Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 7

Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 B 7 Haukarnir byrjuðu ágætlegagegn sænsku meisturunum. Þeir náðu tveggja marka forystu, 6:4, og virtust líklegir til að standa uppi í hárinu á liði Sävehof. En þegar líða tók á seinni hálfleik fóru Hauk- arnir að gera sig seka um tæknifeila í sókninni sem Svíarnir nýttu sér til hins ýtrasta með mörkum úr hraða- upphlaupum og þegar fyrri hálfleik- ur var allur hafði Sävehof þriggja marka forskot, 19:16. Íslandsmeistararnir byrjuðu seinni hálfleikinn illa. Þeir misstu Svíana sjö mörkum fram úr sér snemma í hálfleiknum og þrátt fyrir ágæta spretti af og til þá náðu Hauk- ar ekki að vinna þennan mun upp. Varnarleikur Haukanna var frekar slakur og þeir voru heldur of fljótir að gefast upp í leiknum. Baráttan var ekki til staðar og mistökin of mörg í sókninni til að standa uppi í hárinu í sænska liðinu, sem er afar sterkt á heimavelli og til marks um það lágu liðsmenn Kiel fyrir liðinu í Gautaborg. Halldór Ingólfsson komst best frá leik Hauka en hann sýndi gamal- kunna takta þegar hann plataði varnarmenn Sävehof oftar en ekki upp úr skónum. Birkir Ívar Guðmundsson, lands- liðsmarkvörður, stóð fyrir sínu í markinu en var ekki öfundsverður þar sem vörn Haukanna var götótt og Svíarnir fengu mörk hraðaupp- hlaup, mest fyrir klaufaleg mistök Haukanna. Þá átti Þórir Ólafsson ágætan leik og Freyr Brynjarsson góða innkomu í seinni hálfleik en lyk- ilmenn Hauka, Ásgeir Örn Hall- grímsson, Andri Stefan og Vignir Svavarsson voru mistækir og við því mega Haukar alls ekki. Haukar í þriðja sætinu ÍSLANDSMEISTARAR Hauka luku þátttöku sinni í Meistaradeild Evrópu með tapi gegn Sävehof í Gautaborg, 38:22 á laugardags- kvöldið. Haukarnir þurftu þar með að bíða úrslitanna í Frakklandi þar sem Créteil tók á móti þýska liðinu Kiel. Eitt stig í þeim leik hefði dugað Frökkunum til að ná þriðja sætinu en Kiel hafði betur, 31:29, og tryggði þar með Haukum sæti í Evrópukeppni bikarhafa en liðin sem höfnuðu í þriðja sæti í riðlum Meistaradeildarinnar fara í þá keppni Leikurinn var afskaplega bragð-daufur framan af og rólegt yfir liðunum. Haukarnir stjórnuðu leikn- um en náðu ekki af- gerandi forskoti fyrr en í þriðja leikhluta þegar varnir KR- inga brugðust. Þeir náðu mest 15 stiga forskoti um miðj- an fjórðunginn og KR-ingum tókst ekki að saxa nægilega á muninn. Gestirnir komust ekki almennilega í gang fyrr en á síðasta fjórðungi en það var of seint og Haukar lönduðu mikilvægum sigri og fögnuðu vel í lokin. Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka, gat ekki fundið mikið að leik liðsins. „Við náðum þarna ágætisfor- skoti sem dugði okkur til að ljúka leiknum. Gengi okkar hefur verið mjög skrykkjótt og gengur upp og niður, við eigum mjög slaka leiki en svo getum við spilað alveg glimrandi inni á milli. Í þessum leik áttum við mjög góða kafla og líklega með því besta sem við getum staðið fyrir,“ sagði Reynir. „Ég get ekki annað en verið ánægður með leikinn, við stjórnuð- um þessu vel og allir voru að leggja sig fram og börðust vel. Við þurftum virkilega á þessum sigri að halda og