Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR
4 B MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HERMANN Hreiðarsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, og félagar
hans í Charlton unnu sinn stærsta
sigur á tímabilinu þegar þeir skelltu
nýliðum Norwich, 4:0, á the Walley.
Finninn Jonatan Johansson skoraði
tvö markanna og þeir Paul Konch-
esky og Jason Euell gerðu sitt mark-
ið hvor. Hermann lék allan leikinn og
stóð að vanda fyrir sínu.
,,VIÐ urðum hreinlega að ná öllum
stigunum enda bíða okkar erfiðir leik-
ir á móti Manchester United og
Chelsea. Ég vona að þessi sigur virki
sem vítamínsprauta á mannskapinn.
Það hefur ekki gengið sem skyldi hjá
okkur en ég veit að það býr meira í
liðinu en það hefur sýnt. Þessi sigur
var því skref í rétta átt en það er enn
nokkuð í land hjá liðinu,“ sagði Alan
Curbishley, stjóri Charlton.
PAUL Dickov, fyrrum leikmaður
Manchester City, tryggði Blackburn
jafntefli gegn City þegar hann jafnaði
metin úr vítaspyrnu 12 mínútum fyrir
leikslok. Leikmenn Blackburn ætl-
uðu vart að trúa sínum eigin augum
þegar dómarinn dæmdi vítaspyrnu
enda í fyrsta sinn í 52 leikjum sem
Blackburn fær vítaspyrnu.
DANNY Mills braut þá á Steven
Reid og fékk að launum rauða spjald-
ið og Skotanum Dickov urðu ekki á
nein mistök í vítaspyrnunni.
SHAUN-Wright Phillips hinn smái
en knái leikmaður Manchester City
segist ekkert vera á förum frá City en
hann hefur verið orðaður við nokkur
lið, þar á meðal Arsenal. ,,Ég hef ekk-
ert hugsað mér að yfirgefa Manchest-
er City. Ég er ánægður hjá liðinu og
vil leika með því áfram,“ sagði hinn 22
ára gamli Wright.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, hefur
fengið þau skilaboð frá stjórn félags-
ins að hann verði að selja leikmenn
ætli hann sér að kaupa nýja menn til
félagsins á næsta tímabili. Ferguson
eyddi öllum peningunum sem hann
átt að hafa til afnota í sumar þegar
hann fjárfesti í Wayne Rooney fyrir
23 milljónir punda í haust.
STEVEN Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, leikur í kvöld sinn fyrsta leik í
tæpa tvo mánuði eða frá því hann fót-
brotnaði í leik á móti Manchester
United. Gerrard leikur með varaliði
Liverpool á móti Wolves og ef hann
kemst heill í gegnum hann er líklegt
að hann verði með Liverpool um
næstu helgi á móti Middlesbrough.
PÓLSKI markvörðurinn Jerzy
Dudek vill komast í burtu frá Liver-
pool fari svo að hann fái ekki tækifæri
í byrjunarliðinu í næstu leikjum. ,,Það
verður erfitt að yfirgefa Liverpool en
ég á engra annarra kosta völ ef fram
heldur sem horfir,“ segir Dudek sem
hefur þurft að horfa á Chris Kirkland
standa á milli stanganna í marki Liv-
erpool undanfarnar vikur.
FÓLK
RYAN Giggs, eitt af óskabörnum Manchest-
er United, hafnaði um helgina nýjum eins
árs samningi við félag sitt og þar með er
framtíð þessa 30 ára gamla Walesbúa í
óvissu. Giggs vill setja öryggið á oddinn og
fá lengri samning en til eins árs en hann
hefur verið í herbúðum United í 14 ár og
hefur spilað yfir 500 leiki fyrir félagið.
„Ég hef hafnað þessu tilboði en ég vona
bara að mér verði boðinn annar samningur.
Þangað til verð ég bara að bíða og sjá,“
sagði Giggs við enska blaðið News of the
World.
Giggs hóf sinn feril undir stjórn Alex
Ferguson á Old Trafford árið 1990. Frá
þessum tíma hefur hann leikið 425 deild-
arleiki, 48 bikarleiki, 26 deildabikarleiki og
107 Evrópuleiki. Í þessum leikjum hefur
Giggs skorað 123 mörk, þar af 86 í deildinni.
