Morgunblaðið - 18.11.2004, Qupperneq 4
%
%&%
'
%
%& '
%
%& '
%
%& '
()(
**)+
,-().
/)-
*-)/
,*/)-
.)/
0,)1
(-),
,)0
,+)-
2.)*
(
(
((
(
3
"4
54
6
6
6
0/.
00.
0..
,1.
,-.
,/.
,0.
,..
1.
,-.
,/.
,0.
,..
1.
-.
/.
0.
.
/..
*(.
*..
0(.
0..
,(.
,..
(.
.
)% * + $%,)% * -% %.+'$%$% '% *
%7
%7
%7
,-.
,/.
,0.
,..
1.
-.
/.
0.
.
%7
(
(
(
(
(
'0-,),
44
4
8 %,(%6%
0/1
%7
,1*
%7
*0*
%7
%
9:
!
'0/(), 4
8 /-%
%4
0.0)24 ,,-
%7
0,)*4 2+
%7
+
+
+
/%
*,(
0--
,-0
0*,
,2(
,/*
;
*/*
*.*
Það er ýmislegt hægt að gera þegar tæknin tekur höndumsaman við sjómenn og fiskverkendur. Tæknistig ogtækniþekking er mjög mikil hér á landi og er hægt að full-yrða að hvergi í heiminum er meiri tækni notuð í sjávar-
útvegi en á Íslandi þegar á alla þætti hans er litið. Brúin í tog-
urum og jafnvel minnstu bátunum líkist einna helzt geimskipi.
Skipstjórinn skráir allar upplýsingar um veðurfar, veiði, strauma
og allt sem honum dettur í hug að hafi áhrif á aflasældina og færir
í tölvuna. Hann getur nánast talið fiskana inn í trollið og getur
þannig varast að taka of mikið í einu. Þegar hann heldur úr höfn,
fer hann yfir upplýsingarnar í tölvu-
bankanum sínum og getur séð hvert
bezt er að fara með tilliti til veðurs,
fiskigengdar og fleiri þátta. Eftir
nokkurra ára upplýsingasöfnun ár
getur hann í rauninni látið tölvuna
segja sér hvert hann ætti helzt að
fara eftir að hún hefur tekið alla hugsanlega þætti inn í útreikn-
ingana.
Gífurleg upplýsingasöfnun hefur átt sér stað um borð í íslenzk-
um fiskiskipum og þekking skipstjóranna orðin ævintýraleg. En
það er enn hægt að bæta við og reyndar er verið að því. Fisk-
vinnslan er orðin svo tæknivædd að það liggur við að hægt sé að
skoða og meta hvern einasta fisk, hvernig bezt er að skera flökin
til að fá sem mest út úr honum. Upplýsingasöfnunin í fiskvinnsl-
unni er einnig ótrúleg. Þar vita menn býsna vel hvers þeir mega
vænta úr þorskfarmi, sem er tekinn á einhverri tiltekinni slóð,
hvort vænta megi þess að los sé í flökunum, hvert vatnsinnihald
þeirra kunni að vera og hve mikið verði af hringormi í fiskinum.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er að vinna verkefni með
nokkrum útgerðum og fiskvinnslum þar sem allir mögulegir þætt-
ir frá veiðum til vinnslu og afurðar eru kortlagðir. Þegar upplýs-
ingarnar liggja fyrir getur framleiðslustjóri í fiskvinnslu gert
áætlanir lengra fram í tímann þar sem er eiginleikar hráefnisins
eru betur þekktir. Hægt verður að bæta stjórnun á hráefni og
starfsfólki í fiskvinnslu út frá spám um eiginleika þorsks. Hægt
verður að leggja mat á ávinning og kostnað við langar siglingar á
miðin. Það er margt fleira sem hægt verður að gera og sýnir þetta
í raun ótrúlega dæmi hvað hægt er að gera þegar allir leggjast
saman á eitt.
Þetta kom fram í erindi doktors Sigurjóns Arasonar á haust-
fundi Rf í Grindavík. Þar lagði hann mikla áherzlu á samstarf
allra aðila til að bæta áreiðanleika upplýsinganna og notagildi
þeirra. Fiskifræði sjómanna var mjög oft í samræmi við niður-
stöður rannsókna. Það er sannarlega rétt að hlusta á þá. Þeir vita
vel hvað þeir eru að fást við.
BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason
Verður mikið
af ormi
í fiskinum?
Hvergi í heiminum
er notuð meiri
tækni í sjávar-
útvegi en hér
hjgi@mbl.is
GRÆNLENSKA landstjórnin
hyggst taka í notkun hagfræðilíkan
sem metur áhrif pólitískra ákvarðana
um stjórn fiskveiða á afkomu rækju-
iðnaðarins í landinu. Annar tveggja
höfunda líkansins er Hilmar Ög-
mundsson þjóðhagfræðingur.
