Morgunblaðið - 25.09.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.09.2004, Blaðsíða 1
2004  LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A UNDANÚRSLIT BIKARKEPPNINNAR UM HELGINA / B2–B3 HELGI Valur Daníelsson, knattspyrnumaður úr Fylki, fer að öllum líkindum til reynslu hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Sundsvall í næstu viku. Sænska félagið hefur falast eftir því að fá Helga til nánari skoðunar en það hefur fylgst með honum í leikjum með Árbæjarliðinu í sumar. „Já, það stefnir allt í að ég fari til Sundsvall næsta miðvikudag og verði þar fram á sunnu- dag. Ég get ekki verið lengur þar í bili vegna náms en mér líst vel á að reyna mig í Svíþjóð, það væri ágætis kostur að fara og spila þar í úrvals- deildinni,“ sagði Helgi Valur við Morgunblaðið. Helgi Valur er 22 ára miðjumaður og spilaði alla deildaleiki Fylkis í ár. Hann lék með Pet- erborough í Englandi í fjögur ár en kom alkom- inn til Fylkis á ný vorið 2003. Sundsvall, sem er frá Norður-Svíþjóð, er í níunda sæti úrvals- deildar þegar fimm umferðum er ólokið. Helgi Valur fer til Sundsvall HJÁLMAR Þórarinsson, knatt- spyrnumaðurinn efnilegi úr Þrótti, hefur verið lánaður til skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts og að öllu óbreyttu dvel- ur hann þar til vorsins. Hjálmar er þegar farinn utan og byrj- aður að spila með 19 ára liði skoska félagsins sem er frá Ed- inborg. „Þetta er lánssamningur og ef Hearts vill fá hann til sín að tímabilinu loknu, verður sest að samningaborðinu í vor. Hjálmar hefur farið mjög vel af stað og er farinn að skora mörk fyrir unglingalið Hearts,“ sagði Krist- inn Einarsson, formaður knatt- spyrnudeildar Þróttar, við Morg- unblaðið í gær. Hjálmar er 18 ára en var samt að ljúka sínu þriðja tímabili með meistaraflokki Þróttar. Hann lék alla leiki liðsins í 1. deildinni í sumar og skoraði 4 mörk en hann hefur þegar spilað 44 deildaleiki með meistaraflokki félagsins. Þá hefur Hjálmar spil- að 24 leiki með tveimur yngstu landsliðum Íslands og skorað í þeim 14 mörk. Hjálmar lánaður til Hearts SÖREN Hermansen, danski knattspyrnumaðurinn sem hefur spilað með Þrótti úr Reykjavík undanfarin tvö keppnistímabil, er hættur hjá félaginu. Hann er á förum til Ástralíu þar sem hann hyggst reyna frekar fyrir sér í fótboltanum. Sören, sem er 34 ára, var einn af þremur marka- hæstu leikmönnum úrvalsdeild- arinnar í fyrra, skoraði þá 10 mörk í 18 leikjum fyrir Þrótt, en í sumar skoraði hann 7 mörk í 16 leikjum fyrir félagið í 1. deild- inni. Þar af fjögur á lokasprett- inum í dýrmætum sigurleikjum liðsins. „Ég á von á því að allir aðrir verði áfram í okkar röðum, enda eru allir samningsbundnir okkur til 2005 eða 2006,“ sagði Kristinn Einarson, formaður knatt- spyrnudeildar Þróttar, við Morg- unblaðið. Hann sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar í þjálfaramálum en Ásgeir Elíasson hefur stýrt Þrótturum í fimm ár og þeir fóru upp í úrvalsdeildina í annað skiptið á þremur árum nú í haust. Sören fer til Ástralíu Klinsmann, sem sjálfur var ein afskærustu stjörnum þýskrar knattspyrnu um árabil, hefur und- anfarin ár oft gagnrýnt þýska knattspyrnusambandið