Morgunblaðið - 27.11.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.11.2004, Blaðsíða 1
2004  LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A RÆTT VIÐ ÁRNA GAUT ARASON Í ÓSLÓ / C2,C3 RÓBERT Sighvatsson, hand- knattleiksmaður með þýska 1. deildarliðinu Wetzlar, varð fyrir því óláni að brjóta þumalfingur hægri handar í leik gegn inu Flensburg. Hann verður frá keppni næstu vikurnar og þar með er ljóst að hann er ekki val- kostur fyrir Viggó Sigurðs- son þegar hann velur lands- liðshópinn sem leikur á HM í Túnis í janúar. „Ég er að vona að ég verði ekki lengur frá en í fjórar til sex vikur en maður veit samt aldrei. Það fer allt eftir því hvernig brotið grær,“ sagði Róbert við Morgunblaðið í gærkvöld, nýkominn af skurðarborð- inu. Róbert brotnaði á sama fingri í byrjun nóvember á síðasta ári í landsleik á móti Pólverjum og var þá frá æf- ingum og keppni í sex vikur. Þetta gekk bara vel og ég er mjögánægður með þann árangur sem ég náði. Hann er sá besti sem ég hef náð á ferlinum,“ sagði Björgvin í samtali við Morgunblaðið í gær þar sem hann var staddur í Kaupmanna- höfn á leið til Finnlands. Mótið í Hollandi var sérstakt fyrir þær sakir að keppt var undir þaki, í Landgraaf-skíðahöllinni. „Það var rosalega gaman að keppa í þessari höll. Umgjörðin var til fyr- irmyndar og mikið af áhorfendum sem fylgdust með. Þetta er í fyrsta sinn sem mót er haldið innandyra og ég held að þetta eigi eftir að færast í vöxt. Þetta var nánast eins og frysti- klefi. Snjónum var dælt í brekkuna með sérstökum byssum og svo voru sérstakir frystiblásarar uppi í lofti hallarinnar,“ sagði Björgvin. Björgvin keppir á tveimur stór- svigsmótum í Evrópubikarnum sem haldin verða í Finnlandi á miðviku- dag og fimmtudag – bæði að kvöld- lagi í fljóðljósum. Eftir mótin í Finn- landi liggur leiðin til Austurríkis þar sem hann verður við æfingar fram til jóla. Björgvin, sem er 24 ára gamall, náði ekki að ljúka keppni á fyrsta heimsbikarmótinu sem haldið var í Sölden í Austurríki í síðasta mánuði en hann vonast til að keppa á fleiri slíkum mótum í vetur. „Ég fór því miður á hausinn í fyrri ferðinni í Sölden en ég stefni á að keppa á fleiri heimsbikarmótum. Ég hef aldrei verið eins vel upplagður og núna. Ég undirbjó mig mjög vel í sumar, bæði andlega og líkamlega og það var gott fyrir sjálfstraustið að ná þessum góða árangri í Hollandi,“ sagði Björgvin en þjálfari hans er Jamie Dunlop frá Ástralíu. „Hann hefur verið þjálfari minn í eitt og hálft ár og ég er mjög ánægður með hann.“ Kristinn Björnsson er eini Íslend- ingurinn sem sigrað hefur á Evrópu- bikarmóti og hefur komist á pall í heimsbikarnum en Kristinn varð að leggja skíðin á hilluna fyrir nokkrum árum vegna erfiðra meiðsla. „Kristinn náði frábærum árangri og ég stefni auðvitað að því að gera svipað og hann. Ég á nóg eftir og á líka eftir að bæta mig heilmikið.“ Róbert brotinn Morgunblaðið/Kristján Björgvin Björgvinsson frá Dalvík verður á ferðinni í Finnlandi í næstu viku. Vel upplagður DALVÍKINGURINN Björgvin Björgvinsson tekur þátt í tveimur stór- svigsmótum í Evrópubikarnum á skíðum í Finnlandi í næstu viku. Þar vonast hann til þess að fylgja eftir góðum árangri sínum í Hol- landi á fimmtudaginn, er hann varð fimmti í svigi í keppni innan- húss í Landgraaf, en það er jafnframt annar besti árangur íslensks skíðamanns á Evrópubikarmóti frá upphafi. ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL Körfu- knattleikssambands Íslands, KKÍ, hefur dæmt að úrslit leiks Fjölnis og Hauka úr 1. umferð Intersport- deildarinnar skuli standa óhögg- uð. Haukar kærðu framkvæmd leiksins eftir að leikklukka í íþróttahúsi Grafarvogs hafði bilað á lokakafla leiksins er Haukar skoruðu að því virtist sigurkörfu leiksins. En dómarar leiksins dæmdu körfuna ekki gilda. Áfrýjunardómstóllinn snýr því dómi dómstóls KKÍ sem áður hafði dæmt að leikurinn skyldi leikinn á ný. Í dómnum kemur ma. fram eft- irfarandi: „Í dómi í máli þessu verður ekki lagt mat á réttmæti þeirrar ákvörðunar dómara sem mál þetta er sprottið af. Í hverjum leik taka dómarar margar matskenndar ákvarðanir sem ekki verða endur- skoðaðar af dómstólum Körfu- knattleikssambands Íslands. Mis- tök, sem dómarar kunna að gera eru hluti af leiknum og verða ekki leiðrétt eftir á. Hin umdeilda ákvörðun dómara var hluti af þeim leik sem lið aðila háðu 7. október síðastliðinn og verður ekki við henni hróflað. Samkvæmt framansögðu er það niðurstaða dómsins að úrslit leiks- ins skuli standa.“ Úrslit úr leik Fjölnis og Hauka standa óhögguð ÁSGEIR Örn Hallgrímsson, lands- liðsmaður í handknattleik og leik- maður Hauka, verður frá æfingum og keppni næstu þrjá mánuðina. Ásgeir gekkst undir aðgerð á hendi í vikunni en vitað var að bátsbein hægra handar var brotið og því ekki spurning hvort heldur hvenær hann þyrfti að fara í aðgerð. „Ég ákvað bara að drífa í þessu og ef allt gengur að óskum þá ætti ég að verða klár um mánaðamótin febrúar mars. Aðgerðin tókst að óskum og nú er bara að vona að beinið grói vel saman. Ég vildi ekki bíða með að fara í aðgerðin fram yfir Evrópuleikina með Haukunum. Ég er í háskólanum og það hefði verið ómögulegt að vera í þessu mikla gifsi sem ég er í þegar prófin fara af stað,“ sagði Ásgeir Örn við Morgunblaðið. Ásgeir missir því af HM í Túnis. „Auðvitað er það svekkjandi en maður verður að velja og hafna. Óli Stefáns verður með svo ég hef ekki áhyggjur.“ Ásgeir Örn frá í þrjá mánuði STUÐNINGSMENN ítalska knattspyrnuliðsins Lazio tóku leikmanninn Pierre Boya fyrir í leik liðsins gegn Partizan Belgrad í UEFA- keppninni á fimmtudaginn og sýndu merki um kynþáttafordóma. En Boya er frá Kamerún. Það verður hlutverk UEFA og FIFA að rann- saka málið enn frekar en atvikið kemur í kjöl- farið á umræðu um kynþáttafordóma sem áttu sér stað í landsleik Spánverja og Englendinga og síðar í viðureign spænska liðsins Real Madr- id og Bayer Leverkusen í Meistaradeild Evr- ópu. Dwight Yorke leikmaður Birmingham varð fyrir barðinu á fyrrverandi stuðningsmönnum sínum í Aston Villa á dögunum. Pierre Boya skoraði bæði mörk Partizan Belgrad í 2:2 jafntefli liðsins gegn Rómarliðinu og var stöðugt verið að hreyta í hann blótsyrð- um vegna húðlitar hans. Í hvert sinn sem hann kom við knöttinn í fyrri hálfleik gaf stór hópur stuðningsmanna frá sér hljóð sem áttu að líkj- ast þeim hljóðum sem apar gefa frá sér. Lazio hefur áður verið í kastljósinu vegna slíkra mála og hafa stuðningsmenn liðsins ver- ið þekktir fyrir slíka hluti í gegnum árin. Fé- lagið má búast við hörðum viðbrögðum frá Al- þjóða knattspyrnusambandinu, UEFA. Kynþáttafor- dómar í brenni- depli á ný í Róm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.