Morgunblaðið - 29.11.2004, Page 8
ANDY Johnson, framherji
Crystal Palace, hefur áhuga
á því að leika fyrir enska
landsliðið en Johnson er með
aðra möguleika í stöðunni.
Afi hans í móðurætt er
pólskur og hefur hann því
möguleika á því að leika fyr-
ir pólska landsliðið ef svo
bæri undir. „Ég hef reyndar
ekkert hugsað út í það. Ég er
auðvitað stoltur af því að
eiga ættir að rekja til Pól-
lands en ég er einnig stoltur
Englendingur. En ég hef
ekki verið valinn í enska – né
pólska – landsliðið þannig að
ég bíð rólegur eftir símtali.
Ef ég fengi símtal frá pólska
knattspyrnusambandinu þá
myndi ég hugsa alvarlega
um þann möguleika.“
Johnson í
pólska
landsliðið?
FORSVARSMENN enska knatt-
spyrnuliðsins Burnley hafa selt æf-
ingasvæði og keppnisvöll liðsins fyr-
ir rúmlega 370 millj. kr. og er
ætlunin að grynnka á skuldum liðs-
ins. Stjórnarformaður félagsins,
Barry Kilby, seldi eignarhaldsfélag-
inu Turf Moor & Gawthorpe eign-
irnar en félagið hefur gert kaup-
leigusamning um afnot á
mannvirkjunum til 99 ára.
„Harry Redknapp hætti störfum
sem knattspyrnustjóri hjá Ports-
mouth af þeirri ástæðu að stjórnar-
formaðurinn réð Velimir Zajec sem
tæknilegan ráðgjafa, segir Jim
Smith fyrrum aðstoðarmaður Red-
knapp í útvarpsviðtali
REDKNAPP hætti störfum sl.
föstudag og sagði hann á þeirri
stundu að ástæðan væri sú að hann
þyrfti að komast frá þessu starfi og
hvíla sig á knattspyrnunni. En Smith
segir við Radio Five að stjórnarfor-
maðurinn hafi deilt oft við Redknapp
um kaup á leikmönnum og hafi viljað
ráða meiru en Redknapp gat sætt
sig við. „Það fyllti mælinn að Zajec
var ráðinn. Hann vildi ekki starfa í
sápuóperu og taldi bestu lausnina að
hætta,“ sagði Smith.
LEBRON James varð um helgina
yngsti leikmaðurinn í sögu NBA-
deildarinnar í körfuknattleik sem
nær því að skora 2.000 stig. Hann
skoraði 26 stig í 96:74 sigri Cleve-
land gegn Chicago. James er aðeins
19 ára og hefur skorað 27,7 stig að
meðaltali það sem af er leiktíðar og
er annar í röðinni á þessu sviði
íþróttarinnar í NBA.
FINNSKI skíðastökkvarinn Janne
Ahonen sigraði á heimsbikarmóti
sem fram fór í Þrándheimi í Noregi
um helgina. Thomas Morgenstern
frá Austurríki varð annar og Tékk-
inn Jakub Janda þriðji. Fresta þurfti
keppni á föstudag í Þrándheimi
vegna veðurs.
THOMAS Strunz var á föstudag
ráðinn sem framkvæmdastjóri
Wolfsburg sem leikur í efstu deild í
þýsku knattspyrnunni. Hann er 36
ára og hefur störf 1. janúar nk. en við
hann var gerður þriggja ára samn-
ingur. Strunz lék síðast með Bayern
München en hætti að leika árið 2001.
BANDARÍKJAMAÐURINN Bode
Miller sigraði í fyrsta brunmóti vetr-
arins á heimsbikarmóti sem fram fór
í Lake Louise í Kanada á laugardag.
Hann var tæpri sekúndu á undan
Frakkanum Antoine Deneriaz.
FÓLK
„VIÐ lögðum upp með að spila
grimman varnarleik og hrað-
an sóknarleik, það tókst í síð-
ari hálfleik,“ sagði Sverrir
Sverrisson, þjálfari Keflavík-
ur. „Í fyrri hálfleik tókst þeim
að halda hraðanum niðri, og
þá var vörnin slök hjá okkur.
