NT - 23.08.1985, Blaðsíða 24

NT - 23.08.1985, Blaðsíða 24
HRINGDU ÞÁ í SÍMA 68-65-62 Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 Kennarasambandið: Nýrrar atkvæða ■ Nokkrir einstaklingar í full- trúaráði Kennarasambands ís- lands mun á fundi ráðsins nú í dag, bera fram tillögu þess eðlis, að atkvæðagreiðslan um úrsögn KÍ úr BSRB verði endurtekin. Allt útlit er fyrir að meirihluti fulltrúaráðsins vísi tillögunni frá á þeim forsendum að fulltrúa- ráðið hafi þegar greitt atkvæði um nýja atkvæðagreiðslu. Að sögn Sigurðar Inga Andrés- sonar, eins þeirra scm eru andvígir því að Kl segi sig úr BSRB, verður BSRB þá að úrskurða um það hvort úrsögnin sé lögleg eða ekki, og sé tekið mið af bréfi BSRB til KÍ, þar sem farið er fram á nýja atkvæða- greiðslu, sé augljóst að úrsögnin verði úrskurðuð ólögleg. „Ætli meirihluti KÍ að ganga úr BSRB í trássi við úrskurðinn, sé ég ekki að þeir geti gert það öðru vísi en sem einstaklingar, og við sitjum inni sem löglegir fulltrúar KI.“ Hvað með eignir Kí? Munuð þið sem eftir sitjið í BSRB gera tilkall til þeirra, jafnvel þó að mikill minnihluti félagsmanna fylgi ykkur að máli? „Þaö gæti farið svo, já,“ sagði Sigurður Ingi, „það á hinsvegar eftir að koma í ljós hversu mikill meirihluti gengur úr BSRB, því þeir verða að gera það sem einstaklingar, ætli þeir að gera það löglega, og stofna nýtt félag.“ Valgeir Gestsson, formaður KÍ, sagðist fyrst hafa frétt af þessu í NT í gær. Sagði hann að ef þessir menn ætluðu að standa svona að málum, þá væri það ekki vegna þess að þeir bæru hag KÍ fyrir brjósti, heldur réðu þarna persónulegar ástæður. Auk þess efaðist Valgeir um að BSRB léti þetta fara í hart, þar sem hann sæi ekki að BSRB græddi neitt á því að halda mönnum nauðugum innan sinna vébanda. Þá sagði hann að svona hótanir gerðu það eitt að þjappa mönnum saman. Fari svo að þessi minnihlut- ahópur í fulltrúaráðinu, geri alvöru úr hótunum sínum, sem sumir innan Kl efast reyndar um, endar málið að öllum lík- indum fyrir dómstólum. Þegar deilt var um það sl. vor hvort reikna skyldi auð og ógild at- kvæði með var fengið álit fjög- urra lögfræðinga og voru niður- stöður þeirra á þann veg að tveir töldu að umdeildu seðlarn- ir skyldu taldir með, hinir tveir töldu að ekki skyldi reikna þá með. V-Þýskaland: Stjómmálamenn nota símavændi Bonn-Rcuter ■ Eigandi fyrirtækis, sem sá um að koma við- skiptavinum sínum í síma- samband við kynæsandi konur, segir að nöfn þekktra vestur-þýskra stjórnmálamanna séu að finna á lista yfir viðskipta- vinina, sem lögreglan gerði upptækan hjá honum. Á listanum, sem taldi á milli þrjú og fjögur þúsund nöfn, gat að líta þingmenn, lækna, lög- fræðinga, háskólakennara og blaðamenn. Eigandinn vildi ekki nafngreina kúnna sína. Lögreglan lét til skarar skríða gegn fyrirtækinu eftir að 10 menn kvörtuðu yfir því að hafa fengið senda reikninga fyrir þjón- ustu sem þeir hefðu ekki notfært sér. greiðslu krafist ■ Þrír af fjórum nýjum snjóbílum Hjálparsveita skáta eru komnir til landsins. Þeir standa á afgreiðsluplani Hafskips. Fjórði bíllinn er væntanlegur í næsta mánuði. NT-mvnd