú hafið framleiðslu á þeim. Nú hafa umræður um nýtt stóriðjuver staðið í nokkur ár. Mest allan tímann hefur verið nriðað við staðsetningu verk- smiðjunnar á Reyðarfirði, en í Ijós hefur komið að útlend fyrirtæki sem rætt hefur verið við um þátttöku, hafa lítinn áhuga á þeirri staðsetningu. Á meðan hafa íbúar staðarins haldið að sér höndum og ekki lagt í neinar stórar fjárfesting- ar í atvinnumálum. Nýlega var bent á I grein hér í blaðinu, að sköpun atvinnu- tækifæra er víðast hvar erlend- is langmest í svokölluðum smá iðnaði. í Bandaríkjunum hefur til dæmis orðið samdráttur í þungaiðnaði og fækkun mannafla slíks iðnaðar en á meðan hefur smáiðnaður ýmiskonar tekið við öllum ný- liðum á vinnumarkaðinn, ásamt þjónustufyrirtækjum og opinberri þjónustu. Minni fjárfesting Að sjálfsögðu má gera ráð fyrir að stóriðja ýmiskonargeti orðið lyftistöng fyrir atvinnulíf í landinu. En þó ber á það að líta að hvert atvinnutækifæri í smáiðnaði kostar mun minna í fjárfestingu en hvert atvinnu- tækifærið í stóriðju. Best væri auðvitað að blanda. þessu saman, þannig að stór- iðjufyrirtæki sem skila miklum tekjum í þjóðarbúið starfi við hlið smáfyrirtækja sem geta þrifist í skjóli þeirra stærri. En sveitarfélag sem einblínir á stóriðjuframkvæmdir sem koma kannski - kannski ekki - geta lent í þeirri aðstöðu að standa uppi án nýsköpunar í atvinnu í áraraðir og án stór- iðjunnar sem beðið var með óþreyju. Skynsemi í atvinnumálum Umræða um atvinnumál hefur hér á landi, eins og svo margt annað, snúist upp í hálf- gerð trúarbrögð. Annar trúar- flokkurinn vill stóriðju hvað sem slíkt kostar og beitir öllum tiltækum rökum og rökleysum. Hinn trúarflokkurinn vill ekki stóriðju og notar svipaðan rök- stuðning, nema með öðrum formerkjum. Þetta hefur valdið miklum skaða. Skynsemi hefur ekki gætt í umræðunni heldur til- finningahiti. Og nú fá íbúar þeirra byggðarlaga sem enn bíða stóriðjunnar að súpa seyð- ið af því því þar hefur engin atvinnuuppbygging að ráði átt sér stað í áraraðir heldur hafa menn fjárfest í vinnuvélum og tækjum. Trúarbrögð eiga ekki að ráða stefnu í atvinnumálum, heldur verður að nýta það sem til staðar er á hverjum stað og meta vandlega hvað geti skilað hagnaði. Nýsköpun í atvinnu- málum má ekki miðast að framleiðslu sem síðar þarf að niðurgreiða, því þarf að vera fullvissa um, þegar ráðist er í umfangsmiklar fjárfestingar, að framleiðslan seljist og það fyrir viðunandi verð. Kraftur í útflutningi Nýir vendir sópa best. Ný- lega tók nýr maður við Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins og binda útflutningsaðilar al- mennt miklar vonir við þann mann, Þráin Þorvaldsson, sem áður stýrði mikilli mark- aðssókn Hildu hf. Nú er útflutningsmiðstöðin að skipuleggja aðgerðir sínar og markaðssókn íslenskra afurða erlendis. Ekki alls fyrir löngu var opnuð sérstök skrif- stofa í Færeyjum sem sinnir viðskiptum við Færeyinga. Þrátt fyrir að afurðir eins og fiskur, ál, ullarvörur og járn- blendi séu hæstu einstöku lið- irnir hvað útflutningstekjur

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.