Morgunblaðið - 19.10.2004, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2004 B 3
David Beckham verður ekki með
Madridarliðinu þar sem hann er með
brákað rifbein, Walter Samuel er í leik-
banni og þá er óvíst hvort Guti getið spil-
að en hann haltraði útaf í jafnteflisleik
Real Madrid og Real Betis um helgina.
„Við verðum að leggja Dynamo að
velli. Hvað sem það kostar,“ segir Ivan
Helguera, varnarmaðurinn sterki í liði
Real Madrid. Spænska blaðið Marca tel-
ur að líklegt byrjunarlið hjá Real Ma-
drid verði þannig skipað: Iker Casillas -
Salgado, Ivan Helguera, Francisco Pa-
von, Roberto Carlos - Guti, Luis Figo,
Zinedine Zidane, Raúl - Ronaldo, Mich-
ael Owen.
Roma á erfiðan leik fyrir höndum en
liðið sækir Leverkusen heim og verður
að ná þremur stigum til að eygja mögu-
leika á að komast áfram upp úr riðlinum.
Hargraeves á bekkinn
Stórleikur er á dagskrá í C-riðlinum
þegar Ítalíumeistarar Juventus fá Bay-
ern München í heimsókn. Bæði lið hafa 6
stig en Ajax og Maccabi Tel Aviv sem
mætast í Ísrael eru án stiga.
Bæjarar töpuðu um helgina fyrir
Schalke í þýsku úrvalsdeildinni og
spurning er hvernig sá ósigur verkar á
liðsmenn Bayern. Felix Magath þjálfari
Bæjara hélt tveggja klukkustunda fund
með leikmönnum sínum á sunnudaginn
og fór þar í saumana á hvað fór úrskeiðis
í leiknum við Schalke og brýndi um leið
sína menn fyrir leikinn á móti Juventus.
„Við vorum mjög slakir í leiknum við
Schalke,“ sagði Magath og hann vonast
til að sínir menn bæti fyrir slakan leik og
mæti grimmir til leiks í Torínó. Þýska
blaðið Bild telur nær öruggt að enski
landsliðsmaðurinn Owen Hargraeves
missi stöðu sína í byrjunarliðinu og þá er
óvíst hvort Sebastian Deisler geti spilað
þar sem hann varð fyrir hnjaski í leikn-
um við Schalke.
„Ég hélt að liðið væri að smella saman
eftir að við burstuðum Ajax í Meistara-
deildinni en það var öðru nær. Við lékum
hræðilega illa á móti Schalke og við
verðum heldur betur að taka okkur sam-
an í andlitinu ef ekki á illa að fara á móti
Juventus,“ segir Oliver Kahn.
Enginn Keane eða Ferdinand
Mikil spenna er í D-riðlinum. Man-
chester United og Lyon hafa 4 stig, Fe-
nerbache 3 en Sparta er án stiga. Spart-
verjar fá United í heimsókn til Prag og í
Tyrklandi eigast við Fenerbache og
Lyon.
Manchester verður án tveggja lykil-
manna í leiknum í kvöld. Fyrirliðinn Roy
Keane á við veikindi að stríða og Rio
Ferdinand fékk frí vegna jarðarfarar
ömmu sinnar. Mikael Silvestre tekur
stöðu Ferdinands í hjarta varnarinnar
og leikur þar við hlið Wes Brown og þá
er líklegt að Paul Scholes komi inn í
byrjunarlið United á miðjunni en Scho-
les kom inná í leiknum við Birmingham
eftir að hafa átt í meiðslum. Ryan Giggs
hefur jafnað sig á flensu og er orðinn
leikfær og þá er Wayne Rooney sömu-
leiðis leikfær en hann varð fyrir lítils
háttar meiðslum í leiknum við Birming-
ham.
Real að hrista
ér slenið?
u í knattspyrnu hefst í kvöld með
farið að skýrast hvaða lið komast
Madrid, Bayern München og Man-
vrópumeistaratitlinum á und-
d sem og Ítalíumeistarar Juventus
Reuters
og Raúl fagna marki í leik gegn Roma á Santiago Bernabeu.
ÞRÍR íslenskir kylfingar halda í
dag til Bandaríkjanna þar sem þeir
munu dvelja við æfingar í þrjá daga
áður en þeir halda til Púertó Ríkó
þar sem heimsmeistaramót áhuga-
manna í golfi fer fram 28. til 31.
