Morgunblaðið - 17.11.2004, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
2 C MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Keflavík: Keflavík - UMFN .................19.15
Í KVÖLD
HANDKNATTLEIKUR
Ísland – Þýskaland 28:29
Borlänge, heimsbikarmótið, World Cup, B-
riðill, þriðjudagur 16. nóvember 2004.
Gangur leiksins: 1:0, 2.3, 4:6, 6:9, 9:13,
11:14, 13:15, 14:16, 16:17, 21:20, 25:28,
28:29.
Mörk Íslands: Róbert Gunnarsson 7, Einar
Hólmgeirsson 4, Markús Máni Mich-
aelsson 4, Logi Geirsson 4/2, Dagur Sig-
urðsson 3, Þórir Ólafsson 2, Ásgeir Örn
Hallgrímsson 2, Jaliesky Garcia 2. Aðrir
sem léku voru Einar Örn Jónsson, Guðjón
Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjóns-
son og Vignir Svavarsson.
Varin skot: Roland Eradze 5/2 (þar af 2 aft-
ur til mótherja), Birkir Ívar Guðmundsson
6 (þar af 1 aftur til mótherja)
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Þýskalands: Holger Glandorf 7,
Daniel Stephan 6/2, Sebastian Preiss 6,
Florian Kehrmann 6, Heiko Grimm 2,
Christian Sprenger 1, Tobias Schröder 1
Varin skot: Johannes Bitter 9/1 (þar af 2
aftur til mótherja), Carsten Lichtlein 8.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Peter Hansson og Peter Olsson,
frá Svíþjóð.
Áhorfendur: Um 1.000, fjölgaði er á leið.
Frakkland – Ungverjaland .................26:23
A-RIÐILL:
Leikið í Stokkhólmi:
Króatía – Danmörk..............................23:29
Svíþjóð – Slóvenía ................................31:31
Evrópumót félagsliða
Dregið var á Evrópumótunum hjá körlum í
höfuðstöðvum Evrópska handknattleiks-
sambandsins í Vínarborg í gær. Leikirnir
fara fram 4./5. desember og 11./12. desem-
ber
Meistaradeildin
16 liða úrslit:
Kolding - Montpellier
Celje Lasko - Pick Szeged
Tatran Presov - Kiel
Zaporozhje - Fotex Veszprém
Lemgo - Chehovski Moskva
Sävehof - Flensburg
GOG - Ciudad Real
Barcelona - Portland San Antonio
Evrópukeppni bikarhafa
16 liða úrslit:
RK Gorenje Velenje - US Ivry
Banik Karvina - Ademar Leon
Valladolid - RK Zagreb
Rauða stjarnan - HSV Hamborg
Haukar - Medvescak
FCK Håndbold - Vardar Skopje
Granitas Kaunas - Partizan Belgrad
RK Preent - Ljubuski
EHF-bikarinn
16 liða úrslit:
Granollers - RK Perutnina
Gummersbach - Dunkerque
Dinamo Búkarest - Skövde
Drammen - Dynamo Astrakhan
Magdeburg - Drustvo Termo
Slask Wroclaw - Dunaferr
Secchia - Bregenz
RK Fidelinka - Essen
KÖRFUKNATTLEIKUR
Njarðvík – Snæfell 81:83
Njarðvík, úrvalsdeild karla, Intersport-
deildin, þriðjudagur 16. nóvember 2004.
Gangur leiksins: 5:9, 9:16, 17:20, 22:26,
24:37, 34:40, 39:54, 47:60, 60:73, 63:75,
77:80, 81:83.
Stig Njarðvíkur: Matt Sayman 22, Páll
Kristinsson 19, Friðrik Stefánsson 12,
Brenton Birmingham 11, Anthony Lackey
10, Guðmundur Jónsson 4, Jóhann Á.
Ólafsson 2, Egill Jónasson 1.
