Sunnudagsblaðið - 16.03.1958, Page 15
SUNNUD AG SBL AÐIÐ
155
— Hann hefur þá með öðrum
orðum elskað áður.
— Já, og hundurinn hefur verið
tryggari en húsbóndi hans. Það
sem mest ríður á, er að koma vof-
unni í skilning um, að hundurinn
sé hér sífelldlega í nærveru henn-
ar. Ef sá framliðni getur séð hund
inn og munað eftir honum, vakn-
ar ef til vill kærleikur í þeli hans.
— Eigið þér sjálfar hund? spurði
ég Peggy.
— Já, og hann hefur oft verið
hér í stofunni, en hann virðist al-
veg eirðariaus, þegar hann er hér
inni. Stundum hefur hann staðið
þarna úti í horninu og dillað róf-
unni, eins og hann væri að biðja
einhvern að koma í gönguferð
með sig.
— Hundar hafa undraverða
skynjun, svaraði ég. — Ef til vill
getur hundurinn yðar hjálpað yð-
ur í þessu vandamáli.
— Það væri vissulega reynandi,
svaraði Peggy. — Ég hef aldrei
hugsað út í það áður, en nú hafið
þér örfað sjálfsöryggi mitt. í kvöld
þcgar allir eru gengnir til náða,
ætla ég hingað inn í stofuna með
hundinn; það verður að vera ró og
næði, svo við verðum ekki fyrir
truflun.
— Ef til vill gæti þetta borið
árangur, sagði ég.
— ístað þess að biðja fyrir þeim
íramiðna, eins og ég hef hingað
til gert — ætla ég að reyna að
vekja athygli hans á hundinum
hans. Ég ætla að tala um hann, og
segja honum að hann sé hér ekki
cins einmana og hann haldi.
Nokkrum dögum síðar hringdi
Peggy til mín.
— Afturgangan er hér alltaf
hyrr hjá okkur, sagði hún. — En
kistan er horfin. Hún hvarf strax.
°g nú er orðið hlýtt og notalegt
1 stofunni. Þetta hefur með öðrum
orðum borið árangur. En ég held
að vofan, — í sað þess að sitja
alltaf í stofuhorninu, — hafi fært
sig út í garðinn og sé þar á ferli
umhverfis húsið.
— Hafa fleiri séð fyrirburðinn?
spurði ég.
— Já, börnin hafa oft séð hann.
En sem betur fer eru þau alveg
óhrædd. Frá því að þér komuð
hingað hef ég leitt þetta í tal á
heimilinu, og bæði börnin segjast
allan tíman hafa vitað að eitthvað
undarlegt væri á seyði í dagstof-
unni. Börnin höfðu einnig séð
kistuna, en höfðu ekki minnzt á
það við mig einu orði, vegna þess
að þau vildu ekki gera mig ótta-
slegna. Ég man vel, að þegar ég
sjálf var barn, þorði ég aldrei að
tala við fullorðna fólkið um það,
sem fyrir mig bar — og nú veit
ég, að börnin mín hafa ekki held-
ur þorað það. Ég veit, að þetta er
kannski heimskulegt; ég hefði átt
að geta sagt mér það sjálf, að börn
in hefðu einhvers orðið vör.
— En leiðis yður ekki að aftur-
gangan skuli enn vera bundin
húsinu? spurði ég, til þess að segja
eitthvað.
— Nei, það gerir raunar ekkert
til, svaraði Peggy. — Ég held að
þeim framliðna líði nú betur. —
Hann virðist nú hamingjusamur,
en það var hann ekki áður. Hann
þarf áreiðanlega að vera þess var,
að hann sé umkringdur góðu
fólki, sem vill honum vel. Hann
hverfur áreiðanlega einhverntíma
En þangað til er honum velkomið
að vera hjá okkur. Það eina sem
er leiðinlegt við þetta, er að ókunn
ugir eru svo furðulostnir yfir
þessu, sagði Peggy. — Fólk, sem
trúir því ekki að afturgöngur séu
til. Það verður svo undrunarfult
á svipinn, þegar það sér hundinn
minn hlaupa umhverfis og leika
sér við ósýnilegan hund.
(í næstu grein segir Joan Grant
frá því, er hún lifði fyrir 5000
árum.)
Vifð þér ...»
að amerískir skipaeigendur eru
íarnir að selja farmiða með af-
borgunarskilmálum; álíta, að
með því móti geti þeir aukið
mjög. farþegatöluna og keppt
við flugfélögin.
að árið sem leið fluttu 2635 norsk
ir ríkisborgaa úr landi; þar af
1943 til Ameríku.
að í Bandaríkjunum hafa verið
settar á laggirnar hundatrvgg-
ingar; tryggðir hundar, sem
lifa húsbændur sína geta áfram
lifað áhyggjulausu lífi, og „séð
fvrir sér sjálfir“, og auk þess
greitt hundaskattinn af trygg-
ingafénu.
að Ameríkumenn eyða árlega 282
milljónum dollara í tyggigúmí.
að í Suður-Rhodesiu er sú kynlega
áfengislöggjöf, að einungis há-
skólaborgtrar, eða menn, sem
lokið hafa háskólaprófi, er
leyfilegt að kaupa áfengi.
að vísindamenn í Sovétríkjunum
staðhæfa, að þeir hafi fundið
upp Ijósmyndavél, sem geti
tekið 32 milljónir mynda á 1
sekúndu.
að í Oslo eru 2350 lyftur í notkun
í húsum borgarinnar.
að spil voru handmáluð lengi
fram eftir, og eru aðeins 125
ár frá því farið var að prenta
þau.
að esperanto er skyldunámsgrein
við alla mennta- og háskóla á
Spáni.
að í Hvíta húsinu í Washing'ton
er mjög vandaður sprengju-
heldur salur; það var Roose-
velt forseti, sem lét byggja
hann 1942 og kostaði hann 880
þúsund dóllara.
að í Indlandi eru rúmlega 400
milljónir manna, og á hverju
ári fæðast þar um 1.2 milljónir
barna.