NT - 25.09.1985, Page 9
Miðvikudagur 25. september 1985 9
í göngum skiptast á
skin og skúrir
lega að halda könnun sinni og
tilraunum áfram og nýtur til
þess stuðnings bændasamtak-
anna. Seinna kemur svo vænt-
anlega til álita hvernig fjár-
magna skuli þá auglýsingaher-
ferð sem nauðsynleg er við að
brjótast inn á markaðinn. Þeg-
ar búið er að sannfæra eigend-
ur amerískra veitingahúsa um
að hér sé lúxusvara í boði er
kannske hálfur sigur unninn.
„Geymslugjaldið og sölu-
launin voru alltaf gulltrygg",
segir blaðið. Að þeim atriðum
komum við síðar.
Sunnudagsleiðarinn segir að
á Hvanneyrarfundinum hafi
mjög verið rætt um hvernig
lækka mætti kostnað innan
Iands. „Meðal annars var upp-
lýst að sláturkostnaður hjá
Kaupfélagi Þingeyinga, Húsa-
vík haustið 1983 hefði verið
kr. 22,5 milljónir, þar af voru
5,5 millj. króna vinnulaun og
0,5 milljónir umbúðir".
Þetta var hroðalegt rugl.
Rangt er farið með tölur.
Vinnulaunin voru 7,5 milljónir
og umbúðir 810 þús. kr.
Hitt er þó stórkostlegra að
höfundur leiðarans hefur ekki
hugmynd um hvað hann er að
tala um. Hann segir að slátur-
kostnaður hjá K.Þ. hafi numið
22,5 millj. kr. 1983. í þessum
sláturkostnaði telur hann allan
kostnað við sölu afurðanna,
frysti og geymslugjöld sem
nema 4,5 millj. kr. og vaxta-
kostnað 3,5 millj. kr.
Flutningskostnað á kjöti t.d.
frá Húsavík á aðra sölustaði
kallar hann siáturkostnað.
Vaxtakostnaður vegna þess að
bændum er borguð varan áður
en hún er seld kallast slátur-
kostnaður á rnáli þessa leið-
beinanda.
Þegar höfundur hefur dregið
þær röngu tölur sem hann
notar um vinnulaun og umbúð-
ir frá 22,5 millj. segir hann.
„Eftir standa 16,5 millj. kr.
sem eitthvað var óljóst hvernig
til væru komnar. Hvar var
eitthvað óljóst? Hvers lags
dylgjur eru þetta?
Það var margt óljóst í því
vesala höfði sem sat á leiðara-
höfundi Alþýðublaðsins. Ekki
lánaðist að fara rétt með tölur
og skilningur á því sem til
umræðu var tekið nánast
enginn. Það hittir því höfund
sjálfan að eitthvað var óljóst.
Kaupfélag Þingeyinga
gekkst fyrir fundi um sölu
landbúnaðarafurða að Ýdöl-
um í Aðaldal 27. apríl 1985.
Þar voru lagðar fram „nokkrar
tölulegar upplýsingar" um
afurðasöluna frá haustinu
1983. Naumast verður öðru
trúað en bændur á Hvanneyr-
arfundinum hafi lagt þær stað-
reyndir sem þar komu fram til
grundvallar máli sínu.
Hitt ættu allir að skilja að
það ieiðir aldrei til réttrar
niðurstöðu að fara rangt með
tölur og staðreyndir. Umræð-
an er auðvitað jafn ómerk og
gagnslaus hvort sem vitleys-
unni veldur ókærni eða eitt-
hvað annað.
Um sölulaun, geymslugjald
og sjálfstæði búvörudeildar
ræðum við í annarri grein.
H.Kr.
■ Þegar ég set þessar línur á
blað eru fyrstu gangnamenn
farnir .á fjöll á þessu hausti.
Framundan er annatími í sveit-
um landsins. Þegar þetta skrif
birtist á prenti eru réttir af-
staðnar og sláturtíð stendur
yfir. Samtímis fara fram eftir-
leitir um öll öræfi þar sem
fjárvon er. Eru þær ferðir oft
slarksamar, en bændur leggja
á það áherslu að leita vel til
þess að skepnur verði ekki úti
þá vetur leggst að.
Mikill rnunur er á aðbúnaði
gangnamanna nú eða á árum
áður. Ég minnist þess að hafa
með mínum félögum heilan
dag vegna stórhríðar en hinn
næsta dag var veðrinu slotað.
