Morgunblaðið - 27.11.2004, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 C 3
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik á ekki lengur mögu-
leika á að komast í úrslitakeppni HM
eftir tap gegn Makedóníu, 30:21, í
undankeppni HM í Póllandi í gær.
Íslenska liðið átti á brattann að
sækja en staðan í hálfleik var 20:9.
,,Stelpurnar voru langt frá sínu
besta og þetta var allt annað lið sem
ætti leiks en í fyrstu tveimur leikj-
unum,“ sagði Þór Ottesen, farar-
stjóri íslenska liðsins, við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. Ísland mætir
Tyrklandi í kvöld.
EINAR Örn Jónsson skoraði 7
mörk fyrir Wallau Massenheim sem
sigraði Wetzlar, 37:27, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gærkvöldi.
LOGI Geirsson skoraði þrjú mörk,
öll úr víti, fyrir Lemgo sem burstaði
Post Schwerin á útivelli, 36:18.
RÚNAR Sigtryggsson og læri-
sveinar hans lögðu Melsungen,
28:26, í suðurriðli 2. deildarinnar.
RAGNAR Óskarsson skoraði eitt
mark fyrir Skjern sem tryggði sér
sæti í úrslitum dönsku bikarkeppn-
innar í handknattleik annað árið í röð
með því að leggja Ajax á útivelli,
27:25, í fyrrakvöld. Jón Þ. Jóhanns-
son komst ekki á markalistann hjá
Skjern sem Aron Kristjánsson þjálf-
ar. Skjern mætir Kolding í úrslitum.
HÖRÐUR Bjarnason, knatt-
spyrnumaður úr Breiðabliki, er
genginn til liðs við Víking. Hörður,
24 ára, hefur bæði leikið sem sókn-
armaður og varnarmaður og á 14
leiki að baki í efstu deild með Breiða-
bliki, en hann lék alla leiki Kópa-
vogsliðsins í 1. deildinni í sumar.
RICCARDO Agricola, læknir
ítalska knattspyrnuliðsins Juventus
til margra ára, hefur verið dæmdur í
22 mánaða skilorðsbundið fangelsi á
Ítalíu vegna ólöglegs framferðis í
starfi. Antonio Giraudo, einn for-
svarsmanna Juventus, var hins veg-
ar sýknaður af ákæru um að hafa
dreift hormóninu EPO (erythrop-
oietine) til leikmanna liðsins. Ekki
hefur verið sannað að leikmenn liðs-
ins hafi notað EPO sem eykur magn
rauðra blóðkorna í blóðvökva og þar
með þol íþróttamannsins.
FÓLK
Reuters
Árni Gautur Arason hafði í nógu að snúast í fyrsta leik sínum með Manchester City.
Árni talar reiprennandi norsku eins og hann
i alla tíð búið í Þrándheimi. Er með hreim
m einkennir landshlutann. „Ég hef reyndar
af talað eins og sá aðili sem ég er að tala við. Í
senborg var ég mikið með Mini Jakobsen í
bergi á ferðalögum. Hann er frá Bodö og ég
aði eins og hann er við vorum að tala saman.
pti síðan um takt er ég ræddi við aðra í liðinu
m voru frá Þrándheimi. Núna er ég í Ósló og
imurinn frá Þrándheimi er að alltaf að
nnka. En Þrándheimsnorskan er ekki myllu-
inn um hálsinn, langt því frá.“
Talið berst að síðustu leikjum ís-
lenska landsliðsins; tap gegn Búlg-
aríu, Svíþjóð og markalaust jafntefli
gegn Möltu. „Vissulega eru þessi úr-
slit vonbrigði fyrir okkur sem lið. En
við getum ekki bent á eitthvað ein-
stakt atriði sem hefur farið úrskeið-
is. Ég svaf ekkert sérstaklega vel
eftir tapið gegn Búlgaríu. Við berum
fullt traust til Ásgeirs Sigurvinsson-
ar og Loga Ólafssonar. Við höfum
náð góðum úrslitum með þeim að-
ferðum sem þeir leggja upp með. Og
eigum að geta gert betur. Það hefur
alltaf verið draumurinn að komast í
úrslit á stórkeppni, það er fjarlægur
draumur núna en það er ekki nema
ár síðan við lékum úrslitaleik gegn
Þjóðverjum um eitt af efstu sætun-
um í undankeppni Evrópumótsins.
Við getum að mínu mati mun betur
og það verður okkar verkefni að
koma liðinu á kortið á ný.“
Bjargað frá gjaldþroti
Á síðustu misserum hefur Våler-
enga átt í fjárhagslegum erfiðleikum
og hefur rekstur liðsins gengið illa.
Ekki fyrir svo löngu síðan var hluta-
félagi sem stóð að rekstri félagsins
bjargað frá gjaldþroti. En Árni von-
ar að nú hafi stjórn liðsins náð tökum
á rekstrinum. „Í gegnum tíðina hef-
ur verið mikið basl á þessu liði. Hef-
ur auðugasti maður landsins, John
Fredriksen, komið liðinu til aðstoðar
hvað eftir annað, en hann er rekur
skipafyrirtæki ásamt ýmsu öðru. Ég
hef reyndar aldrei hitt Fredriksen
eða séð hann. Enda býr hann erlend-
is og kemur að ég held aldrei á leiki
liðsins.“
Lars Bohinen fyrrverandi lands-
liðsmaður og aðstoðarþjálfari liðsins
gengur inná kaffistofuna, réttir Árna
Gauti boð um að mæta í verslun fé-
lagsins og taka þar á móti samstarfs-
aðila félagsins. „Það er alltaf eitt-
hvað um að vera og menn skiptast á
um að fara í slíkar mótttökur. Ég
verð að greiða mér og brosa í tvo
klukkutíma, spjalla við fólkið. Það er
ekkert mál og bara gaman,“ segir
Árni, klárar kaffið og rýkur út á æf-
ingasvæði félagins. Útihlaup hjá úti-
leikmönnum en á meðan eru mark-
verðir liðsins á séræfingu. Það er
kalt í Ósló. Um 3 stiga hiti, langt liðið
á nóvember, en æfing liðsins fer
fram á grasvelli.
