NT - 25.09.1985, Page 18
I
Handknattleiks
MOLAR...
■ ...Hvcrgerdingar
vcrða nú í fyrsta skipti
mcð í handboltanum.
Karlalið þeirra mun taka
þátt í 3. deildinni og er
það sjálfsagt mikið að
þakka Stefáni Halldórs-
syni, fyrrverandi Víkingi,
en hann mun þjálfa og
leika með liðinu...
... Kvennaboltinn virð-
ist heldur vera á niðurleið
hér á landi. Þór frá Akur-
eyri hætti við þátttöku í
1. deild og keppa vcrður
því um aukasætið. Ár-
manni, Þrótti og ÍBV hef-
ur verið boðið að leika
um sætið en Þróttur vill
það ekki. Ergó, Ármann
og ÍBV spila um sætið en
leikdagur hefur ekki ver-
ið ákveðinn...
...Nýjar leikreglur
munu taka gildi á þcssu
tímabili og cru brcytingar
all nokkrar. Að vísu er
ekki um ncina hyltingu
að ræða og sumar regl-
urnar eiga sjálfsagt eftir
að reynast erfiðar í
framkvæmd. Nú er t.d.
afmarkað skiptisvæði og
mega lcikmenn aðeins
hita upp á því. Það cr
spurning hvernig þetta
svæði verður tekið út á
stöðum eins og í íþrótta-
húsinu, Digranesi. Sjálf-
sagt verður þó almenn
skynsemi látin ráða enda
oftast ráða snjallast...
...HSÍ hel'ur ráðist í
það fyrirtæki að gcfa út
sérrit um íþróttina.
„Handboltinn" hcitir
blaðið og er hið vandað-
asta í alla staði. í fyrsta
tölublaðinu scm komið
er út er að fínna margt
fróölegt, þar á meðal
viðtal við Gústaf Björns-
son sem þjálfar kvcnnalið
Fram. Þar koma frain
mörg þau vandamál sem
kvennaboltinn á við að
glíma...
Miðvikudagur 25. september 1985 18
■þrottir
Undankeppni HM:
Víða barist
■ Theódór
handboltann
knöttinn. Eflaust verður
hart slegist um
NT-mynd: Róbert
Islandsmótið í handknattleik:
Frábrugðið mót
Spiluð verður tvöföld umferð og engin úrslitakeppni
■ íslandsmótið í handknatt-
leik hófst um síðustu helgi og
verður mótafyrirkomulagið
töluvert frábrugðið því sem
þekkst hefur undanfarin ár.
Keppt verður á fullu fram í
miðjan janúar en þá er áætlað
að mótinu Ijúki. Engin úrslita-
keppni er að þessu sinni heldur
er tvöföld umferð þar sem liðin
leika heima og heiman hvort við
annað.
Fyrirkomulag þessa íslands-
móts einkennist í raun mjög af
þátttöku landsliðs okkar í A-
heimsmeistarakeppninni, en
hún fer fram í Sviss 25. febrúar
til 8. niars á næsta ári. Að henni
lokinni mun bikarkeppnin síðan
fara frani hér á landi. Af þessu
leiðir að keppnistímabilið hjá
handboltamönnum og konum
verður slitrótt og á vafalaust
eftir að valda cinhverjum þjálf-
aranum hausverk og magapínu,
nema hvort tveggja sé.
Þetta kemur þó ekki í veg
fyrir að íslandsmótið gæti átt
eftir að verða geysispennandi
og skemmtilegt. Fyrirkomulag-
ið er reyndar mjög þægilegt
fyrir hina fjölmörgu aðdáendur
handknattleiks því mótið er nú
keyrt í gegn á skömmum tíma
og nóg verður því að gerast á
næstu mánuðum. Þannig verður
nokkuð auðvelt fyrir áhorfend-
ur að fylgjast með stöðunni og
gengi „síns liðs".
Eins og flestir sjálfsagt vita
hafa margir snjallir kappar horf-
ið úr handknattleiknum hér á
skerinu og haldið erlendis í
spilamennsku og er allt gott um
það að segja. Ábyrgðin hefur
því í mörgum tilfellum færst yfir
á yngri og óreyndari leikmenn.
