Morgunblaðið - 27.10.2004, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Minningartónleikar um Guð-rúnu Á. Símonar, söng-stjörnuna okkar góðu,
verða haldnir í Duus-húsi í Reykja-
nesbæ annað kvöld kl. 20. Það er
fyrrverandi nemandi Guðrúnar,
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir sópr-
ansöngkona, sem stendur fyrir tón-
leikunum og kemur fram á þeim
ásamt Láru S. Rafnsdóttur á píanó,
Þóri Baldurssyni á píanó og Jóni
Rafnssyni á
bassa.
Kristín var
fyrsti nemandi
Guðrúnar er
hún hóf söng-
kennaraferil sinn í Tónlistarskóla
Keflavíkur árið 1967. Kristín fylgdi
Guðrúnu síðan til Reykjavíkur þar
sem hún hóf nám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík árið 1973. Kristín
og Guðrún voru miklar vinkonur
allar götur síðan, allt þar til Guðrún
lést árið 1988, en hún hefði orðið
áttræð í ár.
Kristín fékk nótnasafn Guðrúnartil varðveislu eftir hennar dag
og mun hún á tónleikunum syngja
þó nokkur af þeim lögum sem Guð-
rún var þekkt fyrir að syngja á sín-
um tíma, allt frá alþjóðlegri sveiflu
á borð við I got rythm til klassískra
íslenskra sönglaga eins og Fuglinn
í fjörunni.
„Þetta verður fyrst og fremst á
léttum nótum,“ sagði Kristín þegar
við ræddum saman um tónleikana í
gær. „Í nótnasafninu hennar sem
ég fékk eru lög sem hún hafði sung-
ið á seinni hluta síns söngferils. Þá
var hún meira í hlutverki skemmti-
krafts en klassísks söngvara. Það
voru lög sem voru geysivinsæl á
sínum tíma og margir þekkja vel
ennþá.“ Hún segist telja að tónleik-
arnir ættu að vera skemmtun fyrir
alla, enda hafi Guðrún einmitt verið
þannig karakter. „Til dæmis má
nefna að þegar hún hélt upp á
fjörutíu ára söngafmæli sitt troð-
fyllti hún Háskólabíó. Þá var efnis-
skráin einmitt á þessum léttu nót-
um.“
Persónulega þekkir undirrituð
lítið til Guðrúnar Á. Símonar, enda
var hún á hátindi ferils síns áður en
ég fæddist. Fyrir mér eins og öðr-
um á mínum aldri hringir þetta
nafn þó mörgum bjöllum um dáða
íslenska söngstjörnu, og munu ef-
laust margir, yngri og eldri, hafa
mikinn áhuga á að heyra hennar
minnst í tónum.
Á kaffihúsinu Súfistanum í Máliog menningu við Laugaveg
verður síðan haldið spennusagna-
kvöld í kvöld kl. 20.30. Það er bóka-
forlagið Bjartur sem stendur fyrir
kvöldinu, þar sem lesið verður úr
tveimur nýútkomnum bókum þess,
Englum og djöflum eftir Dan
Brown og Danteklúbbnum eftir
Matthew Pearl. Einnig verður
fjallað sérstaklega um leynifélagið
Illuminati sem leikur stórt hlutverk
í Englum og djöflum.
Dan Brown er eins og kunnugt er
höfundur metsölubókarinnar Da
Vinci-lykilsins. Segja margir að
Englar og djöflar sé ekki síðri lesn-
ing – jafnvel meira spennandi ef
það er þá hægt!
Í minningu söngstjörnu
Kristín og Guðrún á góðri stundu í
Háskólabíói árið 1979.
AF LISTUM
Inga María
Leifsdóttir
ingamaria@mbl.is
’Lesið verður úr tveim-ur nýútkomnum bókum,
Englum og djöflum
eftir Dan Brown og
Danteklúbbnum eftir
Matthew Pearl.‘
ARNDÍS Halla Ásgeirsdóttir sópransöngkona syngur
um þessar mundir eitt frægasta sópranhlutverk óperu-
bókmenntanna, Næturdrottninguna úr Töfraflautunni
eftir W.A. Mozart, í hinu fornfræga tékkneska óperuhúsi
Státní opera Praha. Hefur hún þegar sungið eina sýn-
ingu, 13. október, sem gekk afar vel.