Giggs hafnaði
samningi
BRYNJAR Björn Gunn-
arsson skoraði mark Wat-
ford sem gerði jafntefli
gegn Sheffield United í
ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Brynjar jafnaði
metin 25 mínútum fyrir
leikslok með góðu skoti
en þetta var annar deild-
arleikurinn í röð sem
Brynjar er á skotskónum
fyrir Watford. Heiðar
Helguson, sem fyrir leik-
inn hafði skorað sjö mörk
í jafnmörgum leikjum,
var fjarri góðu gamni
þar sem hann tók út leik-
bann.
Ívar Ingimarsson lék
allan leikinn fyrir Read-
ing sem bar sigurorð af
Cardiff, 2:1. Reading er í
þriðja sæti, aðeins tveim-
ur stigum á eftir topp-
liðunum Wigan og Ips-
wich.
Bjarni Guðjónsson gat
ekki leikið með Coventry
sem vann 2:1 sigur á
Plymouth en Bjarni hefur
átt við ökklameiðsli að
stríða.
Jóhannes Karl Guð-
jónsson var í byrjunarliði
Leicester sem tapaði á
heimavelli fyrir Sunder-
land, 1:0. Jóhannesi var
skipt útaf á 72. mínútu. Brynjar Björn
Brynjar Björn aftur
á skotskónum
R
David Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins.
ÞEIR eru margir sem telja portú-
galska knattspyrnustjórann Jose
Mourinho hrokagikk og ekki dró
úr því þegar Mourinho lét hafa eft-
ir sér um helgina að hann hefði
fulla trú á að Chelsea yrði búið að
tryggja sér sigur í ensku úrvals-
deildinni tveimur vikum fyrir
mótslok. Og Mourinho hélt áfram
að láta móðan mása eftir sigur að-
alkeppinautanna í Arsenal á Tott-
enham, 5:4.
„5:4 er markaskor í hokkíleik en
ekki knattspyrnuleik. Varnarleikur
Arsenal getur ekki verið í lagi. Á
æfingu, þegar ég læt mína menn
spila þrír á móti þremur og
markatalan fer í 5:4 þá rek ég leik-
mennina inn í klefa og segi þeim
að þeir séu ekki að verjast eins og
þeir eiga að gera. Að úrslit í leik
með 11 á móti 11 skuli enda 5:4 er
hlægilegt.Ég hef fulla trú á mínu
liði og að það geti farið alla leið.
Mér finnst það enginn hroki af
minni hálfu þegar ég segi að
Chelsea sé með besta liðið. Ég hef
mikla trú á mínum mönnum og að
þeir geti staðið uppi sem sigurveg-
arar í vor,“ sagði Mourinho við
fréttamenn eftir sigur sinna
manna á Fulham.
„Markatala í hokkí“
Í öðrum Lundúnaslag hafði Chelseabetur gegn Fulham, 4:1, og ef
fram fer sem horfir þá stefnir í ein-
vígi Chelsea og Arsenal um Eng-
landsmeistaratitilinn. Chelsea hefur
32 stig, Arsenal 30 og Everton, sem
vann góðan útisigur á Birmingham
er í þriðja sæti með 26 stig. Eiður
Smári Guðjohnsen var í byrjunarlið-
inu en tókst ekki að skora að þessu
sinni. Hollendingurinn Arjen Robb-
en var hins vegar á skotskónum rétt
eina ferðina en þessi frábæri leik-
maður skoraði eitt mark eins og
Frank Lampard, Gallas, Tiago.
,,Þetta var afar þýðingarmikill sigur
því margir biðu eftir því hvað við
gerðum undir pressu. Fyrir leikinn
vissum við að Arsenal hefði lagt
Tottenham að velli og þar með urð-
um við að sigra til að endurheimta
toppsætið. Mínir menn stóðust álag-
ið fullkomnlega. Þeir léku afar vel og
ég er ekkert hrokafullur þegar ég
segi að við höfum alla burði til að
hampa Englandsmeistaratitlinum í
vor,“ sagði Jose Mourinho, knatt-
spyrnustjóri Chelsea. Chris Cole-
man, kollegi hans hjá Fulham, hrós-
aði liði Chelsea á hvert reipi og hann
veðjar á liðið sem verðandi meistara.
,,Lið Chelsea sýndi það og sannaði
hversu frábært það er. Við vorum yf-
irspilaðir á löngum köflum og ég get
ekki betur séð en að Chelsea sé með
betra lið en Arsenal. Alla vega þá
spái ég að Chelsea verði meistari,“
sagði Coleman.