íslenskur handknattleikur virð-
ist hinsvegar ekki geta hætt að
koma upp með unga og stórefni-
lega spilara og var það auðsýni-
legt í fyrstu leikjunum um síð-
ustu helgi. Gildi íslandsmótsins
er því engu minna þrátt fyrirað
vanti nokkur stór nöfn, þvert á
móti gæti mótið átt eftir að
verða ennþá jafnara og
skemmtilegra.
Síðastliðið vor fékk HSÍ tölvu
eina að gjöf og hefur móta-
nefnd, skipuð þeim Jóni Kr.
Óskarssyni, Marinó Njálssyni
og Guðrúnu Helgadóttur, not-
fært sér gripinn við gerð móta-
skráar. Marinó forritaði tölvuna
sem þakkaði fyrir sig og kom út
með heila mótabók. Mun þetta
vera í fyrsta sinn sem mótabók
er tilbúin fyrir mót og á nefndin
skilið lof fyrir. í þessu riti er að
finna allt sem að notum gæti
komið og ættu handknattleiks-
unnendur að hafa eitt stykki sér
við hönd.
(stuttu máli: handboltinn er
hafinn og líkur eru á spennandi
og skcmmtilegu móti ef marka
má leiki þá er fram fóru um
síðustu helgi.
■ Það verður víðar barist um
sæti á stærsta knattspyrnuvið-
burði heims, HM í Mexíkó, en
á Spáni þar sem íslendingar
reyna að velgja Spánverjum
undir uggum. Búlgarir og V-
Þjóðverjar munu reyna að
tryggja sér sæti í Mexíkó og
Sovétmenn reyna að stöðva
Dani og komast þannig sjálfir í
aðstöðu til að ná Mexíkóferð
frekar en Irar eða Svisslending-
ar.
í augnablikinu þá virðist lík-
legt að Búlgörum takist að kom-
ast til Mexíkó. Þeir leika gegn
Lúxemborgurum og ættu að
eiga náðugan dag. Sigur Búlg-
ara - enginn reiknar með öðru
- mun setja þá á toppinn og
Júkkar, Frakkarog A-Þjóðverj-
ar myndu þurfa að slást um hinn
miðann til Mexíkó úr fjórða
riðli.
V-Þjóðverjar munu spila í
Svíþjóð og sigur hjá þeim gæfi
miða til Mexíkó. Þá væri sigur-
inn einnig góð afmælisgjöf til
Beckenbauers þjálfara sem hóf
landsleikjaferil sinn í Svíþjóð
fyrir 20 árum. Þá unnu Þjóð-
verjar 2-1. Þeir hafa ekki tapað
leik í undankeppninni til þessa.
Sigri Svíar standa þeir vel að
vígi í slagnum um annað sætið
í öðrum riðli.
í þessum sama riðli spila
Tékkar gegn Portúgölum í Prag
í dag. Portúgalir verða að ná
stigi og vona að Þjóðverjar
vinni Svía til að komast í annað
sætið í riðlinum. Portúgalir eru
með nokkra lykilmenn meidda
en treysta mjög á markamask-
ínuna Gomes, markahæsta
mann Evrópu síðasta ár.
Loks fara Danir til Moskvu
og kljást við heimamenn. Þetta
er mikilvægur leikur fyrir bæði
lið. Sigri Danir eru þeir svo gott
sem tryggir með farseðil til Mex-
íkó en Sovétmenn verða að
vinna til að halda vonum sínum
lifandi. Geri þeir það þá eiga
þeir sæti nokkuð víst því þeir
eiga eftir heimaleiki gegn írum
og Norðmönnum.
Þá má geta þess að Finnar og
Tyrkir leika einnig á morgun en
úrslit í þeim leik hafa engin
áhrif á stöðuna í þeirra riðli.
Einn vinátfuleikur verður
einnig í kvöld. ítalir, núverandi
heimsmeistarar taka á móti
Norðmönnum í Lecce á Ítalíu.