vonandi að þetta sé vísir að einhverju meira,“ bætti Reynir við að lokum. Herbert Arnarsson, þjálfari KR, var allt annað en ánægður með spila- mennsku sinna manna. „Þetta var alveg hræðilegt. Hauk- arnir spiluðu mjög vel í kvöld og ég veit ekki hvort undirbúningurinn hjá okkur hafi ekki verið nægilega góður en okkur tókst ekki að gera sömu hluti og þeir. Ég tel að við séum betri en Haukarnir en þeir voru betri í kvöld og það er það sem telur. Við reyndum að undirbúa okkur eins og við gátum en það tókst bara ekki bet- ur til í kvöld. Þessi leikur var gríð- arlega mikilvægur til að mjaka sér upp í deildinni en það þýðir ekkert að grafa hausinn í sandinn, við höldum ótrauðir áfram,“ sagði Herbert Arnarson. Góður sigur Hauka HAUKAR unnu góðan sigur í úr- valsdeildinni í körfuknattleik, Intersport-deildinni, þegar liðið lagði KR að velli, 92:87, á Ás- völlum í gærkvöldi. Bæði lið eru um miðja deild og sigurinn var því mjög mikilvægur til að freista þess að komast í topp- baráttuna. Staðan í hálfleik var 46:44 en jafnræði var á með lið- unum þar til í þriðja leikhluta þegar Haukar náðu góðu for- skoti sem þeir héldu þar til yfir lauk. John Weller átti mjög góð- an leik fyrir heimamenn og skoraði 33 stig og átti 5 stoð- sendingar. Andri Karl skrifar Eyjakonur reyna hvað þær getaað halda í við Hauka í 1. deild kvenna. Á laugardaginn sigruðu þær Gróttu/KR nokkuð örugglega, 28:17. Það má segja að munurinn á lið- unum hafi legið í markvörslunni en Florentina Grecu varði 23 skot í Eyjamarkinu og gerði gæfumuninn í leiknum. Eyja- konur byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 6:1. Eftir það jafnaðist leikurinn lítið eitt en þær héldu þriggja marka forystu í leik- hléi. Smátt og smátt í síðari hálfleik juku Eyjakonur muninn og þegar upp var staðið skildu ellefu mörk liðin að, kannski heldur stór sigur miðað við hvernig leikurinn var en Eyjastúlkur voru langt frá því að sýna sínar bestu hliðar. Það fór mikið fyrir stórskyttum ÍBV, Öllu Gorkorian og Zsofiu Pazstor í leikn- um og skoruðu þær hvor sín níu mörkin en eins og oft áður í vetur var besti leikmaður liðsins mark- vörðurinn Florentina Grecu. Eva M. Kristinsdóttir var öflugust hjá gestunum og Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir barðist vel á línunni og í vörn Gróttu/KR. Léttur sigur meistaranna Sigursveinn Þórðarson skrifar Á fyrstu tíu mínútum leiksinsgrófu Valsstúlkur sína eigin gröf því þó að þær hafi skorað fyrsta markið þá brást þeim bogalistin í næstu sex sóknum og refsuðu Hauka- stúlkur þeim grimmilega í hvert skipti. Valsstúlk- ur vantaði sárlega frumkvæði í sókninni á meðan Haukaliðið var fullt sjálfstrausts og sóknarleikur þeirra var agaður og öruggur. Þær verðskulduðu því fyllilega níu marka forskot sitt í hálfleik, 19:10, og gátu leyft sér að draga úr hraðanum eftir hlé og spila eins og hálfdrættingar á við fyrri hálfleik. Allt annað var þá að sjá Valsstúlkur, þær gengu á lag- ið og minnkuðu muninn – hleyptu næstum því spennu í leikinn undir lokin – en sigur Hauka var þó aldrei í hættu og fóru þær með sigur af hólmi 32:29 og máttu vel við una. Hanna G. Stefánsdóttir átti stór- leik fyrir