NT - 20.11.1985, Blaðsíða 1
NEWS SUMMARYIN ENGUSH SEEP.7
Hofsós:
Fyrirtæki sameinast?
■ Sú hugmynd hefur komið
upp á Hofsósi, að sameina tvö
sjávarútvegsfyrirtæki á,
staðnum, það er Skagaskel hf.
og Þórðarhöfði hf. Skagaskelin
sér um vinnslu á hörpuskel og
Þórðarhöfði er útgerðarfyrir-
tæki, sem gerir út Hafþór á
skelina.
NT hafði samband við Björn
Níelsson, oddvita á Hofsósi og
stjórnarformann í Skagaskel hf.
Hann sagði að þetta hefði verið
rætt á meðal manna en slík
sameiningarhugmynd væri ekki
komin inn á borð hjá stjórn
Skagaskeljar.
Þrjú ár eru síðan Skagaskel
var stofnað og að sögn Björns
var verð á hörpuskel í hámarki
þá. Síðan kom verðhrun á
afurðinni og hefur það verið í
lágmarki undanfarin tvö ár.
Orsakaði það taprekstur hjá
fyrirtækinu, en þrátt fyrir það
hefur það staðið í skilum með
öll sín lán.
Verð á hörpuskel er mjög
sveiflukennt og ræður þar að
sögn Björns mestu framboð á
skel frá Suður Ameríku. Nú er
búist við tuttugu prósenta hækk-
un á markaðsverði hörpuskeljar
og er búist við hagnaði af fyrir-
tækinu á næsta ári.
Vegna óheppilegs orðalags á
inngangi fréttar í NT í gær mátti
draga þá ályktun að ítarleg
rannsókn færi fram hjá Byggða-
sjóði á fjárhagsstöðu nokkurra
fyrirtækja á Hofsósi og sérstak-
lega varð Skagaskel fyrir barð-
inu á þeirri ónákvæmni. Svo er
ekki en lausleg athugun hefur
farið fram m.a. vegna þessara
sameiningarhugmynda. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Grunur um ölvun:
Okútaf í Kollafirdi
■ Kona slasaðist nokkuð,
þegar hún missti stjórn á
bifreið sinni í grennd við
Laxeldisstöð ríkisins í Kolla-
firði í gærdag. Grunur leikur
á að ökumaður hafi veriö
undir áhrifum áfengis, þegar
óhappið varð. Lögreglan í
Hafnarfirði sagði í samtali
við NT í gær að ekki væri
vitað hversu alvarlega slösuö
konan er, en hún var rænulít-
il þegar komið var að
bílnum.
Hafskipsmálið
á Alþingi:
Krafist
skýrslu
Rannsóknarnefnd
aldrei samþykkt
■ Búast má við að þingmenn
úr stjórnarandstöðunni muni
bráðlega leggja fram beiðni urn
skýrslu viðskiptaráðherra um
viðskipti Útvegsbanka Island og
Hafskips hf. Þetta fylgir í kjöl-
farið á umræðum utan dagskrár
á Alþingi síðastliðinn fimmtu-
dag.
Meðal þeirra sem þá tóku til
máls voru Jón Baldvin Hanni-
balsson og Svavar Gestsson.
Báðir lögðu til að sérstök rann-
sóknamefnd yrði sett á legg til
að kanna til hlítar hið svokall-
aða Hafskipsmál. Albert Guð-
mundson iðnaðarráðherra sem
þótti að sér vegið tók undir þá
hugmynd og bauðst til að afsala
sér þinghelgi.
Nú hermir heimild NT að
þingmenn úr stjórnarandstöðu
eigi alls ekki von á því að
stofnun slíkrar rannsóknar-
nefndar verði samþykkt af ríkis-
stjórnarflokkunum og því sé
vænlegra til árangurs að fá
skýrslu um málið, enda hafi
umfjöllun fjölmiðla um málið
undanfarna daga gert lítið úr
títtnefndri bankaleynd.