■ ...Golfsnillingurinn
Severiano Ballesteros
bætti enn einni rós í
hnappagat sitt er hann
sigraði á Opna meistara-
mótinu í Barcelona.
Ballesteros fór hring-
ina fjóra á 272 höggum og
vann sér inn litlar milljón
krónur íslenskar. Þetta
var fjórði sigur Ballester-
os á þessu ári en Spán-
verjinn hafði áður unnið
Opna franska- og írska
meistaramótið og einnig
stórmót í New Orleans.
Jeff Hawkes frá S-Af-
ríku varð í öðru sæti með
275 högg og hinn ungi
Christy O’Connor frá ír-
landi kom þriðji með 276
högg.
Ballesteros sagði eftir
keppnina: „Ég tók ekki
mikla áhættu þar sem for-
ysta mín var nokkuð
®rugg.“...
...Sigurður Pétursson
og Ragnar Ólafsson
munu fara til keppni í
Evrópuriðli HM í golfi
sem verður í Algarve í
Portúgal 17.-20. október.
Þar keppa lið frá 12 Evr-
ópuþjóðum en einungis
fjögur efstu komast á
HM...
Liðin nú mun jafnari
■ Það er mál margra að hand-
boltinn í 1. deild karla gæti átt
eftir að vera hinn skemmtileg-
asti. Liðin eru nú jafnari en oft
áður og ólíklegt að eitt þeirra
stingi hin af í stigasöfnuninni.
Valur verður þó að teljast
það lið sem sterkast mætir til
leiks. Hópurinn hefur lítið
breyst og er góður. Þó Einar
Þorvarðarson hafi skroppið út
fyrir landsteinana hafa Vals-
menn fengið til liðs við sig
sterkan markvörð sem er Ellert
Vigfússon, fyrrverandi Víkings-
markvörður. Valdimar Gríms-
son og Jakob Sigurðsson eru
stjörnur liðsins sem - á marg-
umtöluðum pappírum - er lík-
legt til afreka í vetur.
Lið Víkings er einnig sterkt
en það skipa gamlar kempur á
borð við Pál Björgvinsson og
ungir kappar eins og Karl Þrá-
insson og Guðmundur Alberts-
son, mjög efnilegir báðir tveir.
í markinu er svo enginn annar
en Kristján Sigmundsson þann-
ig að liðið, undir stjórn Árna
Indriðasonar, er síður en svo
árennilegur mótherji.
FH kemur til leiks með frekar
ungt og óreynt lið. Farið hafa
þeir Kristján Arason, Hans
Kristjánsson og Sveinn Braga-
son og munar um minna. Þorgils
Óttar og Guðmundur Dadú
Magnússon eru þó eftir og auk
þess er það hefð í Firðinum að
eiga góða handknattleiksmenn,
og á þeirri hefð má sjálfsagt
langt komast.
Setja verður spurningarmerki
við frammistöðu Stjörnunnar,
Fram og KR. Þessi lið gætu átt
eftir að brenna sig á frekar lítilli
breidd. Ólyginn segir hinsvegar
að lið KA - nú með júgóslav-
neskt yfirbragð - gæti átt eftir
að koma á óvart.
Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2. Getraunir 1 x2 Getraunir
■ Ólafur Lárusson ■ Jæja þá er komið að sjöttu
leikviku getrauna. Árangur
CiiÓiuqAi iu okkar hér á NT hefur ekki verið
dpamaour til að hrópa húrra fyrir en það
stafar að mestu leyti af byrj-
Vlkunnar endamistökum sem verið er að
wleiðrétta í óða önn. Við getum
■ I tilefni þess að handknatt- þó huggað okkur við það að
leiksvertíðin er nú rétt nýhafin knattspyrnusnillingurinn Agúst
þótti viö hæfi að fá handknatt- Már Jónsson sem nú situr á
leikskappa til að spá. Hér er Spáni og fylgist með landsliðs-
hann kominn. Ólafur Lárusson mönnum okkar hafði eins og_
KR-ingur og löngu þekktur fyrir NT aðeins 6 leiki rétta á siðasta
uppstökk sín. Ólafur er líklega seðli.
Forest aðdáandi en örugglega í síðustu viku komu fram sjö
KR-ingur. Spá Ólafs er: raðir með 12 réttum og gaf hver
Arsenai-Newcastie ........i röð af sér rúmar 75 þúsund
c*ventry-WBA<lrt0n .......i krónur. Fyrir 11 rétta fékkst
Leicester ipswtch ................. x 1500 krónur. Að þessu sinni
Liverpooi-Tottonham ......i seldu Fylkismenn langmest og
oxTord.Man°cttayraptón.!!!!!! !!!!: 1 eru þcif gífurlega iðnir við söl-
opR-Birmingham ...........x una. Þess má geta að Kerfishan-
sheif. wed.-Luton ........i jnn o^^gr er með kerfi frá Fylki
Portsmouth-Ðiackburn.......x þessa vikuna. Vindum okkur þa
stoke-crystai Pai.........i {leiki 6. leikviku:
Arsenal-Newcastle......... 1
Newcastle er sterkt á heima-
velli en á litla vellinum hjá
Arsenal í Lundúnum hefur
þeim gengið illa. Heimasigur.
Aston Villa-Everton.......X
Erfiður leikur. Everton tap-
aði illa á heimavelli í síðustu
viku. Villa er að sækja sig.
Jafntefli.
Coventry-WBA.............. 1
Enn tapar West Brom.
Leicester-Ipswich......... 1
Bæði liðin í neðri hlutanum.
Heimasigur sem spáð er án
sannfæringar.
Liverpool-Tottenham .... 1
Bæði liðin í sókn. Spurs vann
á Anfield í fyrra í fyrsta sinn í
áratugi. Liverpool lætur það
ekki gerast næstu árin.
Man. Utd.-Southampton . . 1
Þetta verður tíundi sigur
United í röð þrátt fyrir meiðsl í
herbúðum þeirra.
Oxford-Man. City........ 1
Bæði liðin komu úr 2. deild í
fyrra. Oxford hefur heimavöll-
inn.
QPR-Birmingham........... 1
Teppið á Loftus Road dugar
QPR til sigurs en Birmingham
er þó til alls líklegt.
Sheff. Wed.-Luton........ 1
Nú verða Siggi og félagar að
fara að hrista af sér slenið.
West Ham-Nott. Forest. . . X
Hryllilega erfiður leikur. Lið-
in á sama stað í deildinni en
Forest að ná sér eftir slæma
byrjun og nær jafntefli.
Portsmouth-Blackburn ... 1
Enn einn heimasigurinn.
Portsmouth tapaði að vísu í
síðustu viku en heldur enn
toppsætinu. Rétt á eftir kemur
Blackburn svo þetta verður
tæpt.
Stoke-Crystal Pal..........
Aftur heimasigur. Ef þess
röð gefur 12 rétta þá er von i
góðri summu.
Kerfishaninn
■ I dag náði Kerfishaninn sambandi við einn af sölumönn-
um Fylkis en hann lumar á fjölda kerfa. Það sem hann lánaði
okkur í dag kallar hann „Ýsukerfið“. Nafngiftin er komin af
því að þetta kerfi er mjög vinsælt niður á Granda og gjarnan
spilað uppá þorsk og karfa.
Kerfið er V27 hluta annars kerfis sem samanstendur af 243
bleikum miðum. Þetta eru því 9 bleikir miðar og kosta þeir
1.215 krónur. Kerfið virkar þannig að þú festir 4 leiki með
einu merki (1X2). Síðan festirðu 2 leiki með tveimur
merkjum (IX, X2,12) að lokum festirðu 2 leiki með þremur
merkjum (1X2). Þetta seturðu á alla seðlana. Síðan skaltu
setja kerfið á, eftir töflunni hér að neðan:
Seðlarnr. 123456789
1 1 1 X X X 2 2 2
1X21X21X2
2 X 1 X 1 2 1 2 X
X 1 2 2 X 1 1 2 X