fyrir vinnu- aðferðir sínar og hann var ekki fyrsti valkostur þegar Rudi Völler hætti með liðið fyrr á þessu ári. Reynt var að fá bæði Ottmar Hitz- feld og Otto Rehhagel til starfa en báðir höfnuðu því. Það sem helst hefur farið fyrir brjóstið á mönnum er að hann býr áfram í Bandaríkjunum, eins og hann hefur gert undanfarin ár, og þá hefur hann gert talsverðar breytingar á öllu skipulagi í kring- um landsliðið, æfingar hans þykja óvenjulegar, og þá réð hann banda- ríska þrekþjálfara sér til aðstoðar. Meðal þeirra sem mest hafa gagnrýnt aðferðir Klinsmanns er hans gamli félagi úr landsliðinu, Lothar Matthäus, sem sjálfur hafði mikinn áhuga á landsliðsþjálfara- stöðunni. Klinsmann lýsti því strax yfir þegar hann var ráðinn að Þýskaland gæti hæglega orðið heimsmeistari á heimavelli árið 2006 og um leið fékk hann góðar undirtektir hjá þýskum knattspyrnuáhugamönnum. Í kjöl- farið unnu Þjóðverjar góðan útisig- ur gegn Austurríki, 3:1, og áttu síð- an einn sinn besta leik um árabil þegar þeir gerðu jafntefli, 1:1, við Brasilíu fyrr í þessum mánuði. En hann komst upp á kant við forráðamenn þýska sambandsins þegar hann lagðist gegn því að æf- ingabúðir landsliðsins yrðu í Lever- kusen. Hann taldi það óhentugt vegna þess að of löng keyrsla væri af hóteli liðsins á æfingasvæðið. „Það eru þjálfararnir sem eiga að ákveða svona hluti,“ sagði Klins- mann, við litla hrifningu stjórnar- manna sambandsins, sem höfðu lát- ið Leverkusen fá æfingabúðirnar í sárabætur, þar sem leikvangurinn þar er of lítill til að spilað verði á honum á HM. „Ég styð Klinsmann heilshugar í þeirri vinnu að byggja upp sterkt lið fyrir HM 2006, en ég ætlast líka til þess að hann skilji að hann getur ekki breytt öllu, og skipulagið fyrir HM verður hann að vinna í sátt og samlyndi við forystu sambandsins,“ sagði Theo Zwanziger, gjaldkeri DFB, þýska knattspyrnusambands- ins. Klinsmann hefur þegar fengið því framgengt að Þýskaland leikur ekki opnunarleik HM. Hann vildi ekki setja óþarfa pressu á sitt lið með því. Franz Beckenbauer, forseti skipulagsnefndar Þjóðverja, sagði að það væri sjálfsagt og heims- meistarar Brasilíu spila því opnun- arleikinn, komist þeir á HM. Á meðan þýska landsliðið spilar vel má búast við því að gagnrýn- endur hafi hægt um sig, en ef illa fer að ganga innan vallar er hætt við því að árekstrum milli landsliðs- þjálfara og forystumanna þýskrar knattspyrnu eigi eftir að fjölga. Jürgen Klinsmann er strax orðinn umdeildur JÜRGEN Klinsmann, nýráðinn landsliðsþjálfari Þjóðverja í knatt- spyrnu, er þegar kominn upp á kant við þýska knattspyrnu- sambandið. Hann er þó í góðri stöðu eftir hagstæð úrslit og fína frammistöðu í tveimur fyrstu æfingaleikjum þýska liðsins undir hans stjórn. Þjóðverjar halda lokakeppni HM árið 2006 og eru því ekki með í undankeppninni sem fram fer í haust og á næsta ári. Morgunblaðið/Kristinn Víkingar unnu óvæntan sigur á Valsmönnum, 31:23, á Íslandsmóti karla í handknattleik í gærkvöld, og það að Hlíðarenda. Hér fylgj- ast hnípnir Valsmenn með af varamannabekknum á meðan Víkingar fara hamförum innan vallar. Sjá nánar B4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.