þessa mánaðar. Þar fer fram sveita-
keppni þar sem árangur tveggja
kylfinga telur á hverjum hring en
leiknir verða fjórir hringir, tveir á
hvorum velli, eða 72 holur.
Kylfingarnir sem halda utan í
dag eru Heiðar Davíð Bragason úr
GKj, Sigmundur Einar Másson,
GKG, og Örn Ævar Hjartarson, GS.
Raunar er Sigmundur við nám í
Bandaríkjunum og hittir hina tvo
ásamt Ragnari Ólafssyni liðsstjóra
og Staffan Johannsson þjálfara í
Orlando.
sagði Heiðar Davíð í gær þegar
mótið var kynnt.
Golfsambandið stendur straum af
kostnaði vegna ferðar félaganna og
segja forráðamenn þess að það
hefði sambandið varla getað nema
með 1,5 milljón króna stuðningi frá
Mastercard hér á landi. „Með því
getum við farið aðeins fyrr þannig
að strákarnir nái að aðlaga sig að-
eins áður en þeir skella sér í mótið
sjálft,“ sagði Júlíus Rafnsson, foseti
GSÍ á kynningarfundi í gær.
Piltarnir halda til Orlando í dag,
verða þar við æfingar fram á laug-
ardag og síðan verður æft í Púertó
Ríkó fram á fimmtudag þegar mót-
ið hefst, en keppt er um Eisenhow-
er-bikarinn á tveimur völlum að
þessu sinni, báðum par 72.
Örn Ævar er að keppa á HM
áhugamanna í þriðja sinn, var í
sveitinni sem náði 20. sæti í Berlín
árið 2000 og tveimur árum síðar
var hann með í Malasíu. „Þetta er
tvennt ólíkt og í Púeró Ríkó vitum
við að verður bæði heitt og rakt og
allt annað gras en við eigum að
venjast. Aðstæður þar eru samt
ekkert ólíkar því sem er í Louisiana
í Bandaríkjunum þar sem ég var við
nám og Sigmundur er við nám núna
þannig að mestu viðbrigðin verða
fyrir Heiðar Davíð,“ sagði Örn Æv-
ar sem mun miðla af reynslu sinni
til hinna tveggja.
„Ég tel það mikla áskorun að
taka þátt í svona móti og hlakka
mikið til að takast á við allt aðrar
aðstæður en maður er vanur,“
Þrír íslenskir kylfingar fara á
HM áhugamanna í Púertó Ríkó
JÓHANNES Valgeirsson er á
meðal dómara og Sigurður Óli Þór-
leifsson á meðal aðstoðardómara í
undanriðli Evrópumóts drengja-
landsliða í knattspyrnu sem leikinn
er í Hollandi og hefst í dag. Í riðl-
inum eru, auk Hollendinga, lið Tyrk-
lands, Wales og Armeníu.
SHAKA Hislop markvörður enska
úrvalsdeildarliðsins Portsmouth
segir að hann muni ekki gefa kost á
sér í landslið Trinidad og Tobago í
framtíðinni en hinn 36 ára gamli
Hislop ætlar sér að leika í tvö ár til
viðbótar í ensku úrvalsdeildinni –
hafi eitthvert lið áhuga á honum.
SAMANTHA Britton, sem lék
með ÍBV undir lok Íslandsmótsins í
knattspyrnu í sumar, er komin á ný í
enska landsliðshópinn í knattspyrnu.
Ensku landsliðskonurnar hafa verið
kallaðar saman til æfinga síðar í
þessum mánuði til undirbúnings fyr-
ir úrslitakeppni EM næsta sumar en
þar verða þær í gestgjafahlutverki.
BRITTON, sem leikur með Ever-
ton í vetur, dvaldi lengi í Vest-
mannaeyjum í sumar og var þar í
meðferð eftir að hafa slitið kross-
band í hné. Sama er að segja um
Rachel Brown, markvörð Everton,
sem lék með ÍBV 2003, en hún gat
ekkert spilað með Eyjaliðinu í ár þó
hún væri í Vestmannaeyjum seinni
hluta tímabilsins. Brown er líka
komin í landsliðshópinn á ný.
PATRICK Kluivert, hollenski
sóknarmaðurinn, verður ekki með
Newcastle þegar liðið mætir Panio-
nios í Grikklandi í riðlakeppni
UEFA-bikarsins í knattspyrnu á
fimmtudag. Kluivert er tognaður í
læri og var ekki með Newcastle þeg-
ar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Her-
mann Hreiðarsson og félaga í
Charlton í ensku úrvalsdeildinni í
fyrradag.
