Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 1
18. nóvember 2004 Frá hugmynd að fullunnu verki Plötusmíði Hönnun:GísliB. Gæði - Öryggi - Þjónusta Ný DHB-dælulína frá Iron Pump Sérhannaðar til notkunar til sjós Leitið nánari upplýsinga Danfoss hf Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími 510 4100 • www.danfoss.is IR O N D B L Rafrænar afladagbækur, samvinna um sókn inn á Rússland, íslenzk fisk- veiðistjórnunarlíkan og soðningin Landiðogmiðin Sérblað um sjávarútveg úrverinu RÆKJUIÐNAÐURINN hefur verið í mikill lægð síðustu misseri, verksmiðjum verið lokað og skip- um lagt. Rækjuverksmiðjan Dögun á Sauðárkróki hefur aftur á móti verið keyrð á fullum afköstum en hún var nýlega stækkuð og starfs- fólki fjölgað um helming. Þröstur Friðfinnsson, framkvæmdastjóri Dögunar, segir reksturinn samt sem áður í járnum um þessar mundir. Rækjuverksmiðja Dögunar var stækkuð og vinnslulínan endurnýj- uð síðasta vetur. Í sumar var byrj- að að vinna á tveimur vöktum í verksmiðjunni og er nú unnið í henni í 16 klukkustundir á sólar- hring. Að sögn Þrastar kallaði þetta á fleira starfsfólk og voru um 20 manns ráðnir til starfa í sumar og haust en alls vinna nú vel yfir 40 manns hjá Dögun, í u.þ.b. 35 stöðugildum, að stærstum hluta heimafólk. „Endurnýjunin var dýr og því þarf að nýta tækin vel. Það er hröð þróun í tækjabúnaði fyrir rækjuvinnslu og vélarnar úreldast hvort sem þær eru notaðar eða ekki. Við ákváðum því að keyra verksmiðjuna á fullum afköstum, að minnsta kosti á meðan við höf- um aðgang að nægu hráefni.“ Margir kannast við Dögunar- rækju úr matvöruverslunum hér- lendis en langstærsti hluti fram- leiðslunnar er samt sem áður fluttur út, einkum til Bretlands, en einnig til Danmerkur og Þýska- lands. Að jafnaði er unnið úr um 40 tonnum af hráefni á dag hjá Dög- un, aðallega frosnu hráefni. Þar er fyrst og fremst um að ræða iðn- aðarræku af frystitogurum, mest af Flæmingjagrunni en einnig nokkuð úr Barentshafi. Auk þess á Dögun rækjubátinn Röst SK, en Þröstur segir að hann hafi ekki verið gerður stíft út að undan- förnu. „Það hefur verið afspyrnulé- leg rækjuveiði við Ísland síðustu mánuðina, auk þess sem tíðarfarið hefur verið slæmt. Báturinn hefur þannig verið bundinn við bryggju að undanförnu en honum hefur þrátt fyrir það ekki verið lagt. Ég á raunar von á að hann haldi á veiðar einhvern næstu daga.“ Þröstur segir að þótt verksmiðj- an sé keyrð á fullum afköstum þessa dagana sé staðan í rækjuiðn- aðinum mjög erfið um þessar mundir. „Útlitið var betra undir lok síðasta sumars og fram á haust. Afurðaverð hækkaði lítillega síðasta sumar eftir fimm ára nán- ast stöðuga verðlækkun. Í haust hélt síðan hráefnisverð áfram að hækka án þess að afurðaverð fylgdi með. Jafnframt hefur geng- isþróun krónunnar verið okkur óhagstæð, styrking hennar þýðir lægra skilaverð. Síðustu vikurnar hafa þannig verið okkur fremur erfiðar. Verksmiðjan er samt sem áður keyrð á fullum afköstum og engin áform uppi um annað,“ segir Þröstur. Verksmiðja Dögunar keyrð á fullum afköstum Starfsfólki rækjuvinnslunnar fjölgað um helming Morgunblaðið/Björn Björnsson Nóg að gera Þröstur Friðfinnsson, framkvæmdastjóri Dögunar. SJÓMENN hvílast ekki nógu vel um borð í skipum sínum en það eyk- ur hættu á slysum. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var á áhrifum hvíldar á heilsu og öryggi sjómanna. Haustið 2002 fól samgöngu- ráðuneytið fyrirtækinu Solarplexus að rannsaka þætti er varða hvíld og heilsu sjómanna á íslenskum tog- urum. Meginmarkmið rannsókn- arinnar var að fá vísbendingar um áhrif hvíldar á heilsu og slysatíðni um borð í skipum. Vaktavinna hefur samkvæmt skýrslunni áhrif á almennt heilsu- far og veldur bæði líkamlegu og andlegu álagi, einkum hjá þeim sem eldri eru. Þannig eykst hætta á meltingarfærasjúkdómum, ásamt hjarta- og æðasjúkdómum eftir 20 ára vaktavinnu. Þá eru félagsleg áhrif vakta- vinnu einnig töluverð. Niðurstöður sýna að um 18% einstaklinga, sem þátt tóku í rannsókninni, höfðu fundið fyrir kvíða undanfarna sex mánuði, 33% höfðu fundið fyrir depurð og upplifað áhyggjur síðast- liðna sex mánuði sem rekja mátti til félagslegra aðstæðna. Þetta má fyrst og fremst rekja til þess að ein- staklingurinn fær í ofanálag ekki næga hvíld og er í skýrslunni fjallað nokkuð um svefnvenjur sjó- manna. Segir að svefnklefar séu jafnan of litlir og þröngir með lítilli loftræstingu. Þá segir að hávaði um borð í fiskiskipum auki andlegt álag og trufli svefn. Niðurstöður svefnmælinganna leiddu þannig í stórhluti sjómanna fær ekki nægan svefn 20% þeirra eiga við verulegar svefntruflanir að stríða (Insomnia) með tilheyrandi einkennum. Í skýrslunni segir að sjómenn vinni í mörgum tilfellum einhæfa vinnu sem hafi í för með sér viðvar- andi spennu sömu vöðva í langan tíma. Ofan á þetta bætist síðan kuldinn eða ójafnt hitastig sem eyk- ur spennuna og álagið til muna. Þá voru í rannsókninni gerðar mælingar á blóðþrýstingi, kólester- óli, blóðsykri, líkamsfitu og þoli sjó- manna. Þær leiddu í ljós að sjómenn voru í miklum meiri hluta of þungir og voru t.d. 56% með of háan blóð- þrýsting. Reykingar og kaffi- drykkja er of mikil, blóðsykur og líkamsfitustuðull of hár. Þrátt fyrir þetta sýnir rann- sóknin að um 77% sjómanna líður vel eða mjög vel í vinnu sinni. Sjómenn sofa ekki nógu vel um borð Morgunblaðið/Jim Smart REKSTRARÁRANGUR norskra sjávarútvegsfyrirtækja hefur verið lélegur síðastliðin ár og verri en ís- lenskra. Reyndar hefur árangur ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja verið mun betri en margra er- lendra sjávarútvegsfyrirtækja und- anfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Greining Íslands- banka hefur gefið út um fiskiðn- aðinn í Noregi og Íslandi. Í Noregi er nú uppi umræða um að bregðast við þessu með því að breyta löggjöfinni við stjórnun fisk- veiða í átt til meiri sveigjanleika og frjálsræðis en strangar reglur og svæðabundin stjórnun hefur staðið norska sjávarútveginum fyrir þrif- um að mati Íslandsbanka. Í þeim efnum hafa Norðmenn m.a. horft til reynslunnar hér á landi. Er t.d. rætt um að liðka fyrir framsali afla- heimilda. Segir í skýrslunni að norski sjávarútvegurinn hafi smám saman verið að færa sig í átt til kerfis með framseljanlega kvóta, líkt og er við lýði hérlendis. Norski fiskiðnaðurinn hefur gengið í gegnum miklar hremm- ingar á undanförnum árum og fjölda fiskvinnslufyrirtækja verið lokað eða þau orðið gjaldþrota. Ytra umhverfi rekstrarins hefur reynst Norðmönnum þungt í skauti, m.a. sterk staða norsku krónunnar, hátt olíuverð og skortur á hráefni. Hagnaður hefur þannig verið hverfandi í greininni til þessa. Sam- einingarferlið í norska sjávarútveg- inum hefur gengið hægt að mati Greiningar Íslandsbanka en þokast þó í rétta átt. Veiðiheimildir Norðmanna hafa aukist lítils háttar í mikilvægum tegundum á borð við þorsk, ufsa og ýsu og helstu fiskistofnar eru al- mennt taldir vel á sig komnir. Þá hefur meðalverð á lönduðum afla hækkað umtalsvert að undanförnu. Norðmenn hafa jafnframt hug á að auka áherslu sína á útflutningi ferskfisks til Evrópu. Þokast hægt í rétta átt í Noregi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.