Fráköst: 27 í vörn, 18 í sókn.
Stig Snæfells: Desmond Peoples 21, Pierre
Green 20, Hlynur Bæringsson 17, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 9, Ingvaldur Magni
Hafsteinsson 8, Sigurður Þorvaldsson 8.
Fráköst: 23 í vörn, 6 í sókn.
Villur: Njarðvík 20, Snæfell 21.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Eggert
Þór Aðalsteinsson.
Áhorfendur: Um 300.
Tindast. – Hamar/Self. 82:93
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 5:5, 10:10, 18:16, 18:26,
18:32, 18:37, 26:39, 30:39, 32:43, 38:46,
41:46, 44:57, 48:61, 55:63, 62:63, 65:67,
70:69, 72:79, 78:87, 82:93.
Stig Tindastóls: Bethuel Fletcher 29, Svav-
ar Birgisson 23, Nikola Cvjetkovic 19, Axel
Kárason 4, Björn Einarsson 4, Ragnar F.
Guðmundsson 3.
Fráköst: 13 í vörn - 10 í sókn.
Stig Hamars/Selfoss: Chris Woods 27, Da-
mon Bailey 27, Svavar Pálsson 18, Marvin
Valdimarsson 11, Pétur Ingvarsson 4, Frið-
rik Hreinsson 2, Atli Gunnarsson 2, Ragnar
Gylfason 2.
Fráköst: 31 í vörn - 10 í sókn.
Villur: Tindastóll 19 - Hamar/Selfoss 21.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Lárus
Ingi Magnússon.
Áhorfendur: 230.
KFÍ – ÍR 100:122
Ísafjörður:
Gangur leiksins: 9:9, 16:16, 24:22, 32:24,
44:45, 44:54, 50:65, 64:67, 69:78, 72:90,
77:102, 87:112, 100:122.
Stig KFÍ: Joshua Helm 39, Pétur M. Sig-
urðsson 18, Tom Hull 14, Baldur I. Jón-
asson 11, Sigurður G. Þorsteinsson 5, Pétur
Birgisson 4, Neil S. K. Þórisson 3, Þórir
Guðmundsson 3, Birgir Pétursson 3.
Fráköst: 17 í vörn - 12 í sókn.
Stig ÍR: Theo Dixon 45, Grant Davis 23,
Ómar Sævarsson 14, Ólafur J. Sigurðsson
8, Gunnlaugur Erlendsson 8, Sveinbjörn
Claessen 6, Fannar Helgason 6, Ólafur
Þórisson 5, Eiríkur Önundarson 4, Eggert
Maríuson 3.
Fráköst: 27 í vörn - 18 í sókn.
Villur: KFÍ 32 - ÍR 33
Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson og Einar
Þór Skarphéðinsson.
Áhorfendur: 70.
Fjölnir – Skallagrímur 87:72
Grafarvogur:
Stig Fjölnis: Darrell Flake 30, Nemanja
Sovic 19, Jeb Ivey 16, Pálmar Ragnarsson
8, Brynjar Kristófersson 7, Hjalti Vil-
hjálmsson 3, Helgi Þorláksson 3, Guðni
Valentínusson 1.
Fráköst: 38 í vörn - 12 í sókn.
Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 33,
Clifton Cook 16, Nicholas Anderson 11,
Ragnar N. Steinsson 10, Hafþór Gunnars-
son 2.
Fráköst: 31 í vörn - 12 í sókn.
Villur: Fjölnir 19 - Skallagrímur 23
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og
Karl Friðriksson.
Staðan:
Njarðvík 7 6 1 671:538 12
Snæfell 7 5 2 603:550 10
Keflavík 7 5 2 628:556 10
Fjölnir 6 4 2 566:538 8
Skallagrímur 7 4 3 592:589 8
Tindastóll 7 3 4 583:646 6
Haukar 6 3 3 528:490 6
Grindavík 7 3 4 626:630 6
ÍR 7 3 4 639:651 6
KR 7 3 4 575:598 6
Hamar/Selfoss 7 2 5 623:695 4
KFÍ 7 0 7 597:750 0
1. deild kvenna
KR – Grindavík.................................... 34:58
Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 10, Halla M.
