Morgunblaðið - 15.11.2004, Page 5
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 B 5
KEVIN Keegan, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, hefur óskað
eftir því við stjórn félagsins að fá
peninga til að kaupa nýja leikmenn.
City hefur aðeins innbyrt þrjá sigra í
13 leikjum og það ásamt því að
Claudio Reyna, Danny Mills, Trevor
Sinclair, Ben Thatcher og Sun Jihai
eru allir á sjúkralistanum er ávísun á
að Manchester liðið þurfi liðsstyrk
að mati Keegans.
WOLFSBURG heldur toppsætinu
í þýsku 1. deildinni eftir öruggan 3:0
sigur á Stuttgart á heimavelli sínum.
Búlgarski landsliðsmaðurinn Martin
Petrov hélt uppteknum hætti. Hann
skoraði fjögur mörk á dögunum og
gegn Stuttgart tókst honum tvívegis
að finna netmöskvana.
SCHALKE, sem gat haldið í við
Wolfsburg, tapaði óvænt fyrir
Herthu Berlin, 3:1. Marcelnho,
Nando Rafael og Niko Kovacs
tryggðu Berlínarliðinu sætan sigur.
DORTMUND er í mikilli kreppu
en liðið varð að sætta sig við 1:0 ósig-
ur gegn Kaiserslautern, Feryadoon
Zandi skoraði eina markið úr víti.
PAULO Guerrero, tvítugur Perú-
búi, skoraði tvö marka Bayern
München sem vann góðan útisigur á
Bochum, 3:1, í gær og Bæjurum
tókst þar með að minnka mun Wolfs-
burg í toppsætinu niður í eitt stig.
JURI SCLUNZ, þjálfari Hansa
Rostock, sagði starfi sínu lausu eftir
hrikalegan skell á heimavelli fyrir
Hamburger. Gestirnir unnu 6:0 sig-
ur og er Rostock eitt og yfirgefið á
botni deildarinnar með aðeins 8 stig.
MARCELO Lippi, landsliðsþjálf-
ari Ítala í knattspyrnu, valdi í gær
sex nýliða í hóp sinn sem mætir
Finnum í vináttuleik á miðvikudags-
kvöld. Nýliðarnir sex eru markvörð-
urinn Flavio Roma, Monaco, Andrea
Berzagli, Palermo, Giorgio Chillini,
Fiorentina, Alessandro Parisi,
Messina, Stefano Mauri, Udinese og
Andrea Garacciolo, Brescia.
REAL Madrid hrökk heldur betur
í gírinn í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu í gær. Madridingar,
sem fyrir leikinn höfðu aðeins skorað
tíu mörk í 10 leikjum, gjörsigruðu
Albacete, 6:1. Ronaldo skoraði tvö
marka Real Madrid og þeir Zinedine
Zidane, Raúl, Walter Samuel og
Michael Owen gerðu sitt markið
hver.
DAVID Beckham kom inn í lið
Real Madrid á nýjan leik eftir
meiðsli og endurkoma hans virkaði
greinilega vel á samherja hans í lið-
inu.
BARCELONA tapaði sínum fyrsta
leik í deildinni þegar liðið lá fyrir
Real Betis, 2:1. Börsungar náðu sér
aldrei á strik og eftir leiki helgarinn-
ar munar aðeins fjórum stigum á
Barcelona og erkifjendum þeira í
Real Madrid.
FÓLK
Paul Robinson (Tottenham),
David James (Man City), Chris
Kirkland (Liverpool), Gary Ne-
ville (Man Utd), Phil Neville (Man
Utd), Ashley Cole (Arsenal),
Jamie Carragher (Liverpool),
Wayne Bridge (Chelsea), Rio
Ferdinand (Man Utd), John
Terry (Chelsea), Matthew Upson
(Birmingham), David Beckham
(Real Madrid), Frank Lampard
(Chelsea), Nicky Butt (New-
castle), Owen Hargreaves (Bay-
ern Munich), Jermaine Jenas
(Newcastle), Joe Cole (Chelsea),
Shaun Wright-Phillips (Man
City), Michael Owen (Real Madr-
id), Jermain Defoe (Tottenham),
Alan Smith (Man Utd), Wayne
Rooney (Man Utd).
SVEN Göran Eriksson lands-
liðseinvaldur Englendinga í
knattspyrnu valdi um helgina
22 manna landsliðshóp fyrir
vináttuleik Englendinga gegn
Spánverjum í næstu viku. Fyr-
irliðinn David Beckham er í
hópnum en hann hefur jafnað
sig á meiðslum sem plagað hafa
hann undanfarnar vikur.
