Morgunblaðið - 27.10.2004, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLENSKU friðargæsluliðarnir
þrír sem særðust í sjálfsmorðs-
sprengjuárás í Kabúl á laugardag
fara frá Afghanistan í fyrramálið
og eru væntanlegir til Osló síðdeg-
is. Þeir eru væntanlegir til landsins
síðdegis á föstudag, að sögn Arnórs
Sigurjónssonar, skrifstofustjóra ís-
lensku friðargæslunnar.
Mennirnir þrír, þeir Stefán
Gunnarsson, Steinar Arnar Magn-
ússon og Sverrir Haukur Grönli
fljúga með vél á vegum Norður-
landanna en löndin halda uppi
reglulegu flugi til og frá Kabúl.
Þegar rætt var við Arnór í gær
sagði hann að enn stæði til að Stef-
án, sem slasaðist mest þremenning-
anna, yrði fluttur af þýsku her-
sjúkrahúsi og á flugvöllinn þar sem
íslenska friðargæslan hefur bæki-
stöðvar.
Íslensku friðargæsluliðarnir Stefán Gunnarsson, Sverrir Haukur Grönli og
Steinar Arnar Magnússon báru sig vel á þýska hersjúkrahúsinu.
Halda heim til Ís-
lands í fyrramálið
VERIÐ er að klæða Kringluna í
jólaskrúðann þessa dagana en þó
verður ekki kveikt á jólaljósunum
fyrr en 1. nóvember líkt og gert
var í fyrra. Unnið er að því að
setja frostrósirnar, sem prýtt hafa
bílastæði Kringlunnar undanfarin
jól, upp og einnig töluvert af
skrauti og ljósum innan dyra. Enn
verður bið á því að ljósin á jóla-
trénu verði tendruð en það verður
líkt og undanfarin ár gert 1. des-
ember. Upp úr því má svo eiga
von á því að jólalögin fari að óma
um ganga Kringlunnar.
Að sögn Arnar Kjartanssonar,
framkvæmdastjóra Kringlunnar,
verður eitthvað um nýjungar í
jólaskrautinu fyrir þessi jólin en
„annars erum við í góðum málum
hvað jólaskraut varðar,“ segir
Örn. Jóladagskrá Kringlunnar er í
smíðum en líkt og undanfarin ár
verður boðið upp á tónlistar-
dagskrá á aðventunni. Þá verður
þess ekki langt að bíða að jóla-
sveinarnir fari að sjást á göng-
unum.
Verslanir Kringlunnar eru sum-
ar þegar búnar að taka fram jóla-
skrautið og að sögn Arnar má bú-
ast við því að ljósin fái að loga, úti
sem og inni, fram yfir þrett-
ándann.
Morgunblaðið/Þorkell
Komin í jólabúning
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt rúmlega fimmtugan karl-
mann í 30 daga skilorðbundið fang-
elsi fyrir að slá lögreglumann í
andlitið með krepptum hnefa með
þeim afleiðingum að hann marðist í
andliti, vör sprakk og tönn losnaði.
Tönnina varð síðar að fjarlægja.
Höggið veitti maðurinn þegar hann
streittist á móti tveimur lög-
reglumönnum sem hugðust hand-
taka hann en þeir höfðu verið kall-
aðir út vegna heimilisófriðar. Að
sögn lögreglumannanna var mað-
urinn hvorki til viðræðu né í húsum
hæfur og var hann mjög illvígur.
Þurfti að kalla á aðstoð til þess að
koma honum í járn.
Sveinn Sigurkarlsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Sigríður
Jósefsdóttir saksóknari fór með
málið af hálfu ríkissaksóknara og
Lárentstínus Kristjánsson hrl. var
til varnar.
Hvorki til
viðræðu né í
húsum hæfur
KARLALANDSLIÐIÐ í skák
gerði jafntefli við Argentínu 2–2 í
umferð gærdagsins á Ólympíu-
skákmótinu sem haldið er á
Mallorka, en kvennalandsliðið
tapaði fyrir Íran með 2,5 vinn-
ingum gegn 0,5. Þrjár umferðir
eru eftir af mótinu sem lýkur á
föstudaginn kemur.
Karlalandsliðið hefur ekki tap-
að í síðustu fimm umferðum á
mótinu þó teflt hafi verið við
stigahærri lið í síðustu fjórum
umferðum.
Hannes Hlífar vann öruggan
sigur á stórmeistaranum Ruben
Felgaer í gær. Hannes hefur náð
mjög góðum árangri í síðustu við-
ureignum, 4 vinningum af 5
mögulegum, aðeins ofurstórmeist-
ararnir Adams og Sokolov hafa
náð að gera við hann jafntefli.