Jóhannesdóttir 6, Hanna B. Kjartansdóttir
6, Lilja Oddsdóttir 4, Sigrún Skarphéðins-
dóttir 2, Hólmfríður Sigurðardóttir 2,
Gréta M. Grétarsdóttir 2, Eva M. Grétars-
dóttir 2.
Stig Grindavíkur: Sólveig Gunnlaugsdóttir
15, Erla Reynisdóttir 12, María Guðmunds-
dóttir 7, Elva Sigmarsdóttir 4, Erla Þor-
steinsdóttir 4, Ólöf Pálsdóttir 4, Jovana
Stefánsdóttir 4, Guðrún Guðmundsóttir 3,
Svandís Sigurðardóttir 3, Erna Magnús-
dóttir 2.
Staðan:
Keflavík 5 5 0 389:283 10
ÍS 6 4 2 420:347 8
Grindavík 6 4 2 318:311 8
Haukar 6 3 3 370:394 6
Njarðvík 5 1 4 266:308 2
KR 6 0 6 293:413 0
1. deild karla
ÍS – Þór Þ.............................................. 80:70
Staðan:
Stjarnan 5 5 0 430:379 10
Valur 6 5 1 503:455 10
Þór A. 6 5 1 553:399 10
Þór Þ. 6 3 3 492:446 6
Höttur 6 3 3 480:485 6
ÍS 6 3 3 459:492 6
Breiðablik 5 2 3 403:399 4
Drangur 6 2 4 450:478 4
Ármann/Þrótt. 6 1 5 422:525 2
ÍA 6 0 6 373:507 0
Evrópubikarkeppni karla
A-riðill:
Reims – Madeira.................................. 80:83
Staðan: Keflavík er með 4 stig, Madeira 4,
Reims 4 og Bakken 3 stig. Keflavík og
Bakken mætast í Keflavík annað kvöld.
Gefin eru 2 stig fyrir sigur og eitt stig fyrir
tap.
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Cleveland – Golden State .....................99:88
Houston – New Jersey..........................80:69
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikir
Írland – Króatía ....................................... 1:0
Robbie Keane 24.
Gylfi Þór Orrason dæmdi leikinn.
Ástralía – Noregur .................................. 2:2
Tim Cahill 45., Josip Skoko 58. – Steffen
Iversen 41., Morten Gamst Pedersen 73. –
6.200.
Evrópukeppni 21 árs liða
Malta – Ungverjaland ..............................0:2
S. Bajada 28. (sjálfsm.), Tisza 38.
Staðan:
Króatía 3 3 0 0 4:0 9
Ísland 4 2 0 2 6:4 6
Ungverjaland 4 2 0 2 4:3 6
Svíþjóð 4 2 0 2 4:6 6
Búlgaría 3 1 0 2 3:5 3
Malta 4 1 0 3 2:5 3
ÁSMUNDUR Arnarsson verður næsti þjálf-
ari 1. deildar liðs Fjölnis í knattspyrnu. Ás-
mundur hefur verið þjálfari og leikmaður
Völsungs á Húsavík síðustu tvö tímabil en
hann ákvað að hætta í haust vegna starfa
sinna á höfuðborgarsvæðinu. Hann tekur við
Grafarvogsliðinu af Steinari Ingimundar-
syni, en arftaki Ásmundar hjá Völsungi verð-
ur Zoran Daníel Ljubicic, fyrirliði bikar-
meistara Keflvíkinga.
