Morgunblaðið - 17.11.2004, Side 4
ÁSGEIR Örn Hallgrímsson,
Haukum, varð í 9.–12. sæti
yfir markahæstu leikmenn í
riðlakeppni Meistaradeild-
arinnar í handknattleik. Ás-
geir Örn skoraði 39 mörk eins
og Jonas Larholm, Sävehof,
Pete Kust, Karvina og Sebast-
ian Seifert, Kolding. Siharei
Rutenka og Carlos Perez,
Celje Lasko, urðu markahæst-
ir með 52 mörk.
Ásgeir Örn
í 9.–12. sæti
Breyttar áherslur í varnarleikn-um var það fyrsta sem menn
tóku eftir í leik liðsins, nú var gengið
út í skytturnar í 3:3-
vörninni og 6:0-vörn-
in sem einkennt hef-
ur íslenska landsliðið
undanfarin misseri
hefur verið lögð til hliðar – að sinni.
„Við gerðum of mörg tæknileg mis-
tök í leiknum en ég var mjög ánægð-
ur með baráttuna í liðinu. Það var
eitt af aðalatriðum leiksins að menn
stæðu vaktina 100% og það gerðu
þeir svo sannarlega,“ segir Viggó.
Hann var ánægður með 3:3-vörn-
ina og taldi varnarleikinn hafa staðið
fyrir sínu. „Það sem gerði gæfumun-
inn að þessu sinni var að við vorum
ekki nógu fljótir aftur í vörnina eftir
að hafa misst boltann frá okkur. Við
gættum ekki að okkur í þeim tilvik-
um og síðan fengum við á okkur
mörk eftir aukaköst. En það verðum
við að fara yfir fyrir leikinn gegn
Frökkum. Ungverjar eru með frekar
ungt og óreynt lið og þar eigum við
góða möguleika en við skulum ekk-
ert fara að velta því of mikið fyrir
okkur hvað muni gerast. Næsti leik-
ur er gegn Frökkum og við byrjum
strax að undirbúa okkur fyrir hann.“
Í gegnum tíðina hafa hraðar sókn-
ir einkennt lið sem Viggó Sigurðsson
hefur þjálfað en að þessu sinni var
lítið um þau tilþrif. Í fyrri hálfleik
skoraði íslenska liðið ekkert mark úr
hraðaupphlaupi en í síðari hálfleik
skoraði liðið fjögur slík mörk. „Við
fengum á okkur átta mörk úr hraða-
upphlaupum og viljum að sjálfsögðu
skora fleiri mörk en fjögur úr slíkum
upphlaupum. Menn hlupu ekki í eyð-
urnar með réttum hætti og voru ekki
nógu ákveðnir að fara alla leið í þess-
um færum. Ég mun leggja meiri
áherslu á útfærslu hraðaupphlaupa
fyrir næstu leiki okkar.“
Fyrir keppnina hafði Viggó gert
sér vonir um að vinna Þjóðverja og
ná alla leið í undanúrslit með hið
unga og breytta lið Íslands. „Ég geri
miklar væntingar til liðsins og það
gera leikmenn liðsins einnig. En
þegar á heildina er litið var ekki allt
sem féll okkur í hag í þessum leik.
Mistökin voru of mörg í sókninni og
við vorum of lengi aftur í vörnina.“
Hann taldi dómara leiksins hafa
komist vel frá sínu en að venju voru
nokkur atriði sem féllu í grýttan
jarðveg. „Það voru 1-2 atriði undir
lok leiksins þar sem þýska liðið fékk
að njóta vafans. Líklega vegna virð-
ingar sem þeir hafa í handknattleiks-
heiminum. En svona er þetta bara og
ekkert við þessu að gera.“
Fyrir leikinn hafði Viggó lagt þrjú
sóknarkerfi fyrir liðið og taldi hann
að sóknarleikurinn hefði gengið
ágætlega miðað við undirbúnings-
tíma. „Við skoruðum mikið utan af
velli úr langskotum. Einar Hólm-
geirsson og Markús Máni Mich-
aelsson voru ógnandi. Dagur Sig-
urðsson stjórnaði leiknum vel er
hann var í sókninni á sínum stað.