Þröstur Þórhallsson og Bragi
Þorfinnsson sóttu fast að sínum
andstæðingum, sérstaklega Bragi.
Aðeins Lenka Ptácníková náði
jafntefli hjá kvennasveitinni en
þær Guðlaug Þorsteinsdóttir og
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir töp-
uðu báðar sínum viðureignum.
Jafntefli hjá körl-
unum og tap hjá
konunum
MAÐUR sem reyndi að stinga óein-
kennisklædda lögreglumenn af, eftir
að þeir höfðu haft afskipti af honum
við Mjóddina í september í fyrra,
sagðist fyrir dómi hafa haldið að lög-
reglumaðurinn væri handrukkari og
kvaðst hafa fengið hótanir frá slíkum
mönnum skömmu áður. Lögreglu-
maðurinn hafi verið „krimmalegur“
og ekki gefið til kynna að hann væri
lögreglumaður þegar hann hafi
öskrað á sig og síðan hangið í hurð-
inni eftir að hann ók af stað.
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi
framburð mannsins ótrúverðugan og
dæmdi hann í fjögurra mánaða fang-
elsi, skilorðsbundið til þriggja ára
fyrir brot gegn lögreglulögum, fyrir
að hafa haft um 90 grömm af hassi og
óleyfilegt höggvopn í fórum sínum.
Jafnframt var gerð upptæk tölvuvog
sem maðurinn notaði til ólöglegrar
meðferðar fíkniefna. Mestallt hassið
fannst á heimili hans en um fjórum
grömmum henti hann út um bíl-
glugga áður en lögregla náði honum.
Í framburði þriggja lögreglu-
manna sem voru á vettvangi kom
fram að þeir hefðu allir verið með
skilríki um hálsinn og honum hefði
verið gerð rækilega grein fyrir því að
þar væru lögreglumenn á ferð.
Maðurinn er 21 árs gamall. Áður
en hann varð 18 ára hlaut hann m.a.
þrjár sektir fyrir brot gegn ávana-
og fíkniefnalögum auk 30 daga skil-
orðsbundins fangelsisdóms. Eftir að
hann náði 18 ára aldri hefur hann
verið sektaður fyrir fíkniefnabrot og
dæmdur í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir líkamsárás.
Dómurinn hegningarauki
Með brotunum sem dæmt var fyr-
ir nú rauf hann skilorð og var dóm-
urinn nú hegningarauki við þann
dóm. Ingveldur Einarsdóttir kvað
upp dóminn. Sigurður Gísli Gíslason,
fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík,
flutti málið f.h. ákæruvaldsins og
Hilmar Ingimundarson hrl. var til
varnar.
Sagði lög-
reglumanninn
krimmalegan
RAUNLAUN félaga í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur í fjármála-
fyrirtækjum og öðrum fyrirtækjum í
sérhæfðri þjónustu hækkuðu um
120% á fimmtán ára tímabili á milli
áranna 1988 og 2003 og hafa hækkað
langmest sé litið til atvinnugreina.
Launahækkun VR félaga að meðal-
tali á sama tímabili var 60%.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
um launaþróun innan VR, sem sagt
er frá á heimasíðu félagsins.
Undir sérhæfða þjónustu falla t.d.
lögfræðiþjónusta, bókhaldsþjónusta,
verkfræði- og arkitektaþjónusta,
auglýsingastarfsemi og ýmiskonar
ráðgjafarþjónusta. Tæplega fjórði
hver félagsmaður VR starfar í þess-
um greinum, samkvæmt síðustu
launakönnun VR.
Þá segir að í skýrslu Hagfræði-
stofnunar komi fram að þeir fé-
lagsmenn sem unnu í þessari at-
vinnugrein höfðu lægstu meðal-
tekjurnar árið 1988. Þeir hafi unnið
sig upp hægt og bítandi á tímabilinu
og frá aldamótum haft mun hærri
tekjur en aðrir félagsmenn VR.
Skýrsluhöfundar segi meginástæð-
una vera breytingu á samsetningu
þessa hóps. Félagsmönnum VR hjá
fyrirtækjum sem alla jafna greiði há
laun hafi fjölgað hlutfallslega á þess-
um árum, svo sem fyrirtækjum í
hugbúnaðargerð, þjónustufyrirtækj-
um á sviði tölvu- og gagnavinnslu og
bókhaldsþjónustu og endurskoðun.
120% hækkun raun-
launa á 15 árum