Fjölnismenn léku í fyrsta skipti í 1. deild-
inni á síðasta tímabili en þeir komust þangað
á aðeins tveimur árum úr 3. deild. Þeir höfn-
uðu í sjöunda sætinu eftir mjög köflótt tíma-
bil þar sem þeir sátu á botninum framan af en
komust alla leið upp í annað sætið um skeið
þegar leið á sumarið.
Þá var Guðjón Ármann Guðjónsson ráðinn
þjálfari kvennaliðs Fjölnis í gær en það féll úr
úrvalsdeildinni í haust.
Ásmundur tek-
ur við Fjölni
DANSKI handknattleiksmaðurinn
Hans Lindberg, sem er af íslensku
foreldri, var á mánudagskvöldið kall-
aður inn í danska landsliðið sem tek-
ur þátt í heimsbikarmótinu í Svíþjóð.
Lindberg kom í stað örvhenta horna-
mannsins Christian Hjermind sem
er meiddur. Lindberg er næst-
markahæsti leikmaður dönsku úr-
valsdeildarinnar, er næstur á eftir
Róberti Gunnarssyni. Lindberg hef-
ur leikið 11 landsleiki og skorað 25
mörk.
TVEIR íslenskir handknattleiks-
menn verða í eldlínunni í 16 liða úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu í
handknattleik, en dregið var í gær.
Logi Geirsson og félagar í Lemgo
drógust gegn rússneska liðinu Chek-
ovski Medvedi Chekhov. Ciudad
Real, lið Ólafs Stefánssonar, mætir
danska liðinu GOG Gudme. Fyrri
leikirnir fara fram 4. eða 5. desember
og þeir síðari viku seinna.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson og
samherjar hans í þýska liðinu Essen
drógust gegn RK Rednicki Subotica
frá Serbíu-Svartfjallalandi í 16 liða
úrslitum EHF-keppninnar í hand-
knattleik, en dregið var í gær.
DAGUR Sigurðsson og lærisvein-
ar hans hjá A1 Bregenz HB frá Aust-
urríki leika við Pallamano Secchia
frá Ítalíu, einnig í 16 liða úrslitum
EHF-keppninnar í handknattleik.
ALFREÐ Gíslason, þjálfari þýska
liðsins Magdeburg, leikur við Rok-
ometo Drustvo Termo frá Slóveníu í
16 liða úrslitum EHF-keppninnar.
Með Magdeburg leika íslensku
landsliðsmennirnir Arnór Atlason og
Sigfús Sigurðsson.
DANÍEL Ragnarsson, leikmaður
danska liðsins FCK Håndbold frá
Kaupmannahöfn, mætir ásamt sam-
herjum sínum Vardar Vatrost frá
Makedóníu í 16 liða úrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa, sömu keppni
og Haukar eru í.
SÆVAR Eyjólfsson knattspyrnu-
maður sem leikið hefur með Haukum
í 1. deildinni undanfarin ár og þar
áður Njarðvík er genginn til liðs við
úrvalsdeildarlið Þróttar. Sævar er 26
ára gamall framherji sem hefur leikið
með Haukum undanfarin þrjú ár og
hefur skorað 19 mörk í 37 leikjum.
Sævar er annar Haukamaðurinn sem
á skömmum tíma gengur í raðir
Þróttara en varnar- og miðjumaður-
inn Edilon Heinsson skipti yfir til
Þróttara á dögunum.
DAVID Moyes, knattspyrnustjóri
Everton, fær 10 milljónir punda til
leikmannakaupa þegar leikmanna-
markaðurinn verður opnaður á nýjan
leik í janúar. James Beattie, fram-
herji Southampton, miðjumaðurinn
Scott Parker hjá Chelsea og norski
varnarmaðurinn Brede Hangeland
hjá Viking Stavanger eru á óskalista
Moyes.
