Morgunblaðið - 29.11.2004, Síða 1
2004 MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SLAGSMÁL OG LÆTI Í RIMMU ÞÓRS OG FRAM/B2
BERGSVEINN Bergsveinsson, fyrrverandi
landsliðsmarkvörður í handknattleik, sem lék
með FH og Aftureldingu á árum áður, verður
aðstoðarmaður Viggós Sigurðssonar, landsliðs-
þjálfara í handknattleik. Þeir félagar sátu sam-
an á leik HK og KA á laugardaginn í Digranesi
og báru saman bækur sínar.
Viggó hafði samband við Bergsvein, sem
svaraði kallinu. Bergsveinn hefur mikla
reynslu sem markvörður – var lengi vel í hópi
bestu markvaða Íslands og lék 148 landsleiki á
árunum 1990 til 2001.
Bergsveinn var þekktur fyrir, þegar hann
var upp á sitt besta í markinu, hvað hann las
leikinn vel og hvernig hann kortlagði mótherja
sína. Bergsveinn átti stóran þátt í að Ísland náði
fimmta sætinu á HM í Kumamoto 1997. Hann er
góður liðsstyrkur fyrir Viggó og landsliðið.
Bergsveinn
aðstoðar Viggó
Í leik liðsins í gær gegn Keflavík í32-liða úrslitum bikarkeppni
KKÍ og Lýsingar var Ingvaldur
Magni Hafsteinsson fyrir utan lið-
ið. Desmond Peoples frá Banda-
ríkjunum var utan við liðið í leik
liðsins gegn ÍR í Intersportdeild-
inni sl. fimmtudag.
„Það er ljóst að gerð voru mis-
tök af okkar hálfu hvað varðar
túlkun á reglugerðinni og KKÍ
mun úrskurða endanlega á morgun
(í dag) hvert framhaldið verður.
En það er ljóst að við getum ekki
haldið áfram á þessum nótum,“
sagði Bárður en hann er ekki sátt-
ur við hvernig komið er fyrir lið-
inu.
„Þetta er leiðindamál og í raun
eigum við að geta einbeitt okkur
að því sem gerist á körfuboltavell-
inum sjálfum. En það er ekki hægt
að breyta núgildandi samningum
og við verðum því 60.000 kr. yfir
launaþakinu í hverjum mánuði þar
til að annað kemur í ljós. Það eru
fátt sem við getum gert úr þessu,“
sagði Bárður.
Spurður um hvort brugðið yrði á
það ráð að senda Bandaríkjamenn-
ina Desmond Peoples og Pierre
Green frá liðinu og ráða einn leik-
mann í þeirra stað sagði Bárður að
það væri ekki upp á borðinu eins
og staðan væri í dag. „Það er ljóst
að við þurfum að gera eitthvað. Og
það mun verða ákveðið í vikunni.“
Bárður vildi ekki meina að verið
væri að leggja liðið í „einelti“ með
þessum aðgerðum. „KKÍ er með
eftirlitsnefnd sem starfar eftir
reglugerð sem samþykkt var af fé-
lögum innan KKÍ. Við því er ekk-
ert að gera en við finnum fyrir
ákveðnum mótbyr þessa dagana.
En við munum bara eflast við
þetta mótlæti,“ sagði Bárður.
Tveir fyrir einn hjá Snæfelli?
VIÐ erum ekki búnir að finna lausn á þessu vandamáli en það er
ljóst að það þarf að gera fljótlega,“ sagði Bárður Eyþórsson þjálfari
úrvalsdeildarliðs Snæfells í gær, en á dögunum var úrskurðað að
liðið væri yfir launaþaki sem nær yfir laun og sporslur leikmanna
liðsins. Af þeim sökum þarf Bárður að setja einn leikmann liðsins út
úr liðinu í þeim leikjum sem framundan eru – til þess að vera undir
launaþakinu og með löglegt lið.skoti frá miðju á lokamínútunni.
Valsmenn byrja því vel undir stjórn
Willums Þórs Þórssonar en hann
tók nýlega við þjálfun liðsins eftir
að hafa stýrt KR-liðinu síðustu þrjú
árin.
Í kvennaflokki lagði Valur lið
Stjörnunnar í úrslitaleik, 2:0, og
þar með vörðu Hlíðarendakonur
titil sinn frá því í fyrra. Dóra María
Lárusdóttir og Nína Ósk Krist-
insdóttir gerðu mörkin fyrir Val og
komu þau bæði í síðari hálfleik.
VALUR fagnaði sigri bæði í karla-
og kvennaflokki á Íslandsmótinu í
innanhússknattspyrnu sem lauk í
Laugardalshöll í gær.
Valur hafði betur á móti KR í úr-
slitaleiknum í karlaflokki, 2:1, og
var þetta fyrsti Íslandsmeistaratit-
ill Hlíðarendaliðsins í innanhúss-
knattspyrnu síðan árið 1980. Valur
komst yfir í úrslitaleiknum með
sjálfsmarki KR-inga. Kristján Örn
Sigurðsson jafnaði með glæsimarki
þegar um fjórar mínútur voru eftir
en Ögmundur Rúnarsson mark-
vörður skoraði sigurmarkið með
Morgunblaðið/Golli
Valsmenn höfðu ríka ástæðu til að gleðjast í gær því karla- og kvennalið félagsins hömpuðu bæði Íslandsmeistaratitlinum í
innanhússknattspyrnu. Hér eru fyrirliðar liðanna, Íris Andrésdóttir og Sigurbjörn Hreiðarsson, með bikarana.
Tvöfalt hjá
Valsmönnum
■ Úrslit/B6
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í handknatt-
leik leika báða leikina á móti króatíska lið-
inu Medvescak Infosistem í 16-liða úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik í
Zagreb um næstu helgi. Haukarnir gerðu
Króötunum tilboð um að spila báða leikina á
Ásvöllum en forráðamenn Medvescak voru
ekki áfjáðir í það og úr varð að félögin kom-
ust að samkomulagi að spila í Króatíu.
Haukarnir halda utan á fimmtudag og spila
fyrri leikinn á laugardag og þann síðari
daginn eftir.
„Þetta er ekki það sem maður óskaði sér
en við verðum bara að taka þessu. Auðvitað
skerðir þetta okkar möguleika á að komast
áfram en staðan var einfaldlega sú að það
var ekkert um annað að ræða en að spila
báða leikina ytra. Bæði spilar fjárhagurinn
inn í og eins það að þrír af okkar leik-
mönnum þreyta próf í háskólanum aðra
helgina í desember og það hefði verið erfitt
fyrir þá að spila,“ sagði Páll Ólafsson þjálf-
ari Hauka við Morgunblaðið.
„Við eru hundsvekktir yfir aðsókninni á
Evrópuleiki okkar á tímabilinu og það er
ekki eins og við höfum verið að fá einhver
skítalið til landsins. Stuðningsmenn Hauka
hafa verið duglegir að mæta á leikina en
aðrir handboltaáhugamenn hafa því miður
ekki skilað sér og að sjálfsögðu hefur þetta
komið við pyngjuna hjá félaginu,“ sagði
Páll.
Páll segist ekki hafa aflað sér neinna upp-
lýsinga um lið Medvescak en hann væntir
þess að sjá myndbandsspólu af leik liðsins í
vikunni. Þetta lið er alveg örugglega mjög
sterkt. Handboltahefðin er rík í Króatíu og
Króatar eru bæði heims- og ólympíu-
meistarar.
Báðir leikir
Haukanna
í Zagreb