Hauka og skoraði 13 mörk, annars var vart að merkja veikan blett á liðinu sem spilaði, alla vega í fyrri hálfleik, oft á tíðum bráð- skemmtilegan handbolta. Guðmundur Karlsson, þjálfari Hauka, var ekki ánægð með síðari hálfleikinn en tíu leikja sigurganga kætir hann vissulega. „Við gerðum okkur þetta vissu- lega erfitt um miðjan seinni hálfleik, vorum komnar átta mörkum yfir og héldum kannski að þetta væri búið en Valsstúlkurnar eru mjög fljótar og refsuðu hratt í lokin á meðan við fengum mikið af brottvísunum á okkur. Leikurinn varð því óþarflega jafn í lokin og við slökuðum kannski fullmikið á. Valsliðið er sterkt en þetta var samt aldrei í hættu, það hefði mikið þurft að ganga upp hjá þeim til að ná að jafna. Þær eru að spila sig í gang aftur eftir mikið af skakkaföllum og mér fannst seinni hálfleikurinn mjög góður hjá þeim og eitthvað sem þær geta byggt á. Annars er allt í toppstandi hjá okkur og stemningin í liðinu frábær. Við ætlum okkur að vera í baráttunni eins lengi og við getum og spila um titil ef hann verður í boði,“ sagði Guðmundur að lokum. Valsstúlkur eiga eftir að naga sig í handarbökin eftir frammistöðu sína í byrjun leiksins því þar réðust úr- slitin. Þær björguðu þó andliti í síð- ari hálfleik með fínum leik og von- andi að sá leikkafli verði þeim til eftirbreytni. Ágústa Edda Björns- dóttir var þeirra markahæst með 9 mörk og Katrín Andrésdóttir stóð sig vel í síðari hálfleik en hún skor- aði alls 6 mörk. Guðríður Guð- mundsdóttir, þjálfari liðsins, var að vonum svekkt með úrslitin en ánægð með baráttuna í síðari hálf- leik. „Við mættum skíthræddar í leik- inn og þetta var hrikalegt í byrjun og okkur var refsað herfilega fyrir. En við unnum seinni hálfleikinn og töpum aðeins með þremur mörkum og það hlýtur að sýna liðinu að þetta er hægt. Ég sagði í leikhléi að við myndum byrja upp á nýtt í síðari hálfleik þannig að þær ættu að gjöra svo vel og sýna hvað þeim býr og þær brugðust mér ekki þar,“ sagði Guðríður Guðmundsdóttir, þjálfari Valsstúlkna. „Hugurinn var ekki í lagi í byrjun og reynslumeiri leik- menn hjá okkur klikkuðu en yngri leikmenn blómstruðu í síðari hálf- leik. Ekki er hægt að neita því að gott hefði verið að vinna og færa smáfjör í deildina en þær eru ein- faldlega þetta góðar og svona er handboltinn bara, sagði Guðríður að endingu. Morgunblaðið/Jim Smart Ramune Pekarskyte skorar hér eitt af sex mörkum sínum fyrir Hauka gegn Val án þess að Arna Grímsdóttir komi vörnum við. Haukar héldu sínu striki að Hlíðarenda HAUKAR styrktu enn stöðu sína á toppi fyrstu deildar kvenna þegar liðið lagði Val að velli, 32:29, á Hlíðarenda þegar liðin mættust á laug- ardaginn. Getumunurinn var augljós strax í upphafi og eftir að Hauk- ar náðu sex marka forskoti, 7:1, varð róðurinn þungur fyrir heima- sæturnar sem þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að tryggja sæti sitt í toppbaráttunni. Eftir leiki helgarinnar sitja Haukar sem fyrr í efsta sæti deildarinnar og hafa unnið alla tíu leiki sína. Valsstúlkur deila hins vegar fjórða sætinu með FH-ingum – eiga þó leik til góða. Andri Karl skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.