Sunnudagsblaðið - 28.08.1960, Side 3

Sunnudagsblaðið - 28.08.1960, Side 3
FLESTIR kannast við þá á- ráttu að horfa á bílnúmer, þegar menn eru á gangi á göt- um úti. Menn gera sér það til gamans og hugarhægðar að víxla tölustöfunum, leggja þá saman, lesa þá afturábak og reyna að fá eitthvað skemmtilegt út úr þeim. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup sagði eitt sinn frá því, að hér í gamla daga, þegar bílnúmer- in voru ekki orðin eins svim- andi há og nú, þá hafi hvert bílnúmer iafnan minnt sig á sálm með sama númeri í sálmabókinni. Og til eru þeir ™enn, sem ekki mega sjá fjögurra stafa bílnúmer innan við 1960, að ekki opnist mann kynssagan eins og bók i huga þeim. Þessi árátta er engan veginn ný af nálinni. Tölur hafa löngum þótt búa vfir ein hverjum töfrum, — og hver er SVo iaus við hjátrú, að hann eigi sér ekki happatölu og ó- happatölu? Árið 1960 er merkilegt ár tölulega séð. Það er summan af kvaðrötunum tveimur 14- °g 42- — 0g bæði 14 og 42 eru deilanlegar með hinni dular- fjillu tölu 7. Talan 7 kemur víða við sogu. Við munum eftir hinum 7 furðuverkum veraldar og hinum 7-arma kertastjaka Gyðinganna. Það er ljóst, að himnarnir eru 7 og sá sjöundi er beztur. Þaðan kemur orð- takið að „vera f sjöunda himni“. Alltaf er talað um „höfin sjö“ og það var einnig gert í g-amla daga, þegar höf og lönd iarðar voru lítt könn- uð. Ef spegill fellur á gólfið og brotnar, táknar það 7 ára ó- hamingju samkvæmt þjóð- trúnni gömlu. Spegill var í gamla daga sjaldgæfur og mj°g dýrmætur gripur, þess vegna hlaut það að boða eitt- hvað uggvænlegt, ef hann brotnaði. Hin 7 ár eru áreið- anlega í sambandi við draum Faraós um 7 magrar og 7 feit- ar kýr. Jósef réði drauminn eins og kunnugt er á þann hátt, að hann táknaði 7 ára góðæri og 7 ára hallæri. Á 6 dögum skapaðí guð heiminn, en hvíldist sjöunda daginn. Eins og segir í 1. Mósebók: „Guð blessaði hinn sjöunda daginn 0g helgaði hann“. Þar með var hinn viku legi hvíldardagur upp fund- inn. 13 er yfirleitt álitin óhappa- tala. Menn hafa mjög brotið heilann um, hver-s vegna ein- mitt þessi tala hefur hlotið' alíta, að síðasta kvöldmáltíð Krists sé ástæðan. Eins og kunnugt er voru þar 13 til borðs — og einn þeirra var Júdas, svikarinn. Ótrú manna á þessari tölu er einkennilega mikil, jafnvel enn í dag. Fæst stórhótel erlendis þora að hafa herbergi á 13. hæð. Á Hótel Borg er herbergi númer 13 sleppt úr. Skömmu eftir, að sporvagnalínur Kaupmanna- hafnar voru teknar í notkun, var lína númer 13 lögð niður. Ástæðan var einfaldlega sú, að enginn bílstjóri fékkst til þess að aka þeim vagni. Sagt er að margir veigri sér við að hefja verk 13. dag mánaðar, og svo mætti lengi telja. sem benda til þess, að talan 13 geti líka verig happatala. Hún var til dæmis gegnum- gangandi í lífi þýzka tón- skáldsins Richard Wagner. Það eru 13 stafir í nafninu hans, hann er fæddur 1813 og summan af því ártali er 13. Hann lauk við hið mikla verk sitt „Tannháuser“ 13. apríl 1845 og það var flutt í fvrsta sinn 13. marz 1861. Hann lauk við „Parsifal“ 13. janúar 1882. „Lohengrin“ samdi hann 1848, en verkið var ekki flutt fyrr en 13 árum síðar. Wagn- er lézt 13. febrúar 1883, — fyrsti og síðasti stafurinn í ár- talinu myndar töluna 13. Og svo framvegis og svo framveg- is ... Pyþagoras eyddi miklum tíma í að velta fyrir sér „sál- rænum“ eiginleikum talna. Hann stofnaði í Kroton í ltr.1- iu leynifélagsskap, sem mct- aði margar dularfullar kenn- ingar um tölurnar og eigin- leika þeirra. — Það eru tölurnar, sem stjórna alheiminum, fullyrtu þeir. Ójafnar tölur voru karl- mannlegar (og þar með guö- dómlegar), jafnar tölur kven- legar (og jarðbundnar). 1 var talin uppspretta allra talna. 2 táknaði álit eða skoðun, 4 réttlæti. Tala hjónabandsins var 5, þ. e. a. s. summan af fyrstu kvenlegu tölunni cg fyrstu eiginlegu karlmann- legu tölunni, 2—j—3. Leyndar- dómur ástarinnar er fólginn í tölunni 8 þ.'e. a.s. 5 (hjóna- bandið)-j-3 (kraftur). „Fullkomin tala“ var nokk- uð, sem lærisveinar Pyþagór- asar lögðu ríka áherzlu á. Tala er fullkomin, ef summan af hinum tölunum, sem ganga upp í henni er jöfn tölunni sjálfri. Fyrsta fullkomna tal- an er 6 (1-j—2-j—3=6), næsta 28 (l+2+4-)-7-fl4=28) og syo framvegis. í Opinberunarbók Jóhann- esar, 13. kapítula, er sagt frá stóru dýri, sem stígur upp'af jörðinni með tvö horn og rödd eins og dreki. Það er falsspá- maður, sem afvegaleiðir menn ina og fær þá til þess að dýrka hjáguði. Og síðan segir: „Hver sem skilning hefur útreikni tölu dýrsins. Það er nefnilega tala manns. Og talan er 666 í( Ótal tilraunir hafa verið gerðar til þess að komast að þvi hvað þessi tala táknar. Kaþólskur guðfræðingur, Pet er Bungus að nafni, skrifaði 700 blaðsíðna bók til þess að færa sönnur á, að það væri í raun og veru Marteinn Lút- her, sem skýldi sér að baki hinna þriggja 6-talna. Þýzkur áhangandi Lúthers, Michael Stifel, andmælti cg sannaði, að talan höfðaði þvert á móti til Leo páfa' X. Ef nafn hans er ritað á lat- nesku er það svo: LEO DECI- MUS. E og S eru ekki róm- verskar tölur, svo að þeim er sleppt. Ef hinum bókstöfun- um er ruglað svolítið kemur út MDCLVI, sem er rómversk tala og táknar 1656. Það er 666+990. Einnig sagði Stifel að ieggja mætti númer páf- Framhald á 4. siðu. Tölur hafa löngum jbótt búa yfir einhverjum töfrum og hver er svo laus við hjátrú að hann eigi sér ekki happatölu ? Sunnudagsblaðið 3

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.