Morgunblaðið - 29.11.2004, Page 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 2004 B 3
SIGFÚS Sigurðsson skoraði tvö
mörk fyrir Magdeburg sem sigraði
Gummersbach á heimavelli, 33:29, í
þýsku 1. deildinni í handknattleik
um helgina. Arnór Atlason var ekki
á meðal markaskorara hjá Magde-
burg.
EINAR Hólmgeirsson skoraði sjö
mörk fyrir Grosswallstadt og
Snorri Steinn Guðjónsson eitt í tapi
liðsins fyrir Wilhelmshavener á
heimavelli, 35:32. Gylfi Gylfason
skoraði eitt mark fyrir Wilhelms-
havener en Robertas Pauzuolis
komst ekki á blað.
JALIESKY Garcia skoraði tvö
mörk fyrir Göppingen sem sigraði
Pfullingen, 31:24, á útivelli.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson skor-
aði eitt mark fyrir Essen sem sigr-
aði HSG Düsseldorf, 26:21, í gær.
Markús Máni Michaelsson skoraði
þrjú mörk fyrir Düsseldorf en Al-
exander Petterson gat ekki leikið
vegna meiðsla.
RÓBERT Gunnarsson skoraði
fimm mörk fyrir Århus GF sem
tapaði fyrir Tvis Holstebro, 30:28, í
dönsku úrvalsdeildinni. Århus GF
og Kolding eru efst og jöfn í deild-
inni með 17 stig.
GÍSLI Kristjánsson skoraði tvö
mörk fyrir Fredericia þegar liðið
gerði jafntefli við GOG, 31:31.
Fredericia er í tólfa sæti af fjórtán
liðum með sex stig.
RAGNAR Óskarsson skoraði
fimm mörk fyrir Skjern og Jón
Þorbjörn Jóhannsson eitt þegar lið-
ið tapaði fyrir Bjerrinbro, 29:26.
Skjern, sem Aron Kristjánsson
þjálfar, er í fimmta sæti með 13
stig.
ÓLAFUR Stefánsson skoraði
fimm mörk, þar af þrjú úr vítaköst-
um, þegar lið hans, Ciudad Real,
tapaði fyrir Celje Lasko, 35:31, í
Meistarakeppni handknattleikssam-
bands Evrópu sem fram fór á Spáni
um helgina.
ÓLAFUR skoraði tvö mörk í gær
þegar Ciudad Real tryggði sér
þriðja sætið með sigri á Valladolid,
34:24.
CELJE Lasko frá Slóveníu varð
meistari meistaranna en liðið hafði
betur á móti Kiel í úrslitaleik, 30:29
DAGUR Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður austurríska liðsins Breg-
enz, skoraði eitt mark fyrir sína
menn sem töpuðu fyrsta leik sínum
á tímabilinu. Bregenz beið lægri
hlut fyrir Krems, 30:27. Þrátt fyrir
ósigurinn er Bregenz efst í deild-
inni með 21 stig, fjórum stigum
meira en Krems sem er í öðru sæti.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson og
Gunnar Berg Viktorsson voru í sig-
urliði Kronau/Östringen sem lagði
Kornwestheim, 36:28, í þýsku 2.
deildinni. Gunnar Berg komst ekki
á blað í liði Kronau sem er í öðru
sæti í suðurriðli með 22 stig, tveim-
ur stigum á eftir Melsungen.
FÓLK
ÍSLENDINGALIÐIÐ Lokeren tap-
aði fyrir Gent, 3:1, í belgísku 1.
deildinni í knattspyrnu um helgina.
Arnar Þór Viðarsson, Arnar
Grétarsson og Marel Baldvinsson
voru allir í byrjunarliði Lokeren en
Rúnar Kristinsson er frá vegna
meiðsla. Marel var skipt útaf á 60.
mínútu en Arnar Þór og nafni hans
Grétarsson léku allan leikinn. Arn-
ar Þór lék í stöðu vinstri bakvarðar
og fjarvera hans á miðsvæðinu dró
mjög úr vinnslunni á miðjunni.
