Morgunblaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 33
DAGBÓK
fjölskylduvænn?
Er þinn
vinnustaður
Á vinnusta›urinn flinn, næsti yfirma›ur e›a samstarfsfólk
skilið að fá vi›urkenningu fyrir a› stu›la a› samræmingu
vinnu og einkalífs í or›i og verki?
Vettvangur fróðleiks um sveigjanleika á vinnustöðum og samræmingu vinnu og einkalífs
www.hgj.is
Hollvinir hins gullna jafnvægis hafa í hyggju a› veita ö›ru sinni vi›urkenn-
ingu fyrir framlag sem stu›lar a› samræmingu vinnu og einkalífs í or›i og
verki. Vi›urkenningin „Ló› á vogarskálina“ ver›ur afhent á rá›stefnunni
„Heima og heiman: Samræming vinnu og einkalífs í fjölmenningarsamfélagi“
sem haldin ver›ur á Nordica hótel 17. nóvember nk. kl. 13.00-16.00.
Ef flér finnst vinnusta›urinn flinn fjölskylduvænn, a› flar ríki gó›ur skilningur
á flörfum og a›stæ›um starfsmanna í einkalífinu, a› leita› hafi veri› lei›a til a› gera starfsfólki
kleift a› samræma vinnu og einkalíf t.d. me› auknum sveigjanleika í störfum starfsmanna
– sendu okkur flá rökstudda ábendingu.
Teki› er á móti ábendingum á vefsvæ›inu www.hgj.is. Frestur til fless a› senda inn
ábendingu rennur út 5. nóvember nk.
Hollvinir hins gullna jafnvægis
Hollvinir hins gullna jafnvægis eru: Alþýðusamband Íslands • Efling stéttarfélag • Félagsmálaráðuneytið • Hugsmiðjan • IMG Gallup •
Íslandsbanki hf. • Jafnréttisráð • Jafnréttisstofa • Landsbanki Íslands hf. • Landsvirkjun • Orkuveita Reykjavíkur • Reykjavíkurborg •
Samtök atvinnulífsins • Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar • Verzlunarmannafélag Reykjavíkur • Vinnueftirlitið • Vinnumálastofnun
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
13
7
5
0
Guðmundur Rafn Geirdal
sjúkranuddari
Guðmundur Rafn Geirdal
sjúkranuddari hefur hafið störf hjá
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur.
• Nudd við vöðvabólgu
• Slökunarnudd
• Heilsuráðgjöf
Tímapantanir í síma
562 1916
Seljavegi 2, 101 Reykjavík
(Héðinshúsinu), s. 562 1916
Enn eitt bréfið
ÞESSARI ríkisstjórn mun ekki tak-
ast að stjórna landinu. Af hverju? Af
því að það eru ekki sögulegar for-
sendur til að þessir flokkar geti gert
sáttmála um grundvallaratriði í
tekjuskiptingu landsmanna. Og hver
eru þessi grundvallaratriði? Þau eru
einföld. Að taka af óskiptum afla. Að
gera sáttmála um að frumþörfum
verði fullnægt. Og hvað eru frum-
þarfir?
Frumþarfir eru þau lífskjör sem
veita manninum rétt til öruggrar
ókeypis læknishjálpar. Frumþarfir
eru að hafa tryggt öldruðum hús-
næði og aðbúnað með félagslegri að-
stöðu. Og grunnþarfir eru að biðlist-
ar hverfi! Biðlistarnir eru eins og lík
á taflborði!
Þetta á að taka af óskiptum afla.
Og þetta er að sjálfsögðu ekki annað
en beinagrind. Núverandi stjórn-
arflokkar gátu ekki lagað neitt til
eða gert neitt í stjórnarsamvinnu.
Hins vegar gætu Sjálfstæðisflokk-
urinn og Samfylkingin gert sáttmála
í þá veru sem hér er lýst.
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylk-
ingin fara annaðhvort út í pólitík eða
verða lokapunkturinn í langri harm-
sögu.
Það ætti hvað sem öðru líður að
fella þessa stjórn sem fyrst og
stokka spilin.
Hrafn Sæmundsson,
fyrrv. atvinnumálafulltrúi.
Sjal tapaðist
SVART heklað sjal tapaðist senni-
lega á bílastæðunum við Hafnar-
bakkann í Reykjavík eða á Geirs-
götu. Finnandi vinsamlega hringið í
síma 699-5345.
