NT - 26.09.1985, Síða 9

NT - 26.09.1985, Síða 9
Fimmtudagur 26. september 1985 9 Uppeldisfræði V- atriðin hjá honum varðandi höfund Njálu. En þó er þetta um Njálu- höfundinn ekki hinn mesti mis- skilningur M.J. Ég er alls ekki að segja að ritgerð hans sé ómerk. Mér finnst gaman að lesa hana. En hin mestá glám- skyggni hans, meginmisskiln- ingur og kórvilla er það, að hann heldur að íslendingasög- ur séu skáldsögur, eða „lygi- sögur" eins og Sverrir konungur kallaöi nrarklausan samsetn- ing, eða „ritstýrð sagnfræði“ eins og nýjasta tískuorðið hljóðar, og lái mér hver sem vill að ég skil ekki merkingu þeirra orða. Gæti jafnvel trúað að þau væru innihaldslaus með öllu. Ég heyrði stórlærðan rússneskan bókmenntafræðing flytja erindi um íslendingasög- ur fyrir nokkrunr árum og hann sagði þetta: „Við vitum vel hvernig skáldsagan, róm- aninn varð til á 17. 18. og 19. öld; við þekkjunt einkenni hennar og alla innri gerð. Við getum því með fullri vissu sagt. að Islcndingasögur eru ekki skáldsögur, heldur allt önnur tegund bókmennta." Þetta sagði próf. Steblin-Kam- enskij, og skýrði mál sitt með dæmum. Það er óhætt að endurtaka: íslendingasögur' eru ekki skáldsögur. Það er af fáfræði, ef menn halda slíku 'fram. - En þar með er ekki sagt að allar gátur séu leystar varðandi atburði á söguöld. Alveg er það þó víst að þær gátur leysast ekki með hjálp „náttúrufræðinga“ eins og þeirra sem halda, og fullyrða, að blóðlifrar geti ekki, með nokkru móti, geymst nokkrar vikur í lokaðri kistu, eða þá að „ostkista" sé kista til að geyma osta í úti í skemmu, og hljóti því að brenna með skemmunni þegar Melkólfur kveikir í, - þó að ostkistan sé reyndar osta- mót sem er vel geymt inni í búri og bæ. Svona lagaðir aðskotahlutir í skrifi Matthíasar Johannes- sens spilla dálítið ánægju lés- andans af hinni annars merku lesningu. En hvað sem slíkurn smámunum líður ber að sam- fagna höfundinum um útkomu ritgerðarinnar, sem verður óefað tll að örva til nýrrar um- hugsunar um hinar auðugu fornbókmenntir íslendinga, sem byggjast í fyrsta lagi á „söngvum og sögum fornum" frá öldunum á undan ritun þeirra. Þorsteinn Guðjónsson Börn eru áhrifagjörn Mjög er auðvelt að móta óvild og hræðslu hjá börnum - rétt eins og auðvelt er að móta smekk barna fyrir mat. Sýnir þú veðurhræðslu eða hræðslu við hávaða, þá mun barn þitt sýna svipuð viðbrögð. Þannig mótar þú á flestan hátt við- brögð barna þinna. Ýkjusögur Þegar lítil börn þroskast, vex hugmyndaflugið. Eðlilegt er 2-3 ára gömlu barni að eiga þykjustu vini og leika sér við þá. Það er eðlilegt 4, 5 og 6 ára gömlum börnum að segja ýkju- sögur. Auðvelt er fyrir móður- ina að hindra þcssar frægðar- sögur og hetjuleiki með því að gera þá hlægiiega og láta barn- ið líta út eins og aula eða líta á þessar frásagnir sem lygar. Vænlegast er að líta á slíka leiki og samræður sem eðlileg- ar og reyna ekki að gera lítið úr þeim. Einmitt þessir leikir glæða hugmyndaflug barnanna og ýta undir þroska þeirra næstu árin. Erfitt er að greina á rnilli hugmyndaflugs og ósannsögli. Sé móðirin í vafa um hvernig eigi að bregðast við sögusögnunum þá er rétt að reikna þær börnunum til tekna. Nauðsynlegt er að for- eldrar séu börnum sínum góð fyrirmynd og er það besta uppeldisaðferðin. Virðing fyrir eigum annarra Rétt eins og erfitt er að greina á milli hugmyndaflugs og ósannsögli, þannig er einnig erfitt að draga mörkin á milli hnupls og þjófnaðar annars vegar og að hlutir séu teknir traustataki hins vegar. Rétt er að láta barn eiga kassa eða skáp sjálft og gera því ljóst að það á sjálft skápinn, að annað fólk á ekki aðgang að skápnum. Smám saman lærir barnið að það má ekki taka , leikföng eða bækur frá öðrum án leyfis eigenda. Fordæmi foreldra er í þessu tilviki mikil- vægast. Aldrei má barn sjá foreldra taka eigur annarra né má það heyra foreldra tala um óheiðarleika eða þjófnað, sem þeim hefur orðið á. Stöðug virkni Börn og unglingar eru mis- jafnlega fyrirferðamikil. Sum börn, sérstaklega þau grönnu, eru aldrei Kyrr, öðru máli gegnir um feitlagin börn sem dunda sér í rólegheitum. Börn