Morgunblaðið - 25.09.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.09.2004, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 B LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikarinn, undanúrslit karla: Laugardagur: Laugardalsvöllur: FH – KA......................14 Sunnudagur: Laugardalsvöllur: HK – Keflavík .............14 HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: 1. deild kvenna: Framhús: Fram – Víkingur.......................15 KA-heimili: KA/Þór – FH.....................16.15 Seltjarnarnes: Grótta/KR – ÍBV ..............13 Sunnudagur: Íslandsmót karla, Norðurriðill Ásvellir: Haukar – KA ..........................16.30 Akureyri: Þór – Afturelding......................16 1. deild kvenna: Ásvellir: Haukar – Valur ......................19.15 Leiðrétting Bikarmeistaratitil Vals frá árinu 1988 vant- aði inn á kort í blaðinu í gær af árangri Valsmanna í knattspyrnunni frá 1987. UM HELGINA HANDKNATTLEIKUR Valur – Víkingur 23:31 Hlíðarendi, Íslandsmót karla, suðurriðill, föstudagur 24. september 2004. Gangur leiksins: 0:3, 3:5, 4:7, 7:7, 8:9, 12:9, 12:11, 14:12, 15:12, 16:13, 16:18, 17:20, 20:20, 20:22, 21:26, 22:30, 23:31. Mörk Vals: Pavol Polakovic 6, Vilhjálmur Halldórsson 4, Atli R. Steinþórsson 4, Hjalti Pálmason 2, Kristján Þór Karlsson 2, Freyr Brynjarsson 1, Heimir Örn Árna- son 1, Sigurður Eggertsson 1, Ásbjörn Stefánsson 1, Baldvin Þorsteinsson 1/1. Varin skot: Pálmar Pétursson 13, Hlynur Jóhannesson 1. Mörk Víkinga: Þröstur Helgason 8/4, Bjarki Sigurðsson 5, Andri Berg Haralds- son 5, Benedikt Jónsson 4, Andri Þórarins- son 4, Björn Guðmundsson 3, Þórir Júl- íusson 2. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 25/2 Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð- jónsson. Áhorfendur: Um 145. ÍR – Selfoss 29:24 Mörk ÍR: Ingimundur Ingimundarson 7, Ólafur Sigurjónsson 5, Bjarni Fritzson 5, Tryggvi Haraldsson 4, Hafsteinn Ingason 2, Ragnar Helgason 2, Hannes Jónsson 2, Fannar Þorbjörnsson 1, Karl Gunnarss. 1. Mörk Selfoss: Ramunas Mikalonis 11, Ramunas Kalendauskas 3, Haraldur Þor- varðarson 2, Ómar V. Helgason 2, Atli Kristinsson 2, Gylfi Ágústsson 2, Jón Einar Pétursson 1, Hörður Bjarnason 1. ÍBV – Stjarnan 30:18 Gangur leiksins: 0:1, 5:5, 10:7, 12:9, 15:10, 19:11, 22:14, 25:17, 30:18. Mörk ÍBV: Zoltán Belánýi 10/6, Robert Bognar 6, Sigurður Stefánsson 3, Samúel Árnason 3, Andreja Adzic 3, Milan Stanic 2, Svavar Vignisson 2, Grétar Eyþórsson 1. Varin skot: Roland Eradze 26/4 (þar af 4 aftur til mótherja) Mörk Stjörnunnar: Arnar F. Theódórsson 6, Kristján Kristjánsson 5/1, Björn Óli Ein- arsson 3, Einar Eiríkur Ómarsson 1, Gísli Björn Björnsson 1, Þórólfur Nielsen 1. Varin skot: Guðjón K. Geirsson 16/1, Hálf- dán Bragi Valgeirsson 5. Dómarar: Magnús Björnsson og Ómar Sverrisson. Áhorfendur: Um 200 Staðan, Suðurriðill: Valur 3 2 0 1 95:76 4 Víkingur 2 2 0 0 50:38 4 ÍBV 3 2 0 1 100:89 4 ÍR 2 2 0 0 69:62 4 Grótta/KR 2 1 0 1 47:39 2 Selfoss 3 0 0 3 83:102 0 Stjarnan 3 0 0 3 55:93 0 HK – FH 32:28 Norðurriðill, Digranes: Gangur leiksins: 1:0, 5:1, 11:4, 14:6, 16:8, 19:10, 21:12, 25:14, 29:17, 30:21, 32:28. Mörk HK: Elías Halldórsson 12/4, Karl Grönvold 6, Augustas Strazdas 4, Tomas Eitutis 3, Maxim Fedjukin 2, Valdimar Þórsson 2, Brynjar Valsteinsson 1, Jón H. Gunnarsson 1, Ólafur Víðir Ólafsson 1. Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 17/1, Björgvin Gústavsson 5/1 Mörk FH: Brynjar Geirsson 11/2, Arnar Pétursson 7/2, Jón Helgi Jónsson 3, Heiðar Arnarsson 3, Guðmundur Pedersen 2, Bjarni Gunnarsson 1, Valur Arnarson 1. Varin skot: Elvar Guðmundsson 8, Magnús Sigmundsson 6. Dómarar: Brynjar Ívarsson og Vilbergur Sverrisson. Áhorfendur: 120. Staðan, Norðurriðill: Fram 2 2 0 0 67:51 4 HK 2 2 0 0 61:53 4 Haukar 2 1 0 1 59:55 2 KA 2 1 0 1 59:59 2 Þór 2 0 1 1 51:60 1 FH 3 0 1 2 81:93 1 Afturelding 1 0 0 1 25:32 0 KNATTSPYRNA England 1. deild: Leeds – Sunderland ................................. 0:1 ÞAÐ verða 12 þúsund áhorfendur á knattspyrnuvellinum Frontier Field í Rochester í Bandaríkjunum í kvöld þegar íslenska kvenna- landsliðið mætir því bandaríska í sýningarleik. Þetta er fyrsti leik- urinn í tíu leikja syrpu hjá banda- ríska liðinu en leikirnir fara fram víðsvegar um Bandaríkin næstu vikurnar. Ferðin er farin til að fagna sigri liðsins á Ólympíu- leikunum í Aþenu, til að þakka bandarískum knattspyrnu- áhugamönnum fyrir mikinn stuðn- ing við liðið, og til að kveðja þrjá af reyndustu leikmönnum liðsins sem nú eru að spila sína síðustu leiki. Það eru Mia Hamm, Julie Foudy og Joy Fawcett. frammi fyrir slíkum fjölda,“ sagði Edda Garðarsdóttir, miðjumaður íslenska liðsins. Ísland hefur staðið uppi í hárinu á hinu firnasterka bandaríska liðið í tveimur síðustu viðureignum þjóðanna. Skömmu eftir að banda- ríska liðið varð heimsmeistari árið 2000 gerðu liðin markalaust jafn- tefli í Charlotte, nokkrum dögum eftir að Bandaríkin sigruðu 8:0 í fyrri leik þjóðanna í vesturför ís- lenska liðsins. Bandaríkin sigruðu síðan 1:0 í Charleston snemma á síðasta ári. Leikurinn í kvöld hefst kl. 23.30 að íslenskum tíma en þjóðirnar mætast aftur í Pittsburgh á mið- vikudag. Uppselt er á leikinn og íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei leikið frammi fyrir áhorfendafjölda sem þessum. Abby Wambach, hetja bandaríska liðsins í úrslitaleiknum í Aþenu, er frá Rochester og nýtur þar mikillar hylli. „Þetta er mikil reynsla fyrir okk- ur en margar okkar hafa áður mætt bandaríska liðinu og það er alltaf gaman. Þetta er mikil áskor- un því bandaríska liðið er geysilega gott,“ sagði Þóra B. Helgadóttir, markvörður Kolbotn og íslenska landsliðsins, við vef bandaríska knattspyrnusambandsins í gær. „Tólf þúsund áhorfendur, er það satt? Það er frábært fyrir hvaða knattspyrnukonu sem er að spila Uppselt á sýningarleik Íslands og Bandaríkjanna í Rochester í kvöld MIKIL spenna ríkir fyrir undan- úrslitaleikina í bikarkeppni karla í knattspyrnu sem fram fara um helgina. Þetta er í þriðja sinn sem þeir fara fram á Laugardalsvelli og í fyrsta skipti sem þeir eru spilaðir að loknu Íslandsmótinu. Nýkrýndir Íslandsmeistarar FH mæta nýföllnum KA-mönnum í dag klukkan 14 og á morgun eigast við 1. deildarlið HK og úrvalsdeildarlið Keflavíkur, á sama tíma. Fari svo að FH-ingar beri sig- urorð af KA verður rimma HK og Keflavíkur ekki bara slagur um að komast í úrslitaleikinn heldur tryggir sigurliðið sér sæti í UEFA- keppninni þar sem FH hefur þegar öðlast Evrópusæti.  