Sem leikstjórnandi, hann átti stoð-
sendingar og skoraði ágæt mörk, en
tók nokkur ótímabær skot. Róbert
Gunnarsson var að venju kraftmikill
á línunni og hann stóð sig mjög vel.
Það gekk ekki nógu vel að virkja
hornamenn liðsins að þessu sinni en
það mun bara lagast í næstu leikjum.
Ekki spurning. Það eru mörg atriði
sem þarf að laga sem geta fleytt okk-
ur í gegnum svona leik,“ sagði Viggó.
Viggó Sigurðsson var ánægður með vörnina og baráttuna í fyrsta leik sínum
Gerðum of mörg
tæknileg mistök
Ljósmynd/Mattias Nääs
Róbert Gunnarsson, línumaðurinn sterki, var útnefndur besti leikmaður íslenska liðsins gegn
Þýskalandi af sérstakri dómnefnd. Hér er hann að skora eitt af sjö mörkum sínum í leiknum.
VIGGÓ Sigurðsson var ekki líkur
sjálfum sér í fyrri hálfleik er
hann stjórnaði íslenska
A-landsliðinu í fyrsta sinn á ferl-
inum, gegn Þjóðverjum, í riðla-
keppni í heimsbikarmótinu,
World Cup, í Borlänge í Svíþjóð.
Landsliðsþjálfarinn var afar ró-
legur á hliðarlínunni en vaknaði
síðan til lífsins er leið á leikinn.
Hafði skoðanir á dómgæslunni,
setti þær skoðanir fram með ró-
legum hætti og kom skilaboðum
áleiðis til sinna manna. „Ég held
að ég hafi ekki sett mig í aðrar
stellingar sem landsliðsþjálfari
á hliðarlínunni. Ég upplifði leik-
inn eins og ég væri að stjórna
hverju öðru handboltaliði. Þetta
voru strákarnir mínir og þeir
stóðu sig að mínu mati bara
nokkuð vel gegn Evrópumeist-
araliðinu,“ sagði Viggó eftir
29:28-tap íslenska liðsins.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
frá Borlänge
KÁRI Steinn Karlsson, hlaupari úr
UMSS, varð í sjötta sæti í flokki 19
ára og yngri á Norðurlandameistara-
mótinu í víðavangshlaupi sem fram
fór í Ejby í Danmörku á sunnudag.
Kári hljóp vegalengdina sem var 6,6
km á 21,41 mínútu og var 22 sekúnd-
um á eftir Joel Lewis Johnsson frá
Svíþjóð sem kom fyrstur í mark í
þessum flokki sem 19 keppendur
tóku þátt í.
DANINN Ebbe Sand er búinn að
framlengja samning við þýska liðið
Schalke um eitt ár en búið var að
gera því skóna að dagar hans hjá fé-
laginu væru taldir í vor. Ralf Ragnic,
þjálfari Schalke, lagði hins vegar
hart að stjórn félagsins að gera við
Sand nýjan saming. Sand, sem er 32
ára gamall, gekk í raðir Schalke frá
Bröndby árið 1999. Hann hefur spil-
að 165 leiki fyrir félagið og gert í
þeim 64 mörk.
JOE Cole dró sig út úr enska
landsliðinu í knattspyrnu í gær vegna
veikinda. Sven Göran Eriksson kall-
aði ekki á annan leikmann í stað
Coles en enska landsliðið mætir
Spánverjum í vináttulandsleik í
Madrid í kvöld.
JERZY Dudek segist reikna með
því að yfirgefa Liverpool í janúar hafi
honum ekki tekist að endurheimta
stöðu sína sem fyrsti markvörður
liðsins fyrir þann tíma. Dudek segir
það ekki verða auðvelt að yfirgefa
Liverpool komi til þess en hann verði
að hugsa um stöðu sína auk þess sem
hann verði ekki aðalmarkvörður
pólska landsliðsins á meðan hann er
varamarkvörður hjá Liverpool.