KEVIN Keegan, stjóri Manchest-
er City, telur að það verði afar erfitt
fyrir Chelsea að keppa við Arsenal
um enska meistaratitilinn í ár. ,,Það
er ekkert lið á landinu sem kemst ná-
lægt Arsenal um þessar mundir. Það
er kannski ósanngjarnt að bera liðin
saman. Chelsea er að byggja upp
nýtt lið en Arsene Wenger hefur bú-
ið þetta lið sitt á átta árum,“ segir
Keegan.
INTER Mílanó hefur sýnt áhuga á
að fá þýska varnarmanninn Robert
Huth frá Chelsea til liðs sig en Huth
hefur fengið fá tækifæri með Lund-
únaliðinu. Vörn Inter hefur ekki þótt
sannfærandi og liðið hefur ekki náð
að fylla skarð Fabio Cannavaros
sem seldur var frá félaginu í sumar.
Robert Mancini þjálfari Inter er
sagður hafa mikinn áhuga á að fá
Huth til Inter og þá hefur heyrst að
Newcastle og Everton séu spennt
fyrir Þjóðverjanum.
FÓLK
Ragnar Ingi Sigurðsson úr FHfagnaði sigri á Íslandsbikar-
mótinu í skylmingum með höggs-
verði sem fram fór í
Hagaskóla á laugar-
daginn. Kappinn er
nýstiginn upp úr
meiðslum svo að
margir voru líklegir til að leggja
margfaldan Íslandsmeistarann en
af því varð ekki og Ragnar Ingi
lagði Hróar Hugoson í úrslitum
opna flokksins en jafnt var fram
eftir leik.
„Ég byrjaði frekar rólega en
Hróar var mjög ákveðinn svo að ég
varð að passa mig. Það verður að
byrja af fullum krafti, annars grípa
þessir strákar tækifærið,“ sagði
Ragnar Ingi eftir mótið. „Ég vissi
reyndar ekki hverju ég átti von á.
Ég æfði lítið í sumar og haust og er
nýbyrjaður eftir að hafa fengið
tennisolnboga svo að ég er rétt að
koma til núna. Handleggurinn var í
lagi, ég fann ekkert til í honum og
þá gekk vel og stefnan strax sett á
sigur,“ bætti kappinn við og hyggst
láta til sín taka. „Stefnan er nú að
hvíla aðeins lengur, í mánuð eða
svo, en byrja svo af fullum krafti og
reyna að komast á nokkur heims-
bikarmót. Í dag er ég í 125. sæti á
heimslistanum og stefni á að ná í 8
stig sem skila mér fimmtán til tutt-
ugu sætum ofar.“
Skylmingamenn voru ánægðir
með mótið, um 17 tóku þátt í opna
flokknum og annað eins var í ung-
lingaflokki þar sem margt efnið
mundaði sverðið. Það má því búast
við líflegu Íslandsmóti eftir mánuð.
Ragnar
Ingi mætt-
ur til leiks
Stefán
Stefánsson
skrifar
Morgunblaðið/Stefán
Ragnar Ingi Sigurðsson
Mourinho stólar
á Arjen Robben
JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vonast til að geta
teflt Hollendingnum Arjen Robben fram í fyrsta sinn þegar lið-
ið mætir Everton 6. nóvember næstkomandi. Chelsea keypti
Robben fyrir 12 milljónir punda frá PSV í sumar en hann hefur
ekkert getað leikið með liðinu vegna hnémeiðsla.
Lærisveinum Mourinhos hefur gengið illa að skora mörk en
með tilkomu Robbens vonast Portúgalinn til þess að meira líf
færist í sóknarleikinn og að liðið bæti úr markaleysinu. Chelsea
hefur aðeins skorað 8 mörk í fyrstu níu umferðunum í ensku
úrvalsdeildinni á sama tíma og Englandsmeistarar Arsenal hafa
fundið leiðina í markið 29 sinnum.
„Ég vona að Arjen geti spilað með varaliðinu á næstu tveim-
ur vikum og ef allt verður með eðlilegum hætti verður hann
klár í slaginn með aðalliðinu í byrjun nóvember. Við höfum var-
ist vel í leikjum okkar á tímabilinu, spilað vel sem lið og skapað
okkur fleiri færi en nokkuð annað lið í deildinni en vandamálið
hefur verið að koma boltanum í netið. Það er alveg ljóst að lið
sem skorar eitt mark í leik verður ekki meistari,“ segir Mour-
inho.