Við breyttum varnaráherslum
okkar í síðari hálfleik og þá
tókst okkur að halda Öldu Leif
niðri sem er þeirra hættuleg-
asti leikmaður. Hugarfarið
var annað hjá okkur í síðari
hálfleik og við keyrðum upp
hraðann enda með marga
áræðna leikmenn sem vilja
keyra upp að körfunni. Við
ætlum okkur að vinna allt sem
í boði er og næsta verkefni er
að mæta ÍS á miðvikudag í
deildinni. Þá þurfum við að
vera komin niður á jörðina aft-
ur.“
Birna Valgarðsdóttir fyr-
irliði Keflavíkur tók í sama
streng: „Þegar vörnin small
hjá okkur þá náðum við tökum
á leiknum. Við vissum að þetta
yrði hörkuleikur og þær voru
mjög ákveðnar. Í hálfleik
hristum við okkur saman og í
kjölfarið náðum við að loka
vörninni. Við erum með
breiðari hóp en þær og okkur
tókst að nýta breiddina vel í
dag. Þegar við spilum okkar
leik þá getur ekkert lið í deild-
inni stoppað okkur. Við ætlum
að vinna alla titlana í vetur og
þetta var bara fyrsta skrefið,“
sagði Birna.
Unndór Sigurðsson þjálfari
ÍS var nokkuð sáttur við leik
liðsins: „Við spiluðum mjög vel
í dag ef frá er talinn þriðji
leikhluti. Vörnin var góð og
það er smá svekkelsi að hafa
misst þetta út úr höndunum,“
sagði Unndór.
„Tókst að
stöðva Öldu“
Leikurinn fór fram á SantiagoBernabeu heimavelli Real
Madrid og tapaði England 1:0, í leik
sem verður minnst fyrir kynþátta-
fordóma spænskra áhorfenda í garð
enskra landsliðsmanna.
AFP-fréttastofan segir að Eriks-
son hafi lítið getað gert í vali sínu þar
sem FA hafi gert samninga fyrir um
38 milljarða kr.
Eriksson vildi láta leikmenn á
borð við Shaun Wright-Phillips
spreyta sig gegn Spánverjum en
samningsákvæði hafi ekki getað
leyft honum að setja David Beckham
eða aðra þekkta leikmenn liðsins út
úr liðinu.
Enska landsliðið þótti standa sig
afar illa í leiknum og sagði Eriksson
við Sunday Times eftir leikinn að
þetta væri allt saman spurning um
peninga.
„Vináttuleikur okkar gegn Úkra-
ínu í ágúst var mikilvægur undirbún-
ingur fyrir tvo leiki í undankeppni
heimsmeistaramótsins í september.
Gegn Austurríki og Póllandi. Vin-
áttuleikurinn gegn Hollendingum í
febrúar var mikilvægur fyrir leikinn
gegn N-Írum og Aserum.
Það er mun erfiðara að sjá tilgang-
inn í því að spila vináttuleik í nóv-
ember,“ sagði Eriksson en hann hef-
ur ekki viljað fara „dýpra“ í málið.
Hann er sagður hafa spurt stjórn-
armann FA um hve langt hann gæti
farið með liðið undir þessum for-
merkjum.
Eriksson vildi nota Stewart
Downing sem leikur sem vinstri
vængmaður hjá Middlesbrough
„Ég gat ekki gefið Wright-Phillips
og Downing tækifæri. Við erum með
sjónvarpssamning og þetta snýst allt
saman um peninga.“
Ræður Sven Göran
Eriksson ekki valinu?