„Það var bæði ævintýralegt og skemmtilegt. Bæði
leikmyndin og búningarnir eru ofboðslega falleg, í hefð-
bundnum stíl,“ segir Arndís Halla, sem næst kemur
fram í hlutverki Næturdrottningarinnar, eða Královna
noci eins og hún kallast á tékknesku, 3. nóvember næst-
komandi. En hún hefur einnig verið í hlutverki fyrstu
dömu í óperunni í fyrsta sinn. „Þannig að ég syng þarna
tvö hlutverk í Töfraflautunni, þó auðvitað ekki á sömu
sýningu,“ segir hún og bætir við að það sé afar skemmti-
legt að fá að syngja í þessu fræga tónlistarhúsi.
Hlutverkið fékk Arndís Halla gegnum vinkonu sína,
mezzósópransöngkonu, sem var spurð í gamni hvort hún
þekkti ekki líka góða Næturdrottningu þegar hún söng
sjálf fyrir til þátttöku í uppfærslunni. „Þá var hringt í
mig og spurt hvort ég gæti ekki sungið fyrir, ég gerði
það og fékk hlutverkið,“ segir hún, en fastráðin söng-
kona við óperuhúsið, Dagmar Vaòkátová, syngur hlut-
verkið á móti Arndísi Höllu.
Sýningin heldur til Japan á næsta ári og mun Arndís
vera þar bæði í hlutverki Næturdrottningarinnar og
fyrstu dömu. Þangað til verður hún m.a. á ferðalagi um
Þýskaland og nágrenni í tengslum við stóra hestasýn-
ingu, þar sem listreið og menningu er blandað saman.
Ópera | Arndís Halla syngur Næturdrottninguna í Prag
Í hefðbundn-
um stíl í forn-
frægu húsi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Arndís Halla Ásgeirsdóttir sópransöngkona.
Rakarinn morðóði
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Lau. 30. okt. kl. 20 - fös. 12. nóv. kl. 20
sun. 14. nóv. kl. 20 - fös. 19. nóv. kl. 20
ATH. Fáar sýningar. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
Litla stúlkan með eldspýturnar
Lau. 30. okt. kl. 14 - sun. 31. okt. kl. 14 - lau. 6. nóv. kl. 14 - sun. 7. nóv. kl. 14
Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is
Þjóðleikhúsið sími 551 1200
• Stóra sviðið kl. 20:00
NORÐUR – Hrafnhildur Hagalín
Frumsýning fös. 29/10 uppselt, 2. sýn. sun. 31/10 örfá sæti laus, 3. sýn. mið 3/11
örfá sæti laus, 4. sýn. sun. 7/11 örfá sæti laus, 5. sýn. fim. 11/11 örfá sæti laus.
EDITH PIAF – Sigurður Pálsson
Lau. 30/10 uppselt, lau. 6/11 uppselt, lau. 13/11 uppselt, fös. 19/11 uppselt, fim. 25/11
uppselt, fös. 26/11 uppselt, lau. 4/12 uppselt,, lau. 11/12, mið. 29/12 örfá sæti laus
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner
sun. 31/10 örfá sæti laus, sun. 7/11 nokkur sæti laus, sun. 14/11
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur
Fös. 5/11 örfá sæti laus, fös. 12/11 örfá sæti laus, lau. 20/11 nokkur sæti laus.
• Smíðaverkstæðið kl. 20:00
SVÖRT MJÓLK – Vasílij Sígarjov
Lau. 30/10, sun. 7/11.
