Morgunblaðið - 29.11.2004, Page 2

Morgunblaðið - 29.11.2004, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 B MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.  BJARNI Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Coventry sem tap- aði 1:0 á heimavelli gegn Crewe í ensku 1. deildinni.  JÓHANNES Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Leicester sem vann Plymouth á heimavelli, 2:1. Jóhannes Karl tók út leikbann en James Scowcroft og Dion Dublin skoruðu mörk Leicest- er í síðari hálfleik en Tony Capaldi kom gestunum yfir á 9. mínútu.  ÍVAR Ingimarsson var í liði Reading sem gerði 1:1 jafntefli gegn Wigan. Reading er í 4. sæti deildarinnar en Wigan er í 2. sæti.  ÓLAFUR Gottskálksson mark- vörður var á varamannabekk Torq- uay allan tímann en það tapaði á heimavelli fyrir Colchester, 3:1, í ensku 2. deildinni.  ÞÓRÐUR Guðjónsson lék allan síðari hálfleikinn fyrir Bochum sem vann 3:1 sigur á Nürnberg, 3:1.  HELGI Sigurðsson var í liði AGF sem tapaði á heimavelli fyrir Silke- borg, 3:1, í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.  TERRY Venables fyrrum þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu hefur hafnaði tilboði frá úrvals- deildarliði í Ástralíu, Newcastle United Jets. Venables stýrði ástr- alska landsliðinu í úrslit heims- meistarakeppninnar árið 1998 og hefur hann átt í viðræðum við for- ráðamenn Jets en þeim viðræðum er nú lokið.  PIERLUIGI Collina sem af mörgum er talinn besti knatt- spyrnudómari í heimi mun leggja flautuna á hilluna í lok leiktíðarinn- ar á Ítalíu. Ítalskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær og sögðu að Collina myndi hefja störf hjá ítalska knattspyrnusambandinu. Collina verður 45 ára í febrúar.  RANGERS hrifsaði toppsætið í skosku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu af erkifjöndum sínum í Celt- ic um helgina. Meistarar Celtic urðu að sætta sig við 2:2 jafntefli við Dundee þar sem Henry Camara og John Hartson skoruðu fyrir Celtic. Rangers hafði betur á móti Hearts, 3:2, þar sem Nacho Novo skoraði tvívegis og þriðja markið var sjálfsmark.  INTER gerði í gærkvöld sitt tólfta jafntefli í 14 leikjum þegar Inter og Juventus skildu jöfn, 2:2, á heimavelli Inter. Juventus komst í 2:0 snemma í síðari hálfleik með mörkum frá Pavel Nedved og Zlat- an Ibrahimovich en liðsmenn Inter neituðu að gefast upp. Varamaður- inn Christian Vieri minnkaði mun- inn á 79. mínútu og sex mínútum síðar jafnaði Brasilíumaðurinn Adriano metin fyrir Inter. FÓLK ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik hafnaði í fimmta og næst neðsta sæti í sínum riðli í und- ankeppni HM í handknattleik en riðillinn sem Ísland lék í var spil- aður í Póllandi. Íslenska liðið tapaði í lokaumferðinni í gær fyrir Pól- verjum, 26:22, en á laugardaginn höfðu íslensku stúlkurnar betur gegn Tyrkjum, 33:32, og var þetta eini sigurleikur liðsins í riðlinum. Ísland gerði jafntefli við Slóvakíu en tapaði fyrir Póllandi, Litháen og Makedóníu. „Þetta þróaðist mjög svipað og ég reiknaði með og ég er svona þokkalega sáttur við niðurstöðuna þó svo að maður vilji alltaf meira. Fyrstu tveir leikirnir á móti Slóvak- íu og Litháen voru mjög góðir. Leikurinn við Makedóníu var léleg- ur af okkar hálfu. Ég hefði viljað landa stærri sigri á móti Tyrkjum þar sem við vorum yfir 5–6 