Líkanið kallast SIMGREEN
(Shrimp Industry and Fishery Model
for Greenland) og hóf Hilmar smíði
þess sumarið 2003, að áeggjan
Christens Sørensens, prófessors við
Syddansk-háskólann í Óðinsvéum,
sem er formaður ráðgjafarnefndar
danska forsætisráðuneytisins um
efnahagsmál í Grænlandi „Sørensen
taldi mikilvægt að Grænlendingar
eignuðust verkfæri sem gæti í stórum
dráttum metið kosti og galla mismun-
andi fiskveiðistefna og áhrif þeirra á
atvinnu, verðmætasköpun og útflutn-
ingsverðmæti. Fyrsta útgáfa líkans-
ins einblínir eingöngu á rækjuiðnað-
inn, rækjuveiðar og samskipti þess
við yfirvöld. Þetta er vegna þess að
rækjan skilar í kringum 70% af heild-
ar útflutningsverðmæti Grænlands.
Hins vegar er líkanið þannig upp-
byggt að hægt er að nota það á aðrar
fisktegundir. Líkanið er fyrst og
fremst byggt á gögnum frá hinu op-
inbera, grænlensku fiskistofunni og
fyrirtækjum sem starfa í rækjuiðn-
aðinum.“
Tillit til pólítískrar stefnu
Hilmar segir líkanið frábrugðið öðr-
um hagfræðilíkunum að því leyti að
það byggist á rekstrarhagfræði en
önnur byggist jafnan á þjóðhagfræði.
„Það þýðir að öll einstök fiskiskip,
rækjuverksmiðjur og fyrirtæki
tengjast rækjuveiðum og rækjuiðn-
aðinum á beinan hátt eru notuð í út-
reikningum líkansins. Einnig er tekið
mið af þætti stjórnvalda í líkaninu, að
því leyti að hægt er að breyta núver-
andi fiskveiðistjórnun og -stefnu.
Dæmi um pólitískar stefnur sem hafa
áhrif á útreikninga líkansins eru
kvótadreifing á einstök fyrirtæki,
löndunarskylda, skattar á framleiðslu
frystitogara og styrkir til báta sem
landa ferskri rækju. Líkanið reiknar
til að mynda hvernig hagkvæmast er
að úthluta kvótanum og efnahagsleg
áhrif úthlutunarinnar á samfélagið,
með öðrum orðum hvaða samsetning
flotans er æskilegust.“
Meðal annarra útreikninga sem
hægt er að herma í líkaninu eru fisk-
veiðar, sjófrysting og ársuppgjör ein-
stakra skipa, hluta flotans eða flotans
í heild. Á sama hátt reiknar líkanið út
hráefnisöflun, framleiðslu og ársupp-
gjör einstakra eða allra rækjufyrir-
tækja í grænlenska rækjuiðnaðinum.
Jafnframt má í líkaninu finna út verð-
mætasköpun, útflutningsverðmæti
og atvinnusköpun út frá hverju ein-
stöku skipi eða rækjuverksmiðju.
Einnig er hægt að nota líkanið til að
meta opinberar fjárfestingar í rækju-
iðnaði, t.d. í tengslum við opnun nýrr-
ar rækjuverksmiðju þar sem er
vatns- og rafmagnsskortur.
„Það reynist erfitt að meta áhrif
þeirra ákvarðanna sem teknar hafa
verið í grænlensku fiskveiðistjórnun-
inni. Fram til þessa hefur atvinnu-
sköpun fyrst og fremst ráðið ákvörð-
unum og velferð landsins í heild hefur
í raun liðið fyrir það. Þess vegna hef-
ur sjávarútvegsráðuneytið og græn-
lenska landstjórnin tekið því fagn-
andi að fá í hendur verkfæri til að
meta áhrif mismunandi fiskveiði-
stjórnunar,“ segir Hilmar.
Hann segir að líkanið verði notað af
heimastjórninni til að lýsa efnahags-
legum kostum og göllum við mismun-
andi fiskveiðistjórnun og -stefnu.
„Líkanið verður sérstaklega notað til
að meta hvernig framleiðsla og kvóti
nýtist á sem hagkvæmastan hátt fyrir
grænlenska samfélagið. Einnig verð-
ur það notað til að finna hagkvæm-
ustu nýtingu framleiðslutækjanna og
áhrif hennar á framleiðslukostnað og
hagnað.
Oft á tíðum ýkja hagsmunasamtök
áhrif breytinga á fiskveiðistjórn- eða
stefnu og landstjórnin hefur látið
undan þrýstingi þeirra. Núna getur
landstjórn notað SIMGREEN til
meta áhrif breytinga óháð hagsmuna-
samtökum.“
Líkanið var kynnt fyrir skömmu í
Menningarhúsinu í Nuuk, að við-
stöddum fulltrúa fyrirtækja, stofnana
og ráðgjafarfyrirtækja. Sjávarút-
vegsráðherra Grænlands, Rasmus
Frederiksen, opnaði kynninguna en
hann tók við embætti þann sama dag.
Hilmar segir líkanið hafa fengið góð-
ar viðtökur, þó að vissulega hafi kom-
ið fram gagnrýni á það. „Við kynntum
meðal annars niðurstöður úr líkaninu
um hvað myndi gerast ef löndunar-
skylda á rækju yrði afnumin í Græn-
landi. Grófar niðurstöðurnar gefa til
kynna að verðmætasköpun myndi
aukast um um það bil 2%, útflutnings-
verðmæti um 2% en að atvinna myndi
dragast saman um kringum 6%.