Beckham sagði í viðtölum við
enska fjölmiðla í gær að líklega
myndi hann hætta að leika með
landsliðinu eftir heimsmeist-
arakeppnina í Þýskalandi 2006
en han hefði þó fullan hug á að
leika í nokkur ár til viðbótar
með félagsliði.
Hópurinn sem Eriksson valdi
er þannig skipaður:
Reuters
a
Beckham hyggst
hætta í landslið-
inu eftir HM 2006
AP
nar sigri Arsenal á Tottenham á White Hart Lane, 5:4.
ÚKRAÍNUMAÐURINN Andriy Shevchenko
náði þeim merka áfanga að skora sitt 100.
mark í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu þeg-
ar hann skoraði bæði mörk AC Milan í 2:1
sigri á Siena.
Alessandro Del Piero skoraði sitt fimmta
mark á leiktíðinni þegar hann tryggði Juvent-
us sigur á Lecce og Juventus heldur því sex
stiga forskoti á AC Milan. Del Pierro skoraði
markið eftir góðan undirbúning Svíans Zlat-
ans Ibrahimovic.
Inter gerði sitt 10. jafntefli í á tímabilinu
þegar liðið gerði 3:3 jafntefli við 3:1. Inter
lenti 3:1 undir en Nígeríumaðurinn Obafemi
Martins bjargaði stigi í höfn fyrir Inter með
því að skora tvívegis á síðustu 14 mínútunum.
Paolo Di Canio tryggði Lazio sigur á Bol-
ogna með marki úr vítaspyrnu fimm mínútum
fyrir leikslok.
Reuters
Andriy Shevchenko fagnar hér marki ásamt Serg-
inho, félaga sínum hjá AC Milan.
100. markið hjá
Shevchenko
Hvorki hefur gengið né rekið hjáNewcastle í síðustu leikjum.
Liðið byrjaði vel undir stjórn Graeme
Souness og lék níu leiki í röð án þess
að tapa en í síðustu fimm leikjum í öll-
um keppnum hefur Newcastle tapað
fjórum, þar af þremur á heimavelli.
Manchester United er 11 stigum á
eftir Chelsea og 9 á eftir Arsenal en
engu að síður telur Rooney að United
geti hampað titlinum í vor.
Getum enn unnið titilinn
„Við erum með nógu gott lið til að
vinna titilinn. Það verður erfitt en ég
tel samt að við getum gert það. Sig-
urinn hér í dag var afar dýrmætur
þar sem Chelsea og Arsenal unnu
bæði góða sigra. Sigurinn veitir okk-
ur sjálfstraust og það skyldi enginn
afskrifa United í baráttunni um efsta
sætið,“ sagði Rooney.
Newcastlemenn voru ekki sáttir
við vítaspyrnudóminn sem United
fékk þegar Paul Scholes féll eftir við-
skipti við Shay Given markvörð New-
castle.
„Ég sá af 40 metra færi að Andy
O’Brien var ýtt en dómarinn sem var
nálægt atvikinu sá ekki neitt.
Kannski hefur dómarinn verið undir
pressu eftir ummæli Alex Ferguson
þegar hann sagði eftir leikinn við
Manchester City að lið hans fengi
ekki vítaspyrnu eftir leikinn á móti
Arsenal,“ sagði Alan Shearer.
Bryan Robson stýrði WBA í
fyrsta sinn og það gegn gamla liðinu,
Middlesbrough. Robson byrjaði ekki
vel því hans menn töpuðu á heima-
velli, 2:1. Boudewijn Zenden skoraði
sigurmarkið en nýliðarnir voru klauf-
ar að jafna ekki þegar Kanu skaut yf-
ir markið nánast af marklínu.
Rooney
skoraði tvö
fyrir United
UNGSTIRNIÐ Wayne Rooney skoraði í tvígang þegar Manchester
United lagði Newcastle, 3:1, á St. James Park í Newcastle í gær.
Rooney skoraði fyrsta markið með viðstöðulausu skoti á 7. mínútu
og þannig var staðan allt fram á 71. mínútu. Alan Shearer jafnaði þá
metin fyrir heimamenn en United skoraði tvívegis á síðustu 10 mín-
útunum leiksins. Ruud Van Nistelrooy skoraði að vanda á St. James
þegar hann skoraði af öryggi úr vítaspyrnu og á lokamínútu leiksins
var Rooney aftur á skotskónum.
Reuters
Wayne Rooney, til hægri, fagnar marki sínu gegn Newcastle
ásamt Darren Fletcher og Ronaldo.