Árni Gautur veltist um í grasinu
líkt og keppinautar hans um stöð-
una. Það er ekkert gefið eftir og það
fer ekki á milli mála að stórþvottur
var framundann hjá liðsstjóranum
enda grasið blautt og gisið.
ÁRNI Gautur hefur styrkt liðið mikið
nda er hann frábær markvörður,“ sagði
Kjetil Rekdal, þjálfari Vålerenga, er
ann var að bíða eftir leikmönnum liðs-
ns á æfingasvæði félagsins. Rekdal fékk
Árna Gaut frá Manchester City en sjálf-
r var Rekdal lykilmaður í norska lands-
ðinu og atvinnuaður í Þýskalandi. Rek-
al á það til að reima á sig keppnisskóna
jálfur og lék nokkra leiki með liðinu á
eiktíðinni. „Það sem Árni Gautur gerir
yrir utan völlinn er einnig mikilvægt
yrir liðið. Hann er sannur atvinnumað-
r. Lætur verkin tala og leggur gríð-
rlega hart að sér á æfingum sem og í
eikjum. Og ekki skemmir það fyrir að
ann hefur 6 sinnum upplifað það að
era í sigurliði í norsku deildinni og get-
r því miðlað miklu til leikmanna liðs-
ns,“ sagði Rekdal og gekk um æf-
ngasvæðið og lagaði ójöfnur á vellinum
afnóðum og hann talaði.
„Ég vissi að Árni Gautur var einn sá
esti sem við gátum fengið til félagsins
g samstarfið hefur gengið vel,“ sagði
Rekdal en hann er þekktur fyrir aga og
refst þess að leikmenn liðsins mæti á
éttum tíma. Er hann tók við liðinu fyrir
úmum tveimur árum rak hann leikmenn
eim af æfingum sem mættu með illa
reitt hár og nývaknaðir á morgunæf-
ngar. „Þetta er eins og hver önnur
inna, og menn sem mæta nývaknaðir á
æfingar án þess að hafa fengið sér morg-
nmat eru ekki líklegir til þess að hafa
agn af æfingunni. Það tók ekki langan
íma að laga þessa hluti,“ sagði Kjetil
Rekdal.
Kjetil Rekdal:
„Árni er
frábær
Á Ísafirði er komin fullkomin aðstaða til knattspyrnuiðkunar.
Á Torfnesi er nýr gerfigrasvöllur við hlið grasvallarins.
Einnig er á Torfnesi stórt og gott íþróttahús. Á milli
knattspyrnuvallanna er mjög gott Vallarhús þar sem öll
félagsaðstaða félagsins er.
Á Ísafirði er gott að búa og góð aðstaða fyrir alls konar
afþreyingu.
Boltafélag Ísafjarðar óskar eftir að ráða þjálfara fyrir
meistaraflokk félagsins.
Áhugasamir hafi samband um nánari upplýsingar hjá
Kristjáni í síma 895 7171 eða kp@snerpa.is
FRÁ BOLTAFÉLAGI ÍSAFJARÐAR
Jólamót Sparisjóðs Kópavogs 2004 í knattspyrnu verður haldið dagana 27.-30.
desember næstkomandi og er keppt í öllum yngri flokkum karla og kvenna, frá 2.
flokki til 7. flokks. Breiðablik og HK halda mótið sameiginlega og fer það fram í
knattspyrnuhöllinni Fífunni, íþróttahúsinu Digranesi og íþróttahúsinu Smáranum.
Ef félög óska eftir því að senda C-lið til keppni í kvennaflokkunum og 2. og 3.
flokki karla verður efnt til keppni þar, ef þátttaka reynist næg. Hún verður þá í
Digranesi eða Smáranum. Í 2., 3., 4. og 5. flokki karla og kvenna, A- og B-liðum,
er leikið í 7 manna liðum í Fífunni. Í 2. og 3. flokki karla og kvenna er leikið á
stærstu gerð af mörkum en í 4. og 5. flokki er leikið á hefðbundna stærð af
mörkum fyrir 7 manna lið. Í 6. og 7. flokki karla og 6. og 7. flokki kvenna, ásamt
C- og D-liðum í 4. og 5. flokki karla, er leikið í Digranesi og Smáranum.
Nánari upplýsingar, leikdagar í hverjum flokki fyrir sig, reglur o.fl., eru á
heimasíðu mótsins, www.jolamot.is og fyrirspurnir má senda á
netfangið: fyrirspurnir@jolamot.is
Skráningar skal senda á netfangið: skraning@jolamot.is fyrir 6. desember.
Knattspyrnudeildir HK og Breiðabliks.
Jólamót Sparisjóðs
Kópavogs 2004
HK - KA í dag
1. deild karla í handbolta
kl. 13.30 í Digranesi
Mætum öll og styðjum okkar menn!
ÍÞRÓTTIR