Morgunblaðið - 11.12.2004, Page 2

Morgunblaðið - 11.12.2004, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 C LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR ÍR - Grótta/KR 27:29 Austurberg, Íslandsmót karla, DHL-deild- in, suðurriðill, föstudagur 10. des. 2004. Gangur leiksins: 2:0, 4:1, 5:5, 9:10, 13:15, 14:15, 19:17, 23:21, 26:26, 27:29. Mörk ÍR: Fannar Þorbjörnsson 6, Bjarni Fritzon 5, Hannes Jón Jónsson 5/5, Tryggvi Haraldsson 4, Ólafur Sigurjónsson 3, Ingimundur Ingimundarson 3, Hafsteinn Ingason 1. Varin skot: Ólafur Gíslason 17/2 (þar af 9 aftur til mótherja). Utan vallar: 16 mínútur (þar af Finnur Jó- hannsson liðsstjóri rautt spjald). Mörk Gróttu/KR: Kristinn Björgúlfsson 8/3, Daníel Berg Grétarsson 6/3, Brynjar Hreinsson 5, Hörður Gylfason 4, Daði Haf- þórsson 3, David Kekelia 3. Varin skot: Gísli Guðmundsson 8 (þar af 5 aftur til mótherja), Hlynur Morthens 6 (þar af 1 aftur til mótherja). Utan vallar: 14 mínútur. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Áhorfendur: Tæplega 100. ÍBV - Valur 24:23 Vestmannaeyjar: Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 5:2, 6:6, 8:10, 10:12, 10:14, 11:15, 13:17, 15:19, 19:19, 20:22, 22:23, 24:23. Mörk ÍBV: Tite Kalendanze 8, Robert Bognar 7, Samúel Í. Árnason 6/2, Davíð Þ. Óskarsson 2/2, Sigurður A. Stefánsson 1. Varin skot: Roland Eradze 29/1 þar af 5 aftur til mótherja. Brottvísanir: 10 mín. Mörk Vals: Vilhjálmur I. Halldórsson 6, Heimir Ö. Árnason 6/2, Hjalti Þ. Pálmason 3, Brendan Þorvaldsson 3, Pavel Pokcovic 2, Fannar Þ. Friðgeirsson 2, Atli R. Stein- þórsson 1. Varin skot: Hlynur Jóhannesson 21/2 þar af 1 aftur til mótherja. Brottvísanir: 12. mínútur. Rautt spjald: Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari. Áhorfendur: 250 Selfoss - Víkingur 23:24 Mörk Selfoss: Ramunas Kalendauskas 8, Ívar Grétarsson 5, Ramunas Mikalonis 4, Atli Kristinsson 2, Jón Þór Þorvarðarson 2, Gylfi Már Ágústsson 1, Jón E. Pétursson 1. Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 5, Andri Berg Haraldsson 5, Andri Númason 4, Árni Björn Þórarinsson 4, Þröstur Helgason 3, Brjánn Bjarnason 2, Jóhann Gunnar 1. ÍR 11 9 0 2 351:307 18 Valur 11 8 0 3 301:264 16 ÍBV 12 7 1 4 339:304 15 Víkingur R. 11 7 0 4 363:327 14 Grótta/KR 11 5 0 6 265:268 10 Stjarnan 11 1 1 9 258:341 3 Selfoss 11 1 0 10 298:337 2 Þýskaland Wallau-Massenheim - Minden .............30:25  Einar Örn Jónsson skoraði fimm mörk fyrir Wallau. KÖRFUKNATTLEIKUR UMFG - ÍR 66:103 Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport- deildin, föstudagur 10. desember 2004: Gangur leiksins: 6:7, 14:21, 18:30, 30:35, 39:44, 47:55, 53:59, 55:71, 57:73, 61:84, 63:99, 66:103. Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 17, Páll Axel Vilbergsson 13, Terrel Taylor 12, Guð- laugur Eyjólfsson 8, Morten Shmidowin 6, Davíð Hermannsson 4, Kristinn Friðriks- son 4, Jóhann Ólafsson 2. Stig ÍR: Grant Davis 31, Theo Dixon 27, Ómar Sævarsson 16, Gunnlaugur Erlends- son 11, Eiríkur Önundarson 9, Ólafur Sig- urðsson 7, Fannar Helgason 2. Áhorfendur: Um 150. HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: Íslandsmót karla, DHL-deildin, norður: Digranes: HK - Fram............................16.15 Ásvellir: Haukar - Þór A.......................16.15 Kaplakriki: FH - Aftureldingt .............16.15 Sunnudagur: 1. deild kvenna, DHL-deildin: Ásgarður: Stjarnan - Haukar....................14 Kaplakriki: FH - Fram ..............................17 Hlíðarendi: Valur - Grótta/KR..................14 Víkin: Víkingur - ÍBV.................................13 KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: 1. deild karla: Ásgarður: Stjarnan - Höttur .....................16 Smárinn: Breiðablik - Þór A......................16 Sunnudagur: Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 16-liða úr- slit karla: Ísafjörður: KFÍ - UMFG...........................18 Keflavík: Keflavík - Haukar .................19.15 Njarðvík: Ljónin - Skallagrímur..........16.30 Selfoss: Hamar/Selfoss - Tindastóll ....19.15 1. deild karla: Hlíðarendi: Valur - Þór A. .........................16 Akranes: ÍA - Höttur .................................13 Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 16-liða úr- slit kvenna: Keflavík: Keflavík B - Keflavík .................14 UM HELGINA C helsea hefur ekki sótt gull í greipar Arsenal á undanförnum ár- um, altént ekki í úr- valsdeildinni. Hinir bláklæddu báru síð- ast sigurorð af grönnum sínum á þeim vettvangi fyrir meira en níu ár- um – í september 1995. Síðan hafa liðin leikið sautján deildarleiki. Ars- enal hefur unnið tíu og sjö sinnum hafa bræður bylt sér. Chelsea vann hins vegar síðasta leik liðanna, í fjórðungsúrslitum meistaradeildar- innar, með dramatískum hætti á Highbury í apríl á þessu ári. Þar með töldu margir að ísinn væri brot- inn. Chelsea sækir líka fádæma vel að Arsenal á morgun. Gengi meist- aranna hefur verið í besta falli skrykkjótt á liðnum vikum, þeir hafa aðeins unnið tvo af síðustu sjö leikj- um í úrvalsdeildinni. Eins er leiðtogi þeirra, Patrick Vieira, í leikbanni. Hafi Arsenal einhvern tíma legið vel við höggi, þá er það nú. Maður augnabliksins í ensku knattspyrnunni er hinn nýi knatt- spyrnustjóri Chelsea, José Mour- inho. Þessi skeleggi Portúgali er um margt forvitnilegur náungi. Hann er hvorki kominn til Englands til að borða lifrarkássu og jórvískan búð- ing né horfa á Rómeó og Júlíu á West End. Markmið hans er skýrt: Hann ætlar að vinna ensku úrvals- deildina. Ekki „innan þriggja eða fimm ára“ eins og oft er sagt þegar menn taka við stjórnvelinum á stóru togskipi, heldur strax í vor. Kannski hefur kappinn ekki einu sinni þol- inmæði til að bíða svo lengi. Helst vill hann örugglega ljúka þessu af fyrir páska. Og hver veit nema leik- menn Chelsea láti það eftir honum? Þá fyrst býður skipperinn þeim kannski í búðing og að sjá hinn spartverska Shakespeare ofan af Ís- landi. Þrítugur hamar Í vissum skilningi stendur Mour- inho andspænis þrítugum hamri. Í 116 ára sögu ensku deildarkeppn- innar hefur aðeins einn útlendingur leitt lið til sigurs í efstu deild, Arsène Wenger, hinn franski knattspyrnu- stjóri Arsenal. Þrívegis hefur hann klifið hamarinn. Fyrst þegar á öðru ári í starfi, veturinn 1997-98. Um- talsvert afrek. Það yrði þó meira afrek hjá Mour- inho að landa titlinum strax í fyrstu atrennu en til frekari samanburðar má nefna að það tók sir Alex Fergu- son sjö ár að gera Manchester Unit- ed að meisturum. Annars er Mourinho nú þeirrar gerðar að hann kærir sig eflaust kollóttan um tölfræði. Hann er fæddur til að brjóta blað. Það sýndi hann með sigrinum í meistaradeild Evrópu síðastliðið vor. Það að leiða kotbændurna í Porto til æðstu met- orða í evrópskri knattspyrnu er auð- vitað hreystiverk. Hvað gerir Mour- inho við breskan burgeis eins og Chelsea? Portomönnum sveið brotthvarf hans en aðrir höfðu skilning á þeirri ákvörðun? Það var útilokað að ná lengra með liðið. Áskorunin var á enda. Inn á sviðið steig aurabóndinn Roman Abramovitsj. Og hjá Chelsea mætti útherj hefur hvílíku stand hraða tækni getur tugur hann e Rob leik C á sér