Róbert Keyptu fjóra snjó- bíla á útsöluverði ■ Hjálparsveitir skáta hafa fest kaup á fjórum öflugum snjóbílum. Bílarnir eru af gerð- inni Flexmobil, og kosta komnir til landsins fimm og hálfa milljón. Bílarnir eru allir lítils- háttar notaðir. Nýr bíll af þess- ari gerð kostar um þrjár milljón- ir. Afslátturinn nemurþví millj- ónum króna. Bílarnir verða staðsettir hjá Hjálparsveit skáta á ísafirði, í Kópavogi og Reykjavík. Ekki \ hefur verið ákveðið hvert fjórði bíllinn fer, en Hafnarfjörður er líklegastur. Tryggvi Páll Friðriksson for- maður LHS sagði í samtali við NT í gær að ekki hafði verið hægt að neita svo hagstæðu boði. Eins og lesendum NT er kunnugt urn hafa hjálparsveit- irnar verið að leita að hentugum bílum á góðu verði, en ekki höfðu tekist neinir samningar við verksmiðjur erlendis, þegar tilboðið var samþykkt. Bílarnir eru allir til þess falln- ir að aka við hvaða aðstæður sem er. Allt frá snjólausu mal- biki og til hinna erfiðustu að- stæðna í snjómiklu fjalllendi. Bílarnir eru allir yfirbyggðir og gert ráð fyrir sætum fyrir 12 manns. Þá er pláss fyrir 2-4 sjúkrabörur. Öflug miðstöð er í bílunum. Einn bíll af gerðinni Flexmobil erþegartil, ogerþað björgunarsveitin Ingólfur í Reykjavík sem á hann. Höfn í Garðabæ: Framkvæmdahraðinn líklega heimsmet - segir Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri ■ í Garðabæ hefur nú í sum- hraða. Að sögn Jóns Gauta Garðabæ, er framkvæmda- ar risið upp höfn með met- Jónssonar, bæjarstjóra í hraðinn sennilega heimsmet. Sagði hann að stálþilin hefðu verið pöntuð í maí og þau síðan rekin niður í júlí og ágúst og verður höfnin líkast til vígð í september. Allt bend- ir því til að skip geti lagst að bryggju í Garðabæ í næsta mánuði, þó slíkt hljómi kannski ótrúlega í eyrum margra. Höfnin er til hliðar við skipasmíðastöðina Stálvík, en auk Stálvíkur eru þrjú önnur fyrirtæki þar, sem tengjast höfninni en það er bátasmiðj- an Nökkvi, Rafboði og Véla- verkstæði Sigurðar Svein- björnssonar, sem hefur fram- leitt mikið af spilum í báta og ýmsan annan sérbúnað. Þá hafa meðlimir Siglinga- klúbbsins rekið niður staura hjá nýju höfninni og ætla að setja þar upp flotbryggju fyrir skútur. Einnig eru uppi áforrn um að koma upp aðstöðu fyrir smábáta þar í framtíðinni. Islandslax: Fyrsti áfangi í gang í vor ■ í gær voru opnuð tilboð í fyrsta áfanga laxeldisstöðvar íslandslax á Suðurnesjum. Mörg tilboðanna munu að- gengileg og cr líklegt að gengið verði til samninga fljótlega þannig að fram- kvæmdir geti hafist í næsta mánuði og stöðin þannig tek- ið á móti seiðum til ræktunar í-maí n.k. Hagvirki hf. átti hlut að lægstu tilboðum í tveimur tilfellum: í jarðvinnu og smíði kerja. I smíði stein- steypra kerja bauð Hagvirki 55 milljónir, en Stálver, í samvinnu við Varmaverk hf. 51 milljón. Næsta tilboð, frá ístaki hljóðaði upp á 73 milljónir króna. 1 vélar og lagnir buðu tvö fyrirtæki lægst, Stálver og Varmaverk, 6,8 milljónir hvort. Geisli hf. bauð lægst í raflagnir, 3,1 milljón króna. Þessi fyrsti áfangi mun anna 500 tonna framleiðslu á ári.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.