NT - 12.09.1985, Qupperneq 3
Fimmtudagur 12. september 1985 3
Næstu
réttir
■ Réttir eru nú í fullum
gangi og á mánudag 16.
sept. verður réttað í
Brekkurétt íNorðurárdal,
Fellsendarétt í Miðdölum,
Fljótstungurétt á Hvítár-
síðu og í Reynistaðarétt í
Staðarhreppi í Skagafirði.
Á miðvikudag þann 18.
sept. mun verða réttað í
Hítardalsrétt í Hraun-
hreppi, Klausturhólarétt í
Grímsnesi, Oddstaðarétt
í Lundareykjadal, Svigna-
skarðsrétt í Borgarhreppi
og í Tungnárréttum í Bisk-
upstungum.
Bændur í Þverárhlíð
munu rétta þriðjudag og
miðvikudag í Fverárrétt í
Mýrasýslu.
Síldarverksmiðjan eins
og stóriðja nútímans
- kvikmyndatökum nýrrar heimildarmyndar um
síldarárin á Djúpuvík á Ströndum nýlokið
Þorskaflinn 42 þúsund
lestum meiri en 1984
- en 29 þús. lestum minna af öðrum botnfiski
■ Síldarævintýrið mikla í
Djúpuvík er uppistaðan í heim-
ildarmynd sem þeir Finnbogi
Hermannsson og Hjálmtýr
Heiðdal hafa verið að vinna
að undanfarið.
Aðdragandi myndarinnar er
að sögn Finnboga að hann gerði
nokkra útvarpsþætti fyrir
nokkrum árum undir nafninu:
Par sem kreppunni lauk 1935.
Hjálmtýr sagðist hafa spekúl-
erað lengi í að gera heimildar-
mynd um þennan merka stað og
Bundið slitlag:
■ Að sögn Helga Hallgríms-
sonar forstjóra tæknideildar
Vegagerðar ríkisins er búið að
leggja um 200 km af bundnu
slitlagi í sumar, víðsvegar um
landið.
Sagði Helgi að framkvæmdir
hefðu víðast gengið vel.
Dagmæður á
Sóknartaxta
■ Félagsfundur í Félagi
dagmæðra samþykkti í
fyrrakvöld nýja gjaldskrá,
sem felur í sér að hér eftir
vinna dagmæður eftir Sókn-
artöxtum miðað við að þær
hafi 5 börn í fóstri. Hingað
til hafa dagmæður aðeins
haft Sóknartaxtana til við-
miðunar. Sérstakt leyfi þarf
til að hafa 5 börn og ef
aðstæður eru einhverra
hluta vegna ekki til þess
lækka laun dagmæðranna
sem því nemur. Þá koma
starfsaldurshækkanir nú inn
í gjaldskrárnar í 1. sinn og
er þar farið nákvæmlega eft-
ir Sóknartöxtunum.
Hér eftir verður gjald fyrir
hvert barn hjá dagmóður á
1. taxta 3.427 krónur á mán-
uði miðað við að hún hafi 5
börn í fóstri, 3.984 krónur á
2. taxta, 4.328 krónur á 3.
taxta og 4.575 krónur á 4.
taxta. Þá er miðað við 5
börn og 10,17% orlof og
3,5% vegna veikindadaga
eru innifalin. Miðað er við
heilsdagsgæslu.
Nú er starfandi í Reykja-
vík um 400 dagmæður og sjá
þær um gæslu nálega 1100
barna.
þarna var kjörið tækifæri og
samstarf þeirra hófst 1982.
Þeir félagar sögðust hafa unn-
ið að myndinni að mestu í
hjáverkum og nú eru myndatök-
ur að mestu búnar.
Þeir voru sammála um að
myndin væri um atvinnusögu
Árneshrepps og ekki síst um
rekstrarsögu stærstu síldarverk-
smiðju sem var reist á þessum
tíma á íslandi.
Finnbogi sagði að þeir hefðu
rætt við margt fólk sem vann í
Bundið slitlag er nú komið á
rúmlega 1100 km af vegakerfi
landsins en það er um 8420 km
í heild.
Hringvegurinn er um 1425 km
og vantar því talsvert upp á að
hringvegurinn verði alveg með
bundu slitlagi.