mörk megnið af leiknum og í leiknum við Pólland léku stelpurnar vel í 50 mínútur. Það var tíu mínútna kafli í byrjun seinni hálfleiks sem var slæmur og gerði útslagið,“ sagði Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið. „Þetta var mjög sterkur riðill sem við lentum í en um leið voru leikirnir mjög góður skóli fyrir stelpurnar sem nýtist vonandi í framtíðinni. Það sem háir okkar liði mest er að það vantar há- vaxnari leikmenn,“ sagði Stefán. Næsta verkefni íslenska landsliðs- ins er leikur á móti úrvalsliði Kata- lóníu í Barcelona sem fram fer á Spáni 21. desember og næsta vor hefst undankeppni EM. Ísland í næstneðsta sæti BRYNJAR Valdimarsson tryggði sér í gær sæti í 32- manna úrslitum á HM áhuga- manna í snóker í Hollandi þeg- ar hann bar sigurorð af Egyptanum Ahmed Hal með fjórum römmum gegn engum. Brynjar hefur þar með unnið sjö leiki í röð og er efstur í C- riðlinum og öruggur í 32- manna úrslit þegar tveimur umferðum er ólokið. Brynjar í 32-manna úrslit ÞEGAR riðlakeppninni í hand- knattleik, Norður- og Suðurriðli, lýkur um miðjan desember, verður farið í deildarkeppni eftir áramót, eða í febrúar – eftir HM í Túnis. Þau lið sem fara í úrvalsdeildina – fjögur efstu liðin í riðlunum tveimur, Norður og Suður, taka með sér stigin og þurfa ekki að leika innbyrðis við þau lið sem þau hafa leikið við í riðlakeppninni fyr- ir áramótin. Í úrvalsdeild fara fjög- ur efstu liðin úr hvorum riðli, hin liðin leika í 1. deild. Leikin verður tvöföld umferð, heima og að heim- an og lokastaðan ákvarðar röðun í riðla fyrir lokasprettinn. Sex efstu lið úr úrvalsdeild fara beint í úr- slitakeppnina auk þess liðs sem er í efsta sæti 1. deildar. Það lið sem er í 7. sæti úrvalsdeildar leikur við lið- ið í 2. sæti 1. deildar um áttunda sætið í úrslitakeppninni. Þar er leikið heima og heiman og sam- anlagður árangur gildir. Haukar, KA, HK, Fram og Þór berjast um sætin fjögur í Norð- urriðlinum, en í Suðurriðlinum er víst að ÍR og Valur komist í úrvals- deildina. Víkingur, ÍBV og Grótta/ KR berjast um hin tvö sætin.  Sjá stöðuna í riðlunum á B6. Úrslitakeppnin Útsláttarkeppni verður í vor um Íslandsmeistaratitilinn, þannig að liðið í 1. sæti mætir því í 8., 2, sætið leikur við 7. og svo framvegis. Í fyrstu umferð þarf að sigra í tveim- ur leikjum. Í undanúrslitunum leika sigurvegarar úr leik 1-8 við 4.-5. sætis leikinn og það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í úr- slit og þar er leikið þar til annað lið- ið hefur sigrað í þremur leikjum. Þannig verður framhaldið Á afar spennandi lokamínútumgat hvort lið gert út um leikinn en jafntefli varð niðurstaðan, 28:28. Þór jafnaði metin rétt fyrr leikslok og þá sauð upp úr. Framarinn Ingólfur Axelsson fékk rautt spjald og á leið sinni inn í búnings- klefa gerði hann sér lítið fyrir og veittist að leikmanni 3. flokks Þórs sem var að hita upp við áhorfenda- stæðin og bíða eftir að leiknum lyki. Við það varð allt vitlaust og menn hrúguðust að, jafnt leikmenn, starfsmenn og áhorfendur. Þegar búið var að greiða úr málum fékk einn úr hvoru liði rauða spjaldið fyr- ir þátt sinn í þeim stimpingum sem þarna urðu. Annars var leikurinn mjög sveiflukenndur og Framarar virtust gjörsamlega sofandi fyrstu tuttugu mínúturnar en þá smituðust Þórs- arar og glopruðu niður góðri forustu á örskotsstundu