Morgunblaðið - 06.10.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 19
MINNSTAÐUR
Haust- og vetrarlitirnir 2004-2005
Haust- og vetrarlitirnir eru komnir. Aqua Fusion er nýtt rakakrem sem
fyllir húðina raka og orku. Tilboð á öllum virkustu kremunum. Endilega
lítið við og fáið persónulega ráðgjöf varðandi förðun og húðumhirðu.
Glæsilegir kaupaukar.
Kynning í Lyf og Heilsu frá kl. 11 til 16
Melhaga sími 552 2190 fimmtudaginn 7. okt.
Mjódd sími 557 3390 fimmtudaginn 7. okt.
Austurstræti sími 562 9020 föstudaginn 8. okt.
Austurveri sími 581 2101 föstudaginn 8. okt.
Spennandi haust hjá
AKUREYRI
Grindavík | Ekki var veðrið
skemmtilegt sem skólahópur hjá
leikskólanum Laut fór út í til að
heimsækja Grindavíkurdeild
Rauða kross Íslands. Allir voru þó
vel klæddir og létu ekki smá rign-
ingu á sig fá.
Vel var tekið á móti þessum
efnilegu nemendum sem fylgdust
með fræðslunni sem boðið var upp
á og þáðu með þökkum end-
urskinsborða og ís. Leikskólinn
fékk líka fínar gjafir en það er
nýtt kennsluefni um dreng sem
heitir Hjálpfús sem gefið er út af
RKÍ.
„Það er alltaf gaman að sjá ný
andlit og krakkar eru ævinlega
sérlega móttækileg fyrir svona
boðskap um vináttu, hjálpsemi og
samúð,“ sagði formaður deild-
arinnar, Guðfinna Bogadóttir, um
leið og hún rauk til að taka á móti
skólahópi frá leikskólanum Króki.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Hjá sjúkrabílnum Börnin af leikskólanum Laut fengu að skoða sjúkrabíl-
inn í heimsókn til Grindavíkurdeildar RKÍ.
Heimsækja Rauða
kross-deildina
SUÐURNES
Tjáningarfrelsi | Rökstuðningur
tjáningarfrelsisins er heiti fyr-
irlestrar sem fluttur verður á fé-
lagsvísindatorgi í dag, þriðjudaginn
6. október, kl. 16.30 í stofu L201, Sól-
borg.
Guðmundur Heiðar Frímannsson,
deildarforseti kennaradeildar HA,
fjallar um tjáningarfrelsisákvæðið í
Stjórnarskrá Íslands og hvað heim-
spekingarnir, Immanuel Kant og
John Stuart Mill, hafa að segja um
inntak og hlutverk tjáningarfrels-
isins.
Skora á deiluaðila | Stjórn For-
eldra- og kennarafélags Síðuskóla
á Akureyri hefur sent frá sér álykt-
un þar sem skorað er á deiluaðila í
kjaradeilu grunnskólakennara og
sveitarfélaga „að sýna nú viljann í
verki og setjast að samningaborði
með opnum og jákvæðum huga, til
að leysa þá deilu sem því miður er
farin að hafa áhrif á líf og störf allt-
of margra fjölskyldna í þessu
landi,“ eins og segir í ályktun
stjórnarinnar.
FULLTRÚAR í forystu samtaka
sjómanna voru mættir á löndunar-
bryggju Brims á Akureyri um há-
degisbil í gær, þegar ísfisktogarinn
Sólbakur EA kom inn til löndunar og
komu þeir í veg fyrir að hægt yrði að
hefja löndun úr skipinu með því að
leggja bílum sínum við skipshlið.
„Við verðum hér í nótt, á morgun
og aðra nótt ef þarf,“ sagði Konráð
Alfreðsson, formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar, en hann var einn
þeirra sem stóðu að aðgerðunum á
bryggjunni. Guðmundur Kristjáns-
son, forstjóri Brims, heilsaði upp á
fulltrúa sjómanna og fór fram á að
þeir fjarlægðu bíla sína, svo hægt
yrði að landa úr skipinu en án árang-
urs.