Gleraugu fundust
GLERAUGNAHÚS með gler-
augum í fannst í Álftamýri föstu-
dagskvöldið 22. október. Upplýs-
ingar í síma 553-0363.
Kettlingar fást gefins
6 KETTLINGAR, 11 vikna, fást gef-
ins. Uppl. í síma 691-9231, 565-4210.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Meðferð sára verður meginviðfangsefnimálþings, sem haldið verður á HótelSögu á morgun kl. 14. Þar munulæknar og vísindamenn sem hafa
stundað rannsóknir á sárum og meðferð þeirra og
tekið virkan þátt í skipulagi á sárameðferð í
heimalöndum sínum, flytja fyrirlestra um þetta
heilbrigðisvandamál. Samhliða málþinginu verða
stofnuð samtök um sárameðferð á Íslandi. Að
sögn Baldurs Tuma Baldurssonar, læknis og ráð-
gjafa hjá Össuri í sáraumbúðum, eru illmeðhöndl-
anleg sár stórt vandamál á Vesturlöndum. Baldur
segir sjúklingahópinn gjarnan þöglan og fé-
lagslegar og fjárhagslegar afleiðingar sjúkdóms-
ins auk þeirra þjáninga sem hann veldur séu
geysilegar. Því vilji Samtök um sárameðferð
koma að öllum hliðum þessa vandamáls til hags-
bóta fyrir sjúklingana og þar með samfélagið.
„Orsakir illmeðhöndlanlegra sára eru fjölþætt-
ar, en hluta skýringarinnar er að leita í hærra
hlutfalli eldra fólks í samfélaginu,“ segir Baldur.
„Einn vandinn sem við blasir í sárameðferð á Ís-
landi er að hinar margbreytilegu orsakir sára
valda því að meðferð þeirra getur fallið undir ólík-
ar greinar heilbrigðisþjónustunnar. Ljóst er að
flestir sem koma að greiningu og meðferð sára
búa yfir mikilvægri þekkingu. Samt er meðvit-
undin um hvar þekkinguna er að finna fyrir hinn
einstaka sjúkling hvorki almenn í heilbrigðiskerf-
inu né í þjóðfélaginu. Þekkingin nýtist honum því
ekki og í versta falli stranda sjúklingar með erfið
sár innan heilbrigðiskerfisins eða utan þess án
þess að fá þá meðferð sem myndi græða sárið.
Við erum hér að tala um sár sem eru í mánuði
eða jafnvel ár. Að hafa sár sem ekki grær er illt.
Þegar verkirnir bætast við og jafnvel leki úr
sárinu og slæm lykt er ástandið hræðilegt. Það er
ekki að furða að sjúklingahópurinn sé þögull og
oft einangrar þetta fólk sig.“
Hvað vinnst með stofnun þessara samtaka?
„Fjölmargir hópar sérfróðra starfsmanna koma
að meðferð sára og þetta fólk er vel heima í sínu
starfi. Hinsvegar er meðvitund um orsakir, afleið-
ingar og meðferð sára ekki almenn í þjóðfélaginu.
Jafnvel innan heilbrigðiskerfisins er útbreidd
vankunnátta um réttar boðleiðir fyrir sárasjúk-
linga. Lausnin á þessu er ekkert leyndarmál,
meiri fræðsla á öllum stigum heilbrigðiskerfisins,
allt frá almenningi til sérfræðinga. Stofnun þver-
faglegra samtaka um sárameðferð er líklega al-
gjört skilyrði fyrir að hefja slíka þróun. Þau munu
stuðla að fræðslu um greiningu og meðferð sára,
hvetja til rannsókna á sárum og vekja athygli á
þeim sem rannsóknarefni bæði gagnvart fjárveit-
ingaaðilum og áhugasömum fræðimönnum, stuðla
að samhæfingu í meðferð sára með stofnun ráð-
gjafanefnda og stuðla að uppbyggingu þverfag-
legrar stöðvar þar sem sár yrðu metin og væri
strax ýtt á rétta braut.“
Heilbrigðismál | Samtök um sárameðferð stofnuð á málþingi um sár
Sameina þekkingu og krafta
Baldur Tumi Bald-
ursson er fæddur í
Kópavogi árið 1959.
Hann útskrifaðist frá
læknadeild HÍ árið 1985
og varð sérfræðingur í
húð og kynsjúkdómum
1994. Þá varði hann
doktorsritgerð um
krabbamein í langvar-
andi sárum við Karol-
inska Institutet í maí
2000. Baldur starfar við húðsjúkdómadeild
LSH, er fræðilegur ráðgjafi hjá Össuri hf. í þró-
un fyrirtækisins á sáraumbúðum og rekur
læknastofu í Orkuhúsinu.
