Morgunblaðið - 25.09.2004, Page 4

Morgunblaðið - 25.09.2004, Page 4
Gestirnir úr Fossvoginum léku áals oddi til að byrja með en þegar Valsmenn komust yfir bjugg- ust margir við því að björninn væri unn- inn. Það var öðru nær. Í upphafi seinni voru Valsmenn fimm á móti þremur Víkingum en tókst ekki að nýta sér það því Víkingar sannarlega bitu í skjaldarrendur, mótlætið efldi þá til dáða og liðið fór á flug. Hver leikmaðurinn á fætur öðrum sýndi listir sínar og Valsmenn játuðu sig fljótlega sigraða. „Ef mig misminnir ekki erum við fyrsta Víkingsliðið til að vinna hér að Hlíðarenda og höfum þar með brotið álögin á glæsilegan hátt,“ sagði Reynir Þór, markvörður Víkinga- .„Við vorum undir í hálfleik og venju- lega brotna menn við það en við sýndum og sönnuðum að það er kom- in sterk liðsheild í þennan hóp. Það sem gerðist nú og hefur vantað er að menn, sem ekki hafa tekið af skarið, gera það nú. Það er kjarni í liðinu að taka framförum og okkur munar um það því þetta gengur ekki á einum eða tveimur mönnum. Við lögðum mikið á okkur í sumar og ætlum að leggja enn meira á okkur til að reisa handboltann í Víkingi við. Þrátt fyrir sigurinn erum við með báða fætur á jörðinni,“ sagði Reynir. „Við biðjum áhorfendur afsökunar því þetta var hræðilegur leikur hjá okkur,“ sagði Óskar Bjarni Óskars- son, þjálfari Vals, eftir leikinn. „Það má svo sem búast við að við séum sveiflukenndir á meðan við erum að ná mönnum saman en þetta var allt- of sveiflukennt. Við byrjuðum hræði- lega og seinni hálfleikur var enn verri. Við erum samt með gott lið og munum ná toppi á réttum tíma.“ Allt gekk upp hjá HK-ingum HK-ingar sýndu allar sínar bestuhliðar þegar þeir unnu góðan sigur, 32:28, á slöku FH-liði á heima- velli sínum í Digra- nesi í gærkvöldi. HK hafði yfirhöndina allt frá upphafi leiks, rúlluðu hreinlega yfir gestina í fyrri hálfleik en staðan í leikhléi var 19:10. Sá munur var of mikill fyrir FH-inga til að brúa og þrátt fyrir að heldur hafi dregið af heimamönnum í síðari hálfleik náðu FH-ingar ekki að ógna að neinu marki. HK-liðið var mjög sterkt í leikn- um, vörnin þétt og markvarslan góð. Í fyrri hálfleik skoraði Elías Már Halldórsson 8 mörk fyrir liðið og átti stóran þátt í sigrinum. „Ég er mjög sáttur við leik liðsins við byrjum mótið mjög vel og liðið lofar góðu,“ sagði Elías eftir leikinn.“ „FH-ingar komu mér á óvart, þeir voru miklu þyngri og stirðari en ég bjóst við. Við bjuggumst við þeim dýrvitlausum eftir slæmt tap í síð- asta leik en við þurftum ekki einu sinni að spila taktíkina sem við lögð- um upp með. Það gekk allt upp og hvergi var veikan blett að finna,“ bætti Elías Már við að lokum. Sóknarleikur FH var afskaplega dapur í leiknum, lítið skipulag, mikið um mistök – einfaldlega ringulreið. Ágætis flug komst á Brynjar Geirs- son í síðari hálfleik – skoraði þá 10 mörk – þá bar hann sína menn á bak- inu og bjargaði því sem bjargast gat. Guðmundur Pedersen, fyrirliði FH, var ómyrkur í máli eftir leikinn. „Við töpuðum mjög sannfærandi. Mættum með hálfum huga til leiks og náðum ekki að gera neitt, hvorki í sókn né vörn – og gerðum þeim þetta auðvelt. Þetta er annar leikurinn í röð þar sem við erum afgreiddir strax í fyrri hálfleik. Það er mikið óöryggi og menn eru ekki með sjálfs- traustið í lagi, við vinnum ekki á meðan ástandið er svona,“ sagði Guðmundur. Auðvelt hjá ÍBV ÍBV sigraði Stjörnuna nokkuðsannfærandi í Eyjum, 30:18. Það var aðeins fyrsta stundarfjórðung- inn sem gestirnir veittu heimamönn- um einhverja mót- spyrnu. Segja má að brottrekstur Kára Kristjánssonar, leikmanns ÍBV, um miðjan fyrri hálfleik hafi verið vendi- punkturinn í leiknum. Þá neyddust Eyjamenn til þess að breyta úr 6-0 vörn sinni í 5-1 og komust Garðbæ- ingar lítið áleiðis gegn henni. Auk þess var Roland Eradze í miklu stuði milli stanganna og varði á köflum allt það sem á markið kom. ÍR í basli með Selfoss ÍR-ingar lentu í