Indriði Sigurðsson lék allan leik-
inn fyrir Genk sem lagði Oostende,
3:1, þar sem Genk skoraði tvö síð-
ustu mörkin á síðustu 8 mínútum
leiksins.
Lokeren lá
fyrir Gent
Dauft var yfir leiknum strax íbyrjun og mörkin komu flest
eftir einstaklingsframtak. Vals-
menn hertu á vörn-
inni eftir tíu mín-
útna leik, sem dugði
til að ná forystu en
þeir fylgdu því ekki
eftir. Engu að síður tókst þeim að
auka forskotið hægt og bítandi en
um miðjan síðari hálfleik rifu gest-
irnir sig upp úr doðanum, söxuðu
forskotið þar til munaði tveimur
mörkum. Þeir fengu síðan gullið
tækifæri til að bæta um betur
tveimur leikmönnum fleiri í hálfa
mínútu en þá skora Valsmenn og í
næstu sókn Gróttu/KR fór gott færi
forgörðum.
„Við unnum á góðri markvörslu
og vörn, sem þó var ekki neitt sér-
stök en þetta var ekki góður leikur
því hraðanum var algjörlega haldið
niðri,“ sagði Heimir Örn eftir leik-
inn en hann átti góðan leik þrátt
fyrir að vera ekki alveg heill heilsu,
frekar en nokkrir aðrir leikmenn
því Vilhjálmur Halldórsson, Ægir
Hrafn Jónsson og Baldvin Þor-
steinsson bættust á sjúkralistann.
„Við höfum spilað með nýtt lið í síð-
ustu leikjum,. Nú datt Vilhjálmur
út og við höfum stillt mikið upp fyr-
ir hann í leikjum okkar en við erum
nú öruggir með sæti í úrvalsdeild-
inni og náum að halda Gróttu/KR
niðri, því miður fyrir þá.“ Heimir
Örn fór mikið á reynslunni og Hjalti
Pálmason sá um að taka af skarið í
byrjun. Þar sem sjúkralisti Vals er
frekar langur þessa dagana fá ungir
drengir að spreyta sig. Það nýttu
Fannar Þór Friðgeirsson og Krist-
ján Þór Karlsson sér vel með góð-
um sprettum.
Daníel Berg Grétarsson fór á
kostum hjá Gróttu/KR en það dugði
ekki til. „Við vorum inni í leiknum
allan leikinn en það þurfti ekki
nema eitt mark til að koma okkur í
sömu stöðu á ný og þá förum við að
gera mistök í sókninni og fleira.
Vörnin var góð á köflum en ekki
alltaf sem gerir þá markvörsluna
erfiðari þó við séum með tvo frá-
bæra markverði. Stemmningin var
góð í liðinu fyrir leikinn og baráttan
til staðan en við náum okkur samt
ekki á strik og spiluðum allir undir
getu,“ sagði Daníel eftir leikinn og
telur útlitið frekar svart. „Staða
okkar í deildinni lítur mjög illa út
og við verðum að vinna ÍBV um
næstu helgi og síðan næstu lið til að
fá fjögur stig til viðbótar en líka
vona að Eyjamenn tapi sínum leikj-
um, það ætti að nægja.“ Kristinn
Björgúlfsson átti einnig góða
spretti og Kristján Þorsteinsson tók
rækilega við sér í síðari hálfleik.
Vonir Gróttu/KR dvína
VONIR Gróttu/KR um öruggt sæti í úrvalsdeildinni dvínuðu til muna
í gærkvöldi þegar liðið laut í lægra haldi í heimsókn hjá Val að Hlíð-
arenda, 26:21. Nú verður lið Gróttu/KR að treysta á að lið fyrir ofan
það tapi flestum sínum leikjum á meðan Grótta/KR vinni sína leiki.