Loks búnir að hrista af
okkur timburmennina
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
sagði eftir sigur sinna manna að
loksins hefðu þeir hrist af sér slenið
eftir tapleikinn á móti Manchester
United en eftir ósigurinn á Old Traf-
ford varð Arsenal að sætta sig við
jafntefli við Southampton og Crystal
Palace. ,,Það var afar mikilvægt að
ná þremur stigum. Við höfum þjáðst
af timburmönnum eftir tapið á móti
Manchester United og nú vonast ég
til að við séum komnir á rétt ról á
nýjan leik. Leikurinn hér í dag var
hreint brjálæði og frábær skemmt-
un. Ég er að vísu ekki ánægður með
að við skyldum fá á okkur fjögur
mörk en fyrst við gerðum einu marki
meira þá get ég ekki annað en
glaðst,“ sagði Wenger.
,,Ég er stoltur af mínu liði. Mér
fannst við spila á köflum frábærlega
og einkum og sér í lagi í fyrri hálf-
leik. Við misstum hins vegar Arsenal
aðeins of langt frá okkur en strák-
arnir gáfust ekki upp og með sama
áframhaldi eigum við eftir að hífa
okkur upp töfluna,“ sagði Martin Jol,
knattspyrnustjóri Tottenham, eftir
leikinn.
Baros með þrennu
fyrir Liverpool
Tékkinn Milan Baros var maður
dagsins á Anfield þegar Liverpool
marði nýliða Crystal Palace, 3:2.
Baros skoraði öll mörk Liverpool,
þar af tvö úr vítum, og sigurmarkið á
lokamínútu leiksins. ,,Ég er mjög
ánægður fyrir hönd Baros. Hann
hélt áfram allan tímann og var hetja
okkar í leiknum. Crystal Palace
reyndist okkur annars mjög erfiður
mótherji. Lið þeirra var mjög vel
skipulagt og það veitti okkur svo
sannarlega verðuga keppni. Mér
fannst við samt stjórna leiknum en
sigurinn stóð samt ansi tæpt,“ sagði
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri
Liverpool, eftir leikinn.
Danski landsliðsmaðurinn Thom-
as Gravesen tryggði Everton öll
stigin gegn Birmingham á St. Andr-
ews en mark hans úr vítaspyrnu 20
mínútum fyrir leikslok skildi liðin að.
Þetta var fimmti útisigur Everton á
leiktíðinni en allt tímabilið í fyrra
náði Everton aðeins að krækja í 10
stig í útileikjum sínum. ,,Þetta var
góður sigur. Við steinlágum síðast
þegar við lékum á þessum velli og
það hefur orðið ansi ánægjuleg
breyting á leik okkar á útivelli frá
tímabilinu í fyrra. Við erum í góðri
stöðu en ég hugsa samt enn þá að við
verðum að ná í það mörg stig til að
tryggja veru okkar í deildinni,“ sagði
David Moyes, stjóri Everton, eftir
leikinn.
Bolton tapaði
á heimavelli
Bolton varð að lúta í lægra haldi
á heimavelli sínum í fyrsta sinn á
leiktíðinni þegar liðið lá fyrir Aston
Villa, 2:1. Þjóðverjinn Thomas Hitz-
elberger kom af varamannabekkn-
um og tryggði Villa öll stigin með
marki tveimur mínútum fyrir leiks-
lok og um leið fyrsta útisigur Aston
Villa á tímabilinu. ,,Leikmenn mínir
sýndu mikið baráttuþrek. Þeir börð-
ust eins og ljón og uppskáru sam-
kvæmt því. Sigurinn var liðsheildar-
innar. Hópurinn sem ég hef yfir að
ráða er ekki stór en það er mikil
samstaða í honum,“ sagði David
O’Leary, stjóri Villa, eftir leikinn.
Robert Pires fagn
ENGLANDSMEISTARAR Arsenal fundu taktinn á ný í ensku úrvals-
deildinni. Eftir að hafa spilað þrjá leiki án sigurs lögðu þeir granna
sína í Tottenham í Norður-Lundúnaslagnum í hreint ótrúlegum
markatrylli, 5:4. Arsenal tyllti sér með sigrinum í toppsætið á nýjan
leik en veran á toppnum var skammvinn því tveimur þremur klukku-
stundum síðar náði Chelsea efsta sætinu á nýjan leik.
Flóðgáttir
opnuðust á
White Hart Lane