FÓLK
Snæfellingar byrjuðu mun beturog voru mun beittari á öllum
sviðum. Þeir voru mjög hreyfanlegir
og spiluðu mjög
sterka vörn. Njarð-
víkingar lentu
snemma í miklu basli
með sóknarleik Snæ-
fells. Njarðvíkingar reyndu fyrir sér
í 2:3 svæðisvörn en hún gekk ekki
betur en svo að það opnaðist fyrir
skyttur Snæfells sem hittu ágætlega
fyrir utan.
Á þessum tímapunkti fékk Friðrik
Stefánsson, miðherji Njarðvíkinga,
sína þriðju villu og var skipt útaf og
inn kom Halldór Karlsson. Eftir að
hann var búinn að vera inn á í þrjár
mínútur fékk hann dæmda á sig
klaufalega villu, mótmælti dómi
Kristins Óskarssonar harðlega og
fékk dæmda á sig tæknivillu. Ekki
róaðist Halldór og spurði dómarann
hvort það væri ekki allt í lagi með
hann. Kristinn gaf honum þá aðra
tæknivillu og jafnframt brottrekstur
út úr húsi.
Pierre Green, leikstjórnandi liðs
Snæfells, spilaði glimrandi vel og átti
góð gegnumbrot sem skiluðu annað-
hvort körfu eða stoðsendingu.
Í seinni hálfleik byrjuðu Njarðvík-
ingar með pressuvörn sem leikmenn
Snæfells leystu mjög vel. Þar var
Desmond Peoples fremstur í flokki
en hann skoraði grimmt undir körf-
unni og hirti fráköst ásamt því að
loka vítateignum í vörninni.
Það var ekki fyrr en um sjö mín-
útur voru eftir sem vörn Njarðvík-
inga fór að smella saman. Snæfell-
ingar skoruðu ekki í fimm mínútur
og leikmenn Njarðvíkur virtust vera
að snúa dæminu við og stela sigr-
inum. Þeir áttu tækifæri til þess á
lokasekúndunum en þriggja stiga
skot Guðmundar Jónssonar geigaði.
„Við lögðum upp með að spila
vörnina vel. Það gekk mjög vel upp,
en undir lokin var þetta mjög tæpt
og við skoruðum ekki stig í um fimm
mínútur en mér fannst það vera að-
allega þreyta hjá okkur sem fór með
okkur á lokamínútunum, annars
fannst mér við allan tímann stjórna
leiknum,“ sagði Bárður Eyþórsson,
þjálfari Snæfells.
„Við mættum engan veginn tilbún-
ir í þennan leik og uppskárum eins
og við sáðum, spiluðum lélega vörn
og vorum ekki nógu ákveðnir að
reyna að taka áhættu í sókninni. En
þessi leikur er búinn og við megum
ekki nudda okkur uppúr þessu því
það er erfitt verkefni framundan hjá
okkur á föstudag,“ sagði Einar Árni
Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur.
KFÍ enn án stiga
Ísfirðingar voru neðstir í deildinnifyrir leikinn stigalausir en ÍR-
ingar með 4 stig í 9. sæti. KFÍ er enn
án stiga, tapaði
100:122. ÍR-ingar
pressuðu allan völl-
inn í upphafi leiks en
það olli heimamönn-
um ekki miklum vandræðum. Fyrsti
leikhluti var í alla staði jafn og stað-
an eftir fyrsta leikhluta var 24:22.
Heimamenn komu ákveðnir til leiks í
öðrum leikhluta og voru alltaf einu
skrefi á undan ÍR nánast allan annan
leikhlutann. ÍR-ingar náðu þó góð-
um spretti rétt fyrir leikhlé og voru
tíu stigum yfir í hálfleik.
ÍR, með Theo Dixon í fararbroddi,
byrjaði seinni hálfleikinn vel og voru
Breiðhyltingar komnir með 15 stiga
forskot um miðbik þriðja leikhluta.