Að öðru leyti vildi Helgi ekki
tjá sig um framkvæmdir í sumar
þar eð ekki er búið að gera
skýrslu þá sem tilgreinir hversu
margir km hafa verið lagðir í
hverri sýslu.
■ Þorskaflinn í ágústmánuði
var rúmar 24 þús. lestir sem er
um 39% minna en í ágúst 1984.
Þar af fengu togarar nú 16.565
lestir, sem er rösklega 10 þús.
lestum minna en í ágúst í fyrra.
Af öðrum botnfiski veiddu tog-
ararnir um 16.500 lestir, eða um
6 þús. lestum meira en 1984,
þannig að heildarafli þeirra var
nú rúmlega 4 þús. tonnum minni
en í ágúst 1984. Afli bátaflotans
að loðnu undanskilinni var nú
rösklega 16 þús. lestir, sem er
síldarverksmiðjunni í Djúpuvík
og til væri fjöldi ljósmynda sem
sýndu að mikið líf hafi verið í
tuskunum þegar síldin var og
hét.
Hjálmtýr sagði að þeir reyndu
að varpa ljósi á þau áhrif sem
síldarverksmiðjan hafði á líf
fólksins í fjörðunum. Taldi
hann að það mætti líkja síldar-
verksmiðjunni við stóriðju nú-
tímans eins og til dæmis Álverið
eða eitthvað slíkt.
Síldarverksmiðjan í Djúpu-
vík starfaði til ársins 1952 og var
seld á uppboði 1968.
Byggöin fór að vísu ekki alveg
í eyði og síðasti íbúinn frá
síldarárunum flutti burt upp úr
1980. Þar er nú starfsemi að
hefjast að nýju eins og kunnugt
er undir stjórn hlutafélagsins
Magnús Hannibalsson.
Þeir Finnbogi og Hjálmtýr
sögðu að kvikmyndasjóður
hefði sýnt þessu framtaki þeirra
mikinn skilning og þeir hefðu
fengið þrisvar úthlutað úr
sjóðnum.
Þeir sögðust ætla að reyna að
selja Sjónvarpinu myndina en
þeir vissu ekki nákvæmlega hve-
nær myndin yrði alveg tilbúin,
en hún verður líklega um 30-45
mínútur að lengd.
■ Síldarvcrksmiðjan í Djúpu-
vík sem nú er verið að gera
heimildarmynd um. E.t.v. verð-
ur þarna fiskeldi á næstunni.
u.þ.b. jafn mikið og í ágúst
1984, en þar við bætast nú rúm-
lega 30 þús. tonn af loðnu sem
var engin í ágúst 1984. Heildar-
afli fiskiskipaflotans varð því
samtals rúmlega 79 þús. lestir í
ágúst.
Frá áramótum til ágústloka
er botnfiskaflinn svipaður og í
fyrra eða samtals 433 þús. lestir,
sem er um 12 þús. lesta aukning
frá sama tíma í fyrra. Þar af er
togaraafli nú um 238 þús. lestir,
sem er um 8 þús. lestum minna
en í ágústlok 1984, en bátaaflinn
hins vegar 195 þús. lestir, eða
rúmlega 20 þús. tonnum meiri.
Munurinn frá því í fyrra felst
fyrst og fremst í því að nú hafa
veiðst rúmlega 251 þús. lestir af
þorski sem er nær 42 þús. lestum
meira en í fyrra, en tæplega
182 þús. lestir af öðrum botn-
fiski sem er rúmlega 29 þús.
lestum minna en 1984 á sama
tíma. Af þorskinum hafa um
120 þús. lestir komið í hlut
togaranna á móti 106 þús. lest-
um í ágústlok 1984 og 131 þús.
lestir í hlut bátanna á móti
tæplega 104 þús. lestum í fyrra.
Af loðnu hafa nú veiðst tæp-
lega 375 þús. lestir frá áramót-
um, sem er 63 þús. lestum
minna en 1984. Rækjuaflinn frá
áramótum er tæplega 16 þús.
lestir - um 1 þús. lestum minni
en 1984.
Heildaraflinn frá áramótum
er nú kominn í rúmlega 832 þús.
lestir á móti 884 þús. lestum á
sama tíma 1984.
Um 200 km
lagðir í sumar
MV'Í mnsmólm
innritun stendur yfir í síma: Reykjavík 38830
Hafnarfjörður 52996.
Kl. 10-12 og 14-19