Morgunblaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ROSABAUGUR var um sólu yfir Kötluöskj-
unni í Mýrdalsjökli í gær. Rosabaugar mynd-
ast vegna ljósbrots í ískristöllum í andrúms-
loftinu. Hér er horft yfir Kötluöskjuna til
suðvesturs úr 1.370 metra hæð yfir sjávar-
máli, rétt undir Austmannsbungu við norð-
austurbrún öskjunnar. Á myndinni mótar fyr-
ir sigkötlum í yfirborði jökulsins. Austmanns-
bunga er kennd við séra Jón Austmann á
Mýrum í Álftaveri sem lagði það á sig að
ganga á Kötlu, fyrstur manna svo sögur fari
af, til að skoða verksummerki Kötlugossins
1823. Séra Jón lýsti Kötlugosinu, sem var
fremur lítið en kom í kjölfar mikils goss í
Eyjafjallajökli.
Morgunblaðið/RAX
Rosabaugur yfir Kötluöskju
Í BIRTINGAHOLTI í Hrunamanna-
hreppi er verið að reisa tvö mjög
stór og fullkomin fjós, fyrir 120–
130 mjólkurkýr hvort. Þegar bæði
fjósin verða komin í fulla fram-
leiðslu má gera
ráð fyrir að í
Birtingaholti
verði fram-
leiddar 1,5 millj-
ónir lítra af
mjólk á ári.
Ragnar Magn-
ússon, bóndi í
Birtingaholti,
byggir annað
fjósið en frændi hans Sigurður
Ágústsson hitt, en þeir eru synir
bræðranna í Birtingaholti, Ágústs
og Magnúsar Sigurðssona.
Í fjósunum verða legubásar og öll
sú besta tækni sem þeir frændur
geta fundið. Meðal annars verða
tveir mjaltaþjónar í hvoru fjósi.
Frændurnir hafa á undanförnum
árum mikið rætt saman um fram-
tíðina í greininni en segja að viss
tilviljun ráði því samt að þeir séu að
byggja upp á sama tíma. Sigurður
segir að hugmyndirnar hafi farið
að mótast þegar þeir fóru saman á
landbúnaðarsýningu í Danmörku
fyrir rúmlega hálfu öðru ári. „Þar
hittum við stórhuga danska bændur
og hrifumst af þeim. Þetta er smit-
andi,“ segir Sigurður.
Fjósin sem frændurnir í Birt-
ingaholti eru að byggja eru svip-
aðar byggingar, fyrir 120 til 130
mjólkurkýr hvort. Límtré hf. á
Flúðum byggir húsin úr límtré og
klæðir þau með yleiningum./18
Byggja risa-
fjós í Birt-
ingaholti
TAFIR hafa orðið á afhendingu íbúða
í fyrsta áfanga húsaþyrpingarinnar,
sem er að rísa í 101 Skuggahverfi í
miðborg Reykjavíkur. Afhenda átti
fyrstu íbúðirnar í byrjun október.
Skv. upplýsingum Einars I. Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra 101
Skuggahverfis, verður farið að af-
henda íbúðir í lok þessa mánaðar.
„Segja má að þetta sé einum mán-
uði til sex vikum á eftir áætlun. Okkur
þykir það ákaflega leitt,“ segir hann.
Einar segir að gerðar verði ráðstaf-
anir til að draga eins og unnt er úr
óþægindum sem kaupendur verði
fyrir vegna tafanna. „Væntanlega
þurfum við að útvega einhverjum
íbúðir tímabundið. Þar er um að ræða
fólk sem gat reiknað með að flytja inn
í næsta mánuði og er búið að selja of-
an af sér með það fyrir augum að geta
flutt inn í nóvember. Við erum að
vinna að því með okkar kaupendum
að reyna að gera óþægindi þeirra sem
minnst,“ segir hann.
Húsin eru á mismunandi bygging-
arstigum. Að sögn Einars er gert ráð
fyrir að verktakinn afhendi fyrstu 20
íbúðirnar í lok október, aðrar 20 íbúð-
ir verði svo afhentar í næsta mánuði
og 39 íbúðir um mánaðamótin nóv-
ember/desember.