• Litla sviðið kl. 20:00
BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson
fös. 29/10 nokkur sæti laus, sun. 31/10 örfá sæti laus, fös. 5/11 nokkur sæti laus
BÖNDIN Á MILLI OKKAR
TVÆR SÝNINGAR UM HELGINA
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter,
Fös. 5/11 kl. 20 7. kortas. UPPSELT
Fös. 5/11 kl. 22 30 Aukasýning
Sun. 7/11 kl. 20 8. kortas. Örfá sæti laus
Síðustu sýningar á Akureyri
Ausa og Stólarnir
Fim 11/11 kl 20 Frums. UPPSELT
Fös 12/11 kl 20 2.kortas. Örfá sæti laus
Lau 13/11 kl 20 3.kortas. Örfá sæti laus
Mán 15/11 kl 20 UPPSELT
Þri 16/11 kl 20 UPPSELT
Mið 17/11 kl 20 UPPSELT
Fim 18/11 kl 20 UPPSELT
LEIKFELAG.IS
☎ 552 3000
eftir LEE HALL
Ég skora á alla að sjá þessa
stórkostlegu sýningu”
AK Útvarp Saga
Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
• Laugardag 30/10 kl 23 LAUS SÆTI
• Fimmtudag 4/11 kl 20 LAUS SÆTI
• Föstudag 12/11 kl 23 LAUS SÆTI
“ÞVÍLÍK SNILLD!
W. A. Mozart ::: La Clemenza di Tito, forleikur
W. A. Mozart ::: „Parto, parto“, aría úr La Clemenza di Tito
W. A. Mozart ::: Divertimento í F-dúr, KV 138
W. A. Mozart ::: „Ch’io mi scordi di te”, konsertaría
G. Rossini ::: Semiramide, forleikur
G. Rossini ::: „Una voce poco fa“, úr Rakaranum í Sevilla
Pablo Luna ::: Canción española úr El niño judío
Franz Liszt ::: Les préludes, tónaljóð
Hljómsveitarstjóri ::: Gerrit Schuil
Einsöngvari ::: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Töfrar óperunnar
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 28. OKTÓBER KL. 19.30
FÖSTUDAGINN 29. OKTÓBER KL. 19.30
Græn áskriftarröð #2
Íslendingar hafa eignast nýja söngstjörnu. Gagnrýnendur keppast við að
lofa Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur fyrir raddfegurð og sviðsframkomu.
Nýlega hlaut hún enn eina viðurkenninguna, nú í stórri samkeppni í
Róm. Senn mun hún syngja í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómveitinni.
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
CHICAGO
Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Lau 30/10 kl 20 , Fö 5/11 kl 20,
Su 14/11 kl 20, Fö 19/11 kl 20
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 30/10 kl 20, - Umræður í forsal með höfundi
í lok sýningar
Fö 5/11 kl 20,
Su 14/11 kl 20,
Fö 19/11 kl 20
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA
Börn tólf ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með fullorðnum.
Gildir á: Héri Hérason, Belgíska Kongó, Geitin, Screensaver
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin
og bestu búningarnir.
Fö 29/10 kl 20, - UPPSELT
Lau 6/11 kl 20,
Lau 13/11 kl 20,
Lau 20/11 kl 20,
Lau 27/11 kl 20
Síðustu sýningar
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fi 28/10 kl 20, - UPPSELT
Su 31/10 kl 20 - UPPSELT
Fi 4/11 kl 20, Su 7/11 kl 20, Fö 12/11 kl 20
Aðeins þessar sýningar
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 31/10 kl 14, Su 7/11 kl 14, Su 14/11 kl 14,
Su 21/11 kl 14, Su 28/11 kl 14
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
SCREENSAVER eftir Rami Be'er
2. sýning fi 28/10 kl 20 - Gul kort
3. sýning su 31/10 kl 20 - Rauð kort
4. sýning su 7/11 kl 20 - Græn kort
5. syning fö 12/11 20 - Blá kort
Su 21/11 kl 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Draumurinn
eftir William Shakespeare
9. sýn. í kvöld kl. 20
10. sýn. fim. 4. nóv. kl. 20
11. sýn. fös. 5. nóv. kl. 20
Sýnt í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13
552 1971 - leiklistardeild@lhi.is
F im. 28 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 06 .11 20 .00 UPPSELT
Sun . 07 .11 20 .00 UPPSELT
F im. 11 .11 20 .00 LAUS SÆTI
Lau . 13 .11 20 .00 LAUS SÆTI
„Hafð i ó t rú lega gaman að þessu .
F inns t o f tas t ekk i gaman í le ikhús i
e f það er ekk i g r ín le ik r i t en þet ta
var a lger br i l l i . "
- Auðunn Blönda l , s jónvarpsmaður -