Morgunblaðið - 27.10.2004, Side 2
!
!
!
" "
#$%&'%
'&'%
!
( )!*+
ALMYRKVI verður á tungli næstu
nótt og má gera ráð fyrir að
myrkvinn sjáist í heild frá Íslandi.
Almyrkvinn stendur yfir í 81 mín-
útu. Að honum loknum hefst deild-
armyrkvi aftur en nú í öfugri röð,
þar sem tunglið færist smám sam-
an úr alskugganum.
Myrkvinn hefst skömmu eftir
miðnætti eða kl. 00.06 og lýkur
06.03.
Frá þessu er greint í nýútkomnu
fréttabréfi Stjörnuskoðunarfélags
Seltjarnarness.
Tekur á sig dökkrauðan eða
kopar-appelsínugulan lit
Tunglmyrkvar verða þegar
tunglið gengur inn í skugga jarðar
þegar jörðin er stödd milli sólar og
tungls. Í umfjöllun Sævars Helga
Bragasonar í fréttabréfi Stjörnu-
skoðunarfélagsins segir að þegar
tunglið er komið inn í alskuggann
hverfi það ekki alveg vegna þess
að skuggi jarðar er ekki algjörlega
dökkur.
„Tunglið tekur þá á sig dökk-
rauðan eða kopar-appelsínugulan
lit. Þessi litbrigði koma frá sólar-
ljósinu sem fer í gegnum örþunna
brún á lofthjúpi jarðarinnar og
fellur á tunglið. Ryðrauði liturinn
er sá sami og við sjáum við sól-
arupprás og sólsetur á jörðinni,“
segir í greininni.
Næsti almyrkvi í mars 2007
„Sýningunni er ekki alveg lokið
þegar brún tunglsins er komin úr
alskugganum því hálfskugginn
ætti að haldast sýnilegur á hægri
helmingi tunglsins í um 20–30 mín-
útur.
Þegar þessu er lokið, prýðir fullt
tungl morgunhimininn hátt í vestri
séð frá Reykjavík,“ segir í grein
Sævars Helga.
Tunglmyrkvinn ætti að sjást vel
á sunnan- og suðvestanverðu land-
inu þar sem Veðurstofan spáir
bjartviðri í þessum landshlutum í
kvöld og nótt. Næsti almyrkvi á
tungli sem sést frá Íslandi verður
ekki fyrr en eftir tvö og hálft ár
eða 3. mars 2007.
Almyrkvi á tungli næstu nótt
2 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁÆTLUN SAMÞYKKT
Þingið í Ísrael samþykkti í gær
áætlun Ariels Sharons forsætisráð-
herra um að allt ísraelskt herlið og
landtökumenn yrðu flutt frá Gaza á
næsta ári. Margir stjórnarþingmenn
greiddu atkvæði gegn áætluninni en
Verkamannaflokkurinn, sem er í
stjórnarandstöðu, studdi hana. Gaza
verður fyrsta svæðið sem Ísraelar
láta af hendi eftir sigurinn mikla í
sex daga stríðinu 1967.
Spáð stjórnarkreppu
Talin er hætta á stjórnarkreppu í
Evrópusambandinu þar sem líklegt
þykir að þing ESB hafni í dag allri
væntanlegri nýrri framkvæmda-
stjórn sem á að taka við 1. nóv-
ember.
Mesta lækkun á einum degi
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
lækkaði um 4,3% í gær, sem er næst-
mesta lækkun vísitölunnar á einum
degi. Frá því að úrvalsvísitalan náði
hámarki 8. október síðastliðinn hef-
ur hún lækkað um 10,6%.
Vetrarfrí boðuð í næstu viku
Ef kennaradeilan leystist á næstu
dögum er óvíst hvort kennsla myndi
hefjast í næstu viku vegna boðaðs
vetrarfrís í mörgum grunnskólum.
Afhending tefst
Tafir hafa orðið á afhendingu
íbúða í fyrsta áfanga í 101 Skugga-
hverfi. Fyrstu íbúðirnar sem af-
henda átti í byrjun október verða af-
hentar í lok mánaðarins. Ástæðan er
sögð sú að ekki hafi tekist að vinna
verkið eins hratt og ráð var fyrir
gert.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Fréttaskýring 8 Bréf 26
Viðskipti 12/13 Minningar 27/28
Úr verinu 14 Dagbók 32/34
Erlent 14/15 Myndasögur 32
Minn staður 16 Víkverji 32
Höfuðborgin 17 Staður og stund 34
Suðurnes 17 Menning 35/41
Akureyri 18 Af listum 36
Landið 18 Bíó 38/41
Daglegt líf 19 Ljósvakamiðlar 42
Umræðan 21/26 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!"
# " $%&
!"
'"(
)!""(
*"(
+ ,-"
.%#/
+"
!$ $ #+ &%!$'&$ $
,0+ " 1"2333, ,
ÖKUMAÐUR bíls var fluttur á
slysadeild á Húsavík eftir bílveltu
sunnan í Laxamýrarleiti rétt vestan
Húsavíkur síðdegis í gær. Hann
meiddist í baki en fékk að fara heim
að lokinni skoðun.
