Sunnudagsblaðið - 04.03.1956, Blaðsíða 16

Sunnudagsblaðið - 04.03.1956, Blaðsíða 16
64 SUNNUDAGSBLAÐIÐ ÞEKKTI EI MJEL FRÁ MJELI. Útibússtjóri kaupfélags nókkurs liti á landi gerði eitt sinn mikla rekistefnu út af' því á aðalskrifstofu kaupfélagsins, að ný sending af mjöli, sem hann hafði fengið, hafði blandazt saman við mjöl, sem til var á staðnum. Þótti starfsmönnum kaupfélagsins þetta mikil læti af litlu tilefni og varð einum þeirra þessi vísa á munni: Blandaði mjelið Baldvin snar — beiskja var í hans þeli — ]>ví ögn af mjelinu óvart bar í allt þaö mjel, sem fyrir var, svo þekktist ei miel frá mjeli. 0O0 TVEIR í TAKINU. Rita Hayworth, sem um þessar mundir dvel- ur £ Evrópu til að heim- sækja dóttur sína sást nýlega á skemmtistað dansandi vangadans við fyrrverandi eginmann sinn, Ali Khan. Jafn- framt hefur heyrst að egypskur kvikmynda- framleiðandi einn, Ray- mond Hakin, hafi boðað komu sína til frönsku alpanna, þar sem hann ætli að stunda skíðaferðir með Ritu Hayworth um páskana. 0O0 KVIKMYNDIR í IIOLLYWOOD. Kvikmyndaframleiðslan í Hollywood var meiri í desembermánuði síðast- liðnum, en nokkurn ann- an mánuð ársins. Alls var þá verið að taka þar 37 kvikmyndir. 0O0 BRÚÐGUMAR Á FLÓTTA. Sögur eru til um brúðguma, sem hlaupist hafa brott frá brúður sinni, rétt áður en hann átti að ganga að altarinu með henni og gefa henni eiginorð. Og það, sem einu sinni hefur gerzt getur aftur komið fyrir, og er þetta aðeins eitt af mörgu, sem verðandi eiginkonur geta átt á hættu, hafi þær ekki fall- ið unnusta sínum í geð í tilhugalífinu. Á síðari ár- um hefur flótti manna frá konuefnum sínum orðið svo algengur í Bandaríkjunum, að vís- indin hafa látið málið til sín taka, og reynt að leyta skýringa á þessu fyrir- brigði. Af 5200 hjónaefn- um, sem slitu trúlofun sinni, hefur athugun leitt í ljós, að orsakirnar fyrir heitrofinu voru í flest- um tilfellum eftirtaldar, samkvæmt skoðanakönn- un meðal karlmannanna: 1. Hún vildi ráða yfir honum og stjórna fyr- ir bæði. 2. Hún var afbrýðisöm, og hafði tilhneyingu til að halda fram eignarrétti sínum yfir mannsefninu. 3. Hún var smámunasöm og sífurgjörn. 4. Hún gaf öðrum undir fótinn. 5. Hún baktalaði náung- an, og allra mest vin- konur sínar. 6. Hún var eyðslusöm og hirðulaus í peninga- Sökum. O IIAFÐI EKKI TÍMA. Óli gamli hafði verið dálítið lasinn um tíma, og meðal annars átt slæmt með svefn. Hann fór því til læknis og læknirinn gaf honum lyf- seðil upp á svefnpillur „Hér hefur þú svefnlyf til þriggja vikna“ sagði læknirinn um leið og hann rétti honum lvfseð- ilinn. „Þökk fyrir ,“ sagði Óli gamli, „en ég hef ekki tíma til að sofa svo lengi.“ oOo RAKA EÐA KLIPPA. „Á að raka yður“, spurði rakarinn ungling einn, sem kom í rakara- stofuna. „Nei, nú gerið þér gys að mér,“ sagði unglingur- inn, sem ekki var sprott- in grön. „Það á að klippa mig.“ Þrjátíu árum síðar kom ann í sömu rakarastofu, rakarinn spurði: „Á að klippa yður ?“ Eruð þér að gera gys að mér ? Nei, það á að raka mig.“ SUNNUDAGSBLAÐIÐ ÚTGEFANDI: Simnudagsblaðið h.f. RITSTJÓRI: Ingólfur Kristjánsson, Stórholti 17. Sími 6151. Box 1127. AFGREFÐSLA: Hverfisgötu 8—10. Sfmi 4905. Lausasöluverð kr. 5,00. Ársfjórðungsgjald kr. 60. Alþýðuprentsmiðjan.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.