og gott betur. Stað- an var 15:17 í hálfleik og í síðari hálfleiknum virtust Framarar hafa leikinn í hendi sér. Þegar tíu mín- útur voru eftir tóku þó heimamenn loks við sér og komust yfir. Þeir fengu svo gullin færi til að gera út um leikinn en Egedius Petcevicius bjargaði Fram í þrígang með stór- brotinni markvörslu. Fram náði for- ystunni á ný en sem fyrr sagði voru það Þórsarar sem jöfnuðu leikinn en þá voru þrjár sekúndur eftir. Lík- lega verður jafnteflið að teljast nokkuð sanngjarnt en ljóst má vera að allir voru óánægðir með úrslit leiksins. „Já ég er mjög svekktur,“ sagði Axel Stefánsson, þjálfari Þórs, í leikslok. „Við hefðum helst þurft að sigra og það sem stærst en við köst- uðum þessu frá okkur með fárán- lega lélegum leikkafla í lok fyrri hálfleiks. Menn gerðu hverja vit- leysuna á fætur annarri í stað þess að halda bara áfram að keyra á vörnina þeirra. Eftir það var á brattann að sækja en ég er ánægður með karakterinn hjá strákunum. Við náðum að vinna upp fjögur mörk og áttum séns á að vinna. Það var kær- komið að sjá strákana sýna þann karakter sem skilaði okkur þessu eina stigi og það var mikilvægt. Guðjón Drengsson, leikmaður Fram, var jafnvel ennþá svekktari en Axel. Hann hafði þetta að segja í leikslok: „Við spiluðum bara alls ekki vel í dag og varnarleikurinn klikkaði alveg. Egidius var sá eini sem eitthvað gat og það má segja að hann hafi bjargað okkur í þessum leik. Mér fannst dómararnir alveg skelfilegir þótt það hafi ekki bitnað neitt sérstaklega á okkur. Ég hefði að vísu viljað fá víti í síðustu sókn- inni okkar þegar Þorri fór inn en þeir slepptu því og Þór náði að jafna. Þetta var bara ekta baráttu- leikur og nú eru þrír leikir eftir gegn Haukum, HK og FH. Þetta eru lið sem við getum hæglega unn- ið ef við mætum ekki eins og hálf- vitar til leiks líkt og við gerðum hér í dag,“ sagði Guðjón að lokum og rauk með félögum sínum í sturtu. Halldór með sigurmark úr vítakasti Leikmenn KA sýndu geysilega baráttu á lokakaflanum í leik gegn HK í Digranesi, þegar þeir náðu að tryggja sér dýrmætan sigur, 29:30. Útlitið var alls ekki gott fyrir Ak- ureyrarliðið, þar sem leikmenn HK voru með fimm marka forskot, 25:20. Þegar staðan var 28:26 fyrir HK skelltu leikmenn KA í lás um tíma og stjórnaði fyrirliðinn Jónatan Magnússon aðgerðum Akureyringa eins og herforingi. Hann kom KA yfir 28:29, en heimamenn jöfnuðu 29:29 og var leikurinn kominn að suðupunkti. Þegar aðeins þrjár sek. voru til leiksloka fiskaði Halldór Jó- hann Sigfússon vítakast fyrir KA og úr því skoraði hann sigurmarkið, 29:30. Halldór Jóhann skoraði átta mörk í leiknum. Slagsmál og læti í rimmu Þórs og Fram HANN var mikilvægur leikurinn sem fram fór á Akureyri í gær þegar Þór og Fram áttust við. Fyrir leikinn voru bæði lið með níu stig í fjórða og fimmta sæti norðurriðils og töluðu menn um að þetta væri hreinn úrslitaleikur um það hvort liðið myndi leika í efri deild Ís- landsmótsins og hvort þyrfti að leika í neðri deildinni eftir áramót. Leikur liðanna bar þess merki að mikið væri í húfi og komst hann aldrei á almennilegt flug enda voru mistök fjölmörg og bæði lið langt frá sínu besta. Einar Sigtryggsson skrifar Morgunblaðið/Kristján Axel Stefánsson, þjálfari Þórs, stjórnar sínum mönnum í leiknum gegn Fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.