Keflavík er eina liðið af þeim fjórum sem eru í undanúrslitum sem hampað hefur bikarnum en Keflavík varð bikarmeistari 1975 með 1:0 sigri á ÍA og aftur 1997 en þá lögðu Keflvíkingar lið ÍBV í víta- spyrnukeppni.  HK hefur lengst komist í 16 liða úrslit fram að þessu en liðið gerði sér lítið fyrir og lagði bik- armeistara ÍA út í 32 liða úrslit- unum. HK og Keflavík hafa náð þeim frábæra árangri í bik- arkeppninni í ár að halda mörkum sínum hreinum og bæði unnu þau 6:1 sigra í lokaumferð Íslandsmóts- ins. HK tók Stjörnuna í bakaríið í 1. deildinni og Keflavík lék Fram sundur og saman í úrvalsdeildinni.  KA hefur tvívegis tapað bik- arúrslitaleik, 1992 fyrir Val í sögu- frægum leik sem Valur hafði betur í framlengingu, 5:2, og 2001 þar sem liðið tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Fylki.  FH hefur þrívegis komist í bik- arúrslit og hefur tapað í öll skiptin, 1972 fyrir ÍBV, 1991 fyrir Val og í fyrra þegar liðið beið lægri hlut fyrir ÍA.  Úrslitaleikurinn er fyrirhug- aður laugardaginn 2. október en fari svo að FH leggi KA að velli verður úrslitaleiknum seinkað til sunnudagsins 3. október þar sem FH leikur síðari Evrópuleik sinn við Alemannia 30. september. Úrslitaleikur um Evrópusæti? Magnús sagði við Morgunblaðiðað það væri engin spurning að FH ætti sterkasta lið landsins í dag en það væri alltaf erfitt að leika tvisvar í röð gegn sömu mót- herjunum, í deild og bikar. „Leikir FH og KA í deildinni í sumar voru mjög tvísýnir, liðin gerðu jafntefli í Kaplakrika og FH knúði fram nauman sigur á Ak- ureyri um síðustu helgi. KA-menn þurfa að rífa sig upp eftir svekkels- ið yfir því að hafa fallið, og oft ger- ist það hjá liðum sem þannig er ástatt fyrir að þau bæta sér það upp með góðu bikargengi. Ég býst við því að KA-menn muni spila aft- arlega og verjast vel en það hefur oft gengið ágætlega hjá þeim í sumar. Þeir geta verið skæðir í skyndisóknum, ekki síst ef hinn skruggufljóti Jóhann Þórhallsson nær sér á strik en hann hefur ein- hverra hluta vegna ekki gert það í sumar. FH-ingar gætu þurft á allri sinni þolinmæði að halda en ef þeim tekst að yfirvinna baráttu og varn- arleik KA-manna og spila eins og þeir hafa gert í mestallt sumar, þá eru þeir mjög sigurstranglegir. Þeir eru eflaust búnir að sætta sig við að Evrópudraumurinn sé á enda og leggja því örugglega allt í sölurnar til að verða bikarmeist- arar og sigra þar með tvöfalt í ár.