NT - 31.08.1985, Blaðsíða 14
Innanhúss ocg
31. ágúst 1985 14
■ Friðrik G. Friðriksson fulltrúi hjá Íslensk-Erlenda verslunarfél. t.v. og Iain
R. Holding fulltrúi frá Rowntree Mackintosh. Ni-mvnd: Róbcrt
NT-mynd: Sverrir
■ Guðbrandur
viðskiptavinum okkar rotvarnarpillur sem þarf að setja í dýnurnar af og til.“
Vatnsrúm:
Meiri hvíld og stöðugri svefn
„Quality Street
gífurlega vinsælt
Sala einna hæst á íslandi
segir lain R. Holding
■ Um þessar mundir er staddur
hér á landi Englendingurinn Iain R.
Holding, fulltrúi hins heimsþekkta
sælgætisfyrirtækis Rowntree Mack-
intosh, en Mackintosh hefur áratug-
um saman verið mjög vinsælt meðal
íslendinga sem annarra þjóða.
Tilefni dvalar Iains á landinu er
heimilissýningin ’85 þar sem íslensk-
ur umboðsaðili RM, fslensk-Er-
Ienda verslunarfélagið er með kynn-
ingu á þessum vörum. Blaðamaður
NT hitti Iain að máli um daginn og
ræddi við hann m.a. um Heimilið
'85.
„Rowntree Mackintosh er saman-
sett úr tveimur fyrirtækjum, Rown-
tree og Mackintosh sem bæði voru
stofnuð fyrir meira en 100 árum,“
sagði Iain. „Fyrir 16 árum var svo
þessum tveimur fyrirtækjum steypt
saman, og er það nú með höfuð
stöðvar sínar í York á Englandi, en
er með umboðsaðila eða verksmiðj-
ur í yfir 100 löndum vítt og breitt
um heiminn. Rowntree Mackintosh
er meðal stærstu sælgætisframleið-
enda í heiminum og Quality Street
konfektið er mest selda konfekt
heims. ísland er eitt þeirra landa
þar sem heildarsala á Quality Street
miðað við fólksfjölda er hvað mest.
Einnig nýtur Kit Kat súkkulaðið
ásamt fjölmörgum öðrum súkkulaði
og sælgætisteg. frá RM mikilla vin-
sælda á íslandi sem í öðrum löndum.
Þessi mikla sala hér á landi er ekki
síst að bakka íslensku umboðsaðil-
unum okkar, íslensk -Erlenda sem
hefur áratugum saman flutt Rown-
tree Mackintosh sælgætið inn og
staðið sig að öllu leyti mjög vel.“
„Tekur RM oft þátt í svona
kaupstefnum hér og þar um heim-
inn?“
„Það gerist við og við, þótt ekki
sé logð sérstök áhersla á það. Þó
teljum við að það sé nauðsynlegt að
gera það að vissu marki því að
þessar kynningar eru oft áhrifamikl-
ar og halda vinsældunum við. Við
tökum núna í fyrsta skipti þátt í
svona sýningu á íslandi, en erum
jafnframt nú með stærsta sýningar-
bás, af þeim sem við höfum hingað
til haft á þessum kaupstefnum.“
„Hvernig líst þér svo á Heimilið
’85?“
„Mjög vel. Þetta er mjög góð
kynning fyrir fyrirtækið, og ég býst
við að fólk taki henni vel, við
verðum hér með sælgæti og fjöl-
skyldupakka á kynningarverði
o.s.frv. íslensku heimilissýningarn-
ar hafa þegar getið sér gott orð
erlendis, að taka þátt í henni í ár var
tækifæri sem við urðum að grípa,“
saeði Iain að lokum.
gefnar konfektdósir við góðar viðtökur viðstaddra. NT-mynd: Róberi
■ „Vatnsrúm s.f. tók til starfa í'
desember á síðasta ári og viðtökurnar
hafa verið mjög góðar," sagði Guð-
brandur Jónatansson eigandi verslun-
arinnar Vatnsrúm.
Eins og nafnið bendir til selur
verslunin ýmsar tegundir vatnsrúma,
og er hún sú eina sem sérhæfir sig í
því hérlendis. „Á Heimilinu ’85 ætl-
um við að hafa rúmin til sýnis í
rúmgóðum bás og leyfa fólki að
prófa. Einnig verða til sýnis snyrti-
borð og skápar í stíl við rúmin.
Það virðist vera mjög útbreiddur
misskilningur að mjúkar dýnur eins
og eru í vatnsrúmum séu hræðilega
óhollar fyrir bakið o.s.frv. Öðru nær,
vatnsrúmin eru sérstaklega vinsæl af
bak- og gigtveiku fólki. Þau eru t.d.
einkum hentug fyrir gigtveikisjúk-
linga sem þola illa kulda og trekk því
þau eru með sérstöku upphitunar-
kerfi. Þessi upphitun hefur líka þau
áhrif að hjartað hvílist um 30%.
Rannsóknir hafa sýnt að menn sem
sofa á venjulegri dýnu bylta sér allt að
því 80 sinnum á nóttu en þeir sem
sofa á vatnsdýnu aðeins 8 sinnum.
Þetta er vegna þess að í vatnsrúmum
deilist líkamsþyngdin jafnt niður á
allan líkamann því dýnan leggst alls
staðar að honum, ekki bara á vissa
parta líkamans. Þetta þýðir því mun
meiri hvíld og stöðugri svefn en á
venjulegum dýnum.
Rúmin sem við seljum vatnsdýn-
urnar í eru viðarrúm sem eru sérstak-
lega þykk og traust, úr völdum norsk-
um viði.
Þessar vatnsdýnur eru með sérstök-
um dempurum sem koma í veg fyrir
öldugang og hver einasta dýna er
handunnin. Það skiptir hins vegar
máli hvernig dýnan er stillt, við sjáum
um uppsetningu og stillingu. Ef þreyt-
an líður úr þegar lagst er á vatnsdýnu,
þá er hún rétt stillt,“ sagði Guðbrand-
ur að lokum.
Dóra Jónsdóttir gullsmiður: „íslenski þjóðbúningurinn er sígildur.
■ „Þjóðbúningaskraut er okkar sér-
grein," sagði Dóra Jónsdóttir gull-
smiður í Gullkistunni á Frakkastíg í
samtali við NT. „Á sýningunni ætlum
við að hafa samvinnu við Þjóðdansafé
lag Reykjavíkur og verða sýningar-
atriði með vissu millibili, þar sem þau
dansa í þjóðbúningum með skrauti
frá Gullkistunni.
Þeir skrautmunir sem fylgja t.d.
íslenska upphlutnum. eru býsna
margir, t.d. millur, reimar, nálar,
skúfhólkur og mikið af þjóðbúninga
silfri sem Gullkistan sér um að gera.
Það er um að ræða hjá okkur bæði
verslun og verkstæði þar sem við
framleiðum okkar eigin framleiðslu
og einnig eftir pöntunum. Það er
algengt að íslendingar búsettir er-
lendis t.d. Vestur íslendingar panti
hjá okkur þjóðbúningasilfur."
„En heldur þjóðbúningurinn alltaf
vinsældum sínum?“
„Já, það gerir hann sem betur fer.
Þótt hann sé mun minna notaður nú
en áður fyrr, er hann hafður sem
landkynning þegar íslendingar fara
erlendis, t.d. kórar klæðast honum
oft, einnig er hann notaður á alls kyns
alþjóðaráðstefnum.
Þjóðbúningurinn er eitt af þjóðar-
einkennum okkar íslendinga og jafn
mikilvægur og menning okkar og
mál,“ sagði Dóra að lokum.