hann frekar fumle Sumir óþægi það v áratug Við flóðgá reima færri þó ekk stæðin Damie sen, meira Terry fyrst land á kunnuglegum slóðum – í Portúgal. Þaðan tók hann með sér varnarmennina Paulo Ferreira og Ricardo Carvalho og miðjumanninn Tiago Mendes. Allir hafa þeir smoll- ið inn í lið Chelsea, ekki síst varn- armennirnir, en varnarleikur Chelsea hefur verið til eftirbreytni það sem af er vetri. Á leiðinni upp til Englands kom Mourinho svo við í Frakklandi og tók með sér sóknar- séníið Didier Drogba. Fílabeins- strending sem fann þegar í stað taktinn á Brúnni og er nú að hrökkva aftur í gang eftir meiðsli. Tékkneski markvörðurinn Peter Cech var einnig keyptur til Chelsea á liðnu sumri og hefur sýnt og sann- að í fyrstu leikjum mótsins að hann er í hópi bestu manna í sínu fagi í Evrópu – ef ekki bestur. Cech hefur aðeins þurft að hirða tuðruna sex sinnum úr netinu í sextán leikjum. Hollenska viðundrið Með fullri virðingu fyrir þessum mönnum gerði Ranieri þó bestu kaupin, það viðurkennir Mourinho fúslega – hollenska viðundrið Arjen Robben. Mikið hefur legið vel á al- enska deildabikarinn og meira að segja Evrópubikar félagsliða. Chelsea var á allra vörum. Þótt titlar yrðu Claudio Ranieri torsóttari má með sanngirni segja að hann hafi skilað félaginu skrefinu lengra. Á liðinni leiktíð gerði Chelsea sína fyrstu alvöru atlögu að enska úrvalsdeildartitlinum, þó liðið ætti ekki svar við ævintýralegu gengi Arsenal. Chelsea kom hins vegar fram hefndum í meistara- deildinni, þar sem félagið lagði téð Arsenal í átta liða úrslitum. Enda þótt rófan gengi ekki í undanúrslit- unum má fullyrða að tímabilið 2003- 2004 sé eitt það besta frá upphafi vega á Brúnni. Þetta er í réttu hlutfalli við fjár- magnið sem streymt hefur inn í fé- lagið í eignarhaldstíð Abramovitsj. Öðru eins fé hefur hvorki fyrr né síð- ar verið varið til leikmannakaupa á Englandi. Vel á annað hundrað millj- ónir sterlingspunda voru skrifaðar út af heftinu á síðasta tímabili og ekki hefur eigandinn látið sitt eftir liggja á síðustu mánuðum. Auður Abramovitsj er yfirþyrmandi. Mourinho fékk frítt spil og nam tekur Mourinho svo sem ekki við aumu búi. Smjer drýpur af hverju strái. Maðurinn er með dýrasta lið Englandssögunnar í höndunum. Í því ljósi er markmið hans ekki ann- arlegt. Chelsea vann eina meistaratitil sinn fyrir bráðum hálfri öld, 1955. Fimmtíu ár verða með öðrum orðum liðin frá þeim viðburði í vor. Sagan er þar heldur ekki með Mourinho. Svo skemmtilega vill líka til að á næsta ári verður félagið hundrað ára, þannig að hinn langþráði meist- aratitill gæti ekki komið á betri tíma. Lífblástur Bates Þegar Ken Bates keypti Chelsea sem frægt er á eitt sterlingspund fyrir rúmum tuttugu árum var risið lágt á félaginu. Síður en svo var sjálfgefið að það ætti erindi í hóp hinna bestu. Allt tal um titla var fjar- lægur draumur. Bates blés hins veg- ar heilmiklu lífi í félagið og með komu Glenns Hoddle og síðar Ruuds Gullit og Gianluca Vialli gekk í garð betri tíð með blóm í haga. Félagið fór að vinna bikara af ýmsu tagi, bikar enska knattspyrnusambandsins, Arsène Wenger, knattspyrnustjóri A „A Reuters Helsta vopn Chelsea, hollenska undrið Arjen Robben. Fótmennt handa fagurkerum Gert er ráð fyrir leiftrandi limaburði á Highbury í Lundúnum á morgun þegar meistarar Arsenal taka á móti áskorendum sínum, Chelsea, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Orri Páll Orm- arsson lítur á liðin sem hafa nokkra af fremstu sparkendum samtímans í sínum röðum. ÚRSLIT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.