Spurður um skýringar á því að
dregist hefur að fullklára íbúðirnar
sagði Einar að ekki hefði tekist að
vinna verkið eins hratt og áætlanir
verktakans miðuðust við. „Það hafa
komið upp atriði sem hafa tafið, m.a.
hefur samkeppni um mannaflann sett
svolítið strik í reikninginn.“
Afhending íbúða í Skuggahverfi tefst
Útvega hús-
næði á meðan
Morgunblaðið/Júlíus
Hún segir að í þeim skólum í
Reykjavík sem hafa tekið upp vetr-
arfrí sé það alls staðar á sama tíma.
Hafa skipulagt ferðir
„Það hefur ekki enn verið tekin
afstaða til þess hvort skipulagt
vetrarfrí skólanna haldi sér eða
hvort kennt verði í fríinu ef samn-
ingar nást á næstu dögum,“ segir
Gerður.
Hún segir að í sumum tilfellum
hafi bæði starfsmenn skólanna og
EF LAUSN fyndist á kennaradeil-
unni í þessari viku er óljóst hvort
kennsla gæti hafist í næstu viku í
öllum grunnskólum landsins vegna
boðaðs vetrarfrís. Samkvæmt
skóladagatali skólanna, sem birt
var í mars sl., er gert ráð fyrir 3–5
daga vetrarfríi í næstu viku, þ.e.
dagana 1.–5. nóvember. Gerður G.
Óskarsdóttir, fræðslustjóri í
Reykjavík, segir að verið sé að
skoða málin varðandi vetrarfríið,
leysist verkfall á næstu dögum.
foreldrar skipulagt ferðalög í vetr-
arfríinu sem yrðu sett úr skorðum
ef kennsla hæfist í miðju fríi. „Á
hinn bóginn eru margir auðvitað
orðnir óþreyjufullir eftir kennslu.“
Næsti fundur í kjaradeilu kenn-
ara og sveitarfélaganna hefur verið
boðaður hjá ríkissáttasemjara á
morgun. Fundi deiluaðila með
sáttasemjara lauk um kl. 20 í gær-
kvöldi.
Vetrarfrí gæti sett
strik í reikninginn
Óljóst/10–11
Fundur í kennaradeilunni hjá ríkissáttasemjara á morgun
EIRÍKUR Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands, segir stöðuna
í kennaradeilunni í grófum dráttum
vera þá sömu og hún var sl. fimmtu-
dag þegar viðræðum var slitið.
Hann segir engar nýjar tillögur
hafa verið uppi á borðum á samn-
ingafundi deilenda með ríkis-
sáttasemjara í gær.
Eiríkur á ekki von á því að samn-
inganefnd kennara komi saman til
fundar í dag. Hann kveðst heldur ekki vita hvort kenn-
arar muni leggja eitthvað nýtt fram á fundi með sátta-
semjara á morgun. „Það liggur fyrir að bilið hefur ver-
ið of breitt og það verður að koma í ljós hvort það
brúast og þá hvenær.“
Staðan sú sama
og fyrir helgi
Eiríkur Jónsson
„ÞAÐ kom ekkert nýtt fram sem leitt
hefur til einhverrar lausnar,“ segir
Birgir Björn Sigurjónsson, formaður
samninganefndar sveitarfélaganna,
um fundina í gær. Hann segir launa-
nefndina telja sig vera komna á ystu
nöf, með því að fallast á tillögu sátta-
semjara sl. fimmtudag, „að minnsta
kosti hvað varðar tímabilið til 2007,
en lengra verður ekki gengið í kostn-
aðarhækkunum á þeim tíma“.
Hann segir samninganefnd sveit-
arfélaganna funda í dag og búa sig undir boðaðan fund
með kennurum hjá sáttasemjara. Hann kveðst ekki
geta lofað neinu um það hvort nýjar hugmyndir eða til-
laga verði þá lögð fram af hálfu sveitarfélaganna.
Lengra verður ekki
gengið í kostnaði
Birgir Björn
Sigurjónsson