Vegna margföldunaráhrifa lítur hins
vegar út fyrir að áhrif á atvinnu yrðu
mjög lítil þegar til lengri tíma er lit-
ið,“ segir Hilmar.
Líkan metur áhrif
fiskveiðistjórnunar
Grænlenska landstjórnin notar hagfræðilíkan til að meta
áhrif pólitískra ákvarðana um stjórn á rækjuveiðum
Hjálpartæki landstjórnarinnar Frá kynningu á hagfræðilíkaninu SIM-
GREEN í Nuuk í Grænlandi. F.v. Amalie Jessen, hjá grænlenska sjávar-
útvegsráðuneytinu, Hilmar Ögmundsson þjóðhagfræðingur, Rasmus
Frederiksen, sjávarútvegsráðherra Grænlands, og Morten Sommer þjóð-
hagfræðingur sem er höfundur líkanins ásamt Hilmari.
EINS og mörgum er kunnugt
varð vart við norsk-íslenska vorgots-
síld í afla skipa sem voru að veiða ís-
lensku sumargotssíldina við Aust-
firði í haust. Eftirlitsmenn Fiski-
stofu fóru eftir ábendingum
veiðimanna og tóku sýni úr þessum
afla til að meta magnið.
Mælingar leiddu í ljós að 407
tonna afli af norsk-íslenskri síld var
blandaður við hefðbundinn afla síld-
arskipanna fyrir austan land í ný-
liðnum október. Yfirleitt var vor-
gotssíldin, þ.e. sú norsk-íslenska,
aðeins 1–3% af síldarafla í einstökum
löndunum. Hæst var hlutfallið fyrst
eftir að vart var við norsk-íslensku
síldina, eða 5–15% af afla skipanna.
Ekki eru nema tæpir fjórir ára-
tugir síðan norsk-íslenska síldin gaf
40% tekna Íslendinga af vöruútflutn-
ingi. Það eru því stórtíðindi að vart
var við slæðing af norsk-íslenskri
síld við Íslandsstrendur á haustdög-
um 2004.
Það sem af er þessu ári hafa rúm 8
þúsund tonn af norsk-íslensku síld-
inni veiðst innan lögsögunnar en
þess ber þó að geta að stærstur hluti
þess afla veiddist rétt innan land-
helgislínunnar sl. vor. Síldin sem
veiddist í október var aftur á móti
skammt út af Austfjörðum og hefur
síld af þessum stofni ekki veiðst svo
nálægt landi svo áratugum skiptir. Á
síðasta ári veiddust nærri 12 þúsund
tonn innan íslenskrar lögsögu, árið
1998 veiddust nærri 26 þúsund tonn
og rúm 10 þúsund tonn árið 1995.
Alls hafa íslensk skip veitt 102
þúsund tonn af norsk-íslenskri síld
það sem af er þessu ári, þar af rúm
49 þúsund tonn við Svalbarða og tæp
45 þúsund tonn á alþjóðlegu haf-
svæði, Síldarsmugunni svokölluðu.
5–15% síldaraflans af
norsk-íslenskum stofni
SOÐNINGIN lítur nú dagsins ljós
í Verinu að nýju eftir langt hlé.
Tekið hefur verið tekið upp sam-
starf við Fylgifiska sem eru sér-
verslun með sjávarfang og munu
matreiðslumeistarar á vegum
Fylgifiska sjá lesendum Versins
fyrir uppskriftum að góm-
sætum fiskréttum næstu
vikurnar. Hér er fyrsta
uppskriftin frá Fylgi-
fiskum. Steinbítur varð
fyrir valinu. Sveinn
Kjartansson, yfirkokk-
ur Fylgifiska, er höf-
undur þessarar upp-
skriftar, en hún er
ætluð fjórum.
1 kg steinbítur
1 hvítlauksrif
1 sítróna
2 dl tamarínsósa
1 lítil engiferrót
1 stk. rauðlaukur
1 búnt vorlaukur
2 bollar baunaspírur
2 stk. kaffírblöð
salt og pipar
smáhveiti
olía til steikingar.
Skerið steinbítinn í steikur.
Hreinsið og brytjið hvítlaukinn og
engiferið, rífið börkinn af sítr-
ónunni. Kreistið saf-
ann úr sítrónunni
og blandið saman
við tamarínsós-
una. Veltið stein-
bítnum upp úr
hveitinu og steikið í
olíunni í um 2 mín-
útur á hvorri hlið. Flysjið
og sneiðið rauðlaukinn og bætið
honum út á pönnuna. Saxið kaffír-
blöðin og setjið út á pönnuna ásamt
tamarínsósunni, látið suðuna koma
upp og takið af hitanum saxið vor-
laukinn og bætið honum út í ásamt
baunaspírunum. Berið fram með
t.d. hrísgrjónum og salati.
SOÐNINGIN | Sveinn Kjartansson
Steinbítur með
tamarín og sítrónu