Krapi var á veginum þegar óhapp-
ið varð og missti ökumaðurinn stjórn
á bíl sínum sem rann niður vegkant
og valt á þakið. Ökumaður var í bíl-
belti og bíllinn skemmdist ekki mikið
að sögn lögreglunnar.
Morgunblaði/Atli
Bílvelta við Laxamýri
FJÓRIR erlendir menn festu bíl
sinn í Jökuldölum í gær og gekk
einn þeirra í Landmannalaugar
en þar er neyðarsendir sem mað-
urinn notaði til að kalla eftir að-
stoð.
Ekki amaði neitt að manninum
sem gekk um 15 kílómetra leið í
Landmannalaugar og heldur ekki
að mönnum þremur sem biðu í
bílnum í Jökuldölum en björgun-
arsveitarmenn frá Dagrenningu á
Hvolsvelli voru komnir þangað á
vettvang seint í gærkvöldi. Reikn-
uðu björgunarsveitarmenn með
því að koma með mennina til
byggða í fyrsta lagi á milli klukk-
an tvö og þrjú í nótt sem leið.
Fjögurra stiga frost og stilla var á
þessum slóðum í gærkvöldi.
Bjargað úr Jökuldölum
ERLA Sólveig Óskarsdóttir hús-
gagnahönnuður hefur fengið það
verkefni að hanna stól sem fara á
á markað í Kólumbíu í Suður-Am-
eríku, en annar stóll sem hún hef-
ur hannað hefur verið þar á mark-
aði í nokkur ár, auk þess sem hann
hefur einnig verið á markaði í
Þýskalandi og Frakklandi.
Erla Sólveig sagði í samtali við
Morgunblaðið að eldri stóllinn
hefði gengið mjög vel í Kólumbíu
og því hefðu aðilarnir þar í landi
viljað fá aðra hönnun til viðbótar.
Þetta væri nýtilkomið og hefði
væri rætt um þetta á húsgagna-
sýningunni í Köln nú nýverið.
Vildu fá líkan stól
Erla Sólveig sagði að fyrirhugað
væri að nýi stóllinn færi einnig á
markað í Bandaríkjunum og Bras-
ilíu, en ekki
væru í gildi toll-
ar milli þessara
landa að þessu
leyti og því
möguleiki á slík-
um útflutningi.
Aðspurð hvort
að nýi stóllinn
yrði mjög frá-
brugðinn þeim
eldri sagði hún
að aðilarnir í Kólumbíu væru svo
yfir sig hrifnir af gamla stólnum
að þeir vildu fá sem líkastan stól
og það yrði skyldleiki á milli nýja
og gamla stólsins.
Grunnhugmynd af stólnum er
komin að sögn Erlu Sólveigar, en
ómögulegt væri að segja hversu
mikil vinna væri eftir við hönnun
hans.
Hannar stól
fyrir markað í
Kólumbíu
BILUN varð í startara vélar Flug-
félags Íslands sem fara átti frá Eg-
ilsstöðum til Reykjavíkur í gær-
morgun. Var önnur vél fengin í
hennar stað og urðu litlar tafir vegna
þessa. Mikill viðbúnaður var á Ak-
ureyrarflugvelli í gærmorgun vegna
bilunar í hreyfli vélar frá Flugfélag-
inu skömmu eftir flugtak. Vélin lenti
heilu og höldnu á vellinum skömmu
síðar.
Þá urðu farþegar á leið til Egils-
staða síðdegis í gær að fara með ann-
arri vél en upphaflega stóð til þar
sem viðvörunarljós vegna afísunar-
búnaðar kviknuðu. Að sögn Jóns
Karls Ólafssonar, framkvæmda-
stjóra Flugfélags Íslands, er alltaf
kannað hvort um raunverulega bilun
sé að ræða þegar viðvörunarljós
kvikna og því var strax ákveðið að fá
aðra vél til að flytja farþegana. /18
Bilanir í þremur
vélum Flugfélagsins
Erla Sólveig
Óskarsdóttir
Í TILLÖGUM sem Árni Johnsen
hefur kynnt fyrir sveitarstjórnar-
mönnum í Vesturbyggð og á Tálkna-
firði vegna átaks í ferðaþjónustu og
atvinnumálum segir m.a. að mikil-
vægt sé fyrir Suðurfirðina að hliðið
inn á Vestfirði sé um Gilsfjörð, en
ekki eingöngu um Steingrímsfjarð-
arheiði og Djúpið.
Segir hann Suðurfirðina vannýtt
„gullabú“ fyrir ferðamenn en í fram-
tíðinni megi gera ráð fyrir því að
ferðamenn dvelji þar í 3–7 daga og
hafi meira en nóg fyrir stafni, sé öllu
til tjaldað. Árni leggur einnig til að
byggt verði Hrafnaflókahús í Flóka-
lundi.
Búið er að kynna tillögur Árna
fyrir sveitarstjórnum Vesturbyggð-
ar og Tálknafjarðar. Verða tillögurn-
ar hafðar til hliðsjónar við uppbygg-
ingu í ferðaþjónustu- og atvinnu-
málum á svæðinu. Tillögurnar eru í
57 liðum./22
Gilsfjörður verði
hlið að Vestfjörðum