Þá var gaman að ríða yfir
Stórasand og koma niður í
Fljótsdrög í glampandi sól-
skini. Ég hef einnig komist í
það að liggja um kyrrt í skála
vegqa þess að þokan var svo
dimm að ekkert smalaveður
var. Þann dag spiluðu menn
lomber og höfðu það gott, en
hinn næsta dag var snemma
risið úr rekkju því fé hafði
runniðfram þokudaginn. Varð
því að ríða vel á til þess að ná
því öllu. Svona skiptrtst á skin
og skúrir en það er jafnvel það
sem gerir göngurnar svona
eftirsóknarverðar og marga
fýsir aftur og aftur að fara í
göngur.
Ég hef orðið þess var að þeir
innisetumenn úr þéttbýlinu,
sem hafa komist á það að fara
í göngur, sækja mjög í það ár
eftir ár. Þar finna þeir til
mikilla tengsla við náttúruna,
þeir takast á við hluti, sem þeir
eru ekki í snertingu við dags
daglega og úr göngum koma
þeir endurnýjaðir menn og lifa
á minningunum langt fram á
vetur.
Þegar ég sit hér og festi
þessar línur á blað eru undan-
reiðarmenn úr Þingi og
Vatnsdal að smala Fljótsdrög.
Þeir hafa í dag bjart veður en
hvasst. Hætt er við að erfitt sé
að leita upp á mestu öræfun-
um, því té vill liggja niðri
þegar svo hvasst er. A Sandi er
nú gráflekkótt og skyggni því
ekki upp á það besta.
Mér til gamans flaug ég yfir
þá félaga skömntu fyrir hádegi.
Raunar var svo hvasst í nánd
við jökulinn að ég fór suður
fyrir Krák. En á hásandi ogþar
suöur af voru þeir félagar
komnir á sínar göngur og
stefndu vestur Sandinn og í
kvöld hafa þeir náttstað í
Fljótsdrögum. Bílstjórinn var
kominn niður með Bláfelli
nteö farangur gangnamanna og
ráðskonu. í kvöld bíður þeirra
heitur matur í skála og þar
vcrður glatt á hjalla ef að
líkum lætur. Á morgun verður
snemma risið úr rekkju. Sumir
rcka fcð noröur yfir Stórasand,
aðrir leita Drögin öðru sinni.
í dag var mér hugsað til þess
hve maðurinn er í raun lítill þá
hann er cinn á ferð á sínum
hesti og með sinn hund á þess-
'um reginöræfum. Mér var
hugsað til þeirra mörgu svaðil-
fara, sem menn og hestar hafa
lent í á öræfunum þegar þeir
eru þar að leita kinda. Og mér
var hugsað til þess hvernig
menn fóru aö rata um auðnir
eins og Stórasand þar sem lítið
er til þess að átta sig á, áður en
áttavitar og önnur hjálpartæki
komu til sögunnar. Ég er þó
alls ekki viss um að gangna-
menn nútímans séu neitt viss-
ari með að rata nema síður sé
með sína áttavita og kort.
Ratvísi þeirra, sern fyrrum
fóru ár eftir ár í ýmsar fjalla-
ferðir var oft á tíðum alveg
ótrúleg.
Og þegar ég sneri við yfir
Stórasandi og flaug norður yfir
heiðarnar var mér hugsað til
þess hve mikil gullkista þessi
afréttarlönd okkar eru. Þarna
var féð vel dreift um alla
afréttina en á næstu dögum
verður það rekið til byggða og
lömbin fara í sláturhús. Er
ekki möguleiki fyrir okkur að
vinna markaði erlendis fyrir
þetta lambakjöt út á það að
lömbin hafa vaxiö upp í þessari
víðáttu og 'bitið villt gras á
ómenguðu landi?
En í byggðinni karpa menn
síðan urn nýtingu þessa lands.
Sumir telja heiðarnar ofsetnar
og allt að fara í auðn. Aörir
telja vaðandi gras um alla jörð
og allt það blaður, sem sagt er
um ofbeit og óhóflega nýtingu.
Svona eru öfgarnar og oft
hafa þeir hæst öfgamennirnir
á báðum köntum, sem aldrei
t’ara neitt um heiðarlöndin og
þekkja þau því aðeins af
afspurn.
Vonandi finna hófsamari
menn leiö milli þessara öfga
þannig aö afréttarlöndin verði
áfram sú gullkista, sern þau
hafa verið og göngur og réttir
verði áfram sem hingað til snar
liöur í okkar þjóðlífi.
Magnús Ólafsson
Sveinssföðum
Það var margt óljóst í því vesala
höfði sem sat á leiðarahöfundi Al-
þýðublaðsins. Ekki lánaðist að fara
rétt með tölur og skilningur á því
sem til umræðu var tekið nánast
enginn.
