Morgunblaðið - 17.11.2004, Qupperneq 1
2004 MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
NÝTT KEPPNISFYRIRKOMULAG Í HANDKNATTLEIK Á ÍSLANDI / C3
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG,
náði ekki að tryggja sér fullan keppnisrétt á
evrópsku mótaröðinni í golfi. Síðasti hringur-
inn í úrtökumótinu var leikinn á Spáni í gær og
lauk Birgir Leifur leik á 74 höggum, tveimur
höggum yfir pari vallarins og hringina sex á
átta höggum yfir pari en þeir sem léku á sjö yfir
í heildina komust áfram, alls 39 kylfingar.
Árangur hans tryggir honum rétt til að
keppa á Áskorendamótaröðinni og jafnframt á
einhverjum mótum á evrópsku mótaröðinni.
Birgir Leifur hefur fimm sinnum áður komist
á lokastig úrtökumótsins fyrir evrópsku móta-
röðina og árið 2001 munaði aðeins einu höggi
að hann kæmist inn, líkt og núna.
Fimm kylfingar náðu að leika hringina sex
undir pari og bestur þeirra var Peter Gustafs-
son frá Svíþjóð á níu höggum undir pari.
Birgi Leif vantaði
aðeins eitt högg
JUSTIN Miller, annar erlendi leik-
maður úrvalsdeildarliðs Grinda-
víkur í körfuknattleik karla, er far-
inn til síns heima. Móðir hans er
þungt haldin af krabbameini og því
varð það að samkomulagi milli
hans og Grindvíkinga að hann
fengi sig lausan undan samningi.
Miller hafði gert 13,9 stig að með-
altali fyrir Grindvíkinga í deildinni
og átti meðal annars fínan leik
gegn Keflvíkingum í fyrrakvöld
þar sem hann gerði 23 stig.
Kristinn Friðriksson, þjálfari
Grindvíkinga, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að leit að nýj-
um erlendum leikmanni væri þeg-
ar hafin en óvíst væri hvenær sá
sem fyndist kæmi til liðs við félag-
ið, en Grindvíkingar leika á föstu-
dagskvöldið í undanúrslitum Hóp-
bílabikarsins við Snæfell.
Miller farinn
frá Grindavík
Króatíska liðið vann sér keppn-isréttinn í 16-liða úrslitunum
með því að slá út Cankaya Ankara
frá Tyrklandi. Króatarnir höfðu bet-
ur í báðum rimmum liðanna, 39:38 í
Tyrklandi og 31:27 á heimavelli,
samanlagt, 70:65.
Í 2. umferðinni átti Medvescak í
höggi við Nyiergyhazi frá Ungverja-
landi og hafði betur samanlagt,
61:58. Ungverska liðið hafði betur á
heimavelli sínum, 33:27, en Króat-
arnir unnu heimaleikinn, 33:27.
Í fyrra komst Medvescak í 3. um-
ferð EHF-keppninnar en var slegið
út af franska liðið Paris Handball.
Frakkarnir unnu báða leikina, 23:21,
í Króatíu og 31:27 í París.
Páll Ólafsson þjálfari Hauka var
ekki ánægður með dráttinn þegar
Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögð-
um hans.
,,Þetta var ekki góður dráttur en
við verðum taka þessu af karl-
mennsku. Það var margt annað
skemmtilegra í boði og þetta lið var
eitt af þremur liðum sem við síst
vildum mæta. Óskamótherjinn var
danska liðið FC Köbenhavn en það
er ekki á allt kosið í þessu. Við höfum
verið tiltölulega heppnir í drættinum
undanfarin ár svo það mátti alveg
búast við því að við fengjum smá
bakslag,“ sagði Páll Ólafsson. „Ég
veit ekkert um þetta króatíska lið og
ég veit í fljótu bragði ekki hvernig ég
á að nálgast upplýsingar um það.
Þeir léku á móti ungversku liði og
síðan liði frá Tyrklandi og ég er ekki
með mikið af samböndum í þessum
löndum. Þetta er hins vegar pottþétt
gott lið eins og flest frá þessum slóð-
um enda handboltahefðin sterk í
Króatíu. Við mætum hvergi bangnir
til leiks enda ætlum við okkur lengra
í keppninni.“
Ég er bara svona gerður. Reyniávallt að gera mitt besta en ég
leik bara eins vel og liðið gerir í
hvert sinn. Strák-
arnir voru duglegir
að finna mig á lín-
unni og voru ógn-
andi sjálfir fyrir ut-
an. Þegar það gerist opnast margir
möguleikar í sókninni,“ sagði Ró-
bert.