■ Ronald Reagan Bandaríkjaforseta og Mikhail Gorbachev aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna kom vel saman á fyrsta fundi sínum í Genf
í gær. Skyldi vinsemdin komast inn í skriflegt samkomulag? Reuter-símamynd
Hluthafar í Hafskip:
Flytja hlutafé sitt
í nýja skipafélagið
Markmið sem við vinnum að, segir Ragnar Kjartansson
■ „Við höfum sett okkur það
markmið í könnunarviðræðun-
um að hluthafar Hafskips komi
inn í það nýja félag, sem endan-
lega verður stofnað, með hluta
af sínu hlutafé úr Hafskip," sagði
Ragnar Kjartansson stjórnar-
formaður í Hafskip í samtali við
NT í gærkvöld. Samkvæmt þessu
markmiði er ekki um það að
ræða að núverandi hluthafar
leggi fram nýtt hlutafé, heldur
að Hafskipshluthafar tengist inn
í samningaviðræður íslenska
skipafélagsins og Sambandsins
um stofnun nýs skipafélags,
þannig að a.m.k. hluti af hlutafé
þeirra glatist ekki.
Ragnar sagði að hér væri um
tæknilega útfærslu að ræða og
þó þetta mál hafi verið rætt í
undirbúningsviðræðum væri
engin niðurstaða fengin.
Aðspurður um það hvort
Hafskip yrði ekki afskipt í tví-
hliða samningaviðræðum Sam-
bandsins og íslenska skipafé-
lagsins, sagði Ragnar að ekki
bæri að leggja of mikla merk-
ingu í aðgreiningu Hafskips-
manna annars vegar og þátttak-
enda í hinu nýja hlutafélagi hins
vegar. Hér væri um fulltrúa
sama hóps að ræða.
Þó ýmislegt sé óljóst um ein-
stök atriði þess kaupverðs sem
Islenska skipafélagið greiddi
fyrir íslandssiglingar Hafskips,
staðfesti Ragnar að það væri
hærra en það sem fram kom í
Eimskipafélagsgrundvellinum,
en háð ákveðnum skilmálum og
viðræðum við Útvegsbankann.
Á aðalfundi Sambandsins í
dag verður sameining skipafé-
laganna á dagskrá, en afgreiðsla
máls þessa þar hefur dregist
vegna þess að Valur Arnþórs-
son stjómarformaður átti ekki
heimangengt frá Akureyri fyrr
en í gærkvöld. Hann sagði í
samtali við NT í gærdag að
málin myndu skýrast í dag eða
á allra næstu dögum.
Toppleynd á
toppfundi
Vinsamlegt andrúmsloft á fundi Reagans og Gorbachevs
■ Upphaf viðræðnaReagans
Bandaríkjaforseta og Gorbac-
hevs Sovétleiðtoga í Genf var
mjög vinsamlegt. Leiðtogarnir
ræddust mun lengur við í ein-
rúmi en upphaflega var gert
ráð fyrir og ekki var annað séð
en að þeim kæmi mjög vel
saman.
Leiðtogarnir komu sér fljót-
lega saman um að halda inni-
haldi viðræðna sinna leynilegu
þar til að fundi loknum til
að auðvelda umræðurnar. En
þeir sögðu báðir í gær að ekki
væri útilokaö að þeir myndu
framlengja fund ýnn um einn
dag, þ.e. þar til á morgun ef
þeir ákvæðu að gefa út sameig-
inlega yfirlýsingu.
Fyrir fundinn var Ijóst að
Gorbachev myndi leggja
höfuðáherslu á að stöðva víg-
búnaðarkapphlaupið og kom-
ast að samkomulagi um fækk-
un kjarnorkuvopna og bann
við geimvopnum.
En Reagan sagðist ekki vilja
einskorða umræðurnar við
vopnaviðræður heldur myndi
hann ræða um svæðisbundin
átök í Afghanistan, Kamb-
ódíu, Eþíópíu, Angóla og Nic-
aragua, mannréttindi og aukin
menningar- og vísindasam-
skipti. Sjá nánar bls. 7.