á aldrinum 5,6 og 7 ára virðast alltaf vera á fartinni, þreyta foreldra sína, kennara og alla nema sig sjálf. Mjög mörg börn á þessum aldri geta ómögulega gengið rólega við hlið móður sinnar og leitt hana. Þau eru á sífelldu iði. valhoppa og hlaupa, þau geta ekki heldur setið kyrr við mat- borðið. Þau eru óeirin, sparka í borðfæturna og jafnvel í fætur fólksins sem situr líka til borðs. Oft virðast þau komast af með lítinn svefn, aftur á nróti sofa feitu börnin miklu meira. í Bandaríkjunum og víðar er oft álitið að þessi ntikla fyrirferð sé samfara heilaskemmdunr, þó að ekki séu sjáanleg nein önnur ein- kenni um heilaskemmdir, þannig að erfitt er að sýna fram á að þessi sjúkdómsgrein- ing sé rétt. Stundum er þessi mikla virkni samfara lélegri einbeitingu, óyfirvegaðri fram- kontu og álíka einkennum. Þessi mikla fyrirferð eldist yfir- leitt af börnunum, þó seinna hjá þeim, sem eru seinþroska. Börn cru mismunandi og oftast eru þetta eðlilegir fjör- kálfar, og líkir mömmu og pabba, sem ömmur og afar kannast við. Hugsanlega stafar eirðarleysi barna frá reyking- um móður um meðgöngutím- ann. Öryggisleysi barna bæði á heimilinu og í skólanum getur .líka valdið eirðarleysi, þó sér- staklega ef mikið er um rifrildi áheimilinu. Ymsarhliðarverk- anir fy Igj a ly fj urn, j afn vel þeim sem eiga að verka róandi. Hugsanlega getur tartrasine, gulur litur, sem látinn er út í ávaxtadrykki, lraft slæm áhrif svo og rotvarnarefni ýmiss konar. SigurðurH. Þorsteinsson, skólastjori. ■ Besta uppeldisaðferðin er að foreldrar séu börnum sínum góð fyrirmynd. ekki nefndar þær framkvæmdir sem aðrir helga guði sínum. Hvað veldurþessu? Hverniger hægt að bregðast við stöðugt minnkandi kirkjusókn með þvf að fjölga byggingum um næst- um helming af því sem fyrir var? Víst skal það viðurkent að fólki hefur fjölgað mjög á suð- vesturhorni landsins og ný hverfi risið á tiltölulega skömmum tíma. Ennfremur getur í einstaka tilfellum verið þess virði að taka tillit til; listrænna og menningarlegra sjónarmiða. En slíkar forsend- ur hamslausrar byggingargleði þjóðkirkjunnar eru tak- mörkunum háðar. Það er aug- ljóst að ef meirihluti íbúa í Breiðholti og Árbæ getur sótt vinnu og þjónustu utan við- . komandi hverfis, þá ætti kirkju- sókn til eldri borgarhverfa að vera leikur einn. Á sama hátt er fjölbreytileiki íslenskra byggingaframkvæmda slíkur að listrænt og menningarlegt gildi kirkjubygginga jafnast ekkert á við það sem var á öldum áður. Bókstafur trúarinnar eða hégóminn Ef haft er í huga hversu fáir sækja kirkju að staðaldri og hversu not manna af þessum byggingum eru á allan hátt takmörkuð af trúarlegum vel- sæmisástæðum, þá er ljóst að um sorglega dauða fjárfestingu er að ræða. Andlegi arðurinn verður ekki mældur, síst í krónum, en hann myndast líka sjaldan núorðið í kirkjum nú- tímans. Hvað skýrir það að silfri er í sífellu kastað í fleiri og dýrari musteri ef trúarhita þorra landsmanna er háttað sem raun ber vitni? í flestum tilvikum koma hag- kvæmni og sönn kristni lítið við sögu. Hrepparígur og hé- gómleg sjálfsupphafning virð- ast oftar ráða gjörðum þeirra er taka ákvarðanir í þessum efnum. Hvað veldur því t.d. að kirkja rís á Seltjarnarnesi meðan Neskirkja rykfellur? Hverjum er sómi af því að gæla við ódauðleikann nteð merktum gjöfum til kirkju- bygginga? Spurningar sem þessar hljóta að koma upp í hugann þegar slík mál eru annars vegar. Þjóðkirkjan er einn þeirra aðila er hafa mjög oft efnt til safnana af ýmsu tagi, bág- stöddum til hjálpar. Ekki skal efað að góður vilji og göfug hugsjón býr þar að baki, en samkvæmnin er engin. Það fé sem bruðlað verður með í 6 nýjar kirkjur á Stór-Reykjavík- ursvæðinu er meira en Hjálp- arstofnunin notar á löngunr tíma. Eins og ljóst er af fram- ansögðu eru frekari kirkju- byggingar ekki neinu til gangs. Það hlýtur því að vera nokkuð sem „sannkristnir" menn hérá landi verða að gera upp við sig, hvort að það sé ekki tímabært að stjórnast af bókstaf trúar- innar fremur en hégómanum. Sturla Sigurjónsson.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.