Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 1
2004 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ORRUSTAN UM ENGLAND Á HIGHBURY / C2, C3
JESPER Holmris, þjálfari danska handknatt-
leiksliðsins SK Århus, reiknar fastlega með að
bjóða Drífu Skúladóttur, landsliðskonu í hand-
knattleik, samning hjá félaginu. Hún hefur
undanfarna daga verið við æfingar hjá hjá Ár-
ósarfélaginu en með því leikur Hrafnhildur
systir hennar. Drífa var í Þýskalandi í haust en
ákvað að róa á önnur mið fyrir skömmu þar
sem henni líkaði ekki dvölin í Berlín.
„Drífa hefur mikla hæfileika og verst er að
hún skuli ekki hafa komið til okkar fyrr til þess
að móta þessa hæfileika,“ segir Holmris m.a. í
samtali við Århus Stiftstidende.
Drífa lék vel með liðinu í æfingaleik í fyrra-
kvöld og má reikna með að hún leiki með SK
Århus fram á vor en það er í harðri baráttu við
að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik.
„Drífa hefur
mikla hæfileika“
Ólafur heldur jól á Íslandi í
fyrsta sinn í átta ár en ekkert er
leikið á milli jóla og nýárs á Spáni
og segist Ólafur koma heim á Þor-
láksmessu. Síðan taka við æfingar
með landsliðinu fyrir HM í byrjun
janúar. Ólafur ákvað að endurskoða
afstöðu sína og gefa kost á sér á
HM en eftir að þátttöku Íslendinga
lauk á Ólympíuleikunum í Aþenu í
sumar ýjaði hann að því í samtali
við Morgunblaðið að taka sér frí frá
keppninni.
„Það eru eiginlega tvær ástæður
fyrir því að ég ætla að vera með í
Þessi eyrnabólga er búin að veraangra mig í tvær vikur og úr
varð að ég fékk frí í leiknum á móti
Granollers. Ég fékk fúkkalyf og er
orðinn góður en ætli það sé ekki
kuldanum í íþróttahöllinni að kenna
að ég fékk í eyrun,“ sagði Ólafur
sem sagðist ætla að æfa með húfu á
höfðinu fram að leiknum við GOG.
Ólafur og félagar eru svo gott
sem öruggir í 8-liða úrslit Meist-
aradeildarinnar en Ciudad Real
sigraði GOG í Danmörku um síð-
ustu helgi með 16 marka mun,
45:29.
Túnis. Önnur er sú að ég sleppti
heimsbikarmótinu í Svíþjóð og það
var gott fyrir landsliðið að pússa sig
saman þar án mín og þá fékk ég tíu
daga frí eftir Ólympíuleikana þar
sem ég náði að hreinsa hugann
gjörsamlega. Ég er því vel upplagð-
ur fyrir heimsmeistaramótið og
hlakka bara til.“
Ciudad Real, sem á titil að verja,
er í fjórða sæti spænsku 1. deild-
arinnar, þremur stigum á eftir
Portland San Antonio. Ólafur og fé-
lagar geta lyft bikar um næstu
helgi en þá leika fjögur lið til úrslita
í bikarkeppninni, gestgjafarnir í
Almeria, Ciudad Real, Barcelona
og Portland San Antonio. Ciudad
mætir Alemeria í undanúrslitunum
og í hinni viðureigninni eigast við
Barcelona og Portland. Sigurliðin
mætast síðan í úrslitaleik.
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Stefánsson í leik gegn Slóveníu á Ólympíuleikunum í Aþenu.
Ólafur segist vel
upplagður fyrir HM
ÓLAFUR Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik, er klár í slag-
inn með spænska liðinu Ciudad Real í dag sem tekur á móti GOG frá
Danmörku í síðari viðureign liðanna í 16 liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í handknattleik. Ólafur missti af leik sinna manna á
móti Grannollers í vikunni vegna eyrnabólgu en í samtali við Morg-
unblaðið í gær sagðist hann á góðum batavegi.