“ Keflvíkingar eru óútreiknanlegir Magnús sagði að viðureign Kefla- víkur og HK væri á margan hátt keimlík. Keflvíkingar væru mun líklegri sigurvegarar sem úrvals- deildarlið en HK hefði komið á óvart í sumar, bæði í 1. deildinni og bikarkeppninni, og gæti gert Kefl- víkingum skráveifu. „Keflvíkingar eru í raun óút- reiknanlegir, eitt mesta jó-jó-lið sumarsins, og þeir hafa sýnt alls konar leiki í ár. Það er talsverður léttleiki yfir Keflavíkurliðinu, sem getur spilað skemmtilegan sóknar- fótbolta ef það fær frið til þess. Ég býst við því að rétt eins og KA gegn FH muni HK leggja áherslu á að verjast vel gegn Keflavík og beita skyndisóknum. Það getur þó reynst hættulegt að leyfa Keflvík- ingum að spila sinn fótbolta og komast of langt. En þegar Keflvík- ingar leika eins og þeir geta best, sigra þeir hvaða lið sem er, og þeir eru að sjálfsögðu mjög líklegir til að fara með sigur af hólmi.“ HK er mikið stemmningslið „HK-liðið hefur átt mjög góða kafla í 1. deildinni í sumar, og er komið alla leið í bikarkeppninni. HK er með mjög góðan markvörð, Gunnleif Gunnleifsson, sem hefur haldið marki sínu hreinu í 10 leikj- um í deild og bikar í sumar, og það er greinilegt að liðið getur varist mjög vel með hann sem sterkan hlekk fyrir aftan. Það eina sem ég hef séð til HK í sumar er hluti af leiknum við Skagamenn í bikarnum en þar gerði liðið það heldur betur gott og vann góðan sigur. HK er greinilega mikið stemmningslið en það fer ekki á milli mála að það er munur á liðum í úrvalsdeild og 1. deild,“ sagði Magnús Gylfason. Undanúrslit í bikarkeppninni, FH-KA og HK-Keflavík „Geta orðið mjög keim- líkir leikir“ MAGNÚS Gylfason, þjálfari ÍBV, segir að það megi búast við ýmsu í undanúrslitaleikjum bikarkeppninnar á Laugardalsvellinum um helgina. FH og Keflavík séu vissulega mjög sigurstrangleg gegn KA og HK en bikarkeppnin sé oft óútreiknanleg – báðir leikir geti endað með mjög öruggum sigrum en síðan gætu lið KA og HK hæglega komið á óvart, veitt andstæðingum sínum harða keppni og jafnvel slegið þá út. Baldur Bett, leikmaður FH, í baráttu ureyri á dögunum, þar sem FH-in KEILUDEILD ÍR heldur upp á tíu ára afmæli sitt um þessar mundir og um helgina verða fjórir gestir frá Svíþjóð staddir hér á landi á vegum félagsins. Svíar eiga eitt sterkasta karlalandslið heims og hafa Svíarnir allir komið við sögu hjá sænska landsliðinu. Í fréttatilkynningu frá keilu- deild ÍR segir að á næstu miss- erum verði blásið til sóknar í út- breiðslu íþróttarinnar sem hefur verið í lægð undanfarin ár eftir góð upphafsár. Afmælismót keiludeildar ÍR verður haldið í Keilu í Mjódd dag- ana 24. og 25. september, en hinn 26. september býður keiludeild ÍR öllum frítt í keilu frá kl. 10:00– 17:00. Klukkan 17:00 fer fram sýningarleikur á milli Svíanna og bestu íslensku leikmannanna og er um að ræða óformlegan lands- leik. Keiludeild ÍR blæs til sóknar FIM sér á mót þrem viku alla sem ágæ hefð með B steig isde leyti einu hópi Ger 15.– Si aðei áfra Már högg úrtö Park M ur h Hill son þess áhug Heið spja enn Mag kylf inn a Ís aðst styr gera ef ve ferð B asta að m hönd fé úr sam Á ur B hann land

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.