Um varnarleikinn sagði Róbert
að Viggó hefði lagt línurnar á æf-
ingunni sem liðið fékk daginn fyrir
leikinn, margt þyrfti að laga og
slípa, en heildarmyndin væri á
hreinu. „Þegar þessi vörn er spiluð
þá getur það komið fyrir að menn
sleppa í gegn og það virkar sem allt
sé galopið. En það er bara eðli
varnarinnar, við erum framarlega
með þrjá menn og það eru eyður
sem þarf að stoppa í. En á heildina
litið erum við bara ánægðir með
hvernig vörnin var hjá okkur. En
það sem fór illa með okkur að þessu
sinni var hve mörg mörk við feng-
um á okkur úr hraðaupphlaupum.“
Róbert tók undir orð þjálfarans
sem sagði liðið hafa gert of mörg
mistök í sókninni. „Við vitum það
alveg. Menn hentu boltanum útaf
og misstu hann í sókninni. Það get-
ur alltaf gerst af og til en við gerð-
um of mörg mistök í leiknum sem
gerðu okkur erfitt um vik.“
Gömlu hestarnir eru
okkur dýrmætir
Að mati Róbert blása jákvæðir
straumar í herbúðum liðsins.
„Þetta er í raun nýtt lið, nýjar
áherslur með nýjum þjálfara. Við
sem skipuðum unglingalandsliðið
hér á árum áður erum í meirihluta
að þessu sinni. Gömlu hestarnir eru
okkur dýrmætir og hafa reynsluna
sem við höfum ekki. En það er
kraftur í þessum hóp, samstaðan er
mikil og það eru spennandi tímar
framundan hjá okkur. Ég get varla
beðið eftir næsta leik og get ekki
ímyndað mér annað en við verðum
bara betri og betri með hverjum
leik sem líður. Þessi leikur var
langt frá því að vera alslæmur og
nú er bara að taka það með sér sem
skiptir máli í næstu verkefni. En
maður á eflaust eftir að hugsa til
baka og sjá eftir því að við skyldum
ekki hafa unnið leikinn, með nýtt
lið og nýjan þjálfara,“ sagði Róbert
Gunnarsson.
Ljósmynd/Mattias Nääs
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari Íslands, gefur hér Loga
Geirssyni góð ráð í leiknum gegn Þýskalandi í gærkvöldi.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar frá
Borlänge
Sjö mörk Róberts Gunnarssonar dugðu ekki gegn Þjóðverjum í Borlänge
„Jákvæðir
straumar
hjá okkur“
„VIÐ lærðum vörnina sem við vorum að spila daginn fyrir leikinn
gegn Þjóðverjum og miðað við þann undirbúning þá erum við bara
sáttir við þann hluta leiksins. En við vitum að það býr mikið meira í
þessu liði og við erum ekki sáttir við að tapa. Þetta var hrikalega
súrt tap, sagði Róbert Gunnarsson, línumaðurinn sterki, sem skor-
aði 7 mörk gegn Þjóðverjum í heimsbikarmótinu, World Cup, sem
hefst í gærkvöldi í Svíþjóð. Það hugði ekki til sigrus, þar sem Þjóð-
verjar voru sterkari, 29:28. Að venju var Róbert á sama hraða og
venjulega í sókn sem vörn. Með allt í botni enda er aðeins hægt að
kveikja eða slökkva á kappanum. Það er enginn millihraði.
■ Þjóðverjar of stór/C3
Gerðum of mörg/C4
Haukar fara til Króatíu
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka mæta Medvescak Infosistem Zagreb
frá Króatíu í 16-liða úrslitum í Evrópukeppni bikarhafa í handknatt-
leik en dregið var á Evrópumótinum í handknattleik í Vín í gær.
Haukar eiga fyrri leikinn á heimavelli, 4. eða 5. desember og viku
síðar eigast liðin við í Króatíu.
■ Evrópudrátturinn/B2
DEAN Martin, enski knattspyrnu-
maðurinn sem hefur leikið með KA
um árabil, gekk í gærkvöld til liðs
við Skagamenn og samdi við þá til
þriggja ára. Samningurinn tekur
gildi um áramót.
Martin er 32 ára og hefur leikið
hér á landi í tíu ár, frá 1995. Ávallt
með KA, nema árið 1998, en þá spil-
aði hann með Skagamönnum. Þá
lék hann 10 leiki með þeim í úrvals-
deildinni og skoraði tvö mörk.
Martin er uppalinn hjá West Ham
og hefur spilað með ensku liðunum
Stevenage og Dagenham og hann
lék um skeið í Hong Kong. Hann
hefur verið búsettur á Akureyri
undanfarin ár og flytur búferlum til
Akraness í byrjun apríl.
Dean Martin
til liðs við ÍA