ÓLAFUR Stefánsson,
landsliðsmaður í hand-
knattleik, leikmaður
Ciudad Real á Spáni, er
einn þeirra sjö hand-
knattleiksmanna sem til
álita koma þegar Al-
þjóðahandknattleiks-
sambandið, IHF, útnefn-
ir handknattleiksmann
ársins 2004 í samvinnu
við tímaritið World
Handball Magazin. Ólaf-
ur var einnig tilnefndur
í fyrra en þá varð Kró-
atinn Ivano Balic fyrir
valinu.
Valið stendur á milli
eftirtalinna leikmanna:
Ólafur Stefánsson, Juan
Garcia, Spáni, Carlos
Perez, Ungverjalandi,
Christian Schwarzer og
Henning Fritz frá
Þýskalandi, Mirza
Dzomba og Ivano Balic,
báðir frá Króatíu.
Hægt er að taka þátt í
kjörinu með því að fara
inn á heimasíðu IHF,
www.ihf.info, eða senda
tölvupóst á ihf.office-
@ihf.info og raða upp
lista með nöfnum
þriggja leikmanna.
Ólafur
tilnefndur
hjá IHFÍSLANDS- og bikarmeistaralið
Keflavíkur í köruknattleik karla
leikur gegn svissneska liðinu Fri-
bourg í milliriðli bikarkeppni
Evrópu en ekki tékkneska liðinu
Mlekarna eins og kom fram í
Morgunblaðinu í gær.
Forráðamenn Keflavíkur fengu
nýjar upplýsingar í gær þar sem í
ljós kom að liðunum úr mið- og
vesturdeild keppninnar var raðað
upp með öðrum hætti, en tekið var
mið af stigafjölda og stigaskori.
Þar með gat lið í 3. sæti úr einum
riðli endað ofar en lið sem varð í 2.
sæti í öðrum riðli. Að auki verður
aðeins um tvær viðureignir í milli-
riðlinum að ræða en það er breyt-
ing frá því sem var í fyrra er lið
þurftu að vinna tvo leiki til þess að
komast í undanúrslit. Keflavík
mætir því svissneska liðinu fyrst á
útivelli og gilda samanlögð úrslit
úr báðum leikjunum. Keflavík telst
vera í 4. sæti samkvæmt þessari
uppröðun en Fribourg í 5. sæti.
Fyrri leikurinn fer fram 13. jan-
úar í Sviss og seinni leikurinn 20.
janúar í Keflavík.
Benetton Fribourg er í Sviss,
skammt sunnan við höfuðborgina
Bern. Liðinu hefur ekki gengið vel
að undanförnu í deildinni og er í 9.
sæti eftir góða byrjun með 10 stig
eftir 10 leiki.
Keflvíkingar
til Sviss
EMIL Hallfreðsson verður, ef allt
gengur að óskum, orðinn leik-
maður enska úrvalsdeildarliðsins
Tottenham Hotspur frá og með
áramótum. Samningar eru á loka-
stigi milli FH og Tottenham og
mun fulltrúi frá FH-ingum halda
utan til Lundúna í dag til við-
ræðna við forráðamenn Totten-
ham og líklegt er að gengið verði
frá samningi milli félaganna á
morgun.
Emil, sem útnefndur var efni-
legasti leikmaður Íslandsmótsins
á lokahófi KSÍ í haust, mun gera
tveggja og hálfs árs samning við
Tottenham með möguleika á
framlengingu á samningnum um
eitt ár en Emil hefur á undan-
förnum vikum farið í tvær heim-
sóknir til Tottenham þar sem
hann hefur verið til skoðunar hjá
forráðamönnum liðsins sem hrif-
ust af hæfileikum hans.
„Ég vona innilega að þetta
klárist á milli FH og Tottenham
um helgina. Samningur minn við
liðið er nánast klár og mér líst
rosalega vel á að fara til liðsins.
Aðstæður eru frábærar og auðvit-
að heillar það mig að komast til
liðs á Englandi þar sem mekka
fótboltans í heiminum er,“ sagði
Emil við Morgunblaðið í gær. Ef
allt fer sem horfir verður Emil
annar Íslendingurinn sem gengur
til liðs við Tottenham. Guðni
Bergsson hóf glæsilegan atvinnu-
mannsferil sinn hjá Lundúnalið-
inu 1988.
Samningar FH
og Tottenham um
Emil á lokastigi