SAMKVÆMT heimildum AFP-fréttastofunnar varð Sven Göran Er-
iksson landsliðsþjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu að nota
„þekktustu“ leikmenn liðsins í vináttuleik gegn Spánverjum á dög-
unum, en um slíkt hafi verið samið í sjónvarpssamningi sem enska
knattspyrnusambandið gerði við BSkyB og BBC.
skoti en Keflavíkurstúlkur tóku við
sér á lokmínútum hálfleiksins, er
þær náðu nokkrum góðum körfum
eftir hraðaupphlaup. Þeim tókst því
að snúa stöðunni sér í vil á ný og í
hálfleik var staðan 39:37 fyrir Kefla-
vík. Útlit var því fyrir spennandi leik
eftir fyrri hálfleik en í þriðja leik-
hluta tók leikurinn allt aðra stefnu.
Íslandsmeistararnir gripu til þess
ráðs að setja leikmann til höfuðs
Öldu Leif Jónsdóttur sem hafði átt
frábæra spretti gegn svæðisvörn
Keflavíkur. Keflvíkingum tókst ætl-
unarverk sitt og Alda datt út úr
leiknum með hörmulegum afleiðing-
um fyrir ÍS. Í þriðja leikhluta skor-
uðu þær einungis sex stig og staðan
orðin 56:43 fyrir Keflavík fyrir síð-
asta leikhluta. Í byrjun hans voru
Keflavíkurstúlkur nokkuð værukær-
ar og Stúdínur sýndu klærnar á ný.
Þeim tókst að minnka muninn niður í
fimm stig með góðum leikkafla þar
sem mörg skot utan af velli rötuðu
rétta leið. En Keflvíkingum tókst að
landa sigrinum á nokkuð sannfær-
andi hátt, þar sem bandaríski leik-
maðurinn Reshea Bristol tók loks við
sér eftir að hafa átt heldur dapran
leik.
Þegar uppi var staðið hafði reynsl-
an líklega mikið að segja auk þess
sem Keflavíkurliðið hefur breiðari
hóp. Flestir lykilmenn skiluðu sínu
hjá Keflavík og engin ein sem stóð
upp úr. Anna María Sveinsdóttir og
Birna Valgarðsdóttir skila ávallt
Leikmenn Keflavíkur höfðu frum-kvæðið í fyrsta leikhluta en leik-
menn ÍS voru aldrei langt undan.
Sóknarleikur liðanna var fremur
stirður til að byrja
með og nokkuð bar á
stressi og óöryggi
sem ekki er óalgengt
í leik sem þessum.
Einungis tvö stig skyldu liðin að eftir
fyrsta leikhluta 21:19 og fljótlega
komust Stúdínur yfir í öðrum leik-
hluta. Þær náðu mest sex stiga for-
sínu, en einnig voru María Ben Er-
lingsdóttir og Rannveig Randvers-
dóttir sterkar í síðari hálfleik. Hjá ÍS
var Signý Hermannsdóttir best en
hún var sú eina sem hafði erindi sem
erfiði nálægt körfu Keflvíkinga. Auk
þess átti hún mjög góðan leik í vörn-
inni hjá ÍS sem virkaði vel í fyrri
hálfleik. Eins og áður segir var Alda
Leif mjög öflug í fyrri hálfleik en var
klippt út úr leiknum í þeim síðari og
ÍS liðið má illa við því. Í fjórða leik-
hluta náðu Stella Rún Kristjánsdótt-
ir og Guðrún Baldursdóttir að halda
uppi merkinu. ÍS-liðið lék vel í þrem-
ur leikhlutum af fjórum en banabiti
þeirra var leikur liðsins í þriðja leik-
hluta. Sex stig skoruð á tíu mínútum
er hálfgert sjálfsmorð þegar um úr-
slitaleik er að ræða.
Morgunblaðið/Golli
Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði Keflavíkurliðsins, kyssir bikarinn.
ÍSLANDSMEISTARAR Keflavíkur sigruðu þriðja árið í röð í Hópbíla-
bikarkeppni kvenna í körfuknattleik er þær lögðu ÍS að velli í DHL-
höllinni í Frostaskjóli á laugardag, 76:65. Jafnræði var með lið-
unum í fyrri hálfleik en í þriðja leikhluta lagði Keflavík grunninn að
sigri sínum er þær náðu þrettán stiga forskoti.
Kristján
Jónsson
skrifar
Enn einn
bikar í safnið
hjá Keflavík