„Ef þið viljið halda friðinn við okk-
ur verðið þið að fara að samningum,“
sagði Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, við full-
trúa Brims. Guðmundur sagði að-
gerðir sjómannaforystunnar ólög-
legar og að félagið myndi leita réttar
síns. „Við höfum verið tilbúnir til við-
ræðna um þetta mál. Það mun hins
vegar gerast hjá okkur líkt og í öðr-
um greinum, að gerðir verða ramma-
samningar fyrir greinina og svo
verða ákveðnir vinnustaðasamning-
ar innan greinarinnar. Sjómenn hafa
ekki viljað laga sig að aðstæðum og
gefið þetta frelsi til að gera vinnu-
staðasamninga.“
Guðmundur sagði að ástæðan fyr-
ir því að samningur Sólbaks væri ut-
an við stéttarfélögin væri sú að þeim
hafi verið neitað um að fara hina leið-
ina. „Við margreyndum í sumar að
ná samningum en það var aldrei
hlustað á okkur.“
Guðmundur sagði mjög mikilvægt
að koma afla Sólbaks í land sem allra
fyrst. „Hingað koma menn að sunn-
an og ætla að loka 120 manna vinnu-
stað með þessum aðgerðum. Þetta er
engin kjaradeila, heldur miklu frek-
ar spurning um formsatriði og þá
hvort hvíla eigi stálið í 30 tíma. Við
höfum farið fram á það við lögreglu
að bæði menn og bílar verði fjar-
lægðir af bryggjunni. Við trúum á
lög og rétt í þessu landi og teljum
okkur í fullum rétti.“
Útgerðarfélagið Sólbakur ehf.,
sem gerir út Sólbak EA, er að fullu í
eigu Brims en félagið er ekki aðili að
LÍÚ og sjómenn sem starfa á skip-
inu standa utan stéttarfélaga. Geng-
ið var frá ráðningarsamningi við
áhöfnina á dögunum og telja for-
svarsmenn sjómanna samninginn
ólöglegan.
Lögreglan fylgdist með aðgerðum
sjómannaforystunnar á bryggjunni í
gær en aðhafðist ekkert, þar sem um
vinnudeilu væri að ræða.
Árni Bjarnason, forseti Far-
manna- og fiskimannasambandsins,
sagði að með þessari aðgerð væri
verið að sýna á afgerandi hátt af-
stöðu sjómannaforystunnar til þess
sem gerst hefði með Sólbak og að
það væri þeirra mat að um lögbrot
væri að ræða.
Þetta er tifandi tímasprengja
„Atriði samningsins hafa verið
birt á Netinu og þar eru fjölmargir
þættir sem eru borðleggjandi þannig
vaxnir að það er horfið mjög langt
aftur í tímann. Þetta kemur aldrei til
með að ganga upp og er bara tifandi
tímasprengja. Ég tel mig þekkja það
vel til sjómanna að vita að þeir hafa
ekki nokkurn áhuga á því að eyða
sínum frítíma eða inniverum í að
semja við sinn útgerðarmann um
kaup og kjör. Þeir vilja að stéttar-
félögin geri það.“
Árni sagði að þetta væri vont mál
og að öllum mögulegum ráðum yrði
beitt til að koma í veg fyrir að það
þróaðist áfram. „Það eru ekki svo
mjög margar vikur síðan Guðmund-
ur Kristjánsson var í mínum huga
ljósið í myrkrinu í þessum útgerð-
arbransa. Mér fannst hann með
ferskar hugmyndir en svo kemur
bara í ljós að þarna fer úlfur í sauð-
argæru og maður sem er virkilega
varhugaverður í sjávarútveginum í
dag,“ sagði Árni.
Sævar Gunnarsson sagði að á
meðan forsvarsmenn Brims yrðu
ekki við þeim tilmælum að hætta að
brjóta lög og samninga yrði staðin
vakt á bryggjunni.
Ísfisktogarinn Sólbakur EA kom til heimahafnar á Akureyri í gærdag
Forysta sjómanna kom
í veg fyrir löndun afla
Morgunblaðið/Kristján
Málin rædd Fulltrúar Brims, Sæmundur Friðriksson útgerðarstjóri, Guðmundur Kristjánsson forstjóri og Óttar
Már Ingvason, ræða við Sævar Gunnarsson, formann Sjómannasambands Íslands, og Árna Bjarnason, forseta Far-
manna- og fiskimannasambandsins, á löndunarbryggju Brims á Akureyri eftir að skipið lagðist að bryggju.
INGÓLFUR Jónsson, kokkur
á Sólbak EA, var ekki sáttur
við aðgerðir sjómannaforyst-
unnar. „Mér finnst þessar
aðgerðir heimskulegar. Við
hefðum ekki skrifað undir
samninginn við útgerðina ef
hann væri ekki í lagi,“ sagði
hann, og var ekki sáttur við
aðgerðir sjómannaforyst-
unnar.
„Sjómannaforystan hefur
ekkert bakland í þessum að-
gerðum, hvar eru allir sjó-
mennirnir? Þeir átta sig
ekkert á því, karlagreyin,
fyrir hvað þeir standa og
halda að félögin séu fyrir þá
en ekki fyrir fólkið,“ sagði
Ingólfur.
„Forystan
hefur
ekkert
bakland“