Ísfirðingar náðu þó aðeins að rétta
sinn hlut og munurinn var kominn
niður í þrjú stig. Þá tók Theo Dixon
til sinna ráða og lét tvö 3ja stiga skot
ofan í og munurinn 9 stig fyrir loka
fjórðunginn.
Í þeim hluta datt öll leikgleði og
barátta úr KFÍ-mönnum. Vörnin var
arfaslök og skotin duttu ekki. ÍR-
ingar skoruðu 24 stig á móti 8 stigum
heimamanna og úrslit leiksins ráðin.
Fjölnir hafði betur
í nýliðaslagnum
Fjölnismenn höfðu betur gegnhinum nýliðunum í deildinni í
gær, þegar þeir lögðu Skallagrím
87:72 í Grafarvoginum. Borgnesing-
ar byrjuðu þó betur í gær þrátt fyrir
að þeir kæmu seint til leiks vegna
ófærðar. Þeir náðu átta stiga forystu
í upphafi en Fjölnismenn náðu þá
góðum kafla, gerðu 18 stig gegn
tveimur og eftir það var ekki snúið til
baka. Fjölnir var sterkara liðið að
þessu sinni. Darrel Flake lék mjög
vel hjá Fjölni í gær og sigur liðsins
var sanngjarn.
Snæfell
stöðvaði
Njarðvík
NJARÐVÍKINGAR töpuðu í gærkvöld fyrsta leik sínum á þessu tíma-
bili í úrvalsdeildinni í körfuknattleik þegar þeir tóku á móti Snæfelli
í sjöundu umferð. Snæfell sigraði með tveggja stiga mun, 83:81,
eftir að hafa verið yfir allan leikinn, mest með 18 stiga mun. ÍR gerði
góða ferð á Ísafjörð og Fjölnir vann nýliðaslaginn gegn Skallagrími.
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
Gunnar Atli
Gunnarsson
skrifar
NÚV
móti
líkin
en sa
ur m
Upp
deild
ferð
sem
brey
og a
lokn
kepp
heim
Laug
Ei
að þ
þeirr
með
þess
væri
utan
Þa
hand
andi
lagi
tveim
deild
við ú
verið
er vi
verja
kepp
sem
móti
arm
sem
lag s
hver
gríp
B
DANIR unnu mjög öruggan sigur á heims- og Ólympíumeisturum
Króata, 29:23, í heimsbikarkeppninni í Svíþjóð í gær. Þeir voru
yfir í hálfleik, 15:7, og Króatar náðu ekki að minnka muninn
nema í fjögur mörk í seinni hálfleik.
Michael V. Knudsen skoraði 8 mörk fyrir Dani, Lars T. Jörgen-
sen 5, Lars Christiansen 4 og Sören Stryger 4. Mirza Dzomba
skoraði 8 mörk fyrir Króata og þeir Ivano Balic, Davor Domin-
ikovic, Goran Sprem og Petar Metlicic gerðu 3 mörk hver.
Svíar og Slóvenar skildu jafnir, 31:31. Slóvenar voru yfir nær
allan leikinn, 17:13 í hálfleik, og Svíar náðu forystunni í fyrsta
sinn undir lokin, 29:28. Þeir voru með boltann síðustu hálfu mín-
útuna en náðu ekki að tryggja sér sigurinn.
Marcus Ahlm skoraði 7 mörk fyrir Svía, Johan Pettersson og
Kim Andersson 5 hvor. Siarhei Rutenka skoraði 9 mörk fyrir
Slóvena og Vid Kavticnik 5.
Frakkar sigruðu Ungverja, 26:23, í riðli Íslands. Frakkar voru
sterkari og höfðu yfirhöndina allan tímann. Christophe Kempe
skoraði 5 mörk fyrir Frakka, Jeromé Fernandez 4 og Daniel
Narcisse 4. Gyula Gaúl og Attila Vadkerti skoruðu 5 mörk hvor
fyrir Ungverja.
Danir fóru létt með
Króatana í Svíþjóð