nokkuð óvæntu basli með Selfyssinga í Austurbergi en sigruðu að lokum, 29:24. Staðan í háfleik var 14:12, ÍR-ingum í hag, og spennan hélt þar til skammt var til leiksloka. Ingimundur Ingimundar- son skoraði 7 mörk fyrir ÍR og Ram- unas Mikalonis var langatkvæða- mestur Selfyssinga, skoraði 11 mörk. Morgunblaðið/Kristinn Benedikt Jónsson fagnar einu marka Víkings að Hlíðarenda í gærkvöld ásamt félaga sínum. Reynir Þór Reynisson, markvörður Vík- inga, kvaðst viss um að þetta væri fyrsti sigurleikur Víkinga á heimavelli Vals en lokatölur urðu 31:23. VALSMENN vissu varla hvaðan á þá stóð veðrið í gærkvöldi þegar Víkingar mættu í heimsókn að Hlíðarenda á Íslandsmóti karla í handknattleik. Frekar jafnt var fram eftir leik en þegar Reynir Þór Reynisson, markvörður Víkinga, komst í ham fylgdi allt liðið eftir gegn ráðþrota heimamönnum sem urðu að sætta sig við 31:23 tap, það fyrsta í vetur. Stefán Stefánsson skrifar Víkingar tóku Val í bakaríið Andri Karl skrifar Júlíus G. Ingason skrifar FÓLK  STEFAN Kretzschmar tryggði Magdeburg sigur á Wallau-Massen- heim, 27:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Hann skoraði sigurmarkið á síðustu sek- úndu leiksins. Arnór Atlason skor- aði eitt mark fyrir Magdeburg en Sigfús Sigurðsson var ekki með vegna meiðsla. Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Wallau.  RÓBERT Sighvatsson skoraði 4 mörk fyrir Wetzlar sem vann auð- veldan sigur á nýliðum N-Lübbecke, 29:24. Staðan í hálfleik var 18:8, Wetzlar í hag..  MARKÚS Máni Michaelsson, fyrr- um leikmaður Vals, leikur í kvöld sinn fyrsta leik með Düsseldorf í þýsku 1. deildinni þegar liðið sækir Grosswallstadt heim. Markús Máni var meiddur í öxl þegar tímabilið hófst og síðan fingurbrotnaði hann í umferðaróhappi. Hann mun spila með sérútbúna spelku í kvöld.  MARKÚS mætir fyrrum félaga sínum úr Val, Snorra Steini Guð- jónssyni, í kvöld en Einar Hólm- geirsson, fyrrum ÍR-ingur, er einnig í liði Grosswallstadt. Fjórði Íslend- ingurinn á vellinum verður Alexand- er Petersson í liði Düsseldorf.  NJARÐVÍKINGAR sigruðu danska liðið Åbyhöj, 103:98, í fyrsta leiknum á alþjóðlegu körfuknatt- leiksmóti í Danmörku í gærkvöld.. Troy Wiley skoraði 29 stig fyrir Njarðvíkinga og Brenton Birming- ham 16. Njarðvík mætir í dag danska liðinu Horsens, sem lagði þýska liðið Bremerhaven að velli.  ÍR-INGAR léku gegn dönsku meisturunum Bakken Bears í sama móti og biðu lægri hlut, 104:71. Mót- ið fer fram í Árósum. Í fyrrakvöld vann ÍR danska liðið Holbæk, 63:60, í æfingaleik í Hróarskeldu.  HELENA Ólafsdóttir, landsliðs- þjálfari kvenna í knattspyrnu, til- kynnti í gærkvöld byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum sem fram fer í Rochester í kvöld.  ÞÓRA Björg Helgadóttir er í markinu, Íris Andrésdóttir, Erla Hendriksdóttir, Ásta Árnadóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir leika í vörninni, Margrét Lára Viðars- dóttir, Dóra Stefánsdóttir, Laufey Ólafsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eru á miðjunni og fremst er Olga Færseth.  ÁSTA Árnadóttir fær eldskírn í kvöld en hún leikur sinn fyrsta A- landsleik og er í byrjunarliði gegn Ólympíumeisturunum. NARFI úr Hrísey sendir lið á Íslandsmótið í íshokkí sem hefst í kvöld. Þar með fjölgar liðunum úr þremur í fjögur. Narfi leikur við Björninn í kvöld klukkan 19 á heimavelli Bjarnarins í Egilshöllinni í Reykjavík. Narfi leikur heimaleiki sína í Skautahöllinni á Akureyri og liðið er skipað mörgum reyndum leikmönnum sem flestir eiga rætur sínar í Skautafélagi Akureyrar, en einnig í Skautafélagi Reykja- víkur. Þar á meðal eru Sig- urður Sigurðsson úr SA, sem hefur unnið alla Íslandsmeist- aratitla frá 1991 með SA og SR, og þeir Elvar Jón- steinsson og Jónas Stefánsson úr SR og Héðinn Björnsson úr SA, sem allir hafa leikið með landsliði Íslands. Narfi úr Hrísey með íshokkílið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.