NT


NT - 25.09.1985, Side 16

NT - 25.09.1985, Side 16
Laus staða Staða bókafulltrúa í Menntamálaráðuneyt- inu, sbr. 10. gr. laga nr. 50/1976 um almenn- ingsbókasöfn, er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Þar sem fyrir dyrum stendur endurskoðun áðurgreindra laga um almenningsbókasöfn, verður að svo stöddu aðeins ráðið í stöðuna til eins árs. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist Menntamálaráðu- neytinu fyrir 18. október næstkomandi. Menntamálaráðuneytið 19. september 1985 Laust embætti er forseti íslands veitir Embætti skipulagsstjóra ríkisins er laust til umsóknar en það veitist frá 1. desember 1985. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist félagsmála- ráðuneytinu fyrir 1. nóvember 1985. Félagsmálaráðuneytið 23. sept. 1985 Okkur vantar starfsfólk nú þegar til almennra sláturhússtarfa. Upplýsingar gefur verkstjóri í síma 97-8884 og skrifstofa félagsins í síma 97-8880. Kaupfélag Berufjarðar, Djúpavogi. Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur verður haldinn þriðjudaginn 1. október n.k. kl. 20.30 í Lindarbæ, fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Stjórnin BARUPLAST Framleiðum báruplast í ýmsum lengdum. Vönduð vinna á hagstæðu verði. Leitið upplýsinga. Plastiðjan Mörk Sími: 99-6557 Villingaholtshreppi Miðvikudagur 25. september 1985 16 Það er óvanalegt að sjá þetta par svo glaðlegt á svipinn, enda er þetta einkamynd af Veronicu Hamel og Daniel Travanti - en ekki af lögregluforingjanum Frank Furillo og lögfræðingnum Joyce Davenport í „Hill Street Blues“. Þau sjáum við aftur á móti á litlu innfelldu myndinni, þar sem þau eru ásamt yfirlögregluþjóninum á stöðinni (Michael Conrad). Lögregluforinginn og verjandinn eru elskendur í sjónvarpsþáttunum „Verðir laganna“ og voru það líka í einkalífinu ■ í sjónvarpsþáttunum Verðir laganna (Hill Street Blues) var það tilbreyting frá eltingaleik og slagsmálum við bófa, þegar Furillo lögreglu- foringi (leikinn af Daniel Tra- vanti) og verjandinn Joyce Davenport (Veronica Hamel) stálust frá skyldustörfunum smátíma og ætluðu að „hafa það huggulegt.“ Þau voru kannski komin fáklædd upp í rúnt og farin að láta vel hvort að öðru, - en þá brást það ekki að kalltækið í jakkavasa lög- regluforingjans fór að pípa og ástafundur varð því enda- sleppur. Til huggunar fyrir róman- tískar sálir skal þess því getið hér, að Veronica og Daniel áttu betri og rólegri fundi þar sem engar sjónvarpsvélar voru til staðar. Þau voru um þessar mundir bæði fráskilin og urðu ástfangin hvort af öðru og hamingjan virtist brosa við. Síðar kom eitthvert babb í bátinn, - surnir segja að met- ingur um hlutverk þeirra í sjónvarpsþáttunum hafi skemmt sambandið, en þau sjálf gefa í skyn, að ástarsam- bandið hafi bara runnið út í sandinn, en þau séu bestu vinir enn. Daniel Travanti segist hafa verið alkohólisti, en hann hef- ur ekki smakkað áfengi frá árinu 1973. Hann býr einn, með kettinum sínum, í fallegu litlu húsi í Santa Monica fyrir utan Los Angeles. Veronica er oft gestur hans þar, og hann segist þá vanda sig og búa til góðan mat handa þeim, og svo sitji þau og horfi yfir Kyrrahaf- ið og rabbi saman. Veronica hefur geysilegan áhuga á að koma sér áfram og hún hefur neitað hlutverkum sem buðust henni, þar sem einungis er farið fram á að hún sýni sína löngu leggi og fagra hár. „Þá er betra að vera í lögguþáttunum," segir hún. En nú hefur henni boðist hver rullan annarri betri. Hún leik- ur um þessar mundir stórt hlutverk f sjónvarps-seríu sem heitir „Kain og Abel" og þar leikur hún á móti Sam Neill (sem við munum eftir sem Reilly) og líka leikur þar Peter Strauss sem lék þann ríka í Gæfa og Gjörvuleiki (Rich Man Poor Man). Veronica býr líka ein með svarta kettinum sínum, Black, og segist ekki hafa í huga að breyta til með sambúðarfé- laga! Sú hárprúðasta í Noregi! ■ Það var tímarit í alltaf sofa með hárið í Noregi sem gekkst fyrir fléttum, því annars yrði samkeppni um hver það svo flókið að það væri hárprúðasta stúlk- tæki tímann sinn á an þar í landi. Brynhild morgnana að greiða Hunskaar, 18árastúlka sér. „Það er ekki nema frá Sandefjord, var sig- við hátíðleg tækifæri, urvegari. Hárprýði svo sem á 17. maí há- hennarmældist 1.38m! tíðahöldum, sem ég er Brynhild var spurð með hárið slegið,“ hvað hún hefði gert fyr- sagði sigurvegarinn í ir hár sitt til að örva keppninni um hárprúð- hárvöxtinn, en hún ustu stúlkuna í Noregi. sagðist ekkert gera - annað en að lofa því að Hún fékk margt í vaxa. Reyndar væri verðlaun, og m.a. ferð aðeins sært neðan af til Oslóborgar, þar sem hárinu öðru hverju, lík- hárgreiðslumeistarar lega nokkrir sentimetr- spreyttu sig á að greiða ar á ári. Hún sagðist hið fagra hár hennar. ■ 138 sm á sídd er fallega hárið hennar Brynhild, og hér sést Rannveig systir hennar aðstoða við myndatökuna í Osló.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.