Morgunblaðið - 20.10.2004, Page 1
2004 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VÍKINGAR HAFA SAMÞYKKT TILBOÐ DJURGÅRDEN Í KÁRA ÁRNASON / B3
Í gagntilboðinu fer Hannes framá að bera meira úr býtum en í
frétt í norska blaðinu Stavanger
Aftenblad segir að hann sé einn
lægt launaði leikmaður liðsins en
tekjur hans samkvæmt skattfram-
tali í fyrra námu ríflega tveimur
milljónum íslenskra króna.
„Það eru kannski aðeins meiri
líkur á að ég verði áfram hjá Vik-
ing en það er ekkert búið að
ákveða eitt né neitt. Ég lagði fram
á fundinum við Hodgson mínar
kröfur og nú er boltinn bara í
höndum Vikings, hvað þeir vilja
gera,“ sagði Hannes við Morgun-
blaðið í gær.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðisins hafa borist margar fyr-
irspurnir um Hannes frá erlendum
liðum í kjölfar frammistöðu hans
með ungmennalandsliðinu en
Hannes hefur skorað öll sex mörk
Íslands í undankeppni EM –
þrennur gegn Búlgörum og Svíum.
Það sem hefur hins fælt sum félög
frá er að forráðamenn Viking
krefjast uppeldisbóta fyrir Hann-
es, 180.000 evra sem jafngildir
rúmlega 15 milljónum króna, en
Hannes hefur verið samnings-
bundinn Viking í þrjú ár eða frá 17
ára aldri.
Hannes Þ. gerði gagntilboð
HANNES Þ. Sigurðsson, sem slegið hefur rækilega í gegn með ung-
mennalandsliðinu í knattspyrnu, átti fund með Roy Hodgson, þjálf-
ara Viking, í fyrrakvöld. Þar lagði Hannes á borðið gagntilboð en
Viking hefur í tvígang í sumar gert Íslendingnum nýtt tilboð þar sem
samningur hans við félagið rennur út eftir leiktíðina.
Morgunblaðið/Sverrir
Keflavík vann útisigur á ÍS, 79:64, í toppslag í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld. Á mynd-
inni er Lovísa Guðmundsdóttir úr ÍS með boltann en Rannveig K. Randversdóttir (9) og Marín Rós
Karlsdóttir úr Keflavík sækja að henni. Keflavík hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína. Sjá nánar B2.
Mutu sem leikur með enska úr-valsdeildarliðinu Chelsea
fundaði í gær með fulltrúum sam-
taka atvinnuknattspyrnumanna.
„Hann mun ekki fara í annað lyfja-
próf, en hefur viðurkennt að hafa
notað kókaín. Mutu fer á fund með
enska knattspyrnusambandinu, FA,
á næstu dögum þar sem málið verð-
ur tekið fyrir.
Búast má við því að Mutu verði
dæmdur í allt að tveggja ára keppn-
isbann en játning hans gæti dregið
úr refsingunni.
Gheorghe Popescu talsmaður
Mutu segir að leikmaðurinn sé „eyði-
lagður“ en vonist eftir að fá sex mán-
aða keppnisbann. Popescu lék áður
með Tottenham. „Ég ráðlagði hon-
um að játa sekt sína þar sem biðin
eftir síðara sýninu myndi aðeins
auka vandamálið – enda gerist það
sjaldan að A- og B-sýni gefi mismun-
andi niðurstöðu.
Chelsea mun líklega taka Mutu af
launaskrá þar til FA lýkur við málið.
Það vekur athygli að Jose Mourinho
knattspyrnustjóri Chelsea var sá að-
ili sem bað um að Mutu yrði sendur í
lyfjapróf en hann var ósáttur við að
leikmaðurinn skyldi mæta seint og
illa fyrir kallaður á æfingar liðsins.
Mutu var keyptur til Chelsea frá
ítalska liðinu Parma fyrir ári síðan
fyrir um 2 milljarða kr. en hann er
með um 8 millj. kr. á viku í laun frá
Chelsea.
Ioan Becali umboðsmaður Mutu
hefur viðurkennt að hafa logið að
Claudio Ranieri, fyrrum knatt-
spyrnustjóra Chelsea, til þess að
Mutu gæti farið til heimalands síns í
skemmtiferð.
„Ég laug að nánum vini mínum.
Mutu bað mig um að segja að móðir
hans væri veik og hann þyrfti að fara
til hennar í snatri. Hann fór til Rúm-
eníu til þess að skemmta sér.“ Becali
bætir því við að skilnaður Mutu við
Alexandra Dimu hefði reynst honum
erfiður.
Mutu lék með rúmenska landslið-
inu gegn Tékkum á dögunum þrátt
fyrir að læknar Chelsea hefðu bann-
að honum að fara í leikinn vegna
meiðsla á hné. Mourinho sektaði
Mutu með því að draga af honum
tveggja vikna laun – 16 millj. kr.
Mourinho hefur bannað Mutu að
koma á æfingasvæði félagsins.
Mourinho
sendi Mutu
í lyfjaprófið
RÚMENSKI landsliðsmaðurinn Adrian Mutu hefur viðurkennt að
hafa notað eiturlyfið kókaín, en Mutu féll á lyfjaprófi sem hann var
látinn gangast undir fyrir skemmstu. Gordon Taylor formaður sam-
taka atvinnuknattspyrnumanna segir við enska fjölmiðla að leik-
maðurinn hafi viðurkennt að hann hafi notað umrætt efni og því
verður B-sýni úr lyfjaprófinu ekki rannsakað.
AP
Mutu, leikmaður Chelsea og fyrirliði landsliðs Rúmeníu.
SJÖ snjallir handknattleiksmenn léku í gær-
kvöld kveðjuleik með landsliðum Þýskalands
og Svíþjóðar. Þau áttust við í Kiel, í troðfullri
Ostsee-höllinni, en áhorfendur voru 10.280 og
þeir sáu Svía sigra, 32:31. Þeir Stefan
Kretzschmar, Christian Schwarzer, Volker
Zerbe, Klaus-Dieter Petersen og Mark Drag-
unski klæddust þar þýsku landsliðstreyjunni í
síðasta skipti.
Svíarnir frægu Staffan Olsson og Magnus
Wislander, sem báðir eru orðnir fertugir, léku
jafnframt kveðjuleik sinn fyrir Svía, á sínum
gamla heimavelli í Kiel. Wislander lék með
Kiel í 12 ár og Olsson í 7 ár. Þar að auki voru
fimm núverandi leikmenn með Kiel í liði Svía,
sem þar með var nánast eins og á heimavelli.
Frank von Behren skoraði 5 mörk fyrir Þjóð-
verja og Kretzschmar 4. Þar með skoraði
Kretzschmar 821 mark á litríkum ferli sínum
með þýska landsliðinu. Sebastian Seifert var
atkvæðamestur hjá Svíum, skoraði 7 mörk.
Sjö stjörnur
kvöddu í sigur-
leik Svía í Kiel