DUDEK segist líka betur undir
stjórn Rafels Benítez en hjá forvera
hans, Gerard Houllier. „Benítez er
alls ekki slæmur knattspyrnustjóri
en það var Houllier. Hann beið eftir
að ég gerði mistök svo hann gæti
réttlætt það að setja mig út úr liðinu
á kostnað Chris Kirkland,“ segir
Dudek.
ROBERT Pires, leikmaður Arsen-
al, hefur beðið franska knattspyrnu-
sambandið og einn helsta styrktar-
aðila þess, Adidas, afsökunar á því að
hafa verið í búningi frá öðrum
íþróttavöruframleiðanda þegar hann
æfði með franska landsliðinu fyrir
landsleiki í haust. Uppátæki Pires
fór mjög fyrir brjóstið á forráða-
mönnum franska knattspyrnusam-
bandsins og var ein ástæða þess að
Pires var ekki valinn í landsliðið á
dögunum.
HENRIK Larsson hefur verið út-
nefndur knattspyrnumaður ársins í
Svíþjóð og fékk afhentan gullboltann
sem fylgir sæmdarheitinu. Þetta er í
annað sinn sem Larsson verður fyrir
valinu en hann var útnefndur sá besti
árið 1998.
DENNIS Rommedahl, danski
landsliðsmaðurinn í herbúðum
Charlton, er allt annað en ánægður
með þá ákvörðun knattspyrnustjór-
ans Alans Curbishley að velja hann
ekki í leikmannahópinn í síðustu fjór-
um leikjum.
FÓLK
Gestirnir af Suðurlandinu tókufrumkvæðið strax en jafnræði
var þó lengstum í fyrsta leikhluta.
Þegar tvær mínútur
voru til loka leikhlut-
ans tóku Hamars-
menn öll völd áttu
fjórar síðustu körf-
urnar og munaði þá átta stigum.
Hamarsmenn héldu uppteknum
hætti í öðrum leikhluta og fyrstu
fjórar mínúturnar náðu heimamenn
ekki að skora, en gestirnir léku á als
oddi og áður en Stólarnir komust á
blað var staðan orðin 18:37. Þá virt-
ust heimamenn loksins ranka við sér
og fóru nú loks að hitta úr skotunum
og náðu að klóra í bakkann þannig að
átta stig skildu liðin að í hálfleik.
Sami barningur hélst í þriðja leik-
hluta en undir lok hans komu Svavar
og Fletcher sterkir inn og við lok
hlutans skildi liðin eitt stig. Í fjórða
leikhluta fór Chris Woods á kostum í
liði Hamars/Selfoss, ásamt Bailey og
þrátt fyrir að Nikola Sverkovic færi
loks í gang í liði Tindastóls nægði
það ekki og Sunnlendingar lönduðu
sanngjörnum sigri, og fóru með dýr-
mæt stig í farteskinu heim.
Í liði Tindastóls báru Svavar og
Fletcher hita og þunga dagsins og
Sverkovic vaknaði í fjórða leikhluta,
varnarleikur liðsins var slakur, og
sóknin ráðleysisleg og skotnýting
ekki góð.
Í liði Hamars/Selfoss voru Bailey
og Woods yfirburðamenn, en Svavar
Páll Pálsson og Marvin Valdimars-
son börðust vel og áttu ágætan dag.
Dýrmæt stig til
Hamars/Selfoss
ÁHORFENDUR í íþróttahúsinu á Sauðárkróki hafa oft orðið vitni að
skemmtilegri og betri leik heimamanna en þeir sáu í gærkvöldi
þegar Tindastóll tapaði 82:93 fyrir Hamri/Selfossi í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, Intersportdeildinni.
Björn
Björnsson
skrifar