Vonandi finna hófsamari menn leið
milli þessara öfga þannig að afrétt-
arlöndin verði áfram sú gullkista,
sem þau hafa verið og göngur og
réttir verði áfram snar liður í okkar
þjóðlífi.
farið í göngur með nesti og
viðlegubúnað á trússahesti. I
náttstað var slegið upp botn-
lausu tjaldi, enda engin hús
hvorki yfir menn né hesta. Nú
er farangur gangnamanna víð-
ast fluttur á ökutækjum, góð
hús eru komin yfir mcnn og
hesta og algengt er að ráðs-
kona og heitur matur bíði
gangnamanna þá komið er í
náttstað að kvöldi. Aðbúnað-
urinn er því allur annar, en hitt
er óbreytt. í göngum er enn
gleðskapur og í göngum eru
menn í nánu samneyti við
náttúru landsins og verða að
takast á við náttúruöflin
hvernig sem viðrar. Mörg
dæmi eru' um það að einn
daginn sé sólskin og blíða, en
hinn næsta þoka eða jafnvel
hríð. Sjálfur hef ég komist í
það að Iiggja um kyrrt í skála
Svona skiptast á skin og skúrir en
það er jafnvel það sem gerir göngur
svona eftirsóknarverðar og marga
fýsir aftur og aftur að fara í göngur.
tekjum sínum en hafa lítinn
afgang t.d. til að kaupa ríkis-
skuldabréf. Þó er fjárhagur
þeirra misjafn eins og gengur
og gerist hjá landsins börnum.
Sum hafa komið sér vel fyrir
og eiga góða og stönduga að
sem hlúa að sínu, gæta þess að
þau verði ekki skilin útundan
þegar eitthvað er til skiptanna.
Nú má það vera þeim ljóst
sem eiga þess kost að sjá dag-
blöð landsins að auglýsingar
ríkissjóðs birtast misjafnlega
oft í þeim og eru þar einnig
misjafnlega stórar og dýrar.
Þetta sjá þó ekki allir, ekki
þeir sem hafa ekki Morgun-
blaðið til viðmiðunar því þar
má nánast telja að ríkissjóður
sé fastur dálkahöfundur með
sínar auglýsingar.
Ástæðan fyrir því að ríkis-
sjóður auglýsir þar svo stíft er
ekki sú að auglýsinga-
verð Morgunblaðsins sé lægra
en hjá öðrum, vitað er að
svo er ekki. Þá vita líka allir að
Morgunblaðið sést ekki á
fjölda heimila landsins og mjög
margir sjá það ekki nema stöku
sinnum. Verulegur hluti
landsmanna sér það alls ekki,
einfaldlega vegna þess að þeir
kaupa önnur blöð.
Nú má velta því fyrir sér
hvort það séu einungis kaup-
endur Morgunblaðsins sem
telja má að geti keypt ríkis-
skuldabréf eða hvað kemur til
að svo mikið er höfðað til
þeirra? Varla getur verið að
ríkissjóður íslands vilji gera
upp á milli blaðanna og láta
einungis eitt þeirra hafa veru-
legar tekjur af sinni auglýs-
ingaherferð, - eða hvað?
Til vinsamlegrar
athugunar
Eflaust hafa margir keypt
ríkisskuldabréf og ávaxta þar
með sitt pund á skynsamlegan
máta. Þó eru líklega fleiri sem
ekki hafa gert það en með
betri tíma má reikna með að
þeir hugsi um slíka hluti. En
þá kemur sú spurning, velja
þeir ríkisskuldabréf frekar en
aðrar ávöxtunarleiðir. Ég ætla
mér ekki að fullyrða neitt, en
mér býður í grun að svo sé
fleirum farið en mér, að fyllast
vissum mótþróa gagnvart þess-
um auglýsingum sem Morgun-
blaðið græðir á umfram önnur
blöð og svo að ég tali hreint út,
þá eru auglýsingar ríkissjóðs
um ríkisskuldabréf sem birtast
í Morgunblaðinu farnar að
hafa öfug áhrif á mig og ég veit
að svo er um fleiri. Okkur
gremst að ríkissjóður sem ekki
er í einkaeign skuli styrkja svo
eiit dagblaðanna umfram önn-
ur að við hugsum okkur veru-
lega um áður en við látum
ríkissjóð njóta þess fjármagns
sem við e.t.v. getum séð af um
tíma.
Þessar ábendingar teldi ég
að væri rétt að skoða fyrir þá
sem stjórna auglýsingaherferð
ríkissjóðs.
Níels Árni Lund
GERSEMl
- GULLI BETRI
Seðlah.mki MíiihIs. \i<Vki|il.ih.mkiirmr. sparixþWMi.
nnkkril verðhrelasaliir ng pnsllms um liiiul alll.
RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS