NT - 26.09.1985, Qupperneq 3
Rafstrengur við
flugvöll við Geysi:
Lagður
i jorð
- þegar fjárveiting fæst
■ Fyrirhugað er að
leggja í jörð rafmagnslínu
sem er í grennd við flug-
völlinn við Geysi í Hauka-
dal. Eins og NT skýrði frá
fyrr í vikunni lá við stór-
slysi, þegar einkaflugvél
flaug á rafmagnsvír sem er
í um tvö hundruð metra
fjarlægð frá brautarendan-
um.
Haukur Hauksson vara-
flugmálastjóri sagði í sam-
tali við NT í gær að svipað
tilfelli hefði komið upp
við Einholtsmela fyrr í
sumar, en sá strengur mun
vera um 600 metra frá
brautinni. „Strengurinn
við flugvöllinn við Geysi
er full nærri. í fyrra send-
um við Rafmagnsveitum
ríkisins bréf um strenginn
og vandamálið. Upp úr
því hófst samstarf með
okkur og RARIK, um að
koma strengnum í jörð.
Málið er nú á því stigi að
verið er að bíða eftir fjár-
veitingu. Hitt er annað
mál að flugmenn verða að
taka tillit til þessara hindr-
ana. Þær eru merktar inn
á handbók flugmanna,“
sagði Haukur.
Fimmtudagur 26. september 1985
Sparnaður stóraukist
■ Heildarinnlán í bankastofn-
unum með áföllnum vöxtum
jukust um 50,5% á einu ári, þ.e.
miðað við ágústlok 1984-1985 á
sama tíma og vísitala kauptaxta
hækkaði um 35,5%, framfærslu-
vísitala um 33,6% og meðal-
gengi gjaldmiðla um 33,8%.
Aukning sparifjár í banka-
stofnunum hefur það sem af
árinu fariö langt fram úr því
sem Seðlabankinn hafði búist
við. En þar hafði þó verið
reiknað með verulega auknum
sparnaði vegna hárra raun-
vaxta. Frá síðustu áramótum til
ágústloka jukust heildarinnlán
um 22% (samanborið við 13%
á sama tíma 1984) og um 35%
séu áætlaðir áfallnir vextir
reiknaðir með, að því er fram
kemur í Hagtölum Seðlabank-
ans. Með áföllnum vöxtum
námu heildarinnlán í ágústlok
um 34.700 milljónum króna.
Á sama tíma hafa útlánin
aukist um 16% samanborið við
26% útlánaaukningu á sama
tíma í fyrra. í kjölfar þessa
hefur lausafjárstaða bankanna
batnað um nær 800 milljqnir kr.
þessa átta mánuði, en hafði
versnað um 2.400 milljónir á
sama tímabili 1984. Staða þeirra
er þó enn sögð erfið, einkum
lausafjárstaðan gagnvart Seðla-
bankanum, sem nú í ágústlok
hafi verið neikvæð um 1,5 millj-
arða króna. En það jafngildir
um 4,3% af innlánum og áfölln-
um vöxtum þeirra.
Þótt dregið hafi úr útlána-
aukningu-bankanna að undan-
förnu segir Seðlabankinn ljóst
að hún hafi verið mikil í saman-
burði við tekju- og verðlags-
breytingar. Sé það áhyggjuefni
- ekki síst þar sem önnur lán
bankakerfisins hafi aukist veru-
lega. En þá er átt við lán
Seðlabankans til ríkisins og er-
lend lán sem bankar hafa endur-
lánað, önnur en afurðalán.
Þannig hafi lán Seðlabankans til
A-hluta ríkissjóðs aukist um
nær 2.500 milljónir króna frá
áramótum til ágústloka. Sömu-
leiðis hafi endurlánað erlent
lánsfé bankanna í ágústlok þá
aukist unt 48% á einu ári. Á
þessum sviðum hafi þróunin
orðið öfug við stefnu Seðla-
bankans um að útlánaaukningin
yrði lægri á þessu ári en sem
nærni verðlagsbreytingum.
Innritunargjöld Náms-
flokka Reykjavíkur:
Hækka um
30-32%
■ Innritunargjöld á haustönn í
Námsflokka Reykjavíkur hafa
verið hækkuð um 30-32%. Borg-
arráð samþykkti hækkunina á
fundi sínum í vikunni.
24 kennslustundir í almennum
flokkum kosta nú 1350 krónur á
önn en kostuðu áður 1020 krónur.
36 kennslustundir í almennum
flokkum kosta nú 2025 krónur á
önn en kostuðu áður 1530 krónur
og 48 kennslustundir í almennum
flokkum kosta 2700 krónur á önn
en kostuðu áður 2040 krónur.
’ 16 stundir á viku í prófadeild
kosta nú 1350 krónur á mánuði en
kostuðu áður 1020 krónur og 20
stundir á viku kosta nú 1650 krón-
ur en kostuðu áður 1250 krónur.
Laun kennara í Námsflokkun-
um hafa líka verið hækkuð. Sam-
kvæmt hefð eru allir kennarar
Námsflokkanna flokkaðir í sama
flokk þótt þeir hafi misjafna
menntun og er það samkvæmt ósk
kennaranna. Laun þeirra miðast
nú við lægsta flokk BHM manna
með kennsluréttindi. Kennararnir
hafa þegið laun í eftirvinnu með
30% álagi eins og aðrir kennarar á
framhaldsskólastigi en álag er nú
40% skv. kjarasamningum. Laun
kennara verða nú 443.88 krónur á
tímann auk orlofs.
■ NT gekk vasklega fram í hreinsun tjarnarínnar eins og flestu öðru en á mvndinni má líta
rítstjómarfulltrúa NT, Níels Árna Lund (t.h.) ásamt formanni klúbbsins, Reyni Þorgrímssyni, með
hrífur að vopni berjast við ruslið og jafnframt fyrir tækjakaupum til hjartlækninga. NT-mynd: Ámi Bjarna
Mamma hvað eru mennirnir í pollagöllunum að gera?
Ljón í Tjörninni
í Reykjavík
■ Fiðurfé á Tjörninni í
Reykjavík vissi ekki hvaðan á
sig stóð veðrið þegar hópur
mann.a í pollagöllum fór að
vaða í Tjörninni. Vegfarend-
ur stöldruðu líka við og fóru að
fylgjast með aðförunum. Þegar
málið var kannað betur kom í
ljós að hér voru á ferðinni
félagar í Lionsklúbbnum Víðarr
að hreinsa rusl sem í tímans rás
safnast fyrir í fjörunni og á
botni Tjarnarinnar. Peningana
sem þeir lionsmenn afla á þenn-
an hátt hyggjast þeir nota til
líknarmála en í þetta skiptið eru
þeir að safna fyrir hjartagæslu-
tæki á Landspítalann. Þeir eru
líka í æfingu því áður hafa þeir
farið í samskonar herferðir gegn
rusli og meðal annars tínt saman
rúm 18 tonn af úrgangi meðfram
veginum frá Ártúnshöfða austur
á Kambabrún. „Við erum að
reyna að láta örlítið gott af
okkur leiða og svo höfum við
líka gaman að þessu,“ sagði
Reynir Þorgrímsson formaður
klúbbsins um leið og hann fór í
bússurnar. Þetta er yngsti lions-
klúbburinn í borginni og við
höfum meðal annars látið til
okkar taka í hreinsunar- og
landverndarmálum. Tjörnin er
ein af perlum borgarinnar og
henni verður að halda hreinni."
Forsætisráðherra:
Til ísraels
ogSpánar
■ Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra fór utan í
gærntorgun áleiðis til ísraels,
en þar hefur honunt verið
boðið að halda fyrirlestur unt
stjórnmál í verðbólguþjóðfc-
lagi.
ísrael á um þessar mundir
við mikinn verðbólguvanda að
stríða og eru efnahagsmálin
öll í ólestri hjá þeim. Stjórn-
málaflokkum hefur gengið illa
að koma sér saman unt lausnir
og er viðfangsefni Steingríms
ofarlega á baugi þar í landi, og
sína ísraelsmenn honum hcið-
ur með þessu boöi.
Ekki þarf annað en að líta
rétt sem snöggvast á efnahags-
málin í ísrael til að sannfærast
um að það þarf að ýntsu að
hyggja. Árið 1984 var verð-
bólgan í ísrael 444,9%, vöxtur
þjóðarframleiðslu enginn, ár-
legur olíureikningur upp á 2
milljarða dollara, erlendar
skuldir upp á 23 milljarða
dollara, og kostnaður vegna
innrásarinnar í Líbanon nem-
ur um 1 milljarða dollara, svo
eitthvað sé nefnt. Ekki verður
annað sagt en íslensk efna-
hagsmál blikni hjá þessari upp-
talningu!
í ferð sinni mun Steingrímur
einnig koma við í Madrid á
Spáni þar sem hann situr árs-
þing Alþjóðasambands frjáls-
lyndra stjórnmálaflokka.
Forsætisráðherra er væntan-
legur heim aftur þann 4. okt-
óber.
Fyrirfram-
sala á salt
Jafntefli í 8. skákinni I aðri síld
■ Eins og ráð var fyrir gert
lauk 8. einvígisskák Karpovs og
Kasparovs með jafntefli. Flestir
bjuggust við því að skák-
mennirnir semdu jafntefli í bið-
stöðunni en svona eins og til að
stríða mótstöðumanni sínum
tefldi Karpov nokkra leiki til
viðbótar til að ganga úr skugga
um að grundvallarþekking
Kasparovs á hróksendatöflum
væri fyrir hendi. Þriðjungurein-
vígisins er nú að baki og hefur
Karpov vinningsforskot,
A'A:3'A. 9. skákin verður tefld í
dag og stýrir Kasparov hvítu
mönnunum.
III
Ai
All
Karpov - Kasparov
í þessari stöðu fór skákin í
bið á þriðjudaginn. Biðleikur
Kasparov var...
41... Ke5
42. Kg2 Ha2+
43. K13 Ha3+
44. Ke2 Hg3
45. Kd2 Hg2+
46. Ke3
(Það þýðir ekkert að fara yfir
á drottningarvænginn. Svartur
skákar á gl, g2 eða g3 og beri
hvítur hrókinn fyrir fellur g4 -
peðið.)
46... Hg3+
47. Ke2 Ha3
48. Kd2 Hg3
49. Hc4
(Eða 49. a5 Ha3 50. Hb5+Kf4
o.s.frv.)
49. .. Kd5
- Jafntefli.
■ Grundvöllurfyrirsíld-
arsöltun er verri nú en
mörg undanfarin ár og
stafar það einkum af því
að gengi dollarans hefur
verið nánast óbreytt frá
því að útflutningur hófst í
nóvember í fyrra og á
sama tíma hefur verið um
30% verðbólga í landinu.
Undanfarna mánuði
hafa staðið yfir samningar
um fyrirfram sölu á 245
þús. tunnum af saltaðri
síld til Sovétríkjanna, Sví-
þjóðar og Finniands. Sölu-
verð til Svíþjóðar og Finn-
lands er það sama og í
fyrra, en verðið til Sovét-
ríkjanna er um 13% lægra
en það var á síðasta ári.
Engu að síður er söluverð-
ið til Sovétríkjanna um
40% hærra en það verð
sem keppinautar okkar
svo sem Norðmenn og
Kanadamenn fá fyrir þá
síld sem þeir selja þangað.
Offramboð er nú af síld
á öllum mörkuðum og fer
því mestur hluti aflans í
bræðslu hjá öðrurn síld-
veiðiþjóðum.
Lestunar-
áætlun
Hull:
Jan . 29/9
Dísarfell . 7/10
Jan 13/10
Dísarfell 21/10
Jan 27/10
Dísarfell . 4/11
Rotterdam:
Dísarfell . 8/10
Dísarfell 22/10
Dísarfell . 4/11
Antwerpen:
Dísarfell . 9/10
Dísarfell 23/10
Dísarfell . 6/11
Hamborg:
Dísarfell . 27/9
Dísarfell 11/10
Dísarfell 25/10
Dísarfell . 8/11
Helsinki:
Arnarfell . 30/9
Hvassafell 14/10
Leningrad
Arnarfell . 2/10
Larvik:
Jan . 30/9
Jan 14/10
Jan 28/10
Jan 11/11
Gautaborg:
Jan . 1/10
Jan 15/10
Jan 19/10
Jan 12/11
Kaupmannahöfn:
Jan . 2/10
Jan 16/10
Jan 30/10
Jan 13/11
Svendborg:
Jan . 3/10
Jan 17/10
Jan 31/10
Jan 14/11
Aarhus:
Jan . 3/10
Jan 17/10
Jan 31/10
Jan 14/11
Gloucester, Mass.:
Jökulfell . 28/9
Jökulfell 30/10
New York:
Jökulfell . 30/9
Jökulfell 31/10
Portsmouth:
Jökulfell . 1/10
Jökulfell . 1/11
SKIFWDEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth 180 121 Reykjavík
Simi 28200 Telex 2101
Feröaáfangar mega ekki vera
of langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin.
Eftir 5til 10minútnastanságóðu
stað er lundin létt. Minnumst
þess að reykingar i bilnum getí
m.a. orsakað bilveiki.
||UMFERÐAR