Valsmenn sigla hinsvegar lygnan sjó með ÍR í efsta sæti suður-
riðilsins.
Stefán
Stefánsson
skrifar
THOMAS Hitzlsperger vill leik
með þýska landsliðinu á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu
sem fer fram í föðurlandi hans
eftir tæp tvö ár.
Til þess segist hann verða að
eiga öruggt sæti í byrjunarliði
hjá einhverju félagi en því er
ekki að heilsa um þessar mund-
ir þar sem hann dvelur hjá
Aston Villa. Hitzlsperger hefur
sett allar viðræður um fram-
lengingu á samningi við félagið
í salt, en útilokar ekki að þráð-
urinn verði tekinn upp á ný tak-
ist honum að komast í byrj-
unarliðið á nýjan leik.
„Þetta er tækifæri sem maður
fær bara einu sinni á lífsleið-
inni, það er að taka þátt í
heimsmeistaramóti í föðurland-
inu, og því tækifæri vil ég ekki
missa af,“ segir Hitzlsperger.
„Til þess að svo megi verða
þá verð ég að eiga sæti í byrj-
unarliði í ensku úrvalsdeildinni
eða annars staðar þar sem leik-
in er góð knattspyrna,“ segir
Hitzlsperger sem telur það samt
vera neyðarúrræði að fara til
Hamburger SV en vitað er að
forráðamenn liðsins hafa auga-
stað á þessum fyrrverandi leik-
manni Bayern München.
„Ég verð að halda áfram að
þróast og þroskast sem leik-
maður til þess að eiga mögu-
leika á að komast í þýska lands-
liðið. Það geri ég eingöngu með
því að leika sem mest með
sterku liði gegn góðum mót-
herjum.“
Hitzlsperger vill leika á HM
Morgunblaðið/Kristján
Heimir Ríkharðsson, þjálfari Framara, ræðir við sína menn í leiknum gegn Þór í Íþróttahöllinni á Akureyri.
BRYNJAR Björn Gunnarsson
skoraði þriðja mark sitt á leiktíð-
inni þegar Watford tapaði fyrir
West Ham, 3:2, á Upton Park,
heimavelli West Ham. Brynjar
varð síðan að yfirgefa völlinn á
41. mínútu vegna meiðsla.
Brynjar Björn skoraði fyrsta
mark leiksins á 5. mínútu með
góðu skoti frá vítateigslínu.
Bruce Dyer bætti öðru marki við
fyrir Watford á 21. mínútu. West
Ham tókst að jafna fyrir leikhlé
og það var síðan Úkraínumað-
urinn Sergie Rebrov, fyrrverandi
leikmaður Tottenham, sem
tryggði West Ham öll stigin þeg-
ar hann skoraði sigurmarkið á
58. mínútu. Heiðar Helguson var
nálægt því að jafna metin undir
lokin en skalli hans eftir horn-
spyrnu fór í slá. „Það tóku sig
upp meiðsli í nára. Ég hef senni-
lega tognað og það var ekkert
annað fyrir mig að gera en biðja
um skiptingu,“ sagði Brynjar
Björn við Morgunblaðið í gær en
hann hefur leikið sérlega vel á
miðjunni hjá Watford í vetur.
Brynjar var frá í tvær vikur
fyrir skömmu vegna nárameiðsla
og hann segir að það komi í ljós
við skoðun í dag hvað hann þurfi
að hvílast lengi.
„Við áttum ekki annað skilið en
að tapa. Við spiluðum frekar illa
en auðvitað var fúlt að tapa eftir
þessa góðu byrjun,“ sagði Brynj-
ar Björn sem missir nær örugg-
lega af leik sinna manna á móti
Portsmouth í 8-liða úrslitum
deildabikarsins annað kvöld.
Brynjar Björn skoraði og tognaði
Brynjar Björn Gunnarsson