Eiginkona Baldurs er dr. Sólveig Bóasdóttir
siðfræðingur og eiga þau tvö börn.
hyglisvert að ein frægasta skák Ung-
verjans snjalla var gegn þessum sama
andstæðingi í sama afbrigði spænska
leiksins. Þá kom hann með nýjung sem
breytti öllu mati á afbrigðinu. Í stað
þess að fara í sömu smiðju þá breytti
hann snemma útaf og lenti í kjölfarið í
vandræðum.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6
5. c3 f5 6. exf5 Bxf5 7. d4 e4 8. Rg5 d5 9.
f3 h6 10. fxe4 hxg5 11. exf5 Bd6 12. Df3
g4 13. Dxg4 Rf6 14. Df3 Re4 15. Kd1
Dh4 16. Be3 O-O-O 17. Bxc6
bxc6 18. Rd2 Rg3 19. Bf2 Dg5
20. Bxg3 Bxg3 21. h4 Hxh4 22.
Hxh4 Dxh4 23. Kc2 He8 24. Hf1
Bd6 25. Dd3 Dg4 26. Dxa6+
Kd7 27. Hf2 He1 28. Rf3 De4+
29. Kb3 He3 30. Rd2 Dxd4 31.
He2
Staðan kom upp í opnum
flokki á Ólympíuskákmótinu
sem stendur nú yfir í Calviu á
Mallorca. Belgíski stórmeist-
arinn Luc Winants (2519) hafði
svart gegn Zoltan Almasi
(2650). 31... Dg4! og hvítur gafst
upp þar sem hann tapar ann-
aðhvort hrók eftir 32. Rf3 Dc4+
33. Dxc4 dxc4+ eða verður mát
eftir 32. Hxe3 Dd1#. Það er at- Svartur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
ÚTGÁFUTÓNLEIKUM þeirra
Bryndísar Höllu Gylfadóttur selló-
leikara og Eddu Erlendsdóttur
píanóleikara sem vera áttu í TÍBRÁ,
tónleikaröð Kópavogs í kvöld, hefur
vegna forfalla verið frestað til vors,
nánar tiltekið til sunnudagskvölds-
ins 10. apríl kl. 20. Þeir sem þegar
hafa fest kaup á miðum á tónleikana
eru beðnir um að hafa samband við
Salinn.
Tónleikum
frestaðLÍTIL ljós á jörðhafa gefið út ljóða-
bókina Í samræð-
um við þig eftir
Rúnu K. Tetzschn-
er. Ljóð Rúnu
fjalla flest m sam-
skipti kynjanna:
valdabaráttu, ást
og vináttu, sprott-
in úr samræðum skáldsins við sam-
ferðamenn. Bókin er gefin út í 125
eintökum og handskreytir Rúna hvert
einasta eintak eftir prentun.
Ljóð
SKÁLDSAGAN
Maríumessa eftir
Ragnar Arnalds er
komin út í útgáfu
forlagsins krabb-
inn.is. Sagan er
byggð á sögu-
legum heimildum
og gerist í byrjun
sautjándu aldar.
Heimasæta í Skagafirði, Þórdís í Sól-
heimum, verður fyrir dularfullri lífs-
reynslu sem dregur dilk á eftir sér og
flækir örlög hennar við fjölda fólks.
Skáldsaga
BÓKAFORLAGIÐ
Bjartur hefur gefið
út spennusöguna
Englar og djöflar
eftir Dan Brown í
íslenskri þýðingu
Karls Emils Gunn-
arssonar.
Líkt og í Da
Vinci-lyklinum, eft-
ir sama höfund, er Robert Langdon
aðalpersónan í Englum og djöflum.
Hann er boðaður með skömmum fyr-
irvara til Sviss að rannsaka vettvang
óhugnanlegs morðs á þekktum vís-
indamanni. Fyrr en varir er hann flækt-
ur inn í aldalangar erjur kaþólsku kirkj-
unnar og leynifélagsins Illuminati
sem hefur í hyggju að valda usla í
páfagarði.
Þess má geta að bræðraforlag
Bjarts, Hr. Ferdinand, er um þessar
mundir að gefa Engla og djöfla út í
Danmörku.
Skáldsaga